Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1995, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1995
Fréttir
Lítil svörun við auglýsingu félagsmálaráðuneytisins eftir fiskvinnslufólki:
Langstærstur hluti
vandans er óleystur
segir Amar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva
„Nokkur svörun hefur veriö viö
auglýsingu félagsmálaráðuneytisins
eftir vinnuafli til fiskvinnslu. Hún
er ekki mikil en ákveðin viðbrögð
þó. Þannig hefur tekist að leysa
vanda fiskvinnslustöðvanna í Hrísey
og á Dalvík en þar vantaði 11 manns
í vinnu. Það tókst að ráða íslendinga
í öll þau störf. Mest vantar hins veg-
ar af fólki til Vestfjarða eða um eitt
hundrað manns. Nokkuð hefur verið
um fyrirspurnir en ekki mikið um
ráðningar þangað. Við erum að tala
um að það vanti 150 til 200 manns í
fiskvinnsluna nú um mánaðamótin,
þannig að langstærstur hluti vand-
ans er því enn óleystur," sagði Amar
Sigurmundsson, formaður Samtaka
fiskvinnslustöðva, í samtali við DV
um stöðuna í mannaráðningum í
fiskvinnslunni og auglýsingu félags-
málaráðuneytsins í sambandi við
það.
Páll Pétursson félagsmálaráðherra
hefur sagt að áður en ráðuneytið
gefi út ný atvinnuleyfi til útlendinga
vilji hann að fullreynt veröi hvort
hægt sé að fá atvinnulausa íslend-
inga í þessi störf. í fiskvinnslu eru
tahn vera rúmlega 6.300 störf. Að
sögn Arnars Sigurmundssonar eru
útlendingarnir í fiskvinnslunni á
mihi 300 og 400. Um 5.000 íslendingar
eru skráðir atvinnulausir og segist
Arnar hafa fullan skilning á þvi að
menn reyni til þrautar að fá Islend-
inga í fiskvinnsluna. Atvinnuleysis-
bætumar i ár nemi um 4 milljörðum
króna og menn standi nú í erfiðri
fjárlagagerð.
„Eg skil félagsmálaráðherra því vel
og hann hefur líka sagt að takist ekki
að fá íslendinga í þessi störf muni
hann sjá til þess að fyrirtækin stöðv-
ist ekki vegna manneklu. Þess vegna
þykir mér sjálfsagt að reyna þessa
leið ráðherrans," sagði Arnar Sigur-
mundsson.
Fær vottun á lífrænni ræktun:
Kjarnmeiri og
bragðmeiri afurðir
Jörðin Vallanes á Héraöi hefur ræktuðum vömm og öðrum, fólk
fengið vottun á iífrænni iram- hringi mikið og þakki fyrir fram-
leiðslu landbúnaðarafurða frá leiðsluna. Ástæðuna fyrir gæða-
breska fyrirtækinu Soil Associati- muninum segir hann vera að líf-
on. Þýðir þetta að afurðir jarðar- rænt ræktaðar plöntur vaxi hægar
innar, sem bera vörumerkið Móðír og verði þvi kjarnmeiri og bragð-
jörð, munu bera merki Soil Assoc- meiri.
iation. Tryggir það neytandanum Eymundur framleiðir m,a. kart-
aö varan sé lifræn framleiðsla. öflur, kál, nautakjöt og korn. Einn-
Slíkar vömr eru jafnan dýrari en igeruþarnaframleiddarnuddolíur
aðrar enda era miklar kröfur gerð- og annaö úr jurtum, t.d. blóma-
ar, t.d. má ekki nota tilbúinn áburð dropar sem hjálpa fólki sem á við
eða neins konar eiturefni til varnar sálarleg vandamál aö stríða. Er það
plöntura. Einnig em geröar kröfur kona Eymundar, Kristbjörg Krist-
um skiptiræktun, að jarðvegurinn mundsdóttir, sem hefur haft þá
sé ekki ofnotaður. framleiðslu mest á sinni könnu.
Segir Eymundur Magnússon, Segir Eymundur í þessu samhengi
bóndi i Vahanesi, að i lífrænni að hægt sé að leíta svara i náttúr-
ræktunfelístnáttúruvernd.Þáseg- unni við flestum vandamálum, ef
ir hann að fólk fnmi mun á lífrænt ekki öllum.
SEMENTSBUNDIN
FLOTEFNI
Uppfylla ströngustu gæöakröfur
PR0NT0
PREST0
Rakaheld án próteina • Níðsterk
Hraðþornandi • Dælanleg
Hentug undir dúka og til ílagna
Smiðjuvegur 70,200 Kópavogur
Símar. S64 1740,892 4170, Fax: SS41769
eykur orku og úthald
Eitt hylki á dag og þú finnur muninn!
Fæst í apótekinu
w Atvinnuauglýsingarfélagsmálaráðimeytisins:
Anægður með árangurinn
- segir Páll Pétursson félagsmálaráðherra
„Það er góö hreyfing á þessu máh.
Ég fékk skýrslu frá atvinnumiðlun í
dag þar sem skýrt er frá því að nokk-
ur fiskvinnslufyrirtæki hafi ráðið til
sín íslendinga eftir að við auglýstum.
Þar segir einnig að það sé miklu
meiri hreyfing á málinu nú en fyrir
hálfum mánuði. Þess vegna er ég
mjög ánægður með hvernig til hefur
tekist. Ég vil hins vegar taka það
skýrt fram að það var aldrei í okkar
huga að fara að stöðva fiskvinnsluna
í landinu eins og sumir hafa haldið
fram. Geti fiskvinnslufyrirtækin
ekki fengið íslendinga í vinnu þá
verður að sjálfsögðu heimilað að
ráða erlent vinnuafl til þeirra," sagði
Páll Pétursson félagsmálaráðherra,
inntur eftir hvaða áhrif atvinnuaug-
lýsing ráðuneytisins á dögunum
hefði haft.
Hann sagði að auövitað væri það
besta sem hægt væri að gera fyrir
fólk sem er atvinnulaust að útvega
því vinnu. Þess vegna hefði veriö
farið út í að auglýsa til að koma
hreyfmgu á hlutina. Hann sagðist
hafa átt fundi með starfsmönnum
vinnumiðlana og atvinnurekendum
og óskað eftir bættum boðskiptum.
Þeirra væri nú von með nýju tölvu-
kerfi sem verið er að taka í notkun
og tengir saman vinnumiðlanimar.
Varðandi það sem komið hefur
fram að frystihúsin vilji ekki karl-
menn til starfa á flæðilínunum sagöi
Páll að hann teldi það vera bábilju
að halda því fram að karlmenn gætu
ekki unnið þar við hlið kvenna. Fólk
væri misvandvirkt og skipti kyn þar
engu máli. Hann sagðist hafa það
eftir frystihúsamönnum að það væri
rangt að útiloka karlmenn frá þess-
um störfum.
Loks benti Páll á að mikið af störf-
um í landinu losnuðu nú um mán-
aðamótin þegar skólarnir byrjuðu.
Hann sagði að þess vegna hefði ráðu-
neytið auglýst aftur til að vekja at-
hygli fólks á þessu.
„En varðandi fiskvinnsluna sjáum-
viö til í einhverja daga. Fáist ekki
fólk verða atvinnuleyfi veitt til út-
lendinga," sagði Páll Pétursson.
Davíð Oddsson i hópi skógræktarfólks i Hallormsstaðarskógi
DV-mynd Sigrún
Hæsta tré á íslandi er orðið 20 metrar:
Trjávöxtur öruggari en hagvöxtur
- segir Davíð Oddsson forsætisráðherra
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsst.:
„Með alla þessa grósku fyrir aug-
unum þykist ég sjá að á íslandi er
tijávöxturinn öraggari en hagvöxt-
urinn,“ sagði Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra þar sem hann var við-
staddur hæðarmælingu á lerkitrjám
í Hallormsstaðarskógi síðastliðinn
laugardag. Af því tilefni kom Davíð
fyrir útskorinni plötu á trénu með
svofelldri áletrun: „Hæsta tré á ís-
landi. Fyrsta tré sem nær 20 metra
hæð. Rússalerki gróðursett 1937,
hæðin mæld 2.9. 1995, 20 metrar."
Plötuna gerði hinn ágæti útskurð-
armeistari Hlynur Halldórsson á
Miðhúsum. Við þetta tækifæri af-
henti forsætisráðherra skógræktinni
500 þúsund krónur frá forsætisráðu-
neytinu til að þróa vörur úr viði. Jón
Guðmundsson og Charles Ross fluttu
trénu tónverk hins síðarnefnda.
Fulltrúar á aðalfundi Skógræktar-
félags íslands, sem haldinn var á
Egilsstöðum um helgina, voru við-
staddir þessa sögulegu stund. Skóg-
ræktin bauð hópnum í skoöunarferð
um skóginn og þurfti fjórar rútur
undir mannskapinn. Fyrst var skoð-
aður ungur lerkiskógur og síðan
gengið um trjásafniö. Þá var sýnd
vinnsla á kurli og borðviði. Eftir at-
höfnina við trjárisann var síðan ekið
í bændaskóginn á Víðivöllum þar
sem veitingar voru bomar fram.
#1» >.
%