Þjóðviljinn - 07.03.1976, Qupperneq 3
Sunnudagur 7. mars 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Stjörnuspádómar hafa stundum breytt rás sögunnar meö slnum hætti.
Stjörnuspámaðurinn Senno var látinn leiða Wallenstein, striðsgarp úr 30 ára
striðinu, ívillu með þvíaðspá honum glæstra og auðveldra sigra.
TRÚIR
ANNAR HVER
MAÐUR
stjörnuspám?
Falsspámenn
Allt bendir til þess aö
annar hver maður á Vest-
urlöndum trúi þvi aö gang-
ur himintungla haf i áhrif á
lifshlaup sitt. Stjörnuspá-
dómaæðið hefur orðið
mörgum óprúttnum aðil-
um að féþúf u. Tugmiljóna-
gróða í hvaða gjaldeyri
sem er innbyrða ,,stjörnu-
spámenn" í hinum ýmsu
löndum vegna trúgirni
fólks úr ýmsum stéttum.
Stjörnuspádómar blómstra
aldrei betur en þegar
kreppuástand ríkir í þjóð-
félaginu.
sópa til sín
miljónafúlgum
frá
trúgjörnu fólki
gamalmenni og trúlofað fólk og
ástfangiö leitar til þessara dular-
fullu spámanna sem þykjast rýna
fram i timann i tákn stjörnu-
merkjanna. Stjörnuspámennirnir
gefa ráðleggingar i fjármálum,
verðbréfakaupum og fjárfesting-
armálum, og taugaóstyrkir
vera fulltrúa ævagamalla „vis-
inda”, sendiboða alheimsvisk-
unnar o.s.frv. í Þýskalandi eru til
fern samtök slikra manna, sem
deila ákaft um virðingarsess og
alvisku. Slik samtök stofna gjarn-
an skóla og akademiur til að aul$þ
á ytri virðuleika. Ekki verður
heldur annað sagt en að þeim
verði vel ágengt.
Skoðanakönnunarfyrirtæki i
Wiesbaden komst að þeirri niður-
stöðu að 45% (um 18 miljónir
manna) vestur-þjóðverja á aldr-
inum 14 til 65 ára séu sannfærðir
um eða telji liklegt að gangur
himintungla hafi áhrif á örlög
fólks á jörðu hér. Og ekki nóg með
það, heldur lætur fólk sig ekki
muna um að greiða 30-40 miljónir
marka árlega fyrir spásagnir og
En þessir náungar hér segja innflytjendum hvenær þeir cigi að kaupa inn kaffi....
t Vestur-Þýskalandi eru um 500
skipulögð „fyrirtæki” sem annast
stjörnuspádóma og óteljandi aðil-
ar sem ekkí augiýsa, fást víð
stjörnuspádóma.
Stjórnmálamenn, forstjórar,
listamenn, húsmæður, börn,
stjórnmálamenn sækja þangaö
vitneskju um kosningaúrsíit.
Með yfirlæti
Ekki skortir slika spámenn yf-
irlæti og sjálfsánægju i nútima
samfélagi. Þeir telja sig gjarnan
timarit um þessi mál. Vikulega
koma út þar i landi tvö stjörnu-
spádómatimariti 150 þús. eintaka
upplagi, og allmörg almanök með
stjörnuspádómum eru einnig gef-
in út i risastórum upplögum. Frá
Bandarikjunum berst mikið af
Forn fræði og kyndug
slikum ritum til Evrópu, m.a.
„Ást, hjónaband og stjörnur, —
stjarnfræðilegur ráðgjafi” eftir
Caroll Righter sem hefur aðsetur
sitt i Hollywood, og einnig mætti
nefna rit spákerlingarinnar Lindu
Goodman, en mörg þessara rita
eru þýdd á ýmis evrópumál. Alls
konar stjörnumerkjabækur eru
gefnar út i hundruðum þúsunda
eintaka hver, og fastir stjörnu-
spádómaþættir eru i timaritum
og blöðum sem gefin eru út i
miljónatali i fjölmennustu lönd-
um Vestur-Evrópu.
Nú spáir tölvan
Nú er tekið að nota tölvur til
stjörnuspádóma. Sú aðferð er
upprunnin i Bandarikjunum en
hefur einnig náð fótfestu i
Evrópu. Spádóma lætur tölvan i
té fyrir hvern og einn fyrir 1000 til
10.000 krónur eftir þvi hversu
mikið efnið er. Gamalgrónir
„handverksmenn” i faginu hafa
harðlega mótmælt vélvæöingu
stjörnuspádómanna.
Wolfgang Döbereiner heitir
spámaður nokkur sem rekur stórt
stjörnuspádómafyrirtæki i Mun-
chen. Til hans leitar alls konar
fólk „allt frá húsmæðrum til stór-
atvinnurekenda”, segir hann
sjálfur. Ekki sé hægt að segja að
þetta séu allt trúgjarnir furðu-
fuglar þvi meðal þeirra séu
margir stjórnmálamenn i háum
ábyrgðarstöðum. Sérgrein
Döbereiners eru veðurspár fyrir
byggingafyrirtæki, kvikmynda-
framleiðendur og svifflugmenn.
Tiskusýningarfy rirtæki leita
ráða hjá honum og einnig þeir
sem halda útiskemmtanir. Annar
spámaður i Freiburg segir inn-
flytjendum hvenær hagkvæmasti
timinn sé til kaffiinnkaupa og út-
flytjendum hvenær hagkvæmast
sé að selja afurðir. Hann hefur
þegar spáð þvi að áriö 1984 verði
þriðja heimstyrjöldin yfirvof-
andi. Sumir stjörnuspámenn aug-
lýsa sig sérfræðinga i þvi að velja
saman hjónaefni, aðrir velja
happdrættismiða fyrir fólk
o.s.frv.
Helgirit
Biblia stjörnuspámanna
(margir þeirra hafa þó aldrei les-
iðhana) er „Tetrabiblos” („Bæk-
urnar fjórar”) eftir Ptolemaios
(100-160 e.kr.) en hann var
egypsk - ættaður grikki og fræg-
asti stjörnufræðingur fornaldar.
Hann notfærði sér kenningar úr
eðlisfræði til að kanna afstöðu og
samband stjörnumerkja og reiki-
stjarna. Hann þóttist reikna út
eðli og áhrif reikistjarnanna og
breytingu þeirra eftir afstöðu
stjörnumerkja með tilliti til höf-
uðskepnanna fjögurra, jarðar.
lofts, vatns og elds. Allt bland-
aðist þetta svo saman við dul-
fræði og töframátt fjölgyðistrúar
og svo er enn I þessum fræðum.
Allir útreikningar nútima
stjörnuspámanna eru miðaðir við
heimsmynd fornaldar. Þegar
himin-kortið er stillt á fæðingar-
stund og -stað einnar persónu til
að spá um ævi hennar, þá er
gengið út frá þvi að sólin og
stjörnurnar snúist umhverfis
jörðina.
Þó — og þó ekki
Allir sem lesið hafa þessa
stjörnuspádóma kannast við hið
Framhald á bls. 22
Forsíöu
myndin
heitir Lifmögn og er eftir Guð-
mund Halldórsson. Hann
stundaði myndlistarnám i
Paris um fimm ára skeið og
hefur haldið tvær sýningar i
Reykjavik. Lifmögn er teikn-
ing. sem hefur verið offset-
prentuð og er seld i plakat-
stærð hjá Bóksölu stúdenta.