Þjóðviljinn - 06.04.1975, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 6. apríl 1975.
Lúövík Jósepsson:
Byggðastefna í framkvæmd
Eitt af þvi fáa, sem nokkurn
veginn var skiljanlegt i stjórnar-
yfirlýsingu ihalds-Framsóknar-
stjórnarinnar, var loforð um að
tryggja Byggðasjóði árlegt fram-
lag sem næmi 2% af útgjöldum
fjárlaga. t framhaldi af þvi fyrir-
heiti var siðan lagt til i fjárlaga-
frumvarpinu fyrir árið ’75 ,,að
beint rikissjóðsframlag hækkaði
um 440 milj. kr.” til Byggða-
sjóðs, eins og orðrétt stóð i fjár-
lagafrumvarpinu.
Loforðið um aukið fjárframlag
til Byggðasjóðs hefir verið mikið
mál i munni ýmissa stuðnings-
manna rikisstjórnarinnar, eink-
um þó Framsóknarmanna. Hefir
helst verið á þeim að skilja, að
Byggðasjóðsmálið væri eitt af
stærstu málum rikisstjórnarinn-
ar og að það hafi ráðið miklu um
að stjórnarsamstarfið tókst.
Engin
stefnubreyting hjá
Byggðasjóði
Þó að nú séu liðnir 7 mánuðir
siðan rikisstjórn ihalds- og Fram-
sóknar tók við völdum, bólar ekki
á neinni stefnubreytingu hjá
Byggðasjóði.
Hann sýslar enn við sömu verk-
efni og áður og virðist sist valda
þeim betur nú, enda er sifellt bor-
ið við fjárskorti, ef eitthvað þarf
að gera sem teljandi er. Helsta
breytingin hjá Byggðasjóði er sú,
að nú er ihaldsmaður orðinn
framkvæmdastjóri sjóðsins
ásamt Framsóknarmanninum
sem þar var fyrir. Og nú er i-
haldsmaður orðinn formaður
sjóðsins og upp hefur verið tekin
gamla helmingaskipta-reglan,
sem fræg varð á sinum tima i
fyrri samstjórn ihalds og Fram-
sóknar. Auðvitað var aldrei við
þvi að búast, að Byggðasjóður
gæti haft nein teljandi áhrif á
gang byggðamálanna i landinu.
Til þess er sjóðurinn alltof
veikur, bæði fjárhagslega og
stjórnskipulega. Aðalverkefni
sjóðsins hafa verið að veita við-
bótarlán til skipakaupa og til
ýmiskonar atvinnurekstrar og að
styðja þá, sem komist hafa i
rekstrarörðugleika af ýmsum
ástæðum. Vissulega hafa slikar
lánveitingar verið til bóta i flest-
um tilfellum, en þær hafa litlu
getað áorkað varðandi það stóra
verkefni að hafa áhrif á þróun
byggðar i landinu.
Byggöastefna
vinstri stjórnar
í tið vinstri stjórnarinnar urðu
miklar breytingar i atvinnumál-
um landsbyggðarinnar og i kjara-
og afkomumálum þess fólks sem
þar býr.
Samkvæmt opinberum skýrsl-
um, sem nú liggja fyrir, jókst
kaupmáttur launa verkamanna,
sjómanna og bænda i tima vinstri
stjórnarinnar um 34%.
Á valdatima vinstri stjórnar-
innar, þ.e.a.s. frá miðju ári 1971
til miðs árs 1974, var skiptingu
þjóðarteknanna breytt frá þvi
sem áður hafði verið, vinnustétt-
unum i hag.
Á þessum tima jukust tekjur
Hafist var handa um byggingu
margra nýrra frystihúsa i stað
gjörsamlega úreltra og gamalla
húsa, en auk þess unnið að stór-
felldum breytingum i mörgum
frystihúsum. Framkvæmdir
þessar gjörbreyttu á stuttum
tima atvinnumálum margra
staða.
Fyrir tima vinstri stjórnarinn-
ar var atvinnuleysi viðvarandi i
mörgum stöðum á landinu, mest
nýja sókn i byggðamálum.
En hvað hefur gerst á þeim 7
mánuðum sem stjórnin hefur ver-
ið við völd?
Stefnubreyting hefur orðið, þvi
verður ekki neitað — og það svo
að um munar.
1 hverju er sú stefnubreyting
fólgin?
Fyrst er þess að geta, að rikis-
stjórnin hefur knúið fram stór-
fellda breytingu á skiptingu þjóð
t tið vinstri stjórnarinnar var unnið kappsamlega að endurnýjun fiskiskipaflotans og að endurbótum á
fiskvinnslustöðvum um allt land.
bænda fyllilega til jafns við aðrar
vinnustéttir og jafnvel nokkuð
meir, samkvæmt þeim skýrslum
sem nú liggja fyrir. Hagur bænda
batnaði lika verulega á þessum
árum, eins og viðurkennt er af
öllum, en það ieiddi siðan til þess
að framkvæmdir i sveitum fóru
vaxandi og urðu meiri á þessum
tima, en áður hafði þekkst.
t tið vinstri stjórnarinnar var
hafin endurnýjun togaraflotans á
breyttum grundvelli frá þvi sem
áður var. Skipin sem keypt voru,
voru við það miðuð, að þau væru
hentug til hráefnisöflunar fyrir
fiskvinnslustöðvarnar i landi og
jafnframt var að þvi unnið að þau
yrðu gerð út frá mörgum útgerð-
arbæjum i öllum landsfjórðung-
um. Endurnýjun togaraflotans
hefir náð til 55 skuttogara.
Þeim hefur verið skipt i lands-
hluta þannig:
Til Vesturlands fóru 3skip
Til Vestfjarða fóru 9 skip
Til Norðurlands v. fóru 7skip
Til Norðurlands e. fóru lOskip
Til Austurlands fóru 9 skip
Til Suðurlands fóru 2skip
Til Reykjaness fóru 7 skip
Til Reykjavikur fóru 8skip
Alls 55 skip
Samhliða endurnýjun og efl-
ingu fiskiskipaflotans var i tið
vinstri stjórnarinnar unnið kapp-
samlega að endurbótum i frysti-
húsum og fiskvinnslustöðvum um
allt land.
þó i ýmsum þorpum og kaupstöð-
um, á norður og norðausturlandi.
Vegna stefnu vinstri stjórnarinn-
ar i atvinnumálum og þeirrar
stefnu sem hún fylgdi fast fram á
öðrum sviðúm, sem mjög snertu
málefni landsbyggðarinnar, eins
og t.d. á sviði heilbrigðismála,
samgöngumála, virkjunarmála,
skólamála og á sviði ibúðabygg-
inga, varð gjörbreyting á búsetu-
málum landsbyggðarinnar frá
þvi sem áður hafði verið.
t stað þess að áður hafði fólki
fækkað jafnt og þétt úti á landi,
en fjölgað á höfuðborgarsvæðinu,
þá snérist þróunin við ög árið 1973
var meiri fólksfjölgun hlutfalls-
lega úti á landi en á höfuðborgar-
svæðinu.
t tið vinstri stjórnarinnar var
stefna hagstæð landsbyggðinni.
Þá var rekin byggðastefna i
framkvæmd.
Ný ríkisstjórn —
ný stefna í
byggðamálum
Með tilkomu rikisstjórnar
ihalds og Framsóknar, sem tók
við völdum i lok ágústmánaðar sl.
sumar var aftur tekin upp ný
stefna i málefnum landsbyggðar-
innar. Samkvæmt hinum nýja
stjórnarsáttmála átti að leggja
aukna áherslu á stuðning við
landsbyggðina, eða eins og rikis-
stjórnin sagði, nú átti að hefja
arteknanna, vinnustéttunum,
þ.e.a.s. verkamönnum, sjómönn-
um og bændum i óhag.
Sú stefna hefir komið og á eftir
að koma, illa við landsbyggðina
og verða til þess að gera hennar
stöðu verri en áður var, i Saman-
burði við höfuðborgarsvæðið. Þá
hefir rikisstjórnin tekið upp þá
stefnu, að leggja höfuðáherslu á
stórframkvæmdir á suð-vestur-
horni landsins, en draga jafn-
framt úr almennum framkvæmd-
um á vegum rikisins.
Þannig hefir rikisstjórnin
ákveðið að beita sér fyrir bygg-
ingu járnblendiverksmiðju i
Hvalfirði i félagsskap við erlend-
an auðhring. Verksmiðjan ásamt
hafnar- og vegagerð sem henni
fylgja munu kosta miðað við nú-
verandi verðlag um 11—12 milj-
arða króna.
Vegna byggingar járnblendi-
verksmiðjunnar verður að ráðast
nú þegar i nýja stórvirkjun og er
ákveðið að hún verði við Hraun-
eyjafoss i nánd við Sigöldu.
Hrauneyjarfossvirkjun er áætl-
að að kosti um 13—14 miljarða
króna. Þá hefir rikisstjórnin sam-
ið við Bandarikjastjórn um fram-
kvæmdir á Keflavikurflugvelli og
má telja vist að þær kosti miðað
við núgildandi verðlag 8—9 mil-
jarða króna. Hér er um miklar
framkvæmdir að ræða á islensk-
an mælikvarða, en þær munu
standa yfir i næstu 3—4 ár að
minnsta kosti. Ekki er gott um
það að segja, eins og nú standa
sakir, hvort framkvæmdir þess-
ar geta komið i veg fyrir það at-
vinnuleysi hér syðra, sem marg-
ur óttast sem afleiðingu af sam
dráttarstefnu stjórnarinnar i
efnahagsmálum. En hitt er aug-
ljóst, að þessar miklu fram-
kvæmdir á Suð-Vesturlandi á
sama tima og stefnt er að al-
mennum samrætti i framkvæmd-
um úti á landi, hljóta að hafa al-
varlegar afleiðingar i byggðaþró-
unarmálum. Nú boðar rikis-
stjórnin niðurskurð framkvæmda
á vegum rikisins á þessu ári að
upphæð 3500 miljónir króna. Þessi
niðurskurður mun að mestu koma
niður á hafnarframkvæmdum
skólabyggingum, sjúkrahúsbygg-
ingum og flugvallagerð, og þá
fyrst og fremst úti á landi.
Þá boðar rikisstjórnin einnig
mikinn niðurskurð á útlánum,
Stofnlánasjóða atvinnuveganna.
Hér er um að ræða útlán Fisk-
veiðasjóðs, Stofnlánadeildar
landbúnaðarins og Iðnlánasjóðs.
Eftir þvi sem best er vitað, er
gert ráð fyrir, að útlán þessara
sjóða verði i ár að miða nær ein-
göngu við það sem þegar hefur
verið lofað, en um ný lánsloforð
verði varla að ræða.
Stefna af þessu tagi i lánveit-
ingamálum og varðandi fjárút-
vegun til stórframkvæmda, hlýt-
ur að hafa gifurleg áhrif á at-
vinnumál landsbyggðarinnar og
þá um leið á afkomu þeirra sem
jpar búa.
Það er blátt áfram hlægilegt,
við þessar aðstæður, að minnast á
smáupphæðir eins og 440 miljónir
króna, sem eiga að bætast við
starfsfé Byggðasjóðs. Þegar þess
er lika gætt, að meginhlutinn af fé
Byggðasjóðs gengur til lánveit-
inga sem jöfnum höndum renna
til framkvæmda i öllum lands-
hlutum jafnt.
Það má öllum ljóst vera, að
stefna núverandi rikisstjórnar i
atvinnu- og framkvæmdamálum
er óhagstæð landsbyggðinni —
hún er þvi engin byggðastefna,
heldur mikla fremur gamla við-
reisnarstefnan tekin upp aftur —
og nú af Framsókn og ihaldi.
Pipulagnir i |
Nýlagnir, breytingar,
hita veitutengingar.
Simi 36929 (milli kl.
12 og 1 og eftir 7 á
kvöldin).
Prentsmiöja
<§> SHODR tlOL
5-MANNA, FJÖGURRA DYRA. VÉL 53 HESTÖFL.
BENSlNEYÐSLA 7.7 LlTRAR Á 100 KM.
FJÖGURRA HRAÐA ALSAMHÆFÐUR GÍRKASSI.
GÓLFSKIPTING. VIÐBRAGÐ 20 SEK. I 100 KM. Á KLST.
VERÐ MEÐ SÖLUSKATTI KR. 582.000,00
VERÐ TIL ÖRYRKJA KR. 418.000,00
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ISLANDIH/E
AUÐBREKKU 44-6 SÍMI 42600 KÓPAV0GI
annast
allskonar
setningu
og prentun
Prentsmiöja
Þjóðviljans hf.
Skólavörðustfg 19. Sími
17505