Þjóðviljinn - 25.01.1976, Page 24
Ragnheiður i skoiisunni að undirbúa kaffi.
*
Hiidibrandshús viö Fischersund. Til hægri sér örlftið I Hákot
Reykjavik lúrir á ýmsu ef að er
gáð. Borgarbúar þeytast á gljá-
andi farkostum sinum og mega
; ekki vera að þvi að lita i kringum
■ sig t.d. liorfa upp i loft stöku
sinnum eða bara lita til hægri og
vinstri. í þys miðbæjarins hvilir
hljóðlátt þorp sem man fífil sinn
j fegurri. Þar getur að lita
aðskiljanleg gömul hús, lág-
í timbruð og hátimbruð, sum yfir-
gefin og hrörleg og önnur um-
> breytt. Þó er eitthvað við þessa
húsaþyrpingu sem laðar þann að
sem á annað borð gcfur sér tima
1 til að hægja örlitið á fcrð sinni.
\ Þetta er þorpið kennt við Grjóta.
Það stendur að baki og i skugga
tröllaukinnar hallar. Götur og
húsasund hlykkjast einkennilega
: um þessa byggð i klárri mótsögn
við þaulskipulögð breiðstrætin. i
' gluggum má viða sjá miða sem á
stendur Verndum Grjótaþorpið.
Iiafin er hreyfing til að efla þessa
byggð. Að henni stendur ungt
fólk.
Til er gamalt, hljóðlátt félag,
álika gamalt og mörg húsin i
Grjótaþorpi, og fer álika mikið
fram hjá þeim sem fara mikinn i
gljátikum og horfa beint fram.
k Þetta er Sögufélagið. Hvað er nú
i það? Sögufélagið var stofnað árið
1902 til eflingar á rannsóknum á
sögu fslands eftir 1550. Þá voru
menn svo rómantiskir að þeir
hugsuðu vart um annað en islend-
ingasögur og þjóðveldisöld og
; Sögufélagið var stofnað til mót-
vægis þvi. Félagið gefur út bækur
ogtimaritum sögulegan fróðleik.
f haust fannst forgöngu-
mönnum þess timi til kominn að
; félagið fengi húsaskjól þar sem
félagsmenn og aðrir viðskipta-
vinir gætu leitað eftir þvi sem á
1 boðstólum er. Frumkvæðið höfðu
systkinin Ragnheiður Þorláks-
dóttir og Helgi Þorláksson en
hann er i stjórn félagsins. Aðrir i
> stjórn eru Björn Þorsteinsson,
Bergsteinn Jónsson, Einar Lax-
! ness, Gunnar Thoroddsen, Þóröur
, Björnsson og Pétur Sæmundsen.
Svo sem sögufélaginu sæmir, en
það hefur einkum og sér i lagi
gefið gaum að sögu Reykjavikur,
var augunum beint að margvis-
, legu húsunum i hljóðláta þorpinu
i miðri Reykjavik. Efst i
Fischerssundi standa 2 gömul hús
andspænis. Þar er sundið bratt og
þröngt og bannað gljátækjum.
Húsin heita Hildibrandshús og
Hákot. t samræmi við hógværð
sina leitaði félagið ekki i Hákot —
enda sennilega óbúandi i þvi — en
i Hildibrandshús var visað.
Hildibrandur Kolbeinsson járn-
smiður, sem reisti húsið árið 1901,
hnoðaði glóandi járni i kjall-
aranum og siðan Guðjón Jónsson,
tengdasonur hans. Löngu siðar
sat i þessum sama kjallara skó-
smiður við iðju sina. Þegar hann
var á braut guðaði Ragnheiður á
glugga og fékk inni fyrir Sögu-
félagið.
x Það opnaði i haust litla af-
greiðslustofnun i kjallaranum þar
sem Hildibrandur sat við steðj-
ann fyrr á öldinni. Ekki hefur
fréttin farið hátt i fjölmiðlum og
þótti þvi snápum Þjóðviljans mál
> ...
cb
J>
r~ v> tE
5 L d ...- s
Pð FISCHER3UMD
H /
oís\
3 L
l
3
Litla Sögu-
félagsbúöin
í Hildibrandshúsinu
Ragnheiður og Björn prófessor við skagfirska borðið.
Illll l&ifel
að sækja Ragnheiði Þorláks-
dóttur heim en hún var skipaður
umsýslumaður á þessum stað.
Hver sem stigur fæti hér inn, er
leiddur inn i litinn heim angandi
af fomum fræðum og fersku
umfaðmandi viðmóti Ragn-
heiðar. Farið er niður um lágar
dyr og iágt þrep ofan á grænt
steingólf. Þá er komið i langt her-
bergi með bókum upp um veggi
og gluggum með breiðum sillum
og póstum. Myndir úr gömlu
Reykjavik prýða þá veggi sem
ekki eru bækur á og i heiðursstað
er mynd af Jóni Þorkelssyni
Forna en hann var fyrsti forseti
félagsins. Við gamalt borð, sem
Ragnheiður tjáir okkur að sé
skagfirskt að uppruna, situr hins
vegar núverandi forseti. Björn
Þorsteinsson prófessor holdi
klæddur. 1 horni upp undir lofti er
skaftfellsk klukka.
1 dyrunum verðum við að vikja
fyrir ungum háseta af varð-
skipinu Þór sem kemur rogandi
með fullt fangið af bókum. Hann
er á útleið.
Björn prófessor og Ragnheiður
hefja nú i sameiningu að fræða
okkur um Sögufélagið og starf-
semi þess. Þau segja að félagið
gefi út timarit og eina kvöðin,
sem liggi á félagsmönnum sé sú
að þeir leysi út þetta timarit. 1
staðinn fá þeir 20 prs. afslátt af
bökum þess. Fyrr á árum gaf
Sögufélagið út Blönduen frá 1949
heitir timarit félagsins Saga.
Ritstjórar þess eru Björn Sig-
fússon, Björn Teitsson og Einar
Laxness.
Frá upphafi hefur félagið gefið
út bækur. 1 fyrra komu út tvær
merkisbækur. önnur er Menning
og meinsemdir eftir Jón Steff-
ensen með formála eftir dr.
Kristján Eldjárn og hin er
Afmælisrit dr. Björns
Sigfússonar. 1 þvi eru ritgerðir
fræðimanna um ýmis efni. Björn
Þorsteinsson segir að félagið gefi
yfirleitt ekki út slik aímælisrit en
það hafi verið gerð undantekning
til heiðurs þeim manni sem
Uppi undir lofti er skaftfellsk klukka.
Framhald á bls. 22.