Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1995, Blaðsíða 15
14
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1995
íþróttir___________________
Van Almsick
byrjaði vel
Þýska sunddrottningin Franz-
iska van Almsick fór vel af stað
á Evrópumeístaramótinu í sundi
í Vínarborg í gær. Van Almsíck
hefur sett stefnuna á að vinna sjö
greinar á mótinu og fyrstu tvenn
gullverðlaunin voru hengd um-
háls henni i gær. Hún er aöeíns
17 ára gömul en á síðasta Evrópu-
móti, fyrir tveimur árum, hlaut
hún 6 gull og ein silfurverðlaun
að auki.
Van Almsick sigraðí í 100 metra
skriðsundi á 55,34 sekúndum og
synti síðan lokasprettinn fyrir
þýsku sveitina sem sigraði í 4x200
metra skriðsundi á 8:06,11 mín.
Norðurlandabúar voru í sér-
flokki í 200 metra skriðsundi
karla því Jani Sievinen frá Finn-
landi sigraði á 1:48,98 mínútu,
Anders Holmertz frá Sviþjóð varð
annar og Antti Kasvio frá Finn-
landi þriðji.
Krisztina Egerszegy frá Ung-
verjalandi sigraðl í 400 metra fjór-
sundi kvenna á 4:40,33 mínútum.
Frederic Deburghgraeve frá
Belgíu sigraði í 100 metra bringu-
sundi karla á 1:01,12 mínútu.
Styrkleikalisti FIFA:
Brassarnir
langefstir
ísland í 46. sæti
Heimsmeistarar Brasilíu-
manna eru langefstir á nýjum
styrkleikalista Alþjóða knatt-
spyrnusambandsins sem gefrnn
var út í gær. Norðmenn eru í
öðru sæti og Spánverjar í þriðja
sæti.
íslendingar eru í 46. sæti en
voru í 40. sæti þegar síðasti listi
var geflnn út í júlí. Staða efstu
þjóða á styrkleikalistanum er
þannig:
1. Brasilía............68,42
2. Noregur.............59,40
3. Spánn...............58,36
4. Þýskaland...........58,31
5. Argentína...........57,86
6. Ítalía..............56,60
7. Danmörk.............56,35
8. Rússland............55,45
9. Portúgal............55,30
10. Mexíkó..............54,99
ll.Sviss.................54,47
12. Búlgaría............53,83
13. Kólumbía............53,59
14. Rúmenía.............53,33
15. Svíþjóð.............52,88
16. írland............. 51,58
17. Holland.............51,18
18. Frakkland...........51,16
19. Bandaríkin..........48,83
20. Úrugvæ..............49,46
46. Island.................38,20
Fyrir aftan íslendinga eru þjóð-
ir á borð viö Ungverjaland, N-
írland, Wales og Lúxemborg.
Hlynurbjarg-
vættur Örebro
Hlynur Birgisson var bjarg-
vættur sænska Uðsins Örebro í
gærkvöldi þegar minnstu raunaði
að það yrði slegið út af Avenir
Beggen í Lúxemborg í UEFA-
bikamum í knattspyrnu.
Fyrri leikurinn í Sviþjóð endaði
0-0 og Beggen leiddi síöan 1-Ofrá/'
21. mínútu, allt þar til Hlynur
jafnaði fyrir Örebro þegar aöeins
tvær minútur voru til leiksloka.
Þar með komst Örebro áfram á
markinu á útivelli, en naumara
gat það ekki veriö.
Þrjú þekkt félög féllu út í for-
keppni UEFA-bikarsins í gær-
kvöldi, Karlsruhe frá Þýskalandi,
Galatasaray frá Tyrklandi og
Rauða stjarnan frá Júgóslavíu.
Erf ið fæðing
- fyrsti E vrópusigur KR-inga og 4-3 samanlagt
Víðir Sigurðsson skrifar
Það tók KR-inga 44 mínútur og 40
sekúndur að brjóta ísinn gegn Gre-
venmacher frá Lúxemborg í Evrópu-
keppni bikarhafa á Laugardalsvell-
inum í gærkvöldi. Þeir náðu þá að
nýta sitt fyrsta umtalsverða færi í
leiknum, Mihajlo Bibercic skoraði
og lagði grunninn aö fyrsta Evrópu-
sigri KR-inga, 2-0, og áframhaldi í
keppninni.
KR-ingar náðu sér aldrei á strik í
fyrri hálfleik, réðu þá ekki við vel
skipulagt lið gestanna sem lokaði
öllum leiðum og hefði hæglega getað
verið búið að skora áður en KR náði
undirtökunum. En eftir að KR-ingar
voru komnir yfir var leikurinn
þeirra eign. Þeir léku oft skínandi
knattspyrnu í seinni hálfleiknum,
síðara markið frá Heimi Porca var
aðeins tímaspursmál þar sem sókn-
imar buldu á marki gestanna. Lið
Grevenmacher þurfti að koma fram-
ar á völlinn í seinni hálfleiknum og
þar með fengu KR-ingar svigrúmið
sem þeir þurftu. Það var ekki fyrr
en á síðustu 10 mínútunum sem
hætta skapaðist við mark KR en þá
var Kristján Finnbogason vandanum
vaxinn.
Heimir Guðjónsson var bestur
KR-inga í gærkvöldi, Steinar Adolfs-
son lék vel í vörninni og þeir Einar
Þór Daníelsson og Ásmundur Har-
aldsson voru mjög ógnandi. KR-ingar
leyfðu sér þann munaö að vera með
Guðmund Benediktsson og Óskar
Hrafn Þorvaldsson á varamanna-
bekknum og undirstrikuðu með því
breiddina í liðinu.
„Þeir eru með ágætislið en við viss-
um að ef við næðum að setja á þá
eitt mark væri þetta komið. Þetta var
sannfærandi sigur, við vorum miklu
betri og áttum skilið að fara áfram.
Um leið og okkur tókst að spila bolt-
anum niðri á einni til tveimur snert-
ingum var þetta ekki spurning. Það
var stress í okkur framan af, enda
mikið í húfi því það getur skipt tug-
milljónum fyrir klúbbinn að komast
áfram. Vonandi mætum við stórliði
á borð við Parma eða La Coruna í
næstu umferð,“ sagði Heimir Guð-
jónsson við DV eftir leikinn.
„Við lékum vel í fyrri hálfleik en
afdrifarík mistök okkar í lok hans
gáfu KR mikilvægt mark. í seinni
hálfleik áttum við litla möguleika.
En við klúðruðum þessu á heima-
velli, þar gátum við unnið stærri sig-
ur. Það háir okkur að við erum með
7 Þjóðverja en megum aðeins nota
þrjá þeirra i Evrópukeppninni, svo
við gátum ekki stillt upp okkar besta
liði gegn KR,“ sagði Álfons Jochem,
þjálfari Grevenmacher, við DV.
„Hefði mátt
skipta sköpum"
- Guðni skoraði gegn Newcastle
„Þetta mark hefði mátt skipta
sköpum og það hefði verið dýrmætt
fyrir okkur að halda jafntefli. En
okkur var refsað fyrir mistök þegar
15 mínútur voru eftir og það vantaði
jafnvægi og reynslu hjá okkur til að
forðast tap í þessum leik,“ sagði
Guðni Bergsson, sem skoraði mark
Bolton í 1-3 ósigri gegn Newcastle í
ensku úrvalsdeildinni i gærkvöldi.
Guðni jafnaði, 1-1, á 51. mínútu
með skalla eftir hornspyrnu, og
skömmu síðar var hann aftur á ferð-
inni í svipaðri stöðu en þá varði
markvörður Newcastle naumlega
skalla frá honum. Newcastle skoraði
síðan tvívegis á síðasta korterinu.
Les Ferdinand gerði tvö markanna
og Robert Lee eitt.
Bolton hefur þar með tapað tveim-
ur fyrstu leikjum sínum í deildinni.
„Það er ekki hægt að vera ánægður
með varnarhliðina hjá okkur, við
erum búnir að fá á okkur 6 mörk í
tveimur leikjum og þurfum að bretta
upp ermarnar fyrir leikinn gegn
meisturunum frá Blackburn á laug-
ardaginn," sagði Guðni við DV.
Þetta er þriðja markið sem Guðni
skorar í 73 leikjum í ensku úrvals-
deildinni en hann skoraði tvívegis
fyrir Tottenham, gegn Wimbledon í
febrúar 1991 og gegn Nottingham
Forest í ágúst 1992.
KR - Grevenmacher
(1-0) 2-0
1- 0 Mihajlo Bibercic (45.) eftir skyndi-
sókn og fyrirgjöf Ásmundar Haraldsson-
ar frá vinstri.
2- 0 Heimir Porca (67.) fékk boltann frá
Ásmundi eftir snögga sókn, lék á Koch
markvörð og skoraði.
Lið KR: Kristján Finnbogason - Sig-
urður Örn Jónsson, Steinar Adolfsson,
Þormóður Egilsson, Daði Dervic - Hilm-
ar Björnsson, Heimir Porca, Heimir
Guðjónsson (Brynjar Gunnarsson 89.),
Einar Þór Daníelsson - Mihajlo Bi-
bercic, Ásmundur Haraldsson (Guð-
mundur Benediktsson 68.)
Lið Grevenmacher: Koch - Klodt,
Petry, Funck, Wolf - Giesser (Dias 46.),
Silva, Wilbois,. Thome - Jungblut,
Schneider.
KR: 10 markskot, 6 hom.
Grevenmacher: 14 markskot, 3 horn.
Gul spjöld: Jungblut (eftir 43 sek.),
Silva, Klodt.
Rautt spjald: Silva (2 gul).
Dómari: J. Ferry frá Norður-írlandi,
þokkalegur.
Áhorfendur: 939 greiddu aðgang.
Skilyrði: Góð, nánast logn, 8 stiga hiti
og völlurinn ágætur.
Maður leiksins: Heimir Guðjónsson,
KR. Miðpunkturinn í spili KR-inga,
vann boltann oft og átti mikið af góðum
sendingum.
FH-Glenavon á Kaplakrika kl. 18 í kvöld:
„Hungraðir í sigur“
FH og n-írska liðið Glenavon leika
síðari leik sinn í forkeppni UEFA-
keppninnar í knattspymu á Kapla-
krika klukkan 18 í kvöld. Fyrri leik
liðanna lyktaði með markalausu
jafntefli svo segja má að FH-ingar
eigi ágæta möguleika á að komast
áfram í keppninni.
„Þetta verður erfitt þar sem eitt
mark frá írunum kemur þeim áfram
í keppninni og við þurfum þá að
skora tvö mörk til að slá þá út. Það
er hálfleikur og ég vil meina aö okk-
ar möguleiki á að komast áfram sé
ágætur. Ef það á að takast verðum
við samt aö spila miklu betur heldur
en við höfum verið að gera,“ sagði
Ólafur H. Kristjánsson, fyrirliði FH,
við DV í gær.
Hvað getu varðar eigum
við að geta unnið þetta lið
„Miðað við fyrri leikinn úti og getu
eigum við aö geta unnið þetta lið.
Nú vitum hverjar sterkustu hliðar
þeirra eru og vitum hvað þarf að
varast. Þeir eru sterkir vinstra meg-
in og eru með öfluga framheija."
FH-liðinu hefur vegnað illa í sumar
og er sem stendur í neðsta sæti 1.
deildarinnar eftir 3-0 tap gegn Val
um síðustu helgi. FH-ingar hafa ekki
unniö leik í tæpa þrjá mánuði og DV
spurði fyrirliðann hvort menn væru
ekki orðnir langeygir eftir sigri.
„Vissulega eru menn orðnir hungr-
aðir í sigur og ég tel það kjörið tæki-
færi að nota þennan leik í að gera
betri hluti í deildinni. Við verðum
samt að gleyma stöðu okkar í 1. deild-
inni þegar við fórum í leikinn gegn
Glenavon. Það eru mikhr fjármunir
í húfi fyrir félagið og ég held að alla
langi til að komast áfram í keppn-
inni.“
Neyðarkall til Hafnfirðinga
„Ég vil nota tækifærið og senda
neyðarkall til Hafnflrðinga um að
þeir komi og styðji við bakið á okkur
í þessum Evrópuleik og í leikjunum
í 1. deildinni sem eftir eru,“ sagði
Dlafur.
FH-ingar héldu austur yfir fjall í
gær og dvelja að Hótel Örk fram að
leik. Þeir fengu góöan gest í heim-
sókn í gærkvöldi en Jóhann Ingi
Gunnarsson, sálfræðingur og fyrr-
um handboltaþjálfari, messaði yfir
mannskapnum.
Enn bætir Bartova heimsmetið
Daniela Bartova frá Tékklandi
bætti í gær eigið heimsmet í stang-
arstökki kvenna um einn sentí-
metra þegar hún stökk 4,21 metra
á Grand Prix móti í Linz í Austur-
ríki. Metið var aðeins fjögurra daga
gamalt en þetta er sjöunda heims-
met Bartovu í greininni síðan í
maí. Hún missti metið í 13 daga
fyrr í þessum mánuði, til Andreu
Múller frá Þýskalandi, en endur
heimti það síðasta fóstudag.
Á sama móti náði Heike Drechsler
frá Þýskalandi besta heimsárangri
ársins í langstökki kvenna þegar
hún stökk 7,07 metra, og það á
móti vindi.
DV
Úrslit Evrópuleikja
í knattspyrnu
UEFA-bikarinn:
Saratredia (Georg.) - Vardar (Mak.) ..0-2 (0-3)
Partizan (Alb.) - Fenerbache (Tyr.) ...0-4 (0-6)
Shirak (Arm.) - Z.Lubin (Pói.)...0-1 (0-1)
Din.Tbilisi (Georg.) - Botev (Búl.) 0-1 (0-2)
W. Lodz (Pól.) -Bangor C, (Wales).1-0 (5-0)
MyPa (Finn.) - Motherwell (Skot.).0-2 (3-3)
(MyPa áfram á mörkum á útivelli)
H.TelAviv (fsr.) -Zímbru (Mold.)...0-0 (0-2)
SlaviaPr.(Tékk.) - St. Graz(Aust.)....l-l (2-1)
Strasbourg (Fr.) - Tyrol Inn. (Aust.). .6-1 (7-2)
Flora T. (Eist.) - Lilieström (Nor.) 1-0 (1-4)
Ch.Odessa (Úkr.) - Hibs (Möltu).2-0 (7-2)
RAFRiga (Lett.) - AfanLido(Wal.)....0-0 (2-1)
Beer Cheva (ísr.) - SC Tirana (Alb.).. ,2-0 (3-0)
D.Minsk (Hv.R.) - Craiova (Rúm.).0-0 (0-0)
(Dinamo Minsk sigraði í vítakeppni)
Galatasar. (Tyr.) - Sparta P. (Tékk.) ..1-1 (2-4)
Ljubljana (Slóven.) -Apollon(Gri.)...3-l (3-2)
Ujpest Bud. (Ung.) - Kosice (Slóvak.).2-l (3-1)
Viking (Nor.) - Tampere (Finn.)..3-1 (7-1)
Levski (Búlg.) - DinamoB. (Rúm.)...1-1 (2-1)
Inkaras(Lit.) - Bröndby (Dan.)..0-3 (0-6)
Sijkeborg(Dan.) - Crusaders (N.l)....4-0 (6-1)
GÍ(Fær.)-RaithRovers(Skot.)........2-2 (2-6)
N.Xamax (Sv.) - Rauða stj. (Júg.)..0-0 (1-0)
Begeen (Lúx.) - Örebro (Sví.)......l-l (i-i)
(Orebro áfram á marki á útivelli)
OLPireus (Gri.) - Slavia Sofia (BúL)...i-0 (3-0)
Siieraa(Möltu) - Omonia (Kýp.).....1-2 (1-5)
Bordeaux (Fr.) - Karlsruhe (Þý.).2-2 (4-2)
Osijek (Kró.) -Slovan Br. (Slóvak.) ...0-2 (0-6)
FK Austria (Aust.) - Kapaz (Azerb.) ..5-1 (9-1)
Maribor (Slóven.) - Skonto (Lett.).2-0 (2-1)
Evrópukeppni bikarhafa
KR - Grevenmacher (Lúx.).......2-0 (4-3)
(Samanlögð úrslit i svigum, sigurliðin eru
komin í 1. umferð og dregið er til hennar á
föstudag.)
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1995
27
íþróttir
Heimir Porca fagnar eftir að hafa
skoraö síðara mark KR í gærkvöldi
og tryggt vesturbæingum sæti i 1.
umferð Evrópukeppni bikarhafa.
DV-mynd GS
ÍBV á siglingu
- komið 13. sæti eftir flórða sigurinn í röð, 2-1 gegn Fram
Þorsteinn Gunnarsson skrifár:
„Það var spurning um líf eða dauða
þegar ég fékk færið. Ég var búinn
að fá dauðafæri rétt á undan og
reyndi að vera eins yfirvegaður og
ég gat til að fá Birki niður og senda
boltann yfir hann. Við vorum mun
betra liðið, erum farnir að hugsa eins
og alvöruhð, og erum með betri ár-
angur í seinni umferðinni en Skaga-
menn,“ sagði Tryggvi Guðmundsson,
hetja ÍBV, sem skoraði sigurmarkið
þegar Eyjamenn lögðu Fram í 1.
deildinni í gærkvöldi, 2-1. Þetta var
fjórði sigur ÍBV í röð og liðið er kom-
ið í 3. sæti í fyrsta skipti síðan 1990.
Enn einu sinni fengu Eyjamenn
draumabyrjun á heimavelli en
Framarar svöruðu fljótt fyrir sig.
Jafnræði var með liðunum í fyrri
hálfleik, en sókn ÍBV þyngdist eftir
því sem leið á seinni hálfleikinn.
ÍBV-Fram
(1-1) 2-1
1-0 Leifur G. Hafsteinsson (4.) með
skoti rétt utan markteigs eftir frábæra
aukaspymu Inga frá hægra kanti.
1- 1 Þorbjöm Atli Sveinsson (11.) af
markteig eftir að Friðrik hafði varið frá-
bærlega frá Steinari og Ríkharði.
2- 1 Tryggvi Guðmundsson (82.) skaut
af ískaldri yfirvegun yfir Birki af mark-
teig eftir langt innkast Jóns Braga.
Lið ÍBV: Friðrik Friðriksson V- - Frið-
rik Sæbjömsson, Jón Bragi Arnarsson,
Hermann Hreiðarsson V., Dragan
Manojlovic- Ingi Sigurðssonívar
Bjarklind, Leifur Geir Hafsteinsson
Martin Eyjólfsson (Bjamólfur Lár-
ússon 57.), TYyggvi Guðmundsson -
Steingrímur Jóhannesson.
Lið Fram: Birkir Kristinsson- Pét-
ur Marteinsson, Krislján Jónsson, Ágúst
Óiafsson, Gauti Laxdal (Kristinn Hafl-
iðason 64.) - Steinar Guðgeirsson ;ri,
Vaiur F. Gíslason, ÞórhallurVíkingsson,
Atli Einarsson - Ríkharður Daðason
(Nökkvi Sveinsson 83.), Þorbjöm Atli
Sveinsson (Josip Dulic 73.)
ÍBV: 16 markskot, 15 hom.
Fram: 8 markskot, 5 hom.
Gul spjöld: Jón Bragi (ÍBV), Þórhaflur
(Fram), Pétur (Fram), Kristinn (Fram),
Ágúst (Fram).
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Kristinn Jakobsson - dæmdi
í heildina mjög vel en hefði mátt taka
harðar á brotum aftan frá.
Áhorfendur: 380.
Skilyrði: Frábært veður fyrir knatt-
spymuiðkun, logn og besti grasvöllur
landsins, Hásteinsvöflur.
Maður leiksins: Leifur Geir Haf-
steinsson (ÍBV). Var sem kóngur í ríki
sínu á miðjunni, skapaði hættu hvað
eftir annað með fróbærum rispum upp
völlinn og skiiaði boltanum vei frá sér.
Damien Richardsson, þjálfari Shelboume:
„Við eigum
möguleika“
Darúel Ólafeson, DV, Akranesi:
„Við hlökkum mikið til leiksins,
völlurinn er mjög góður og við htum
svo á að við eigum möguleika," sagði
Damien Richardsson, hinn viðkunn-
arlegi þjálfari Shelbourne, við DV,
þegar hann var spurður út í leikinn
gegn ÍA í kvöld.
„Lið Akraness kom mér ekki á
óvart. Ég taiaði við félaga minn í
Bangor í Wales og hann gaf mér upp-
lýsingar um liðið og leikstíl þess.
Akranes leikur mjög góða knatt-
spyrnu og við töpuðum fyrir þeim
fyrir nokkru síðan og það vita allir
að þama er gott hð á ferðinni. Þetta
verður mjög erfitt. Við erum 0-3 und-
ir en samt eigum við möguleika. Við
ætlum okkur að spila góðan leik og
eitt mark í byrjun væri mjög mikil-
vægt fyrir okkur. Við höfum leikið
nokkra æfingaleiki við ensk hð, við
töpuðum 3-1 fyrir Leeds, gerðum 2-2
jafntefli við Manchester United og
töpuðum fyrir Liverpool, 1-0.
Blaðamennirnir hrifnir
Tveir írskir blaöamenn er komnir
gagngert til að fylgjast með leik
Akraness og Shelboume. Blaða-
mönnunum leist mjög vel á aðstæður
á íþróttasvæðinu á Akranesi og
sögðu að þær væru eins og hjá
stærstu félögunum í Evrópu, hreint
frábærar.
Hvorki gekk né rak hjá Fram í sókn-
inni, enda vöm ÍBV mjög sterk, sér-
staklega í háloftunum þar sem flestar
fyrirgjafir Framara komu.
Eyjamenn em á mikilli sighngu
þessa dagana. Leikgleðin skín úr
hverju andliti og baráttan er eftir
því. Þetta er ungt og sérlega sókn-
djarft lið sem hægt og sígandi hefur
verið að bæta sig undir stjórn Atla
Eðvaldssonar, sem er að gera mjög
góða hluti. Leifur Geir átti stórleik á
miðjunni og Hermann var mjög
öflugur í vörninni. Ingi Sigurðsson
var einnig mjög sprækur. Hjá Fram
var Birkir markvörður langbestur
og forðaði liði sínu frá stærra tapi.
Þá barðist Steinar Guðgeirsson vel
en gat htið gert upp á eigin spýtur.
„Við lentum í vandræðum í seinni
hálfleik og biðum hreinlega eftir því
að fá á okkur annað markið. Ég er
hundfúll og þetta er ekki besta vega-
nestið í bikarúrslitaleikinn," sagði
Birkir við DV.
„Við töluðum um að fara í 3. sætið
á 2 til 3 árum en þessir peyjar eru
ungir og gráðugir og langar þarna
upp. Nú er spurningin hversu lengi
tekst aö halda þeim hungruðum. Ég
vona bara að strákarnir geti staðið
undir þessu. Ef þeir halda áfram að
vinna vel eins og þeir hafa gert er
framtíðin þeirra. En það er aldrei
komið og kíkt á okkur hér úti í Eyjum
eða stemninguna hér. Forystan í
Reykjavík heyrir þetta bara á skot-
spónum eða les um það í blöðunum.
Það er kominn tími til að það verði
gert en ég hef sagt við strákana mína
að það að vera ungur maður hjá
Reykjavíkurfélögunum sé ávísun á
landsliðssæti," sagði Atli Eðvalds-
son, þjálfari ÍBV, við DV.
Meiðsli hrjá markverði IA:
Árni er f rá
út tímabilið
- Þórður spilar með skaddaðan liðþófa
Daníel Ólafeson, DV, Akranesi:
„Ástand leikmanna er þolanlegt
nema hvaö við urðum fyrir gríðar-
legu áfallií síðasta leik á móti Leiftri
þegar að Ámi Gautur Arason mark-
vörður lenti í samstuði við Gunnar
Má Másson og er með slitið hðband
í hné og verður frá út tímabilið. Þar
er skarð fyrir skildi og er mjög leiðin-
legt fyrir hann,“ sagði Logi Ólafsson,
þjálfari Skagamanna við DV. ís-
landsmeistarar Skagamanna mæta
írska liðinu Shelbourne á Akranesi
klukkan 18 í dag og er þetta síðari
leikur liðanna í forkeppni UEFA-
keppninnar. Akurnesingar standa
vel að vígi fyrir leikinn í kvöld en
þeir unnu fyrri leikinn, 0-3
„Þórður Þórðarson markvörður er
líka meiddur. Hann er með skadd-
aðan hðþófa en með hjálp tækninnar
getur hann spilað, hann verður „teip-
aður“ og með hlífar. Sigurður Jóns-
son er með einhver smámeiðsli sem
ættu þó ekki að koma í veg fyrir að
hann spili."
„Förum í leikinn
til að vinna“
„Fyrri hálfleikurinn er búinn í þessu
en þeir geta alveg skorað þijú mörk
hjá okkur eins og við hjá þeim í fyrri
leiknum. Eins og við gerðum þá fór-
um við í leikinn til að vinna og mun-
um leika þá knattspyrnu sem við
höfum verið að spila í sumar.
Markmiðið er að halda hreinu og svo
sjáum við til hvort við skorum hjá
þeim,“ sagði Logi.
Stjömunni
Átta ieikmenn úr 2. deild voru
í gær úrskurðaðir í leikbann af
aganefnd KSÍ og taka það út í 15.
umferö deildarinnar um næstu
helgi. Þar á meðal er Ágúst
Hauksson, þjálfari Þróttar, en
hann veröur í banni gegn Stjörn-
unni, rétt eins. og þegar liðin
mættust í fyrri umferðinni og úr
varð kærumálið fræga.
Hinir eru Goran Micic og Her-
mann Arason úr Stjörnunni,
Reynir Björnsson og Ragnar Bogi
Petersen úr HK, Þorri Ólafsson
úr Víkingi, Guðmundur Torfason
úr Fylki og Jakob Hallgeirsson
úr SkaUagi-ími.
Enginn leikmaður úr 1.
var úrskurðaður í bann í gær en
þyngstu refsingarnar hlutu
Sveinhjörn Hlöðversson úr 3.
flokkí ÍA sem fer í 4 leikja hann
og Ólafur Eriendsson úr 4. deild-
ar liöi Smástundar sem fékk 3ja
leikja bann.
deild
sjOváSálmennar
|í IIL ■->
Akranes ...13 12 1 0 33-9 37
KR ...13 8 1 4 19-12 25
ÍBV ...13 7 1 5 28-18 22
Leiftur ...13 6 3 4 25-20 21
Keflavík ...13 5 4 4 18-20 19
Grindavík.... ...13 5 2 6 16-17 17
Breiðablik... ...13 4 2 7 16-17 14
Valur ...13 3 2 8 14-26 11
Fram ...13 3 2 8 14-29 11
FH ...13 2 2 9 18-33 8
Markahæstir:
Rastislav Lazorik, Breiðabl.8
Ólafur Þórðarson, ÍA........8
Tryggvi Guðmundsson, ÍBV....8
Arnar Gunnlaugsson, ÍÁ......6
I kvöld
UEFA-keppnin í knattspyrnu:
í A-Shelbourne. 18 00
FH-Glenavon 18.00
1. deild kvenna
ÍBA-ÍBV 18.30
Breiðablik-Haukar 18.30
Valur-Stjarnan 18.30
Collymore
hart leikinn
Stan Collymore, dýrasti knatt-
spyrnumaður Englands, er varn-
armönnum Leeds mjög reiður
vegna meðferðarinnar sem hann
hlaut hjá þeim í fyrrakvöld, en
Liverpool tapaði þá, 1-ú, íyrir
Leeds í úrvalsdeildinni.
Strax á 6. mínútu braut John
Pemberton gróflega á Collymore
í dauðafæri í vitateignum. Ekkert
var dæmt og Collymore vai' bor-
inn af veUi á börum. Hann kom
aftur inn á, en var þá keyrður
niður af Tony Dorigo og varð að
yfirgefa völlinn eftir aöeins 20
minútur.
í sjónvarpi sást greinilega að
um vítaspyrnu var að ræðaþegar
Pemberton feUdi CoUymore og
ljóst að mikið er tU í ásökun þess
síðarnefnda sera sagði í samtali
við Sky í gær: „Þetta var mjög
óheiðarlegt, Pemberton reyndi
ekki einu sinni að ná boltanum
þegar hann felldi mig.“
Evrópukeppni félagsliða
Forkeppni
ÍA-Shelbourne
Akranesvelli
(írland)
miðvikudaginn 23. ágúst
kl. 18
Stuðningsmenn Skagamanna sem og velunnarar ís-
lenskrar knattspyrnu,
fjölmennum á völlinn
Miðaverð:
Stúka kr. 1000
Stæði, fullorðnir kr. 800
Stæði, börn kr. 200
Knattspyrnufélag
rBLINAÐARRANKl ÍSLANDS