Þjóðviljinn - 25.01.1976, Qupperneq 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur. 25. janúar 1976.
DMBVIUINN
MÁLGAGN SÓSlALISMA,
VERKALÝÐSEININGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan óiafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraidsson
Umsjón meö sunnudagsblaöi:
Arni Bergmann
Ritstjórn, afgreiösla, augiýsingar:
Skólavöröust. 19. Simi 17500 (5 linur)
Prentun: Blaðaprent h.f.
LÁGMARKSKRAFA
Snemma I mánuðinum birti Þjóðviljinn
grein eftir Barry Schneider talsmann upp-
lýsingamiðstöðvar um hernaðarmálefni i
Washington. í grein þessari kom fram að
kjarnorkuvopn væru á íslandi. Eftir að
greinin birtist hefur verið rætt við islenska
ráðamenn um efni greinarinnar. í svörum
þeirra hefur komið fram að þeir vita
ekkert um þessi mál; þeir hafa engar upp-
lýsingar i höndunum. Yfirmaður varnar-
máladeildar utanrikisráðuneytisins og
ólafur Jóhannesson hafa verið með mjög
almennar staðhæfingar um þessi mál en i
tali þeirra hafa málin ekkert skýrst.
,,Dagblaðið” birtir svo i fyrradag viðtal
við greinarhöfundinn Barry Schneider.
Þar kemur fram að hann telur allt benda
til þess að á íslandi séu kjarnorkuvopn,
Hann segist hafa upplýsingar sinar eftir
bandariskum þingmönnum samkvæmt
Ieyniskjölum sem þingmennirnir hafi að-
gang að. Telur hann að Lockheed Orion
vélar bandariska hersins séu að öllum
likindum búnar djúpsprengjum með
kjarnaoddum til þess að granda kafbátum
i N-Atlantshafi. Þannig bendir margt
til þess að kjarnorkuvopn bandariska
hersins á íslandi séu hér i beinum tengsl-
um við njósnaflug bandarikjamanna hér i
grennd við landið. Styrkist sá grunur við
blaðafregnir um að á siðustu árum hefur
bandaríski herinn byggt á veilinum tvær
rammbyggðar skotfærageymslur og amk.
önnur þeirra fullnægi öryggisreglum sem
settar eru af hálfu hersins um geymslu
kjarnorku vopna.
íslenskir ráðamenn hafa fátt sagt um
þessar -blaðafregnir, og ekki er vitað til
þess að nokkur rannsókn hafi byrjað á
þessu máli af hálfu opinberra stjórnvalda.
Þessi framkoma rikisstjórnarinnar I mál-
inu er algerlega forkastanleg, en þó aðeins
enn eitt dæmið um þá almennu fyrir-
litningu sem núverandi rikisstjórn hefur á
lýðræðislegum vinnubrögðum og
viðbrögðum samkvæmt þeim.
Ekki er vitað til þess að heldur að rikis-,
stjórn íslands hafi nokkru sinni gert
ráðstafanir til þess að koma I veg fyrir að
B-52-vélar bandarikjamanna fengju að
lenda á Keflavikurflugvelli. Þessar vélar
bera yfirleitt kjarnorkusprengjur og hefur
það sannast þegar vélar af þessari gerð
hafa hrapað, og þó að sprengjurnar hafi
ekki sprungið hafa þær orsakað viðtæka
og stórháskalega geislavirkni.
Þessar vélar, B-52, svo og Lockheed
Orion-vélarnar, sem herinn notar hér á
landi, geta þvi við minnstu óaðgæslu haft i
för með sér hörmulegustu slys. Nú er
nokkur timi liðinn siðan umræðan um ægi-
legan eyðileggingarmátt kjarnorku-
sprengjunnar stóð sem hæst. Þvi er vert
að rif ja það upp, sem bent var á i skýrslu
sérfræðings til rikisstjórnar íslands árið
1963, en þar sagði tam. að eins megatonns
loftsprengja myndi „nægja til þess að
tryggja tortimingu flestra reykvikinga.”
Þar sagði ennfremur að i kjarnorkustyrj-
öld gætu allt að 60—70 % landsmanna
farist. Þessar ægilegu staðreyndir ber að
hafa i huga þegar viðbrögð stjórnarvalda
eru íhuguð nú, og það ber einnig að hafa i
huga að hver sprengja um borð I B-52
vélunum, sem fórust hefur eyðileggingar-
mátt á borð við 20 miljónir tonna af TNT
sprengiefni.
Þessar ægilegu staðreyndir blasa nú við
islendingum, og það blasir einnig við að
þessar staðreyndir eru afleiðingar þess að
bandariska setuliðið er hér á landi.
Óaðgæsla við meðferð þessara tor-
tímingarvopna og afleiðingar hennar fyrir
islendinga eru beinar afleiðingar banda-
risku hersetunnar hér á landi.
Að undanförnu hefur komið fram að
vaxandi hluti fólksins I landinu gerir sér
ljóst að herinn er ekki hér á landi til þess
að vernda islendinga, þrátt fyrir
hástemmdar yfirlýsingar ráðamanna þar
um og þrátt fyrir undirskriftasöfnun
Varins lands. Herinn er hér á landi til þess
eins að þjóna hagsmunum bandariska
hersins og geði örfárra islenskra valda-
manna. Þessari hersetu fylgir margvisleg
hætta; einn angi þeirrar hættu og kannski
sá ægilegasti er tortimingarhætta
kjarnorkuvopnanna. Slikri hættu er aðeins
unnt að bægja frá landsmönnum með þvi
að víkja hernum úr landi. Litlar líkur eru
að visu á þvi að núverandi rikisstjórn beiti
sér fyrir jafnsjálfsagðri ráðstöfun, enda
þótt forsætisráðherra stjórnarinnar hafi
sjálfur lýst þvi manna best hversu ónýtur
herinn er til þess að vernda íslenska hags-
muni. En þá lágmarkskröfu verður að
gera til rikisstjórnarinnar, að hún geri
tafarlausar ráðstafanir til þess að koma i
veg fyrir að hér á landi séu kjarnorkuvopn
á vegum bandariska hersins og að hún
geri jafnframt ráðstafanir til þess að
koma i veg fyrir að flugvélar með
kjarnorkuvopn fái að lenda hér á landi.
Keflavikurflugvöllur hefur um margra
ára skeið verið eini almenni flugvöllurinn
sem hefur leyft lendingar véla af gerðinni
B-52, en þær bera sem fyrr segir kjarn-
orkuvopn. Það er mál að þeirri svivirðu
linni.
Þjóðviljinn gerir ekki þá kröfu til núver-
andi rikisstjórnar að hún reki herinn úr
landi. Til þess er rikisstjórnin alltof undir-
gefin þeim hugsunarhætti sem er forsenda
hersetunnar, og til þess eru stjórnar-
flokkarnir alltof háðir hernámsgróðanum
sjálfir. En það er lágmarkskrafa að ríkis-
stjórnin komi tafarlaust til móts við þær
kröfur sem hér hefur verið gerð grein
fyrir. —s
Aað banna framleiðslu
lykteyðandi efna?
Fræðimenn óttast nú æ meir að
ýmisleg hæpin umsvif mannsins
leiði til þess að ozonlagið ofarlega
i andrúmsloftinu raskist og eyði-
leggist.
Ozonlagið hlifir yfirborði jarðar
og ibúum þess fyrir útfjólublárri
geislun frá sólu. Ef að ozonlagið
minnkar getur það leitt til meiri
útbreiðslu húðkrabba, hægari
vaxtar plantna og minnkandi súr-
efnisframleiðslu. Einnig hefur
verið rætt um hugsanlegar
breytingar á veðurfari og lofts-
lagi.
Ozon er sett saman úr súr-
efnismólekúlum sem innihalda
þrjú súrefnisatóm, en það súrefni
sem við öndum að okkur inniheld-
ur aðeins tvö atóm i mólekúli.
Jafnvægi
Þegar tiltekin efni ganga i sam-
band við ozon eyðist það. T.d.
klór, köfnunarefnissambönd. En
útfjólublá geislun frá sólu leggur
hinsvegar sitt til að ozon heldur
áfram að myndast og ozonlagið i
andrúmsloftinu er þvi i jafnvægi.
Menn eru samt hræddir um að
ýmisleg umsvif manna muni
auka eyðingu ozons og raska
þessu jafnvægi.
Hér er einkum um að ræða
tilraunir með kjarnavopn, flug
hljóðfrárra flugvéla og lykteyð-
andi sprautur, en allt þetta hefur i
för með sér nokkra hættu fyrir
ozonjafnvægið.
í byrjun siðasta áratugs var
ozonmagnið óvenju lágt, en þaö
jókst eftir að rússar og banda-
rikjamenn hættu við tilraunir
sinar með kjarnavopn i andrúms-
loftinu.
1 hljóðfráum flugvélum hitnar
loftið i hreyflunum allt upp i 2000
gráður og myndast við það mikið
magn af nitrogenoxiði eins og viö
kjarnorkusprengjur — en það er
köfnunarefnis- og súrefnissam-
band sem brýtur niður ozon.
Boeing stöðvuö
Þar eð hljóðfráar flugvélar
fljúga i ozonlaginu, sem er i 10-15
km hæð, getur loft frá þeim
minnkað ozonmagnið verulega.
Arið 1971 stöðvaði bandariska
þingið allan efnahagsstuðning til
hljóðfrárrar farþegaþotu sem
. ' Fr*N»»i kan nci!l)r>(t<' ouHi-lMKcf il
*r&fmrtkfi«»ri»ii. »0 prinTiit kmnié v«.*r«‘!
uédlinidl í»r 2000, livK yl Iklic
bftVði' opi!ui;cf farcii oii Dío forlíuc
aoMrátiOff fur vj | dai; kon ón
: fiffMcni nf. mcii di*n vll mflftc mrd
1» muiftc rcduktÍfMifii i o/oii-
nkvnftdcn.
Freonefnin, sem notuð eru m.a. í lykteyðandi sprautur, berast smám
saman út í andrúmsloftið I þvi magni að ozonlagið er Ihættu.
Boeing var að smiða vegna þess-
arar hættu.
Arið 1974 bentu nokkrir banda-
rlskir færðimenn á það i timarit-
inu Nature að sjá mætti fram á
alvarlega mengun i stratos-
ferunni, en i þvi lagi andrúmslofts
er ozonið. Hér var um að ræða
,,freon”-efni sem ekki eru til i
náttúrunni, en verða til i iðnaði.
Þessi efni eru notuð sem lykteyð-
andi efni, og einnig til fram-
leiðslu á frauðplasti og kælitækj-
um.
Endist lengi
Notkun þessara efna i iðnaði er
tengd þvi, að þau ganga treglega I
sambönd við önnur efni. Þetta
þýðir og,að það tekur langan tima
að losna við þau úr andrúmsloft-
inu — þau lifa i um 50 ár. Vegna
vaxandi notkunar tvöfaldast
magn þeirra i andsrúmsloftinu á
hverjum þrem árum. Jafnvel þótt
framleiðslan væri stöðvuð mundi
andrúmsloftið komast i hámarks-
mengun eftir áratugi.
Freonefnin hafa þann vonds-
lega eiginleika, að þau leysast
sundur i stratosferunni við út-
fjólubláa geislun. Þá losnar úr
sambandi klór, sem gengur i
sambandi við ozon og leysir það
efni upp. Menn geta sér þess til að
ozonlagið hafi til þessa verið
skert um aðeins eitt prósent, en
með áframhaldandi framleiðslu á
freonefnum búast sumir banda-
riskir útreikningar við þvi að
skerðingin verði innan tiðar kom-
in upp i 10%.
Bann?
Þetta leiddi til þess að skipuð
Framhald á 22. siðu.