Þjóðviljinn - 16.05.1976, Síða 24

Þjóðviljinn - 16.05.1976, Síða 24
UOOVIUINN Sunnudagur 16. mai 1976. Nýja meðferðarheimilið við Vífilsstaði var opnað nýlega Talaö við Jóhannes Berg- sveinsson, geölækni, um áfengis- sjúkdóma og varnir viö þeim Nokkuð er siðan lokiðvar frágangi húss þess i nágrenni Vífilsstaða, sem verða á nýtt með- ferðarheimili fyrir áfengissjúklinga. Stóð nokkuð á að gengið væri frá f járveitingu, svo hægt væri að ráða starfslið, en upp úr síðustu áramótum var bætt úr því, og var þá þegar hafist handa um að auglýsa stöður þeirra sem á heimilinu koma til með að vinna. S.l. þriðju- dag hófst síðan starfsemi að einhverju marki á heimilinu, en fyrst um sinn verður farið hægt af stað meðan reynsla er að koma á starfsemina og dvelja þar nú aðeins 7 sjúklingar, en reiknað er með að þeir verði 21, þegar fram í sækir, sem gæti orðið aftur u.þ.b. fvo mánuði. Ennþá hefur ekki tekist að ráða allt það sérþjálfaöa starfs- lið, sem nauðsynlegt er til að nalda uppi eðlilegum rekstri, 5.s. félagsráðgjafa og geðlækni, sn vonir standa til að úr þvi rætist þegar fólk, sem verið hefur i námi erlendis, snýr heim i sumar. Nýtt skipulag á döfinni Þetta nýja heimili mun, þegar fram í sækir verða þáttur i nýju skipulagi i meðferð áfengis- sjúklinga, sem á döfinni er hjá Kleppsspitala, en megin- breytingin mun þá felast i þvi, að svonefnd „bráð-móttaka” vegna áfengissýki mun hafa til umráða eina deild á Klepps- spitala, þar sem ekki verða aðrir sjúklingar en þeir sem lagðir eru inn vegna ofdrykkju. Þar munu sjúklingarnir dvelja i viku til hálfan mánuð, en eftir- meðferðin ræðst siðan af ástandi þeirra, að þeirri dvöl lokinni, og munu sumir þeirra fara á Vifilsstaðaheimilið og aðrir á Flókadeildina en þar verður starfandi göngudeild fyrir þá sjúklinga sem komnir eru út i lifið aftur, en þurfa jafn- framt á áframhaldandi læknis- hjálp að halda. 1 tengslum við Kleppsspitalann starfar svo að auki vistheimilið I Gunnars- holti, þar sem langdvalar- sjúklingar eru teknir til með- ferðar að þeirra eigin ósk. Skuldbinda þeir sig þá til að dvelja þar i áfengislausu umhverfi I 3 mán. eftir fyrstu komu, en i sex mánuði sé um endurkomu að ræöa. Langt í land enn Yfirumsjón með hinu nýja skipulagi áfengislækninga á Starfsfólk undirbýr siðdegiskaffið fyrir sjúklingana vegum Kleppsspitala, verður i höndum Jóhannesar Bergsveinssonar, geðlæknis. 1 samtali við hann fékk blaðið þær upplýsingar, að varasamt væri að gera of mikið úr framangreindri skipulags- breytingu að svo stöddu, allt tæki þetta sinn tima og enn væri langt i land með að endanlegt form kæmist á þessa starfsemi. Þvi miður væri ekki og yrði ekki i næstu framtið hægt aö sinna nema hluta þeirra sem aðstoðar þyrftu við, enda væri hér um vaxandi vandamál að ræða, er enn brýnna væri að spyrna við með íyrirbyggjandi aðgerð- um. Kvaðst Jóhannes sannfærð- ur um að fjölmiðlar gætu veitt þessari starfsemi enn meira lið með markvissri fræðslu, sem miðaði að þvi, að upplýsa almenning um þá þætti mann- lifsins sem fæða af sér mis- notkun áfengis, og þá hættu sem hverjum og einum væri búin, sem út á þá braut færi. Það út af fyrir sig að geta ekki átt eina áfengislausa helgi væri alvar- legt hættumerki fyrir hvern þann einátakling sem eftir þeirri venju lifði. Engin „patentlausn” til Jóhannes var inntur eftir þvi hvort nýja meðferöarheimilið yrði lokuð stofnun, og kvað hann svo ekki vera, i þeim skilningi að dyrnar yrðu þar ekki læstar. Hinsvegar yrði um takmark- aðan dvalartima að ræða fyrir hvern þann sjúkling sem undir- gengist að vera þar, og færi sjúklingurinn að þeim tima liðn- um. Sjúklingurinn fengi þó að fara frjáls allra sinna ferða meðan hann væri á heimilinu. Sllkt yrði háð leyfi læknis. Þá vildi Jóhannes leggja á þaö áherslu að i lækningu á áfengissýki væri ekki til nein „patentlausn”: „Þær aðferðir sem við höfum yfir að ráða við meðferð áfengissjúklinga ná ekki nema hluta af leiðinni. Þar sem okkar afskiptum lýkur verður annað að taka við. Það er þvi miður ekki til nein patentlausn til að lækna fólk af áfengissýki. Við höfum haft góða samvinnu bæði við Félags- Nýja heimiliðer glæsilegt á aðlita að utan. stofnun Reykjavikur og AA- samtökin m.a. til að aðstoða það fólk sem ekki á i nein hús að venda að lokinni meðferð hjá okkur”. Svona líta herbergin út. Besta lækningin að fyrirbyggja sjúkdóminn iíé&áÉÉh 1 framhaldi af þessu var nokkuð rætt um starfsemi AA-samtakanna og sagði Jóhannes mikla stoð að þeim samtökum á þeim stöðum þar sem starfsemi þeirra væri öflug. Sagði hann félaga úr AA samtökunum hafa komið að Gunnarsholti og haldið þar fundi með sjúklingum og hefði það gefið góða raun. Þá kom það fram, að AA-samtökin og Reykjavikurborg hefðu á prjónunum i sameiningu að koma upp eftirmeðferðar- heimili fyrir áfengissjúklinga i Reykjavik, sem myndi þegar það kæmist i gagnið leysa að nokkru þann vanda sem heimilislausir .sjúklingar byggju við. Og að lokum: „Það verður samt aö segjast eins og er, að það verður alltaf tvisýn barátta að ráðast gegn sjúkdómnum eftir að hann hefur skemmt út frá sér. Besta áfengislækningin er auðvitað sú að reyna að fyrir- byggja sýkingu”. — ráa Veggskreytingar eru utan á húsinu. „Engin „patentlausn” til”

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.