Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1995, Síða 6
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995
Neytendur
Tónlistarskólar fyrir böm:
Margir möguleikar
á tónlistarnámi
Nemendur i Tónlistarskóia íslenska Suzukisambandsins. DV-mynd gs
$
Siífeinærföt
Úr 100% silbi. sem er hlýtt í feulda en svalt í hita. Þau henta bæði úti sem inni — á fjöllum
sem í borg. Síöar buxur og rúlluferagabolur eru t.d. frábær náttföt. Þeim fjölgar á hverju ári
sem gefa vinum og ættingjum nærföt í jólagjöf — Stór innkaup gefa góöan afslátt.
DO
S Itr. 3.300,-
M 1». 3.300,-
L kr.4.140,-
XI kr.4.140,-
XXL kr. 4.140,-
S kr. 5.940,-
M kr. 5.940,-
L kr. 7.480,-
XL kr. 7.480,-
XXL kr. 7.480,-
S kr. 7.150,-
M kr. 7.150,-
L kr. 7.995,-
XL kr. 7.995,-
XXI kr. 7.995,-
XS kr. 5.885,-
S kr. 5.885,-
M kr. 5.88S.
L kr. 7.425,-
XL kr. 7.425,-
«rfff bi ii i iim»
XS kr. 6.990,-
S kr. 6.990,-
M kr. 6.990,
L kr. 7.920,
XL kr. 7.920,-
Æy. XS kr. 5.500,-
^ S kr. 5.500,-
JL M kr. 6.820,-
[l V\ L kr. 6.820,-
XL kr. 7.700,-
XXL kr. 7.700,-
tP
tr
XS kr. 5.170,-
5 kr. 5.170,-
M kr. 6.160,-
L kr. 6.160,-
XL kr. 6.930,-
XXL kr. 6.930,-
R
60 kr. 2.750,-
70 kr. 2.750,-
60 kr. 2.795,-
70 kr. 2.795,-
XS kr. 7.150,-
7.150,-
8.250,-
8.250,-
XL kr. 9.350,-
XXL kt. 9.350,-
aí nr./.nu,- ^
a-s tr
4aBBE£»
80-100 kr. 2.970,-
110-130 kr. 3.410,-
140-150 kr. 4.235,-
8
0
XS kr. 4.365,-
S kr. 4.365,-
M kr. 4.365,-
l kr. 5.280,-
XL kr. 5.280,-
XXL kr. 5280,-
0-4 món. kr. 2.310,-
4-9 món. kr. 2.310,-
9-16 món. kr. 2.310,-
80-100 kr. 3.300,-
110-130 kr. 3.740,-
140-150 kr. 4.620,-
0-1 órs kr. 1_
(O) 2-4órs kr. 1.980,-
/> \ 5-7 árs kr. 1.980,-
Full. kr. 2.240,-
□
S kr. 9.980,-
M kr. 9.980,-
l kr. 9.980,-
4&m»
XS kr. 3.960,
5 kr. 3.960,-
M kr. 3.960,
l kr. 4.730,-
XL kr. 4.730,-
«mn
S kr. 3.560,-
(g) M kr. 3.820,
L kr. 3.995,-
TP
80% ull - 20% silkí
E
5 kr. 2.970,-
M kr. 2970,-
L kr. 2.970,-
438911»
80-100 kr. 3.130,-
110-130 kr. 4.290,-
140-150 kr. 4.950,-
80% ull - 20% silkí
5 kr. 3.255,-
M kr. 3.255,
L kr. 3.255,-
Einnig höfum við nærföt úr 100% lambsull (Merinó) ullinni sem efefei stingur, angóru,
kanínuullarnærföt í fimm þvbbtum, hnjáhlífar, mittishlífar. axlahltfar, olnbogahlifar,
úlnliðahlífar, varmasokka og varmasfeó. Nærföt og náttkjóía úr 100% lífrænt ræktaðri
bómull. f öllum þessum geröum eru nærfötin til í barna-, feonu- og fearlastæröum.
Yfir 800 vörunúmer. . 1( . > > . |/X>
Natturulækningabuoin
Laugavegi 25, símar 551-0262 og 551-0263, fax 562-1901
böm 1 móðurkviði
Um þessar mundir hefst skólastarf
hjá tónlistarskólum sem öörum.
Margir skólar bjóða upp á tónlistar-
kennslu fyrir yngsta fólkið. Er námið
oft mjög mismunandi og verð einnig.
Sums staðar geta börn hafið tónhst-
arnám yngri en sex ára. Sérstaklega
má þar nefna Tónlistarskóla íslenska
Suzukisambandsins. Reynir hann að
fá börn í nám sem fyrst, helst meðan
þau eru enn í móðurkviði. Er þannig
börnum kennt þar á aldrinum núll
til fimmtán ára. Þriggja ára byrja
börnin jafnvel að læra á hljóðfæri.
Ársgjaldið er 43.500 fyrir alla. Tón-
menntaskóh Reykjavíkur er með
sérstakan fiðluforskóla þar sem
fimm ára börn læra og fá einkatíma
á fiðlu og Tónskóli Eddu Borg er með
forskóla fyrir fjögurra ára börn sem
kostar 12.000 krónur árið. Það skal
athuga vel að munur á því námi sem
stundað er í tónUstarskólum er mjög
mikill og ekki er hægt að bera saman
verð án þess að athuga vel fyrst hvað
í því felst. Aðferðir eru mismunandi,
börnin fá mismarga tíma í viku í
kennslu og stundum eru bækur inni-
faldar í verði.
Forskólar
Þegar komið er á sex ára aldur eiga
börnin möguleika á forskólanámi í
mörgum tónlistarskólum. í Tón-
menntaskóla Reykjavíkur er for-
skóladeild fyrir börn á aldrinum 6 til
7 ára. Kostar árið 28 þúsund krónur.
Varasamt er að bera verð saman en
í Tónskóla Eddu Borg kostar árið 24
þúsund, í Nýja tónlistarskólanum
kostar það 18 þúsund, í Tónlistar-
skóla Kópavogs 15.500, í Tónlistar-
skóla Hafnarfjaröar 15 þúsund, í
TónUstarskóla Garðabæjar 15 þús-
und, í Tónlistarskólanum á Seltjarn-
arnesi 13.800 og í Tónlistarskólanum
í Grafarvogi 25.200. Einnig er for-
skóli í TónUstarskóla Guðmundar en
verð fékkst ekki þar. Þar er kennt á
hljómborð, píanó og orgel.
Hljóðfæranám tekur við
Forskólinn er undirbúningur fyrir
hljóðfæranám. í honum er oft sung-
ið, leikið á blokkflautu, hlustað á
tónlist og einnig eru gjarnan kennd
frumatriði í nótnalestri og skrift.
Þegar hljóðfæranámið tekur við er
tónfræði jafnan kennd einnig. Verð
á slíku námi er mismunandi og enn
er sami fyrirvarinn á verðsaman-
burði. Kostar slíkt nám á bilinu 21
til 45 þúsund.
AIKaf ódýrast
í Bónusi
Könnun var gerð í gær á verði fjög-
urra grænmetistegunda í Bónusi,
Garðakaupum, Fjarðarkaupum,
Nóatúni og Hagkaupi. Var verð
kannaö á agúrkum, gulrótum, pap-
rikum og tómötum. Kom í ljós að
Bónus var með lægsta verðið í öllum
tilvikum.
Verðið á agúrkum var 256 kr. kg í
Bónusi en næstlægsta verðið var hjá
Fjarðarkaupum, 290 kr. Hjá Garða-
kaupum kosta þær 329 kr. og í Nóa-
túni og Hagkaupi eru þær dýrastar
og kosta 339 kr.
Gulrætur kostuðu 299 kr. í Bónusi
og voru þar langódýrastar. í Fjarðar-
kaupum kostuðu þær 347 kr., í Nóa-
túni 449, í Hagkaupi 489 og Garða-
kaupum 499.
Tómatar kostuðu 249 kr. í Bónusi,
286 í Fjarðarkaupum, 298 í Nóatúni,
299 í Garðakaupum og 309 í Hag-
kaupi.
Rauðar paprikur voru einnig lang-
ódýrastar í Bónusi, kostuðu þar 441
kr. í Fjarðarkaupum kostuðu þær
599 kr., í Garðakaupum 655 kr. og í
Nóatúni og Hagkaupi 799 kr.
í heildina var Hagkaup því oftast
með hæsta verðið á þessum vörum
af þessum verslunum. Bónus var
ávallt með hið lægsta.
Verö á grænmeti
Agúrkur
n Hæst
S Næstlægst
H Lægst
Hagkaup/Nóatún
Tómatar
Fjaröarkaup
Bónus
Hagkaup
Fjaröarkaup
>. i.i r i
Hjá Settu
Söluturninn Hjá Settu, Hring-
braut 49, býður upp á nokkur til-
boð til 1. október. Ný Settusam-
loka og hálfur lítri af Coca Cola
er á kr. 149, Kakó og vaffla með
alvörurjóma er á 99 kr., New-
man’s örbylgjupopp, þrír pokar í
kassa, er á 97 kr. og allar mynd-
bandsspólur eru á 199 kr.
Háskóli Islands dró 2775 kr. frá
endurgreiðslu skrásetningar-
gjalds án skýringa.
aránkvittunar
Maður hafði samband við DV
þar sem sonur hans hafði sótt um
nám við Háskóla íslands og sendi
inn greiöslu til skrásetningar,
22.775 kr. Dró hann umsókn sína
til baka og fékk þá einungis 20.000
kr. endurgreiddar. Kvartaði mað-
urinn undan því að ekki skyldi
hafa verið send kvittun fyrir
þeim 2775 krónum sem á vantaði.
Engin skýring var send á þessum
frádrætti. Ungi maðurinn reyndi
árangurslaust að leita skýringa
hjá Háskólanum en gafst upp.
Sagði faðir hans að hann teldi
þessi vinnubrögð ekki sæmandi
Háskóla íslands.
Samkvæmt upplýsingum frá
Háskólanum er þetta gjald þjón-
ustugjald fyrir vinnunni sem
fram fer við skráninguna, einnig
á það að greiða annan kostnað,
svo sem eyðublöð.
Notendur kreditkorta erlendis
tapa á gengishækkun dollars.
Kreditkorta-
viðskipti í doll-
urum erlendis
Þegar kreditkort eru notuð er-
lendis eru viðskiptin umreiknuð
í Bandaríkjadollara og koma
hingað til lands í innheimtu í
þeírri mynd. Verður þetta þess
valdandi að ef gengi dollars
breytist gagnvart íslensku krón-
unni á þeim tíma sem líður á
milli viðskipta og þess sem skuld-
in er umreiknuö í íslenskar krón-
ur getur upphæðin breyst. í viö-
skiptum með kreditkort er því
fólgin gengisáhætta sem rétt er
að menn viti af. Þegar dollarinn
hækkar gagnvart íslensku krón-
unni tapa notendur kreditkorta
en þeir hagnast á lækkun dollars.
Skólagjöld
Skólagjöld í framhaldsskólum
eru mismunandi og þau ákveður
skólanefnd hvers skóla, Skiptast
þau niður í innritunargjald, efn-
isgjald og nemendasjóðsgjald.
Nemendur í kvöldskóla greiða
þriðjund kennslukostnaðar. Mis-
munandi er hve gjöldin eru há
en yfirleitt eru þau á bilinu fimm
til sjö þúsund. Þar sem efnis-
kostnaður er mikíll, eins og t.d. í
iönskólum, eru gjöld nokkrum
þúsundum hærri.
í grunnskólum voru nemendur
víða látnir borga sérstakt papp-
írsgjald fyrir nokkrum. Voru það
gjöld umfram það sem nemendur
þurftu að borga fyrir pappír og
ritiöng til persónulegra nota.
Undan þvi var kvartað og var því
breytt. Hiö eina sem nemendm-
eiga að greiða nú eru ritföng og
pappír til eigin nota.