Þjóðviljinn - 06.04.1975, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 6, apríl 1975.
Sunnudagur 6. aprfl 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 1*
VÉLSKÓLI ÍSLANDS SÓTTUR HEIM
Andrés Guöjónsson, skólastjóri Vélskóla tslands
Jón Hassing, kennari sýnir Kára Gunnarssyni rétt handtök viö
„lóöari” og gerö trektar.
Magnús A. Gunnarsson rennir öxul meö hjámiöju I einum rennibekk
skólans.
Nemendur þriöja stigs I raffræöitima hjá Eggerti Gauti Gunnarssyni
VERKMENNTUN
HEFUR BATNAÐ
Vélskóli Islands hefur
verið mjög til umræðu í
vetur, og nú upp á síðkastið
vegna þess f ramtaks kenn-
ara og nemenda skólans,
að mæla og stilla upp
kynditæki víða um land, og
hef ur þessi verknaður þeg-
ar sparað ótaldar krónur í
kyndingu margra húsa
sem að sjálfsögðu þýðir
svo aukinn sparnað á
blessuðum gjaldeyrinum.
í vetur eru 290 nemendur
starfandi í Vélskólanum í
Reykjavík og í deildum
skólans, sem starfandi eru
á Akureyri, ísafirði og
Siglufirði er 51 nemandi.
Kennarar við skólann í
Reykjavík eru 34 með
skólastjóra, þar af 20 fast-
ráðnir.
Vélskóli íslands hefur
aðsetur í Stýrimannaskól-
anum ásamt Sjómanna-
skólanum og Hótel- og veit-
ingaskólanum. Skólinn
verður sextugur í ár, stofn-
aður 1915. Núverandi
skólastjóri er Andrés Guð-
jónsson.
Inntökuskilyrði
Andrés sagði blaðamanni að
inntökuskilyrði væru fremur væg
i Vélskólann. Þrátt fyrir það
þreyta mun fleiri inntökupróf, en
ná þvi eins og gerist og gengur.
Vélstjóranámið skiptist i f jögur
stig, og lýkur námi á hverju stigi
með mismiklum atvinnuréttind-
um.
Inntökuskilyrði til náms á
fyrsta stigi eru þau, meðal ann-
ars, að umsækjandi hafi náð 17
ára aldri og æskilegt er að hann
hafi lokið gagnfræðaprófi, en það
er þó ekki skilyrði. Andrés sagði,
að þeir hefðu verið að biða eftir
grunnskólalögunum áður en þeir
vildu fara út i breytingar á inn-
tökuskilyrðum 1. stigs.
Til þess að hefja nám á þriðja
og f jórða stigi þurfa nemendur að
hafa lokið námi annars stigs með
framhaldseinkunn, en þrenns-
konar einkunnir eru ráðandi,
þeas. falleinkunn, einkunn sem
veitir starfsréttindiog framhalds-
einkunn til frekara náms.
Til þess að hefja nám á öðru
stigi þarf umsækjandi að vera
orðinn 18 ára og hafa lokið námi
.fyrsta stigi með framhaldseink-
unn, eða öðlast tveggja ára
reynslu i meðferö véla eða i véla-
viðgerðum og standast inntöku-
próf i nokkrum greinum. Einnig
er hægt að hefja nám á öðru stigi
ef umsækjandi hefur lokið prófi
frá verknámsskóla og hefur auk
þess hlotið amk. 6 mánaða
reynslu i meðferð véla og stenst
verklegt inntökupróf I vélfræði.
Þá fá sveinar i vélvirkjun inn-
göngu til náms á öðru stigi án inn-
tökuprófs.
Nám frá öðrum skólum er tekið
til greina i einstökum námsgrein-
um, ef skólastjórn sýnast próf-
kröfur hafi verið fullnægjandi.
Heimavist og
mötuneyti
Á neðstu hæð Stýrimannaskól-
ans, þar sem Hótel- og veitinga-
skólinn starfar, er rekið mötu-
neyti fyrir Vélskólann og Stýri-
mannaskólann. Þá hafa nemend-
ur Vélskólans rétt til að nota
heimavist þá sem rekin er á efstu
hæð hússins, en skólastjóri sagði
að mjög mikill hluti nemenda
væri utan af landi. Af skynditaln-
ingu i Vélsimanum, simaskrá,
sem nemendur skólans gefa út,
taldist undirrituðum til, að 111
nemendur skólans væru utan af
landi, en eins og áður segir eru
nemendur hér i Reykjavik 290.
Rennir þetta stoöum undir þá
Magnús Karlsson kennir nemendum á fyrsta stigi eitt og annaö i vélfræöi.
Guöjón Jónsson, fagstjóri viö eitt þeirra tækja, sem finna má I rafmagnsdeildinni og blaöamaöur hefur
ekki hugmynd um hvernig virkar.
vik og i Neskaupstað.
Andrés sagði, að þótt greinilegt
væri að þörf væri fyrir að setja á
stofn fleiri deildir úti á landi, en
nú eru stafandi, þá yrðu menn á
þeim stöðum, sem slikar deildir
vildu fá, að leggja talsvert að
mörkum, þvi þeim yrðu ekki
færðar slikar deildir á silfurbökk-
um.
1 þeim deildum sem starfandi
eru úti á landi fer fram kennsla
fyrsta og annars stigs.
Verkmenntunarskólar
Andrés kvað framtiðina liklega
verða þá, að úti á landi yrðu
stofnaðir verkmenntunarskólar
og myndi þá Vélskólinn starfa i
mjög nánum tengslum við þá,
enda væri slikt mjög skynsamlegt
vegna þeirrar nýtingar, sem
þannig fengist á tækjum og að-
stöðu allri.
Sagði Andrés að visir að slikum
skóla væri starfandi á ísafirði
undir stjórn Aage Steinssonar,
rafveitustjóra. Þar vinna saman
undir einni yfirstjórn iðnskóli,
tækniskóli, stýrimannaskóli og i
nánu samstarfi við menntaskól-
ann á staðnum.
Ætlunin var að byggja nýtt hús-
næði fyrir Vélskólann á Akureyri,
á lóð iðnskólans þar, og i nánu
samráði við hann, en fjárveiting
fékkst ekki til þess.
Atvinnuréttindin
Kristján Pétursson tekur leiösögn kennara sins, Hreins Haraldssonar
1. stig.Sá sem lokið hefur vél-
stjóranámi 1. stigs, fær þegar i
stað réttindi til að vera yfirvél-
stjóri á fiskiskipi með 51—250
hestafla vél og undirvélstjóri á
fiskiskipi með 251—500 hestafla
vél.
Að loknum 12 mánaða starfs-
tima öðlast hann rétt til að vera
yfirvélstjóri á fiskiskipi með
251—500 hestafla vél.
2. stig.Sá, sem lokið hefur vél-
stjóranámi 2. stigs, hefur auk
framangreindra réttinda, rétt til
að vera undirvélstjóri á fiskiskipi
með 251—1000 ha. vél. Að loknum
6 mánaða starfstima öðlast hann
rétt til aö vera yfirvélstjóri á
fiskiskipi með 251—500 ha. vél. Að
loknum 12 mánaða starfstima
sem undirvélstjóri á skipi með
501—1000 ha. vél, öðlast hann rétt
til að vera yfirvélstjóri á fiski-
skipi með 501—1000 ha. vél og
flutningaskipi með allt að 800 ha.
vél.
3. stig.Sá, sem lokið hefur vél-
stjóranámi 3. stigs, hefur auk
framangreindra réttinda rétt til
að vera undirvélstjóri á fiskiskipi
meö 251—1800 ha. vél, á flutninga-
skipi með allt að 1500 ha. vél og
farþegaskipi meö allt að 1200 ha.
vél. Að loknum 18 mánaða starfs-
tima sem undirvélstjóri á skipi
með 1001—1800 ha. vél öðlast hann
rétt til að vera yfirvélstjóri á
fiskiskipi með 1001—1800 ha. vél
og flutningaskipi með 801—1500
ha. vél. Jafnframt hlýtur hann
rétt til undirvélstjórastarfa sem
3. eða 4. vélstjóri á fiskiskipi með
stærri vél en 1800 ha., á flutninga-
skipi með stærri vél en 1500 ha.
4. stig. Þetta námsstig verður
þvi aöeins grundvöllur sérstakra
atvinnuréttida, að nemandinn
hafi einnig lokið sveinsprófi i vél-
virkjun. Vilji nemandi, sem lokið
hefur vélstjóranámi 2., 3. eða 4.
stigs, siðar taka sveinspróf i vél-
virkjun, á hann rétt á styttingu
verklegs námstima i vélvirkjun
vegna smiðanáms i Vélskólanum
og annarrar starfsreynslu. Einn-
ig á hann rétt á undanþágu, að
meira eða minna leyti frá námi
og prófum i iðnskóla vegna náms-
ins i Vélskólanum. Um atvinnu-
réttindi er að öðru leyti visað til
laga um atvinnuréttindi vélstjóra
á islenskum fiskiskipum frá 3.
mai 1966.
Stytting iðnnáms
Hafi nemandi lokið prófi frá
Vélskóla Islands og vilji siðar
taka sveinspróf, gilda eftirfar-
andi reglur um styttingu náms-
tima hans:
Kennarar Vélskólans fá sér kaffidreitil I friminútum.
umsögn skólastjórans, að mikil
þörf væri á vélskóladeildum viða
úti um land.
Vélskóladeildir
Fyrir deildunum þremur, sem
áður voru taldar upp og starfandi
eru úti á landi eru forstöðumenn,
en Andrés er skólastjóri allra
deildanna, og yfir þeim öllum er
sama skólanefnd og Reykjavik-
urdeildinni.
Fyrir gos var starfandi deild
frá skólanum i Vestmannaeyjum,
en hefur þó ekki verið komið af
stað aftur siðan, en fullur hugur á
þvi. í ráði mun vera, að stofna
deildir frá skólanum á Höfn i
Hornafirði og Ólafsvík. Þá hefur
orðið vart áhuga fyrir þvi að setja
á stofn deildir á Akranesi, i Kefla-
1) Meta skal verknám vélstjóra
til styttingar iðnnáms sem hér
segir: a) Heimilt skal að stytta
verknám vélstjóra, sem lokið
hafa 1. stigi um 6 mánuði i málm-
iðnaðargreinum. b) Heimilt skal
að stytta verknám vélstjóra sem
lokið hafa 2., 3., og 4. stigi um 3
Framhald á 22. siðu.