Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1995, Side 20
32
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1995
Smáauglýsingar - Sími 563 2700 Þverholti 11
Tvær yndislegar, kínverskar dverg-
hænur í búri fást gefins. Upplýsingar í
síma 587 0332._______________________
13 vikna labradorhundur fæst gefins.
Uppl. í stma 588 9066._______________
2 gráir, kassavanir kettlingar fást
gefins. Uppl. í síma 557 3048._______
9 mán. læöa í Keflavík fæst gefins. Upp-
lýsingar i síma 421 2395 e.kl. 21.____
Fallegur, 9 mánaBa, bröndóttur kettlingur
fæst gefins. Uppl. í síma 551 3302.
Gömul AEG eldavél, 50 cm breiö, fæst
gefins. Uppl. í síma 587 5007._______
Kassavanir kettlingar fást gefins.
Uppl.ísíma 4212977.__________________
Kassavanir kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma 555 4415._________
Kremlitaö klósett og vaskur fæst gefins.
Upplýsingar í sima 587 0709._________
Lítil læöa fæst gefins.
Uppl. í sima 553 2974.________________
Lítill ísskápur fæst gefins gegn því að
hann sé sóttur. Uppl. í síma 561 3238.
Páfagaukur og kettlinaur fást gefins.
UppL í sima 555 0413. Birgir.
Stórt hvítt hjónarúm fæst gefins. Uppl. í
síma 5516788.
^igum á lager færibandareimar.
Ymsar gúmmíviðgerðir.
Gúmmísteypa Þ. Lárusson hf.,
Hamarshöfóa 9, 112 Rvík,
sími 567 4467, fax 567 4766.
Verslun
Baur Versand haust- og vetrarlistinn
kominn, þýskar gæðavörur, 7-8 daga
pfgreióslutími pantana, sími 566 7333.
Splunkuný herra-, dömu- og barnablöö
frá Anny Blatt. Einnig ný prjóna- fónd-
urblöð með dúkkum. Garnhúsið, Suð-
urlandsbraut, Bláu húsin v/Faxa- og
Fákafen. Sími 568 8235.
Kays pöntunarlistinn.
Nýjasta vetrartískap á alla fjölskyld-
una. Pantið núna. Odýrara margfeldi,
aðeins um kr. 140 fyrir hvert pund.
Veró kr. 400 án bgj. Endurgreiðist við
pöntun. Fæst í bókabúðum og hjá
B. Magnússon, Hólshrauni 2, Hf.
Grænn pöntunarsimi 800 4400.
M
Erum flutt í Fákafen 9,2. hæö.
S. 553 1300. Höíúm opnaó stóra og
glæsil. verslun m/miklu úrvali af hjálp-
artækjmn ástarlífsins f. dömur og
herra, undirfatnaði, spennandi gjafa-
vörum o.m.fl. Stór myndalisti, kr. 950,
allar póstkröfur dulnefndar. Verió vel-
komin, sjón er sögu ríkari. Opið 10-18
mánud.-fóstud. 10-14 laugard.
Útblástur bitnar verst
á börnunum
impR
DRAUMAFERÐ OG
FARAREYRIR
Með Farmiða ert þú kominn I spennandi
SUMARLEIK Happaþrennunnar og DV
Farmiðinn er tvlskiptur og gefur tvo möguleika
á vinningi. Á vinstri helmingi eru veglegir
peningavinningar, sá hæsti 2,5 MILUÓNIR, og
á þeim hægri eru glæsilegir ferðavinningar og
„My First Sony* hljómtæki.
Fylgstu með I DV alla þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga.
Uppsöfnuð vinningaskrá birtist i DV
1. september og 2. október 1995.
Ferða- og hljómtækjavinninga má vitja á
markaðsdeild DV Pverholti 14, slmi 563-2700
gegn framvísun vinningsmiða.
Farmiðarnir bíða þín á næsta utsölustað og
þú freistar gæfunnar fyrir aðeins 150 kr.
Þú berð númerin á miðanum þlnum saman
við númerin hér að neðan. Þegar sama
númerið kemur upp á
báðum stöðum hefur
þú hlotið vinning.
FL UGLEIÐIR
SONY
313349
855147
318358
794387
710604
Str. 44-60, gallabuxur, há- og lág íseta,
m/teygju eóa streng, 2 skálmlengdir, f.
mikla yfirvídd en granna fætur, f. extra
háar skrefl. 93 cm í str. 38-50. Buxur
sniðnar eftir þínum þörfúm. Stóri List-
inn, Baldursg. 32, s. 562 2335.
Jlgl Kerrur
Kerruöxlar á mjög hagstæöu veröi,
meó eða án rafhemla, í miklu úrvali,
fyrir flestar geróir af kerrum.
Fjallabflar/Stál og stansar hf.,
Vagnhöfóa 7, Rvík, sími 567 1412.
Til sölu blár Volvo 244, árg. ‘80,
sjálfskiptur, ekinn 230 þús. km.
Bíll í góóu lagi, skoðaður ‘95, meó drátt-
arkrók. Veró 120 þús. Uppl. í síma 555
1259 eftir kl. 19.
Útsala - Útsala - Tjaldvagnar.
Á nokkrum sýningarvögnum.
Einnig á viðleguútbúnaði og aukahlut-
um í tjaldvagna og fellihýsi.
Vfkurvagnar, Síðumúla 19, s. 568
4911.
Bilartilsölu
oq veltibúr af Fríöu Grace
Veró tilboð. Upplýsingar í
síma 567 1895.
Til sölu Buick Riviera, árg. ‘84.
Toppeintak. Uppl. í síma 482 3700.
Merming_____________________________dv
Syndga ekki
of snemma
Ég fór út í gærkvöldi. Að kíkja á menninguna. Hún getur verið ágæt
ef mann hungrar í hana. Eins og pylsa ef maður er svangur og á fárra
kosta völ. En meðan ég naut listarinnar fannst mér einmitt að ég hefði
lent í tveggjapylsupartíi. Mér sem þykja pylsur vondar. Borða þær ekki
nema í von um rúsínuna í fjærendanum. En þarna fékk ég hana í fyrsta
bita. Varð samt að klára báðar. Sóma míns vegna, hver sem hann nú er.
Ég fór niður í Iðnó. Á Óháðu listahátíðina. Vegna þess að mér þótti svo
gaman að koma þangað á sunnudaginn. Þá var ég dálítið þunglyndur
eftir að hafa skoðað hámenningarlega myndlistarsýningu og náði gleði
minni á ný á meðan ég virti fyrir mér sýningu æskunnar þama á tjarnar-
bakkanum.
Dagskráin var freistandi á pappímum. Kannski eins og ódrýgð synd.
Og allt fór vel af stað; glæsileg tónlist á slagverk og gítar. Hljóðfærin
vora notuð á nokkuð nýstárlegan hátt fyrir mín eyra en tónarnir létu vel
í þeim engu að síður. Til dæmis var sellóbogi dreginn eftir slagverkinu
Atburdir
Úlfar Þormóðsson
og hljóðin úr gítamum ekki einasta slegin úr strengjunum. Þetta var
gert af kunnáttu og list og ég leystist upp í ijúfan draum á staðnum. Svo
fór skáld á fjalirnar. Las ljóð af stóra mælikvarðanum með þeim lestrar-
máta sem hann einn á og hefur og kann. Og ráðskaðist með velliðan
mína með orðum sínum og æði.
Eftir það var eins og syndin væri drýgð. En ekki hægt að rísa upp úr
henni. Áðrir lásu og voru lengi að því. Lásu mig niður úr skýjunum. Og
ég fór að horfa á hitt fólkið. Ég sá að það var líka komið úr sínum ferðum
og niður á jörðina. Sumir voru þannig á svipinn að engu var líkara en
þeir hefðu brotlent.
Þegar hér var komið fór ég að hugsa um það að áreiðanlega væri hrafn-
inn ekki söngfugl. Það væri þó nógu gaman að heyra hann reyna sig við
eitt lag. En bara eitt. Síðan þyrfti maður að heyra hann krunka. Það
gerir enginn betur en hann.
Og þá var komið hlé. Fyrri pylsan búin. Seinni pylsan er alltaf verri.
Það vita allir. En þjóðareðlið býður manni að lifa á og í voninni. í því
stríði er falsvonin meira að segja betri en vonleysiö. Þá er hún kölluð
bjartsýni.
Fyrsti bitinn kom líka á óvart og kynti undir bjartsýninni. Tvær ungar
konur frumfluttu barnalög. Önnur söng og hin spilaði á ílygil. Það var
gaman. Svo fór að halla undan fæti og lystin að dofna. En það voru mál-
verk aftan við flytjendur. Þau hófu upp lund mína.
Loks var svo tilkynntur síðasti biti í háls. Ég varð voða glaður. Upplest-
ur úr Snorra-Eddu. Hélt að það yrði rúsína. Hefði getað orðið það. En
varð of langur lesturinn og breyttist í harða kúrenu. Safalitla.
En samt. Engu að síður og allt það. Ég ætla aftur. Annað kvöld. Þá er
karlakvöld. Harðsvirað held ég það verði eftir orðanna hljóðan. Yfirskrift-
in Kóngur rís. Ég varð nefnilega ekki saddur.
Og lýk þessu á að vitna í ljóð sem ég held að ég hafi lært þarna. Það
var þegar ég var að hugsa um að hrafninn ætti bara að láta sig hafa það
að krunka en vera ekki að reyna að syngja eins og máríuerla.
Ég held aö ljóðið sé næstum því svona; ég heyrði það þannig:
Lífið er einhvers konar sjúkdómur
sem leiðir til dauða.
Hringiðan
Eiki og Sóley voru í feiknastuði á Ingó um helgina enda ekki nema von
þegar pakkað er á staðnum og það er svo gaman að vera saman.
DV-mynd TJ
á næsta sölustad • Áskriftarsími 563-2700