Þjóðviljinn - 14.12.1975, Page 11
Sunnudagur 14. desember 1975. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA II
AFERLENDUM
BÓKAMARKAÐI
Tradition and Innovation
in Renaissance Italy
A sociological approach. Peter
Burke. Fontana/Collins 1974.
Höfundurinn leitast við að lýsa
samfélagi itala á timabilinu
1420—1540. Margir hafa haft
áhuga á þessu samfélagi sem
varð einkar frjótt i listum og bók-
menntum einmitt á þessu tima-
bili. Höfundur leggur meiri
áherslu á þýðingu efnahagslifsins
fyrir blómstran „endurreisnar-
innar” en margir höfundar hafa
gert og hefur safnað saman miklu
safni heimilda þeirri kenningu
sinni til framdráttar. Höfundur
telur að borgarastétt hinna ýmsu
borga Italiu eigi drýgri þátt i
menningarblómanum en kirkja
og aðall, þótt hlutur þeirra siðast
töldu sé alls ekki litill. Blómlegur
efnahagur og dreifing auðsins á
tiltölulegar margar hendur og lif-
andi menningararfleifð var
heppilegur jarðvegur fyrir frek-
ari blómstran lista og bók-
mennta.
Course in General
Linguistics.
Ferdinand de Saussure. Introduc-
tion by Jonathan Culler. Edited
by Charles Bally and Alber
Sechehaye in collaboration with
Albert Reidlinger. Translated
from the French by Wade Baskin.
Fontana/Collins 1974.
Ferdinand de Saussure er tal-
inn höfundur nútima málvisinda.
Hann fæddist 1857, ári eftir Sig-
mund Freud og ári siðar en Emile
Durkheim fæddust. Allir þessir
menn hafa mótað mjög heims-
mynd nútimans, ekki sist
Saussure með rannsóknum sinum
og kenningum um mál og tal.
Þessir fyrirlestrar voru gefnir út
og unnir af tveimur nemendum
hans 1916, eftir andlát höfundar.
Ahrif Saussures urðu mikil og
málvisindi nútimans eru mjög
reist á þeim kenningum hans sem
birtast i þessari bók, þótt nokkur
frávik hafi átt sér stað um sumar
kenningar hans á siðustu áratug-
um.
Ifíj M: ís k u ve rs I u n æskunnar
Þingholtsstræti 3
Vandaður og
fallegur fatnaðu
á börnin.
Verðlækkun á
eldri kjólum
500—1500.00
kr.
JUDAS
No:l
Góð hljómsveit, kraftmikil hljómlist
L flutt af innlifun og örýggi. Allt á einni hljómplötu
Júdas vinnur á Júdas svikur engan j
Júdas No.1 A
Póstsendum Simi 92 16 87