Þjóðviljinn - 23.11.1976, Page 3
Þriðjudagur 23. nóvember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Spánn
5 kommúnistar
handteknir
Madrid 22/11 reuter — Fimm
leiðtogar kommúnista á Spáni
voru handteknir I dag þegar
flokkur þeirra hóf að innrita nýja
féiaga á Spáni i fyrsta sinn siðan
borgarastyrjöldinni lauk árið
1939.
Fimmmenningarnir voru hand-
teknirerþeir voru að dreifa flug-
miðum á neðanjarðarbrautarstöð
i Madrid. Meðal þeirra var eigin-
kona blaðamannsins Nicolas
Sartorius en hann er einn af
forystumönnum hinna ólöglegu
Ekki
dauður úr
öllumœðum
London 22/11 reuter — Karl
Wallenda, 71 árs gamall llnu-
dansari frá Vestur-Þýskalandi,
gekk i dag á linu sem strengd
var upp i 30 metra hæð fyrir
framan Tower hótelið i London.
Hávaðarok var meðan á
athöfninni stóð en gamli maður-
inn lét það ekki aftra sér heldur
stóð á haus á miðri linunni án
þess nokkuð öryggisnet væri til
staðar. Vegalengdin sem hann
gekk var 30 metrar. Þegar
Wallenda var kominn yfir
kvartaði hann yfir þvi að virinn
hafi verið of slakur en það hefði
þó ekki valdið honum umtals-
verðum vandræðum.
Wallenda á sæti i dómnefnd i
alþjóðlegu sirkusamóti sem
fram fer i Englandi þessa
dagana. Hann hóf feril sinn sem
linudansari i Þýskalandi i fyrra
striðinu en mesta afrek sitt
vann hann árið 1970 er hann
gekk á linu 350 metra vegalengd
yfir 220 metra djúpt gljúfur i
Bandarikjunum. Wallenda er
orðinn langafi segir i frétta-
skeyti Reuters.
Brésjnef — á hringferð um
hjáleigurnar, einnig þær óstýri-
látu.
Brésjnef
í Rúmeníu
Búkarest 22/10 reuter — Brésjnef
flokksieiðtogi i Sovétrikjunum
kom i dag i opinbera heimsókn til
Rúmeniu og var honum ákaft
fagnað við komuna. Talið er að
200 þúsund manns hafi stillt sér
upp meðfram ieiðinni sem hann
og Ceausesen forseti Rúmeniu
óku inn í höfuðborg landsins,
Búkarest.
Mótökuathöfnin virtist enn
glæsilegri en þegar Ford forseti
Bandarikjannakom til Rúmeniu i
fyrra. Telja fréttamenn að þetta
eigi að sýna vilja rúmena til að
bæta sambúðina við Sovétrikin
sem oft hefur verið stormasöm á
undanförnum árum.
verkamannanefnda sem
kommúnistar ráða mestu i.
Vfða i Madrid hafa i dag verið
hengd upp veggspjöld þar sem
stendur: „Gangið i Kommúnista-
flokkinn — 56 ára frelsisbarátta”
og talsmenn flokksins segja að i
dag hafi fyrstu flokksskirteinin af
200 þúsund sem afhent verða
verið gefin út i hinum ýmsu verk-
smiðjum. Skirteinin eru undirrit-
uð af Santiago Carrillo aðalritara
flokksins og Dolores Ibarruri —
öðru nafni La Pasionaria — sem
er forseti flokksins. Þau eru bæði
i útlegð.
Sagt er að 130—150 þúsund
spánverjar hafi ekki fengið útgef-
in persónuskilriki siðan i
borgarastyr jöldinni vegna
ofsókna Frankó-stjórnarinnar.
Aróðursherferðinni sem hófst i
dag er ætlað að þrýsta á stjórn
landsins um að hún leyfi, eða
amk. umberi, starfsemi
kommúnista.
Eins og kunnugt er af fréttum
samþykkti þing landsins, Cortes,
Adolfo Suarez forsætisráðherra
Spánar — i vandræðum með
kommúnista.
að láta fara fram almennar þing-
kosningar i landinu og verða þær
senniiega um miðjan desember.
Herferð kommúnista kemur
stjórninni i klipu þvi hún hefur
enn ekki leyft starfsemi þeirra.
Ef hún gerir það á hún visa reiði
hægrisinna i her og stjórnmálalifi
landsins en ef hún gerir það ekki
er hætt við þvi að hún missi þann
lýðræðissvip sem hún reynir að
viðhalda og að andstöðuflokkar tii
vinstri hundsi kosningarnar.
Líbanon
ísrael treystir
vamir sínar
Tel Aviv 22/11 reuter — ísraelar
hófufdag að treysta varnir sinar
við landamæri Libanon, að sögn
til að koma i veg fyrir að
sýrienski herinn reyni innrás i
landið.
Heimildir innan hersins kváðu
israela ekki hafa i huga að gera
innrás i Libanon „en við viljum
koma i veg fyrir að erlendir herir
og palestiunmenn nálgist landa-
mæri okkar,” bættu þeir við. Sést
hefur til israelskra skriðdreka á
vegi sem liggur að landamærun-
um.
Um helgina voru gerðar tvær
eldflaugaárásir á bæi i
norðurhluta Israels. Ekkert
manntjón varð og óverulegt
eignatjón.
Israelskir ráðamenn hafa rætt
um að ákveða þurfi markalinu
norðan við landamærin sem eng-
ar hersveitir nema úr libanska
hernum megi fara suður yfir.
Shimon Peres landvarnarráð-
herra Israels itrekaöi þetta i gær
og sagði að „ekki kæmi til greina
að sýrlendingar, palestinumenn
eða önnur erlend öfl taki völdin á
þessu viðkvæma landssvæði sem
um áraraðir hefur verið notað til
árása á ísrael”.
Ráðstefna UNESCO
Vill efla fréttastreymi
frá þriðja heimimim
Nairobi 22/11 reuter — A
ráðstefnu menningarstofnunar
Sameinuðu þjóðanna, UNESCO,
sem nú stendur yfir i Nairobi i
Kenýa féllst ein af undimefndum
á það i dag, mótatkvæðalaust, að
UNESCOverði hálfri miljón doll-
ara til að efla fréttastreymi milli
þróunarrikja og þróaðra.
Þróunarlöndin hafa að undan-
förnu kvartað mjög yfir þvi að
hinar alþjóölegu fréttastofur —
sem allar eru i eigu vesturlanda-
búa — afflytji fréttir frá þriðja
heiminum. I samþykkt nefndar-
innar er ma. hvatt til „meira
jafnvægis og fjölbreytni i frétta-
flutningi milli þróunarrikja og
þróaðra en nú rikir”.
1 dag voru israelar teknir inn i
Evrópuhóp ráðstefnunnar, en
aðildarrikjum hennar er skipt
niður i fimm slika svæðishópa.
Sovétrikin og fylgiriki þeirra i
Austur-Evrópu mótmæltu þessari
ákvörðun harðlega en önnur riki á
borð við Irak, Egyptaland, Kúbu,
Júgóslaviu, Jórdanlu og Sýrland,
kváðust ekki vilja gera ágreining
út af þessu af ótta viö aö ráðstefn-
an færi þá út um þúfur. /
Á ráðstefnu UNESCO sem
haldin var i Paris árið 1974 var
aðild tsraeis að Evrópuhópnum
felld og leiddi það til þess að
Bandarikin hættu að veita fé til
stofnunarinnar. Nú var reglum
um atkvæðagreiðslur breytt I þá
veru að kosið er innan hvers
svæðishóps um það hvort riki
skuli fá aðild að honum. Auk rikja
Evrópu eru Bandarikin og
Kanada einnig i Evrópuhópnum.
Flóð á Java
Djakarta 22/11 reuter — 136
manns hafa látið lifið i flóðum
sem herjað hafa á eyna Java und-
anfarna daga. Veðurfræðingar
spá því að enn eigi stórrigningar
eftir að gera usla.
Flóðin hafa verið verst á
austurhluta eyjarinnar. Þar hef-
ur verið komið á eftirliti allan
sólarhringinn vegna hættu á nýj-
um floðum og skriðuföllum. Að
minnsta kosti 14.500 manns hafa
verið fluttir frá heimilum sinum á
örugga staði.
Embættismenn sem fréttastofa
Indónesiu, Antara, vitnar i telja
að tjón af völdum flóðanna geti
numið 1.6 miljónum sterlings-
punda. Im 6 þúsund hektarar af
hrisgrjónaökrum hafa eyðilagst i
flóðunum.
Washington Post
Að brjóta
verkföll á
bak aftur
Bandariska stórblaöiö
Washington Post hefur vakið
mikla hrifningu I hinum al-
þjóölega blaöaheimi fyrir hlut-
deild sina í Watergate-málunum
þar sem einkum tveir
biaöamenn, Bob Woodward og
Carl Bernstein, sýndu
„rannsóknarblaöamennsku” af
besta tagi og tókst aö bola Nixon
og þýjum hans út úr Hvita
húsinu
Hér á landi hefur þessarar
hrifningar gætt ekki siður en
annars staðar. Morgunblaðið og
Dagblaðið senda menn á
vettvang til að grafast fyrir
rætur Klúbbmálsins, Geirfinns-
málsins og annarra vinsælla
sakamála en fram til þessa
hefur þessum frómu blööum þó
ekki tekist aö bola neinum stór-
raennum úr hægum sætum. En
þaö hlýtur að koma.
En öll mál eiga sér margar
hliðar og svo er einnig um
Washington Post. Nýlega lauk
13 mánaða löngum átökum
útgefenda þess við prentara
með þvi að þeim fyrrnefndu
tókst að beygja þá siðarnefndu i
duftið og jafnframt aö draga
stórlega úr áhrifum stéttar-
samtaka prentara sem fyrir
þessa langvinnu deilu voru ein
öflugustu og róttækustu stéttar-
samtök Bandarikjanna.
Hver á aö ráöa tækni-
þróuninni?
Aður en deilan hófst höfðu
samtök prentara haft úrslita-
áhrif á allt vinnuskipulag og
verkaskiptingu i prentsmiöjum
landsins. Citgefendur - voru
vitanlega ekkert allt of hressir
með þetta og árið 1974 hófu þeir
undirbúning að áhlaupi til a
breyta þessu og ná aftur tökum
á verkaskiptingunni. Þeir höfðu
góðan byr þvi blaðið var á
uppleiö eftir góða frammistöiiu i
Watergate-málunum.
Þaö sem deilan snerist um
var að útgefendur blaösins vildu
innleiða nýja prenttækni sem
byggir á mikilli sjálfvirkni og
hefur þvi verulega fækkun
starfsliðs í för með sér. Þeir
hófu árið 1974 að þjálfa ófélags-
bundið verkafólk i að
meðhöndla blaðapressu á
leyndum stað i Oklahoma.
Samningar blaðsins viö
pressumenn runnu úr 1. október
1975 og þremur mánuðum áður
fengu ó f é1agsbundnir
verkamenn frekari þjálfun á
ýmsum blöðum og við með-
höndlun tækja sem komið hafði
verið fyrir með leynd i byggingu
Washington Post.
Útgáfustjórnin fór ekki leynt
með að hún hygðist ráða
ófaglærða menn til starfa i
pressusalnum. Þetta hefur
sennilega valdiö þvi að aðfara-
nótt 1. október i fyrra voru
unnin skemmdarverk á pressu
blaðsins. Þeir sem þar voru að
verki hafa sennilega vonast til
að geta stöðvaö útkomu blaðsins
eftir að verkfall prentara hófst.
Þaö tókst þó ekki þvi blaðið kom
útdaginneftir — aðvisu i minna
upplagi — og var þá prentað i
prentsmiðjum þar sem ófélags-
bundnir prentarar unnu.
Samstaðan riðlast
Stéttarfélög hinna ýmsu
starfsmanna blaðsins höfðu
ákveðið að styðja prentara i
deilunni og skipulögðu
verkfallsvaktir. En þegar
fréttir bárust af skemmdar-
verkunum rofnaði samstaðan
og margir hurfu aftur til vinnu
sinnar. Siöar kom reyndar i ljós
aö fyrstu fréttir blaösins af
umfangi tjónsins voru gróflega
ýktar, en skaöinn var skeður:
Vegna skemmdarverkanna
glötuðu prentarar stuðningi
margra, þám. meirihluta
lesenda blaðsins sem eru flestir
frjálslyndir og hefðu stutt þá við
venjulegar aöstæður.
I nóvember lýsti útgefandi og
aöaleigandi blaðsins, Katherine
Graham þvi yfir aö hún væri
mjög svartsýn á að samningar
næðust. 7. desember felldu
prentarar með 249 atkvæðum
gegn 4 lokatilboð útgáfu-
stjórnarinnar, en þaö fól i sér
afnám eftirlits prentara-
félagsins með verka-
' skiptingunni gegn allverulegum
grunnkaupshækkunum Rúmri
viku seinna hóf blaðið-að ráða
nýtt starfsfólk i stað
prentaranna sem voru i
verkfalli. Þeim siðarnefndu var
gefinn kostur á að ráða sig en
aðeins 44 af 247 verk-
fallsmönnum þáðu boðið.
Þrátt fyrir þessi átök sem
hafa kostað blaðið ýmis útgjöld
varð gróði af rekstri þess árið
'1975 sem nam 8% veltunnar.
Astæðan fyrir þessari góðu
afkomu var fyrst og fremst
sparnaður i launagreiðslum.
Blaðinu tókst að láta þær standa
i stað meðan laun almennt i
landinu hækkuðu verulega.
Starfsliði i pressusal hefur verið
fækkað úr rúmlega 250 niður i
170 og það sem meira er:
samanlögð laun þessara 170 eru
ekki nema 55% af þeim launum
sem áður voru greidd. Þetta
skýrir útgáfustjórnin meö þvi
að yfirvinna hafi verið stórlega
minnkuð.
Prentarar missa tökin
En fyrir prentara og samtök
þeirra er útlitið ekki eins gott.
Af uþb. 250 verkfallsmönnum
hafa rúmlega 200 verið reknir
frá blaðinu og að sögn útilokaðir
frá öllum blöðum landsins. 15
prenturum hefur verið stefnt
fyrir rétt sakaöir um þátttöku i
skemmdarverkunum. Einn
verkfallsmaður hefur stytt sér
aldur og tveir til viöbótar reynt
slikt hið sama. Aðrir starfs-
menn blaðsins hafa einnig farið
illa út úr deilunni og yfir 1.200
manns tapað einhverjum
tekjum vegna þátttöku i
verkfallsvöktum og öðrum
stuðnings-
Deilurnar hafa einnig komið
mög hart niður á samtökum
prentara. Þau hafa orðið að
leggja fram yfir tvær miljónir
dollara úr verkfallssjóðum
sinum til stuðnings
verkfallsmönnum. En ósigur
prentaranna markar einnig
timamót að þvi leyti að nú
hallar sennilega mjög undan
fæti hjá samtökum prentara um
allt landið. Siöan prentararnir á
Washington Post töpuðu
verkfallinu hafa prentarar á
mörgum öðrum blööum orðið að
samþykkja málamiðlunar-
tillögur sem hafa i för með sér
verulega fækkun starfsliðs.
Landssamtök prentara missa
stöðugt félaga vegna þessarar
þróunar og hefur þeim sem
vinna við blöö fækkaö úr 22
þúsundum i 18 þúsund á fjórum
árum. ósigur prentaranna á
Washington Post hefur einnig
haft þær afleiðingar að
prentarafélögin hafa misst allt
vald á starfsskipulagi og
ákvörðun um starfs-
mannafjölda i blaða-
prentsmiðjum Bandarikjanna.