Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1995, Síða 16
16
MÁNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1995
Menning
Dreggjar
mannlífsins
Sýning íslenska leikhússins á gamalfrægu leikriti
Maxíms Gorkís er svolítiö hrekkjaleg á yfirboröinu
en engu aö síður er aldrei langt í sáran undirtón. Þrátt
fyrir umfjöllunarefni, sem trauðla getur talist létt-
meti, bregður fyrir allt að því galsafengnum atriðum
og stundum nokkuð yfirdrifnum leikstíl sem leikend-
urnir hafa ekki allir jafnvel á valdi sínu.
En þegar upp er staðið felst þó styrkur sýningarinn-
ar í því að koma til skila innsýn í sálarlíf persónanna
með nokkuð nýstárlegum hætti sem er hráslagalegur
og strákslegur í senn.
Yfirbragðið skapast ekki hvað síst af innieggi Megas-
ar, sem leggur til nýja þýðingu verksins, og jafnframt
af nýrri leikgerð þeirra Egils Ingibergssonar og Þórar-
ins Eyfjörð, leikstjóra sýningarinnar.
Það er óhætt að segja að Megas nýtir þetta tækifæri
í botn til að hrista ærlega upp í málfari persónanna
og smella inn í' textann þekktum frösum úr götumáli
dagsins í dag.
Það er einkar ánægjulegt aö sjá valinn hóp af ungum
leikurum fá alvöru tækifæri til að sýna hvað í þeim
býr og úrvinnslan er í heildina öguð og góð undir
stjóm leikstjórans, þó að stundum hafi að minu mati
verið farið fullgeyst í áherslumar.
Verkið gerist í einhverri ólýsanlegri vistarvera utan-
garðsfólks sem hefur misst fótanna í samfélaginu og
virðist við fyrstu kynni heldur einsleitur hópur. En
textinn og framvinda verksins afhjúpa smám saman
ólíka einstaklinga þar sem hver á sína sögu og sínar
sorgir.
Samskiptin eru skrautleg, svo að ekki sé meira sagt,
og samfélag utangarðsfólksins endurspeglar marga
þætti mannlegs breyskleika.
í sýningunni í Lindarbæ er verkinu hiklaust svipt
inn í nútímann, enda getur það svo sem gerst hvar
. og hvenær sem er. Umfjöllunarefnið er fyrst og fremst
mannlegt eðh, sem breytist víst seint, þó að samskipt-
in geti tekið á sig mismunandi myndir við ólíkar að-
stæður.
Leikendahópurinn er stór og eins og áður sagði er
sérstaklega ánægjulegt að sjá öguð vinnubrögð og sam-
stillingu ungra leikara, sem eiga að baki strangt leik-
listarnám og nokkra reynslu á sviði.
Úr þeirra hópi má nefna þau Benedikt Erhngsson,
Bryndísi Petru Bragadóttur, Sigurþór Albert Heimis-
son, Hinrik Ólafsson, Valgeir Skagfiörð, Þorstein
Bachmann og Steinunni Ólafsdóttur, sem öll náðu
sterkum tengslum við þær persónur sem þau léku.
Þá er og vert að nefna Harald G. Haralds í hlutverki
Lúka.
Öll umgjörð og tæknivinna við sýninguna er metnað-
Harald G. Haralds í hlutverki Lúka i leikritinu
daganna sem sýnt er i Lindarbæ.
djúpi
Leiklist
Auður Eydal
arfull og mikið í lagt. Hljóðmynd er skemmtilega unn-
in og tónar undir atriðum líkt og í kvikmynd. Förðun
og hárgreiösla voru líka áberandi skemmtilega unnar.
Leikmyndin er hráslagaleg eins og vera ber en búning-
arnir þóttu mér æði misjafnir, sumir ágætlega við
hæfi en aðrir ótrúlega fríkaðir.
íslenska leikhúsið sýnir i Lindarbæ:
í djúpi daganna
Höfundur: Maxím Gorki
Þýðing og aölögun: Magnús Þór Jónsson - Megas
Leikgerð: Egill Ingibergsson og Þórarinn Eyfjörð
Leikmynd: Þorvaldur Böðvar Jónsson
Búningar: Linda Björg Árnadóttir
Hljóðmynd: Bong, Eyþór Arnalds og Móeiður Júniusdóttir
Hár og förðun: Kristin Thors
Ljósahönnun: Egill Ingibergsson
Leikstjórn: Þórarinn Eyfjörð
Kraf tur og dulúð
Eiríkur Smith í Hafharborg og Stöðlakoti
í hartnær hálfa öld hefur Eiríkur Smith verið meö afkastamestu listmál-
urum þjóðarinnar og hafa mörg verka hans aukreitis veriö í stærri kant-
inum. Það var mikið um dýrðir í Hafnarfirðinum fyrir réttum fimm árum
þegar Eiríkur færði Hafnarborg að gjöf safn verka eftir sig frá yfir fiög-
urra áratuga ferh en Eiríkur var jafnframt fyrstur til að sýna í Hafnar-
borg, árið 1988. Nú um helgina var
svo opnuð í Hafnarborg stór sýning
á nýjum verkum eftir Eirík í tilefni
af sjötugsafmæli hans. Eins og
Pétrún Pétursdóttir, forstöðumað-
ur Hafnarborgar, bendir á í sýning-
arskrá er það einmitt í eðli Eiríks
að leita sífellt nýrra leiða og koma
á óvart og það er ekki misbrestur
á því í Hafnarborg að þessu sinni.
Jafnframt sýningunni þar hefur
Eiríkur sett upp sýningu á áður
ósýndum afstraktvatnslitamynd-
um frá sjöunda áratugnum í
Stöðlakoti við Bókhlöðustíg í
Reykjavík.
Morgunbirta eftir Eirík Smith.
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
Vatnslitaverk í Sverrissal -----------------------------------
Sverrissalur Hafnarborgar er einnig uppfullur af vatnslitamyndum en
þær eru 27 talsins og allar frá síðustu árum. Þar er um að ræða mun
náttúrutengdari og raunsærri útfærslu en í eldri vatnslitamyndunum í
Stöðlakoti. Fígúmr birtast af og til í landslagi Eiríks líkt og svipir af öðru
plani og dulúðin er einn veigamesti þáttur listar hans nú sem fyrr. Vatns-
litamyndirnar í Sverrissal bera talsverðan svip af þeirri samþáttun ein-
faldra skuggamannsmynda og landslags sem Eiríkur sýndi á Kjarvalsstöð-
um fyrir þremur ámm. Slík samþáttun gengur vel upp í verkum eins og
Morgunn við vatnið (1), Bláar tjarnir (9) og Tvær vemr og vatn (14) þar
sem einfaldleiki og tær birta ráða ríkjum. Síöri era myndir eins og Vordag-
ur í hrauni (16) og Vor í hrauninu (23) sakir einhverrar nákvæmnisár-
áttu sem virðist á stundum gagntaka listamanninn.
Olíuverk
Olíuverkin eru meginefni sýningarinnar í Hafnarborg og eru þau 33
talsins, flest af stærri gerðinni. Hér eru á ferðinni mun meiri afstrakt-
verk en á sýningunni fyrir þremur árum og um margt sérstakt að koma
úr natúralísku landslagi vatnslitaverkanna í þetta nánast hreinræktaða
afstrakt. Verk Eiríks leyna á sér og vinna á. Þau hafa mörg hver til að
bera innibyrgðan kraft sem brýst út þegar síst skyldi og flest virka verk-
in best úr nokkurri fiarlægð. Kraftbirting (2), Haustglóö (5), Sólarátt (6)
og Leysing (26) em allt verk sem búa yfir slíkum krafti sem nær að brjót-
ast fram vegna tiltölulega einfaldrar miðleitinnar myndskipunar. Hins
vegar er of margt minni verka á sýningunni sem ekki er jafnmikið spunn-
ið í vegna þess að flæði í uppbyggingu myndflatarins er ekki markvisst
og deyfð yfir htapallettunni.
Stöölakot
Vatnslitamyndimar í Stöðlakoti em að mínu mati sterkasta framlagið
í þessa sýningaseríu Eiríks. Þar er í senn um aö ræða svipsterka heild
og einfalda og látlausa úrvinnslu. Hér sýnir Eiríkur svo að ekki verður
um villst að hann er með okkar allra fremstu vatnshtamálumm. Sérstak-
lega vil ég nefna th Abstraktionir nr. 2 og 3 í neðri sal sem kraftmiklar
samsetningar. Sú fyrmefnda, sem og nr. 12 í stiganum og nr. 21 uppi, eru
sérstaklega áhugaverðar vegna þess hvemig hstamaðurinn nær að skapa
mettað yfirborð með því að ganga fram á ystu nöf í tækninni. Einfaldar
perlur eins og nr. 9,10 og 11 standa hka fylhlega fyrir sínu í einfóldum
tærleika.
Sýningar Eiríks Smith standa báöar til 25. september.
Millifært á reikninga.
.. Peningaúttektir.
a Fengið yfíríit.
Nú getur þú lagt inn og greitt reikninga.
c Þu getur lagt inn a
innlánsreikninga
í sparisjóðnum.
NYJUNG
SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR
Reykjavíkurvegi 66 Strandgötu 8-10
SPARISJÓÐURINN í KEFLAVÍK
Tjarnargötu 12, Keflavík