Þjóðviljinn - 06.04.1975, Qupperneq 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 6. apríl 1975.
Guömundur Jónsson, framkvæmdastjóri útvarpsins tekur viötal við
konu á Akranesi.
HINIR SKÖRPU
SKÝRENDUR
Þessa dagana, þegar
þjóöfrelsisherir i Vietnam
vinna hvern stórsigurinn á
fætur öðrum á herjum
stjórnarinnar í Saigon,
velta menn fyrir sér raun-
verulegum ástæðum' af-
hroðs Saigon-hersins.
Bandariska heimildamyndin
frá NBC sem sjónvarpið sýndi i
páskavikunni, sýndi nokkuð vel,
hvernig bandarikjamenn flæktust
i þessu striði.
Það var verulegur fengur að
þessari mynd.-sem sýnd var i
tveimur hlutum, en eigi að siður
lætur hún mjög mörgum
spurningum ósvarað — og enn
undrast maður sérkennilega af-
stöðu bandarikjamanna til mál-
efna austur þar.
Myndin sýndi ljóslega, hvernig
Kennedy i fádæma fávisku um
málefni Indókina, blint trúaður á
útþenslu „alheims-
kommúnismans” æddi á stað út i
það fen sem bandarikinmenn
ætla seint að komast upp úr.
Þeir bandarisku blaðamenn
sem heimildamvndina unnu
kunnu til verka, og nú gátu þeir
notfært sér þær upplýsingar sem
fyrir nokkru lagu á borðinu vegna
Pen t agon-sk ja ia nna . Það
er svo aftur skritið, hve
blaðamennirnir sjálfir virtust
leggja undarlegan skilning i það
sem þeir sögðu, hvernig þeir ein-
blindu á einstaka menn og þýð-
ingu þeirra i atburðakeðjunni,
hvernig þeir imynduðu sér, að
striðið hefði farið öðru visi, ef
Diem-stjórnin hefði farið að ráð-
um Kennedy-stjórnarinnar um
takmarkaðar þjóðfélagsumbæt-
ur.
Hvað um það — rnyndin var
fróðleg, næstum eins fróðleg og
umræðuþáttur islenskra frétta-
skýrenda i ..Heimshorni” á
þriðjudaginn var. Þar kom ber-
lega fram, hve fáeinar mannvits-
brekkur geta svipt hulu van-
þekkingarinnar frá augum
sjónvarpsglápara og komiö
VIPPU - BlLSKÚRSHURÐIN
Lagerstærði'r miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270 sm
Aðrar stærðir.smiðaðar eftir beiðni.
CLUGGAS MIÐJAN
Slðumújo 12 - Sími 38220
mönnum i skiining um atriði sem
áður virtust svo torskilin.
Fyrsti fréttaskýrandi byrjaði
þáttinn á þeirri krefjandi spurn-
ingu, hvers vegna i fjandanum
þetta væri svona erfitt:
1. fréttaskýrandi: Hvers vegna
gengur (okkur) svona illa?
2. fréttaskýrandi: Það er senni-
lega af þvi, að svokölluð
vietnamisering striðsins hefur
mistekist.
3. fréttaskýrandi: Já, en svo
má benda á það, að nú er svo mik-
ið af rússneskum skriðdrekum i
Vietnam.
4. fréttaskýrandi: Já já. Og svo
taka Norðanmenn þau vopn sem
sunnanmenn fleygja frá sér á
flóttanum.
1. fréttaskýrandi: En það vekur
furðu, að fóíkið flýr undan þjóð-
frelsishernum. Hvers vegna flýr
ekki fóikið til norðurs?
2. fréttaskýrandi: Ja, það
stafar sko af þvi að her norðan-
manna kemur úr norðri og fólkið
flýr varla á móti hernum. Það
flýr i burtu frá bardögunum, en
stefnir ekki beint i þá.
1. fréttaskýrandi; Já!
2. fréttaskýrandi: Ég hef ekki
trú á að herlið þjóðfrelsisaflanna
taki Saigon. Þar munu leifar
stjórnarhersins safnast saman og
verjast af meiri hörku... en vitan-
lega er borgin i hættu, og senni-
lega fellur hún.
Næsta vika.
Sjónvarpsáhorfendur eiga
væntanlega von á ámóta fræðandi
þáttum og þessi var i næstu viku,
Heimshorn verður á dagskrá á
þriðjudaginn aftur, en sá þátt-
urinn sem flestir biða sennilega
eftir með mestri eftirvæntingu, er
þáttur Guðmundar Jónssonar, ,,Á
ferð og flugi”. Guðmundur er sem
kunnugt er framkvæmdastjóri út-
varpsins, og það hefur oft sýnt sig
undanfarin ár, hve mikill styrkur
útvarpinu er að þvi að hafa menn
eins og Guðmund i vinnu. Á
daginn er Guðmundur hinn alvar-
legi og strangi embættismaður,
en á kvöldin bregður hann sér i
gervi hins léttlynda spyrils,
mannsins sem rýkur út um allar
jarðir með hljóðnemann og spyr
leifurfyndinna spurninga og
veitir öllum hina bestu skemmtun
ásamt ögn af fróðleik með.
Þetta aukastarf Guðmundar er
nú væntanlega tilkomið vegna
þess að Rikisútvarpið á í fjár-
hagserfiðleikum, Guðmundur fær
varla krónu fyrir þættina — ella
léti hann einhverjum dýrum
skemmtikrafti eftir að sjá um
þetta litilræði.
Aðrir dagskrárliðir sem vert er
að benda sérstaklega á, er
sjónvarpsupptaka frá jasshljóm-
leikum i Bandarikjunum, þar
sem þeir koma fram m.a. Duke
Ellington og Sammy Davies jr.
Þessi jass-þáttur verður á
miðvikudagskvöldið, og það
kvöld verður lika sýnd sænska
sjón varpsmy ndin , „Hver
er hættulegur”, en þessi mynd er
leikin heimildamynd sem fjallar
um afbrot og afbrotamenn.
um helgina S
/unnudagur
18.00 Stundin okkar. 1 þessum
þætti verða sýndar teikni-
myndir um Onnu litlu og
Langlegg, Robba eyra og
Tobba tönn. Islenskur
drengur, Kristján Bahadur,
sem búsettur er i Nepal,
segir frá lifinu i Himalæja-
fjöllum, og sýndar verða
ljósmyndir af honum og
félögum hans. Farið verður
i skoðunarferð upp á Esju,
og loks verður sýndur fyrsti
þátturinn i nýrri tékkneskri
framhaldsmynd um ösku-
busku. Umsjónarmenn
Sigriður Margrét Guð-
mundsdóttir og Hermann
Ragnar Stefánsson.
18.55 Hlé
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Dagskrá og auglýsingar.
20.30 Á ferð og flugi.
Spurningaþáttur, kvik-
myndaður á Akranesi.
Spyrjandi Guðmundur
Jónsson. Umsjónarmaður
Tage Ammendrup.
21.20 Janus. Fræðslumynd um
varðveislu gamalla bygg-
inga, gerð að tilhlutan
Evrópuráðsins i tilefni
byggðaminjaársins. Inn-
gangsorð flytur Þór
Magnússon,
22.00 Einhverntima verður
Danmörk frjáls. Sjónvarps-
leikrit eftir Erik Knudsen,
byggt að hluta á atburðum
úr sögu Danaveldis. Leik-
stjóri Carlo M. Pedersen.
Aðalhlutverk Pouel Kern,
Louis Miehe-Renard, Ingo
Wentrup og Henning Paln-
er. Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir. Þetta er söng-
leikur i léttum tón og gerist
við dönsku hirðina á fyrri
hluta 19. aldar. Á þeim tima
taka ýmsir hugsjónamenn
upp baráttu fyrir auknu
frelsi og réttindum þegn-
anna, en Friðrik konungur
sjötti vill engu fórna af sinu
skefjalausa valdi. (Nord-
vision—Danska sjónvarp-
ið).
23.00 Að kvöldi dags.Sr. ólaf-
ur Skúlason flytur hug-
vekju.
23.10 Dagskrárlok.
mánucJogiif
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Onedin skipafélagið.
Bresk framhaldsmynd. 26.
þáttur. Allt er i heiminum
hverfult. Þýðandi óskar
Ingimarsson. Efni 25. þátt-
ar: James hefur bjargað
mannlausu skipi og fært það
til hafnar með ærnum
kostnaði og fyrirhöfn.
Björgunarlaunin eiga að
vera þriðjungur af sölu-
verði, en brátt kemur i ljós,
að tryggingafélagið sem á
að annast sölu skipsins, ætl-
ar að selja það langt undir
sannvirði, til þess að spara
björnunarlaunin. Þessi sala
er aðeins til málamynda, en
seinna á Daniel Fogarty að
fá skipið á mun hærra verði.
James kemst að þessu.
Hann fer á uppboðið og
kaupir skipið á háu verði.
Meðan hann er i þeirri ferð,
veikist Anne. Hún er þung-
uð, en heimilisstörfin verða
henni um megn. Hún missir
fóstrið, og ættingjarnir
áfellast James fyrir að eyða
fé i skipakaup i stað þess að
búa konu sinni þægilegra
heimili.
21.30 íþróttir. Myndir og frétt-
ir frá iþróttaviðburðum
helgarinnar. Umsjónar-
maður Ómar Ragnarsson.
22.00 Skiiningarvitin. Sænskur
fræðslumyndaflokkur. 5.
þáttur. Ilmskynið. Þýðandi
og þulur Jón O. Edwald.
(Nordvision—Sænska
sjónvarpið).
22.35 Dagskrárlok.
um helgina
/unnudogur
8.00 Morgunandakt. Séra
Sigurður Pálsson vigslu-
biskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr
forustugreinum dagblað-
anna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir).
11.00 Prestvigslumessa i
Dómkirkjunni. (Hljóðrituð
á skirdag). Biskup Islands
vígir Ólaf Odd Jónsson
cand. theol. til Keflavikur-
prestakalls. Vigslu lýsir
séra Garðar Þorsteinsson
prófastur. Vigsluvottar auk
hans: Séra Björn Jónsson
og séra Garðar Svavarsson.
Séra óskar J. Þorláksson
dómprófastur þjónar fyrir
altari. Hinn nývigði prestur
predikar. Organleikari:
Ragnar Björnsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Jón Guðmundsson iærði
og rit hans. Einar G. Pét-
ursson cand. mag. flytur
sfðara hádegiserindi sitt.
14.00 Staldrað við á Eyrar-
bakka; —fyrsti þáttur.Jón-
as Jónasson litast um og
spjallar við fólk.
15.00 Miðdegistónleikar.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Umræðuþáttur um fóst-
ureyðingar og ákvörðunar-
rétt konunnar. Stjórnandi:
Árni Gunnarsson frétta-
maður. Þátttakendur: Ell-
ert Schram alþingismaður,
Guðmundur Jóhannesson
læknir, Vilborg Harðardótt-
ir blaðamaður, og Jón G.
Stefánsson læknir.
17.25 Unglingahljómsveitin I
Reykjavik leikur i útvarps-
sal. Stjórnendur: Páll P.
Pálsson og Stefán Þ.
Stephensen.
17.40 Otvarpssaga barnanna:
„Vala” eftir Ragnheiði
Jónsdöttur.Sigrún Guðjóns-
dóttir les sögulok (12).
18.00 Stundarkorn með
sópransöngkonunni Sylviu
Gres/ty. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Þekkirðu land?” Jónas
Jónasson stjórnar spurn-
ingaþætti um lönd og lýði.
Dómari: Ólafur Hansson
prófessor. Þátttakendur:
Pétur Gautur Kristjánsson
og Þórður Jóhannsson.
19.45 Pianókonsert i Es-dúr
(K-482) eftir Mozart. Sin-
fóniuhljómsveit íslands
leikur i útvarpssal. Einleik-
ari og stjórnandi: Vladimir
Ashkenazý.
20.25 Þáttur af Ólafi Tryggva-
syni Noregskonungi. Aðal-
höfundur efnis: Oddur
Snorrason. Siðari hluti: Frá
valdatima Ólafs i Noregi,
kvennamálum og falli. Gisli
Helgason og Hjalti Jón
Sveinsson taka saman. Les-
arar: Óskar Halldórsson og
Dagur Brynjúlfsson.
21.25 Kórsöngur. Svend Saaby
kórinn syngur danska
söngva.
21.45 Einvaldur I Prússlandi.
Jón R. Hjálmarsson skóla-
stjóri flytur fyrsta erindi
sitt: Ætt og uppruni Frið-
riks mikla.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Dansiög.
Hulda Björnsdóttir dans-
kennari velur lögin.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
mQAudciguf
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05: Valdimar örnólfsson
leikfimikennari og Magnús
Pétursson pianóleikari,
(a.v.d.v.). Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forustugr. lands-
málabl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55: Séra
Grimur Grimsson flytur
(a.v.d.v.). Morgunstund
barnanna kl. 9.15: Guðrún
Jónsdóttir les „Ævintýri
bókstafanna” eftir Astrid
Skaftfells i þýðingu Mar-
teins Skaftfells (6). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög milli
atriða. Búnaðarþáttur kl.
10.25: Magnús Sigsteinsson
ráðunautur talar um bygg-
ingarmál bænda. íslenskt
mál kl. 10.40: Endurtekinn
þáttur dr. Jakobs Bene-
diktssonar. Morguntónleik-
ar kl. 11.00: Suisse Rom-
ande hljómsveitin leikur
„Leiki”, balletttónlist eftir
Debussy/ Régine Crespin
syngur „Shéherazade”,
þrjá ljóðasöngva eftir
Ravel/ Colohne-hljómsveit-
in i Paris leikur „Karnival
dýranna” eftir Saint-Saéns.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan.
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið.
17.10 Tónlistartimi barnanna.
Ólafur Þórðarson sér um
timann.
17.30 Að tafli. Guðmundur
Arnlaugsson rektor flytur
skákþátt.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Mælt mál. Bjarni
Einarsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn.
Steinunn Finnbogadóttir
talar.
20.00 Mánudagslögin.
20.25 Blöðin okkar. Umsjón:
Páll Heiðar Jónsson.
20.35 Heilbrigðismál:
Heimilislækningar, V.
Bergþóra Sigurðardóttir
læknir talar um ókosti rúm-
legunnar.
20.50 Á vettvangi dómsmál-
anna. Björn Helgason
hæstaréttarritari flytur
þáttinn.
21.05 Tónlist eftir Sigurð
Þórðarson. Karlakór
Reykjavikur flytur þrjá
þætti úr Hátiðarmessu. Ein-
söngvarar: Guðmundur
Jónsson og Kristinn Halls-
son. Sigurður Þórðarson og
Páll P. Pálsson stjórna.
Fritz Weisshappel leikur á
pianó. — Guðmundur Jóns-
son flytur formálsorð.
21.30 Utvarpssagan: Banda-
manna saga.Bjarni Guðna-
son prófessor les fyrsta lest-
ur af þremur.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Byggða-
mál. Fréttamenn útvarps-
ins sjá um þáttinn.
22.45 Hljómplötusafnið i um-
sjá Gunnars Guðmundsson-
ar.
23.40 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.