Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1995, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1995
33
Fréttir
Sigurjón Haröarson með lax úr Víðidalsá i Húnavatnssýslu en áin var kom-
in með 666 laxa í gærkvöldi. DV-mynd Þröstur
Selá, Vopnafirði:
Veiðiskapurinn
gengur f eiknavel
Veiðiskapurinn gengur einkenni-
lega þessa dagana, í mörgum veiðiám
er ágæt laxveiði og mikið af fiski en
aðrar gefa minna og fiskinn vantar
í þær sumar.
Silungsveiðin er fín, bleikjan er
væn úr sjónum og tekur skemmti-
lega flugurnar hjá veiðimönnum.
Sérstaklega eru svartar flugur sterk-
ar í laxinum og silungnum.
„Veiðin gengur vel í Selá og eru
komnir 880 laxar á þessari stundu.
Þetta hefur gengið feiknavel síðustu
vikurnar og veiðimenn veitt vel,“
Veiðivon
Gunnar Bender
sagði Hörður „Kringur" Óskarsson í
gærkvöldi, er við spurðum um Selá
í Vopnafirði.
„Það er mikill lax í ánni og þá sér-
staklega á efra veiðisvæðinu. Það
kom stórganga um mánaðamót og
veiðimenn eru enn þá að veiða úr
henni. Stærsti laxinn er enn þá 21
pund og það var erlendur veiðimaður
sem veiddi fiskinn en veiðst hafa 18,
16, 15 og hellingur af 14 punda fisk-
um. En flugan er sterk þessa dagana
og veiðimenn veiða vel á þær. Það
eru mest hængar sem veiðast þessa
dagana og segja menn að þeir séu að
elta hrygnurnar upp í í Selá,“ sagöi
Hörður enn fremur.
Gunnar Sv. Jónsson með fallega
veiði á flugur úr Efri-Fossi á efra
svæðinu i Selá i Vopnafirði.
Flókadalsá komin í 200 laxa
„Veiðin gengur ekki nógu vel en
núna eru komnir 200 laxar á land og
sá stærsti er 14,5 pund,“ sagði Ingvar
Ingvarsson á Múlastöðum, er við
spurðum um Flókadalsá í gærkvöldi.
„Það voru hörku fluguveiðimenn
hérna hjá okkur fyrir skömmu, Þórð-
ur Einarsson og synir úr Hafnar-
firði. Þeir veiddu 18 laxa í tvo daga
á ýmsar flugur. Síðan komu veiði-
menn með enga maðka og nýju sjón-
varpsbeituna. Þeir fengu 7 laxa á
þessa nýju beitu, eða allavega held
ég að það hafi verið hún sem gaf
þeim þessa veiði. Stærsti laxinn er
14,5 pund og veiddist á Pokabreiðu,“
sagði Ingvar í lokin.
Gljúfurá og Hítará
komnar yfir 300 laxa
„Á þessari stundu eru komnir yfir
300 laxar úr Gljúfurá í Borgarfiröi
og Hítará á Mýrum. Gljúfurá er kom-
in með 303 laxa og Hítará 330 laxa,“
sagði Bergur Þ. Steingrímsson, fram-
kvæmdastjóri Stangaveiðifélags
Reykjavíkur, í gærkvöldi.
„Veiðiskapurinn hefur gengið vel í
Hítará og þá sérstaklega Hítará tvö,
þar eru komnir 25 laxar á land. Það
hafa verið þetta 4 til 6 laxar á dag
þarna efra og Grjótáin hefur gefið
best,“ sagði Bergur enn fremur.
Af Soginu er það að frétta að Al-
viðra hefur gefið langbest, eða 82
laxa, en veiðin mætti ganga betur
þar.
Vífill Gústafsson, 6 ára, með 6 punda
lax úr Leifsstaðahyl á efra svæðinu
í Selá í Vopnafirði.
DV-myndir Vífill Oddsson
Myndlistarskóh Margrétar er að
fara af stað með ný námskeið. Skól-
inn var stofaður í september í fyrra
og hann er til húsa í Aðalstræti 4b.
Boðið er upp á námskeið fyrir fólk á
öllum aldri, bæði byrjendur og
lengra komna. Kennt er í litlum hóp-
um eða einkatímum. Sérstök fjöl-
tækninámskeið fyrir börn og ungl-
inga eru í boði. Fyrir fullorðna er um
að velja teikningu I, II og III, vatns-
lita-, akrýl-, olíu- og silkimálun.
Einnig er boðið upp á nám í mynd-
vefnaði og pappírsgerð. Leiðbeinandi
á þessum námskeiðum er Margrét
Jónsdóttir.
Ti]kyimingar
Félagsstarf aldraðra,
Gerðubergi
Á morgun, fimmtudag, helgistund kl.
10.30 í umsjón sr. Hreins Hjartarsonar,
kl. 12 hádegishressing í kaffiteríu, kl.
13.30 fariö í heimsókn að Kjarvalsstöðum.
Uppl. og skráning í s. 557 9020. Föstudag-
inn 25. ágúst kl. 9 bútasaumur og fl. Kl.
12 verður spilasalur opnaður, vist og
bridge, námskeið í perlusaumi er að hefj-
ast. Umsjón Erla Guðjónsdóttir.
Ferð Árbæjarsafnaðar
Sunnudaginn 27. ágúst verður síðsumar-
ferð Árbæjarsafnaðar farin. Lagt af stað
frá Árbæjarkirkju kl. 9 árdegis. Guðs-
þjónusta í Hrunakirkju kl. 11. Að henni
lokinni verður haldið inn í Þjórsárdal og
farið að Stöng. Á heimleið verður komið
viö á Flúöum, farið um Brúarhlöð að
Laugarvatni og síðan um Grímsnes til
Reykjavíkur. Þátttakendur hafi með sér
nesti. Bílferðin er farþegum að kostnað-
arlausu. Skráning í Arbæjarkirkju á
virkum dögum kl. 9-12.
Sumarhappdrætti heyrnar-
lausra
Dregið var í happdrætti heyrnarlausra
18. ágúst sl. Vinningamir eru vöruúttekt
frá Smith & Norland, 1.-5. vinningur kr.
30.000,- nr. 2530, 2083, 582, 2218, 912. 6.-15.
vöruúttekt kr. 20.000,- nr. 2369, 85, 1322,
163,1148,416,913,1141,312 Og 1475.16.-25.
vöruúttekt kr. 10.000,- nr. 328, 1717, 2610,
1674, 2303, 737, 251, 635, 2713,1930. 26.-36.
vöruúttekt kr. 5000,- nr. 172, 1461, 769,
1801, 1633, 1673, 299, 2614, 61, 1023, 1690.
Hægt er að vitja vinninga á Klapparstíg
28, Reykjavík.
Tapaðfundið
Seðlaveski fannst
Seðlaveski merkt Valynda Bates fannst.
Upplýsingar í s. 587 3076 í dag og næstu
daga.
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviðið kl. 20.30
Rokkóperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
eftir Tim Rice og Andrew
Lloyd Webber
Fimmtud. 24/8, uppselt, biðlisti, föstud. 25/8,
uppselt, laugard. 26/8, uppselt, biðlisti,
fimmtud. 31/8, föstud. 1/9, laugard. 2/9.
SALA AÐGANGSKORTA HEFST
FÖSTUDAGINN 25/8.
FIMM SÝNINGAR aðeins kr. 7.200 kr.
Miðasalan verður opin alla daga frá
kl. 13-20 meðan á kortasölu stendur.
Tekið er á móti miðapöntunum i sima
568-8000 frá kl. 10-12 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Ósóttar miðapantanir seldar
sýningardagana.
Gjafakort - frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur-
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
TJARJSARBÍÓ
Söngleikurinn
JÓSEP
og hans undraverða skrautkapa
eftirTim Rice
og Andrew Lloyd Webber.
Föstud. 25/8 kl. 23.30, laugard. 26/8 og
sunnud. 27/8, fjölskyldusýn. kl. 17.00
(lækkað verð), sunnud. 27/8 kl. 21.00.
Miðasala opin alla daga i Tjarnarbiói frá
kl. 15-21. Miðapantanir,
simar: 561 0280 og 551 9181, fax 551 5015.
„Það erlangtsíðan undirritað-
ur hefur skemmt sér eins vel í
leikhúsi. “
Svelnn Haraldsson,
leiklistargagnrýnandi Mbl.
„Það hlýtur að vera i hæsta
máta fúllynt fólk sem ekki
skemmtir sér á söngieiknum
um Jósep. “
Ásgeir Tómasson, gagnrýnandi DV.
Bleikur bakpoki tapaðist
Lítill, bleikur bakpoki tapaðist viö stræt-
isvagnaskýlið á Artúnshöfða. Finnandi
vinsamlegast hringi í Sigrúnu, s. 588 4083.
Safnaðarstarf
Áskirkja: Samverustund fyrir foreldra
ungra barna í dag kl. 13.30-15.30.
Dómkirkjan: Hádegisbænir kl. 12.10.
Leikið á orgelið frá kl. 12.00. Léttur há-
degisverður á kirkjuloftinu á eftir.
Fella- og Hólakirkja: Helgistund í
Gerðubergi fimmtudaga kl. 10.30.
Háteigskirkja: Kvöldbænir og fyrirbæn-
ir í dag kl. 18.
Neskirkja: Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
18.05.
Seltjarnarneskirkja: Kyrrðarstund kl.
12.00. Söngur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur hádegisverður í safnaðarheimil-
inu.
r
min m
ov
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín.
Fólk í atvinnuleit
Félagsmálaráðuneytið vekur athygli á að vinnuafl vantar
til fiskvinnslu víða um land. Vinnumiðlanir veita nánari
upplýsingar.
Félagsmálaráðuneytið,
21. ágúst 1995
ftíllft
fVIH
DV
9 0 4 - 1 7 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
_3Lj Fótbolti
_2j Handbolti
: 3] Körfubolti
,4[ Enski boltinn
5 i ftalski boltinn
JBJ Þýski boltinn
7] Önnur úrslit
8[ NBA-deildin
Jl| Vikutilboð
stórmarkaðanna
[2j Uppskriftir
yy Læknavaktin
[21 Apótek
íl[ Dagskrá Sjónvarps
_2j Dagskrá Stöðvar 2
3 j Dagskrá rásar 1
4| Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
_5j Myndbandagagnrýni
ij6j ísl. listinn ,
-topp 40
7j Tónlistargagnrýni
8j Nýjustu myndböndin
srnmmmm
y Krár
21 Dansstaðir
Z 1 Leikhús
4 [ Leikhúsgagnrýni
5j Bíó
6] Kvikmyndagagnrýni
ngsnumer
_lj Lottó
: 2 j Víkingalottó
3j Getraunir
^ÍUA
QliYlri
904-1700
Verð aöeins 39,90 mín.