Þjóðviljinn - 24.11.1974, Page 20

Þjóðviljinn - 24.11.1974, Page 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 24. nóvember 1974. VENJULEG VIKA SMASAGA EFTIR N. BARANSKAJA SJÖUNDI HLUTI — LAUGARDAGUR — Mamma er þreytt, svarar Dima. Henni er illt i höndunum og bakinu og fótunum. Ég þoli ekki að heyra þetta. Ég læt Dimu um Kotju, hleyp fram á bað, þríf handklæði, fel andlitið þvi og græt svo að likaminn skelf ur allur. Ég veit ekki lengur út af hverju — yfir öllu i senn. Dima kemur til min, faðmai mig, strýkur mér um bakið og hárið og muldrar: — Svona nú, ekki meira. Stilltu þig. Fyrirgefðu. Hættu nú... Ég hætti, snökti svosem tvisvar. Ég er þegar farin að skammast min yfir að missa þannig stjórn á sjálfri mér. Hvað kom eiginlega fyrir? Það skil ég ekki sjálf. Dima leyfir mér ekki að vinna meir, hann kemur mér i rúmið Við sofum lengi á laugardög- um. Við hjónin hefðum getað sofiö lengur, en börnin vakna rúmlega átta. Laugardagsmorgunn er bestur morgna, við höfum tvo fridaga og hlakka til. Kotja kem- ur inn og vekur okkur, og heimtar að hann sé tekinn upp i. Meðan börnin ærslast meö föður sinum, steypa sér kollhnis og veina af kátihu bý ég til mikinn morgun- verð. Siöan sendi ég börnin og Dimu dt og tek til óspilltra mála. Fyrst set ég súpu á eld. Dima segir að súpan i matsölunni sé aldrei góð, börnin segja ekkert, en þau borða alltaf marga diska af minni súpu. Meðan súpan kraumar tek ég til i ibúðinni — þurrka af, skúra aólfin, skipti á rúmunum, legg þvott I bleyti I Lotus, tek saman það sem fer i þvottahús en geymi mér barnafatnað þar til á morg- unn. Ég hakka kjöt, þvæ ber sem ég ætla að sjóða úr mauk og skræli kartöflur. Við borðum klukkan þrjú. Það er i seinna lagi fyrir börnin, en þau þurfa þess sannar- lega með að komast út á fridegi. Við sitjum lengi við borðið og borðum hægt. Börnin hefðu átt að fá sér blund, en þau eru oröin af- þreytt. Kotja biður Dimu um að lesa Dagfinn dýralækni, sem hann kann reyndar utan bókar. Þeir koma sér fyrir á sófanum, en Gúlja skriður til þeirra, striðir þeim og rifur i bókina. Það verður að svæfa hana, annars fáum við engan fri$. Ég bia henni i svefn, en það finnst okkur annars ekki viðeigandi. Nú ræðst ég á eldhúsið — þvæ flisar og hreinsa gashausana, tek til i skápunum, og þvæ gólfiö. Siðan þarf ég að þvo mér um hárið, þvo það sem ég lagði i bieyti, fara i bað, gera við sokka- buxur og sauma lykkju á kjól- beltið — loksins. Dima ætlar i þvottahúsið, Kotja vill ekki sleppa honum og hann veröur að taka drenginn með sér. Það er ekki sem best, þar er biðröð og slæmt loft, en þeir fara sér þá hægt á heimleiðinni, enda taka þeir sleðann með. Ég er ein með minar tiltektir þar til „karlmennirnir” koma heim um sjöleytið og heimta te. Þá man ég allt i einu eftir þvi að Gúlja sefur enn og vek hana. Hún rekur upp skaðræðisöskur meðan ég þvæ henni i framan. Ég læt Dima um hana meðan ég fer aö hugsa um kvöldmatinn. Ég reyni að flýta honum, þvi börnin eiga að fara i bað i dag. Yfir borðum segir Kotja og horfir á okkur á vixl: — Þið verðið bæði heima á morgun? — Auðvitaö, á morgun er sunnudagur, segi ég til að róa hann. Kotja nýr augun, hann er syfjaður. Ég fylli baðkerið og þvæ honum fyrst. Gulja volar, skriður að baðherberginu og opnar dyrn- — Dima, passaðu dóttur þina, kalla ég. — Er ekki nóg komið i dag, mig langar til að less. — Heldurðu að mig langi ekk- ert til þess? — Það er þitt mál, en ég er tilneyddur. Auðvitað er það ekki ég sem er neydd til að lesa. Ég kem Kotja sjálf i rúmið, en vénjulega gerir Dima það, og ég sé að Dima situr á sófanum með tæknitimarit og er i raun og veru aö lesa. Þegar ég geng framhjá honum sendi ég þetta skeyti frá mér: — Reyndar er ég ekki siður sér- fræðingur en þú ... — Leyfðu mér að óska þér til hamingju, segir Dima. Þetta finnst mér eitruð móðgun. Ég stend og sápa Gúlju með svampi og tárin taka allt i einu upp á þvi að brölta upp úr baðkerinu. Ég kem henni ekki niður og rétti henni rassskell. Gúlja móðgast og fer að gráta. Dima kemur og segir illur: — Það er engin ástæða til að láta þetta bitna á barninu! — Að þú skulir ekki skammast þin, æpi ég, ég er þreytt, skilurðu, þreytt.... Ég kenni skelfilega mikið i brjósti um sjálfa mig. Nú fer ég að hágráta, tel fram i huganum allt sem ég vinn án þess að geta lokið neinu af,sé eftir bestu árum ævinnar, harma það að ég hefi ekki sest niður I allan dag. Allt i einu heyrast hræðileg óp úr barnaherberginu: — Pabbi, þú mátt ekki berja mömmu, þú mátt ekki berja mömmu! Dima gripur Gúlju, sem er nú vafin i handklæði og við förum inn i barnaherbergi. Kotja stendur uppi I rúmi sinu, tárin streymandi Aumingja Dima, þetta er ekki heldur auðvelt fyrir hann, hugsa ég. niður kinnarnar, og hann endur- tekur: — Þú mátt ekki slá mömmu! Ég grip hendi hans og hugga hann: — Hvað vitleysa, vinur, pabbi hefur aldrei barið mig pabbi okkar er svo góður... Díma heldur að Kotju hafi dreymt illa. Hann klappar drengnum og kyssir hann. Við stöndum þétt og höldum i hendur barnanna. — Af hverju er hún þá að gráta? spyr Kotja og strýkur hendinni um votan vanga minn. eins og barni og kemur með heitt te i bolla. Ég drekk það, hann breiðir yfir mig, og ég sofna við ýmiskonar hljóð framan úr eld- húsi — það er sullað i vatni, boll- um og diskum er raðað i skap, fætur dragast eftir gólfinu. Þegar ég vakna veit ég fyrst ekki hvort það er morgunn eða kvöld. Og hvaða dagur er? Það er kveikt á lampanum á borðinu, en dagblað er breitt yfir hann til að draga úr birtunni. Dima er að lesa. Ég sé aðeins helming andlitsins: hvelft ennið, ljósa hárið, sem er þegar farið að þynnast, loðnar augnabrúnir og þunnan vanga hans — eða er þetta skugginn af lampanum? Hann er þreytulegur. Hann flettir blaði án þess að heyrist og ég sé hönd hans með dreifðum, rauðleitum hýjungi og nagaða nögl á þumalfingrinum. Aumingja Dima, þetta er heldur ekki auðvelt fyrir hann, hugsa ég, og ég sem fór að gráta eins og bjáni. Mig tekur sárt til þin, ég elska þig... Hann réttir úr sér, horfir á mig og spyr brosandi: — Jæja, hvernig liður þér, Olga ertu lifandi? Þegjandi sting ég hendinni und- ir teppið og teygi hana til hans. Niðurlag næsta sunnudag Ávarp til þjóðarinnar á bindindisdaginn 24. nóvember 1974 Ljóst er að augu œ jleiri manna opnast nú fyrir því að áfengi er hœttulegt fíkniefni, bölvaldur manna og þjóða. Evrópuráðið og Norðurlandaráð hafa nýlega gert samþykktir um áfengismál og hvetur hið fyrr- nefnda meðal annars til að halda áfengi í háu verði og auka bindindisfrœðslu, bœði í skólum og œskulýðs- jclögum. I sumum nágrannalöndum okkar, þar sem sala áfengis er engum hömlum bundin, fjölgar dauðsföll- um af völdum áfengisneyslu svo mjög að einungis krabbamein og hjarta- og œðasjúkdómar valda dauða fleiri manna (Frakkland). Hérlendis hafa meðal annarra lœknasamtökin var- að við þeim hœttum sem við blasa og hvatt til þess ,,að sala áfengra drykkja verði takmörkuð". Framundan er mikið átak i umhverfismálum. Upp- blástur gróðurlendis skal stöðvaður, vörnum beitt og helst snúið í sókn. En við skyldum minnast þess að fleira getur blásið upp og sundrast en grœnir reitir. Neysla áfengis og annarra vímuefna veldur þeim upp- blœstri sem oft reynist erfitt að grœða. Áfengis- neysla er ekki einkamál. Margt barnið vex úr grasi og hefur œvistarf sitt kalið á hjarta vegna drykkju foreldra. Og margt atgervisfólk hefir ísland misst í þá óseðjandi hít sem elfur áfengisins er. Það er þarft að berjast gegn mengun umhverfisins. Hitt er þó enn mikilvœgara að koma í veg fyrir meng- un líkama og sálar, háskalega mengun sem getur sið- blindað jafnvel hina bestu menn. — Við teljum það skyldu hugsandi manna að skera upp herör gegn drykkjutískunni og hörmulegum afleiðingum hennar. Slík herför hœfir vel á þjóðhátíðarári. t nípnPÍKvnrnnr/ifttirtnutur heil hrigíUsráöherra form. Landss. gegn áfengish. áf engisvarnaráiöunautur \ / menntamálaráöherra jform. Kvenfélai’asambands íslands prófessor A L&Sóyf al fiingismafíur alþingismaður alþingismaöur hiskup alþingismaður . yr/ fórtemplar

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.