Þjóðviljinn - 16.03.1975, Blaðsíða 24
24 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. marz 1975.
Lög Og
reglur
ríkis-
sta rfs -
manna
Starfsmannafélag ríkisstofn-
ana er stærsta félagið innan
Bandalag starfsmanna rikis og
bæja. Eru nú innan félagsins um
3000 féi'agsmenn og hel'dur félágið
uppi öflugri starfsemi.
Nú nýverið kom út á vegum
SFR bókin „Lög og reglur er
varða rikisstarfsmenn”. Bókin er
220 siður i handhægu broti og hef-
ur hún verið send öllum félags-
mönnum SFR. Þetta er i sjötta
sinn sem SFR gefur út slika hand-
bók um réttindi og skyldur starfs-
manna rikisins. Að þessu sinni
hafa Hrafn Magnússon, Sverrir
Júliusson og Þórólfur Jónsson
annast útgáfuna.
Bókin skiptist i marga kafla.
Fyrst er formáli og atriðisorða-
skrá. Þá er kafli sem ber yfir-
skriftina „Málefni BSRB og
SFR”. 1 þriðja kafla eru kjara-
samningar i fjórða kafla eru lög
og reglugerðir um réttindi og
skyldur, í fimmta kafla er greint
frá gildandi reglum um ferða- og
gistikostnað opinberra starfs-
manna. Þá er sérstakur kafli um
lifeyrissjóð rikisstarfsmanna og
loks eru birt ýmis lög og reglur.
„Lög og reglur er varða rikis-
starfsmenn” er gagnleg bók og
þörf. Sagði framkvæmdastjóri
starfsmannafélags rikisstofnana
Þjóðviljanum að bók þessi yrði
send hverjum félagsmanni SFR.
Bókin fæst á skrifstofu félags-
ins og kostar hún 400 kr.
Fyrsti kjarn-
orkuvitinn
Lenigrad (APN) Fyrsti
kjarnorkuvitinn i heiminum
stendur við Eystrasaltsströnd So-
vetrikjanna. Ljósið frá vitanum
sést i 16 sjómilna fjarlægð. Fjöldi
vita meðfram ströndum Sovét-
rikjanna verður i náinni framtíð
búinn slikum tækjum.
Það er erfið vinna að vera vita-
vörður við vita langt út við sjó,
sérstaklega vegna hins einangr-
aða llfs. Nú verða vitarnir alger-
lega sjálfvirkir. Allri starfsemi
þeirra verður stjórnað frá stjórn-
borði uppi á landi. Þessi fyrsti
kjamorkuviti er knúinn af tveim-
ur rafölum, sem framleiða hita
með geislavirkum efnum og veld-
ur þannig rafstraumi. Þeir eiga
að geta starfað stanslaust i mörg
ár.
Kreppan
fjölgar
barns-
fæð-
ingum
Sextiu þúsund fleiri börn fædd
ust á ttaliu i fyrra en árið 1973.
Félagsfræðingar hafa komist að
þvi, að ástæðan fyrir þessum fjör-
kipp sé einkum s£ efnahagsvandi
sem mjög hefur seilst ofan i vas-
ana hjá itölskum almenningi.
Sjónvarpsstöðvar hafa dregið
saman útsendingar sinar, og af
sparnaöarástæðum fara menn
sjaldnaren áður i bió, leikhús eða
á aðra skemmtistaði. Það verður
þvi aukin freisting almenningi að
hafa sér til dægrastyttingar það
sem sumsstaðar er kallað „leik-
föng fátæka mannsins”.
RÓMANTÍSKAR
SUMARLEYFISFERÐIR
Eftir að góðborgarar Evrópu hafa undanfarna
áratugi lagt undir sig sólarstrandir suðursins,
dularfullar óbyggðir norðursins, ævintýri
frumskóganna og meginhluta heimshafanna
verður ferðaiðnaðurinn að finna upp eitthvað al-
veg nýtt og fer þá sem tiskuiðnaðinum, snýr aft-
ur til fortiðarinnar. Nú er i tisku — lika i sumar-
leyfinu — það sem er nógu gamaldags.
Ferðir til fortíðarinnar eru
aðalnýjung ferðabransans á
komandi sumri.
Hátt á vinsældalistanum eru
gömul gistihús, sem eiga sér
einhverja sögu....
...og hef ur verið viðhaldið í stíl
síns tfma....
Þá er ekki síður fínt að búa í
köstulum, að maður tali nú
ekki um ef þar er sagt reimt.
Skorti á þægindum er tekið
með þolinmæði á slíkum stöð-
um
...enda hægt að koma upp
miðalda baðmöguleikum.
Að vísu er hætt við að ekki sé
hægt að gera sem öllum líki í
höllinni á kvöldin....
....en þar á móti hefur maður
tækifæri til óvenjulegra
kynna.
Og umfram allt er séð fyrir
því, að börnin fái sitt.
Aldar-
fjóröung
I
felum
Fyrir nokkru sögðum við hér i
blaðinu frá tveim griskum
kommúnistum, sem höfðu falið
sig I fjöllum á eynni Krit allt frá
þvi að borgarastriðinu i Grikk-
landi lauk árið 1949. Voru þeir
einir eftir af um 30 manna skæru-
liðahópi sem þá lagðist út, og
höfðu getað komist undan marg-
efldum leitarflokkum með
óvenjulegri hugvitssemi og
þrautseigju. Nú hafa þær fréttir
borist að mennirnir tveir, Spiris
Blazakis og Georgis
Tzombanakis, hafi verið náðaðir.
Er myndin tekin af þeim þegar
þeir komu úr fylgsni sinUjOg var
þeim fagnað sem þjóðhetjum.