Þjóðviljinn - 16.03.1975, Side 18

Þjóðviljinn - 16.03.1975, Side 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. marz 1975. GRÆNLAND — Frá Kulusuk — Flugfélagið býður upp á skoðunarferðir þangað i sumar sem endranær. DAGUR í KULUSUK Ætli menn að fljúga innanlands eða til útlanda á næstunni, er vert að gefa gaum að hinum ýmsu fargjöldum, sem Flugleiðir bjóða uppá — í verðbólgutíð dugir ekki annað en að spara. Flugfélagið veitir ýmiss konar afslátt frá fullu verði. Það má t.d. benda á „menningar- neyslu-afsláttinn”, sem talsvert er notaður. Sá afsláttur gildir fyrir hópa utan Reykjavikur, fólk sem ætlar að heimsækja höfuðstað- inn, fara i leikhús, á málverka- svningar og fleira af bvi taginu. ;,Menningarneysluafsláttur” gildir fyrir 10 manna hópa, eða fjölmennari, og fær hver ein- stakur 70% afslátt af farinu aðra leiðina, þ.e. greiðir 130% fargjald báðar leiðir. Flugfélagið útvegar mönnum lika leikhúsmiða ef þeir vilja, ,,og þjónusta þessi er talsvert mikið notuð”, sagði Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi, ,,og aldrei misnotuð”. Svo er rétt að minna á annars konar afslátt, t.d. fjölskylduaf- sláttinn. Hjón, sem fljúga sam- an og hafa börn með, fá þannig 50% afslátt á einu fullorðinsfari. 12—18 ára börn fá fargjöldin ódýrari en fullorðnir og sömu- leiðis þeir sem eru 67 ára og eldri — þeir fá sérstakan gamalmenna-afslátt. En þrátt fyrir afslátt, er far- gjaldið víst nógu dýrt — dýrasta fargjaldið sem við heyrðum Svein Sæmundsson nefna var i Grænlandsferð Flugleiða. I sumar eins og fvrri ár verða farnar útsýnisferðir til Kulusuk, en þar er sögð vera frumstæð- asta byggð manna á norðurslóð- um. Eins dags ferð til Kulusuk kostar 19.448 krónur. Hægt er að lengja Kulusuk-ferðina um tvo daga, fara þá með þyrlu i aðra byggð og biða næstu ferðar. Þessar Grænlandsferðir eru einkum vinsælar af frökkum, itölum og amerikönum, svoköll- uðum „stop-over”- farþegum Loftleiða. 1 Kulusuk gefst mönnum að lita frumbyggja dansa fornan trumbudans, farið er með fólk i bátsferð út i mynni Angmaksa- likfjarðar, hægt er að fara i gönguferð upp á jökul og kanna umhverfið. Flugfélagið heldur einnig uppi þriggja til fjögurra daga ferðum á slóðir islendinga i Grænlandi, þ.e. til Brattahliðar, Garða og Narsarsúak við Isafjörð. Þessar ferðir eru farnar i samvinnu við SAS yfir hásum- arið, þe. frá 1. júli fram i september . — GG Skíðaparadís í Austurríki Flugleiöir hafa i vetur staðið fyrir hópferðum á skfði i Austur- riki og Frakklandi. Flugleiðir bjóða upp á tvo eða þrjá staði að heimsækja, en reyndin hefur orðin sú, að einn staðurinn er vin- sæiastur, en þaö er Kitzbúhel i Austurriki. Þar hafa margir islendingar spókað sig i stórfenglegu skiða- landi i vetur, og væntanlega verða einhverjir þar nú um pásk- ana. Flugleiðir selja fólki far i þessar skiðaferðir á söluskrifstof- unni i Lækjargötu.en einnig selja hinar ýmsu ferðaskrifstofur i landinu farmiða til Kitzbuhel. Ein vika kostar 34.700 kr. og tvær vik- ur kosta 42.900 kr. Frá Kitsbúhel — sklðalyftur eru margar, flestar iokaðar og flytja fólk 2000 metra upp eftir ölpunum. Ferðatilhögun er þannig, að héðan er flogið með Flugleiðum til Luxembourgar, en þaðan er ekið um fagrar sveitir i áætlunar- bil til Kitsb'úheí, en aksturinn þangað tekur um 10 klukkustund- ir. A þeim góða stað, Kitzbuhel er flest eðá allt hægt að veita sér sem gefst á slikum skiðastöðum. Skiðalyftur draga menn i 2000 metra hæð, hægt er að renna sér á skiðum og ferðast með lyftum tugi km, og hvarvetna verða veit- ingahús á leið skiðamannsins, jafnt i hliðum sem á fjallstoppum, og þótt i 2000 metra hæð sé komið, er lafhægt að svipta sig klæðum og leggjast i sólbað, þvi veðrið er jafnan heitt og kyrrt á þessum árstima. Þeir Flugleiðamenn sem heim- sótt hafa Kitsbúhel eru harð- ánægðir með þann stað, segja að þar þurfi menn ekki endilega að stunda skiðarennsli allan sólar- hringinn.ferðamannastaðurinn er alþjóðlegur, þar er að finna sund- laugar og saunur, næturklúbba og bjórkrár, stórverslanir og markaði af ýmsu tagi.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.