Þjóðviljinn - 24.12.1943, Page 21
ÞJÓÐVILJINN
19
fljúga, og sagði þeim hvað þeir mundu gera undir mis-
munandi kringumstæðum.
Eirðarleysið hvarf alveg af drengjunum. Þeir slógust
ekki lengur. Marteinn varð eins og hann hafði verið, áð-
ur en pabbi dó, glaður og áhugasamur á öllum hlutum,
og horfði í andlitið á fólki þegar hann talaði við það.
Hann var öllum stundum, þegar hann gat, hjá Steve
frænda — talandi við hann um flugvélar, geri ég ráð fyrir,
og þeir urðu mjög samrímdir, næstum eins og pabbi og
Marteinn höfðu verið.
Einstöku sinnum, þegar enginn var nálægur, lofaði
frændi Marteini upp í flugvélinni með sér, og síðar lét
hann Martein jafnvel stýra henni, en sat auðvitað sjálf-
ur við hliðina á honum, og hann sagði, að Marteinn væri
fæddur flugmaður.
Marteinn var fyrirmynd f skólanum. Honum fannst
hann aldrei geta gert nóg fyrir ungfrú Wilmot. Stundum
þegar hann sat við borðið sitt, sá ég hann gefa ungfrú
Wilmot nánar gætur, augu hans litu aldrei af andliti
hennar, svo að hann tæki jafnskjótt eftir ef eitthvað
þyrfti að gera fyrir hana. Alltaf þegar Steve frændi var
ekki með, gekk hann með henni heim frá skólanum, og
einu sinni þegar hann kom heim ljómuðu augu hans eins
og demantar, og blettirnir í kinnunum voru hárauðir, og
mér var svo mikil forvitni á að vita, um hvað þau voru
að tala. En Marteinn sagði mér það aldrei.
Hann var jafnvel hvorki reiður eða önugur við Maríu
frænku, þegar hún var að jagast í honum. Það var eins
og hann heyrði ekki til hennar, eins og ekkert af því sem
hún sagði gæti haft áhrif á hann.
Eins var Steve frændi á kvöldin, þegar María frænka
og hann sátu ein í stofunni, og Marteinn var uppi á her-
bergi sínu, en ég inni í eldhúsinu. Þá einu sinni spurði
hún hann, hvort hann og ungfrú Wilmot ætluðu að gift-
ast, og hann sagði, að slíkt væri hlægilegt — hvernig
gat hann búizt við, að ung kona færi að taka að sér tvö
hálfstálpuð börn í staðinn fyrir að annast sín eigin börn?
Eftir þetta var María frænka BÍfellt að tala um ungfrú
Wilmot. Ég býst ekki við að hún hafi nokkurn tíma fyr-
irgefið henni aðfinnslur hennar út af Marteini, og hún
vildi ekki viðurkenna, að framför hans væri kennaranum
að þakka. Hún sagði alltaf, að enginn almennilegur kven-
maður mundi haga sér svipað og ungfrú Wilmot gerði,
ef hann hefði ekki giftingu í huga: hún talaði líkar leik-
konu en kennslukonu, og að flugskólinn væri aðeins bragð
til þess að fá Steve frænda þangað og til þess að geta verið
ein með honum á eftir. Hún sagði, að allur bærinn væri
að tala um þetta“.
En ég býst ekki við, að Steve frændi hafi nokkurn
tíma heyrt til hennar. Stundum kom ég inn, þar sem hann
sat við skjöl sín og sagði ekki orð, og létt bros lék um var-
ir hans. Það var eins og bæði hann og Marteinn hefðu sagt
skilið við allt þras, og lifðu í dularheimi gleði og hamingju.
Ég var að hugsa um allt þetta á leiðinni heim, daginn
sem Steve frændi sagði ungfrú Wilmot, að hún væri orku-
gjafinn. Þegar ég kom heim stóð María frænka í anddyr-
inu og horfði niður eftir veginum í áttina til skólans.
„Hver cru þau?“ spurði hún jafnskjótt og hún sá mig.
„Hver?“ sagði ég, þó að ég vissi hver hún átti við.
<*antiiiiiftiinniiitiuiiiE3iiniiiiiiiiamniiiiinc3iiiiiiii!iiiniiiiiiiiiiiic3iiiniiiiiiiniiiiiiiiiiiiniiniiiiiiiii3iiuiiiiiiu>
| GLEÐILEG JÓL !
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA
Oifniiniiintiniinimc3iiiiiiiiittic3iimiiiiiiiE3iiinin!!iiC3ininHniic3inHiiiitirc3iiiitniiinc3iniiiiiiniC3iiin!iiiiiic^
<*3iiiiiimiiic3iiiiiii!iiitc3imiimii!c3iiiiimimc3iiimii!iiic3imniiiiiiuniiiiiimic3imiinii!ic3ii!iimiiiic3iii!iiiuu^>
GLEÐILEG JÓL !
SÁPUVERKSMIÐJAN sjöfn
*mimminimimimciiiiun[3mimmiic3miiimi!ic3imim[inuimiiiiii!iumiiimmnniiiiiiininiiiimiiiifE«
0aiitiiiiiimc3imiiimiic3iinnmiiic3iiiiiiiiiitic3iiiiiiiiimuiiii!imi!rc3niniiiiiiic3niii!iiimc3[iii{iii!iiiniiiiii!!iii<«
GLEÐILEG JÓL !
KAFFIBÆTISVERKSMIDJAN FREYJA
liiimmtiuiiiiniiiiiiuiiiiniiiiiiniiiiiimiiiniiiniiiiiiiuiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiininiiiiiiiiiiiiuiiimimiiuiinnimiic*
^tiiiiiiiiiiiinmnmmininiiiiiminmmmmummmiiinimmnmnitinnmnniiiiimmiuiiimmmuminiini*
GLEÐILEG JÓL !
BÓKABÚÐ MÁLS OG MENNINGAR
|
*iiiiimniuiiiiiiiiimniiiiiimmuniiiiiiniiumniniiiinmnnnninmnnnninmiiiiniiiuuimnnnuniiiiiniiic$
otmmmmniimimmnmuiiiHiinHiiiiiiiiunniiiiiiiiiiummmmummmiiinimmmiiumnmmiuiiHiiniii*
1 GLEÐILEG JÓL !
SJÓKLÆÐAGERÐ ÍSLANDS H. F.
^iiiimuiiuinmmiiiunmuHmniimuuuiunmiuuiiummmmuiiiuiUHiinHHiiiiiiiiuiiiiHnHiinmmuHuc*