Þjóðviljinn - 23.11.1976, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 23.11.1976, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJEVN Þriðjudagur 23. nóvember 1976 Magnús Kjartansson: Gerum fötluðum kleift að komast út í þjóðlífið Fyrir nokkrum dögum var til 1. umræöu á al- þingi þingsályktunartil- laga Magnúsar Kjartans- sonar o.fl. um endurhæf- ingu. Mælti Magnús fyrir tillögunni og fer ræöa hans hér á efftír: A þinginu 1969-1970 var samþ. hér breyt. á lög. um stjórnarráö og meginatriði þeirrar breyt. var það, að komið varupp 2 nýjum rn. heilbr,- og trn. og iðnaðarrn. í framhaldi af þessari lagabreyt. var svo sett ný reglugerð um skipan starfa á milli rn. og hún var þannig unnin, að forseti íslands var látinn skrifa undir hana, og hún er prentuö i laga- safni þannig að hún hefur hliðstætt gildi og lög. Það var vafalaust nokkur vandi að kveða á um breyt. á reglugerö- inni i sambandi við þá breytingu, sem gerð var á rn. enda hygg ég að fram hafi komið ýmsar veilur á þessari reglugerð. Það hittist þannig á þegar ég var ráðh. 1971, að ég starfaði á þeim 2 nýju rn. sem komið var á laggirnar 1970 og mér fannst ég reka mig á að reglugerðin væri ekki fullkom- lega rökvis. Ég veitti þvi til að mynda athygli i iðnaðarráðuneyt- inu að ýmsar gr. iðnaðar sem voru ótviræður iðnaður voru flokkaðar undir sjávarútvegs- ráðuneytið annars vegar og landbúnaðarráðuneytið hins vegar og þar var um að ræða iðnað, sem var tengdur sjávar- afla annars vegar og hins vegar landbúnaðarstörfum. Til að mynda var dæmigerður efna- iðnaður eins og áburðarverk- smiðja flokkuð undir land- búnaðarráðuneytið en ekki iðnaðarráðuneytið. Ég tel að þarna hafi ekki verið rétt á málum haldiö. Viö vitum það afar vel að hér á tslandi er metingur á milli atvinnugreina oft ákaflega vanhugsaöur og svona skipting eins og ég var að ræða um áðan hún stuðlar að þvi að viðhalda þeim metingi i stað- inn fyrir að þurrka hann út, eins og við verðum að gera ef við eigum að hafa skynsamlega at- vinnuþróun á tslandi. t heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu rak ég mig á það, að einn veigamikill þáttur i heilbrigðis- kerfinu, þ.e.a.s. endurhæfing og störf vegna fatlaöra haföi veriö skilinn eftir i félagsmálaráðu- neytinu og heyröi ekki' undir heilbr.- og trmrn. Þarna virtist það viðhorf hafa rikt að lita á fötlun og endurhæfingu, sem vandamál sem tengd væru vinnu- markaðinum en ekki þvi fólki sem þyrfti á slikri aðstoð að halda. Mér var þetta ljóst fljót- lega eftir að ég tók til starfa og það má segja, að ég hefði átt að beita mér fyrir þvi að breyt. yrðu gerðar á þessu þá. En ég verö að segja það eins og er aö það er æöi mikil vinna að gegna ráðherra- störfum ef maður reynir að rækja þau af samviskusemi og maöur hefur ekki nema takmarkaðan áhuga á þvi að toga til sin fleiri verkefni en kveðiö er á um i lög- um. Það kom hins vegar fyrir mig að ég kynntist hlutskipti fatlaðra eftir að ég hætti ráöherrastörfum og ég hef venjulega haft þann hátt á ef ég lendi i einhverjum slikum vanda, að skoða hann i félagslegu samhengi og kanna slik mál i heild og ég gerði það þegar ég lenti i þessum vanda sjálfur, las mér æöi mikið til um endurhæfingu og vandamál fatlaðra og komst þá að raun um það, að þessi vandi er miklu stærri en ég hafði gert mér nokkra grein fyrir áður. Ég birti i grg. með frv. minu tölur frá Sviþjóö, sem sýna hversu stórfelldur þessi vandi er. Þar lenda i fötlun 500 þús. manna á vinnufærum aldri en það mun vera nærri 10% , tiundi hver maður, sem lendir i fötlun og þarf á endurhæfingu að halda á starfs- aldri sinum. Á þvi er enginn vafi, að tölur hér á landi eru hlið- stæðar. Þær kunna að skiptast eitthvað á aöra lund en i Sviþjóð vegna annarra atvinnuhátta hér. M.a. er sjómennska mjög hættu- legt starf og henni fylgja oft slys, sem leiða til alvarlegrar fötlunar. En ég hygg að heildartalan sé rétt, hér sé um vanda að ræða, sem nái til tiunda hvers manns eða meira. Þetta er vandi, sem fylgt hefur mannkyninu frá upphafi vega vafalaust og getur breyst með breytilegum atvinnuháttum, en i meginatriðum hefur hann fylgt mannkyninu frá upphafi. En það er ekki fyrr en tiltölulega nýlega, að farið-er að takast á við þennan vanda á skipulegan hátt i sam- bandi við heilbrigðisbiónustu. Það voru að visu til félög, til þess að aðstoða fatlað fólk á ýmsum sviðum, ekki sist blinda og heyrnarlausa og aðra fatlaða, en það voru fyrst og fremst félög, sem aðstoðuðu við framfærslu sliks fólks, en ekki við læknis- fræðilega endurhæfingu. Það má segja, að skipulag læknisfræðileg endurhæfing hefjist ekki fyrr en i siöustu heimsstyrjöld. Styrjaldir valda þvi ævinlega, að menn verða fyrir miklum likamlegum áföllum og i siðasta striði gerðist það, að farið var að taka á þvi skipulega, hvernig hægt væri að endurhæfa fólk, sem yrði fyrir meiri háttar slysum i styrjöldum og gera þvi fært að gegna störfum i þjóðfélaginu. Þessi þróun hefur haldið áfram eftir að striði lauk og þróast ákaf- lega mikið i þeim löndum, sem fremst standa á sviði læknisvis- inda, til að mynda á Norðurlönd- um og ekki sist i Sviþjóð og i Bandarikjunum, þar sem læknis- visindi eru á háu sviði, þótt ekki sé þar um félagslega heilsugæslu að ræða. Þarna hefur orðið ákaflega mikill árangur og við höfum kynnst þessum árangri á ýmsum sviðum hér á Islandi. Ég vil til að mynda minna á þær nýjungar, sem orðið hafa i sambandi við bæklungarlæknin^ar, sem geta aðstoðað fólk i miklu, miklu rik- ara mæli en áður var. Þær hafa verið teknar upp hér á Lands- spitala, en þvi miður hefur verið haldið þannig á málum, að þar hafa i sifellu lengst biðlistar. Það hefur ekki verið tryggð aðstaða til þess að hægt væri að sinna þess- um lækningum, þessum aðgerð- um gegn brýnum mannameinum á þann hátt, sem vert hefði verið. Ég legg til i þessu frv., að endurhæfing, læknisfræðileg og starfsleg vegna skertrar starfs- hæfni og endurhæfingarstöðvar og Styrktarsjóður vangefinna, fatlaðra og blindra, svo og Erfða- fjársjóður, verði flutt frá félmr. til heilbrn. vegna þess að það eru aðgerðir sjúkrahúsa og lækna og annarra heilbrigðisstétta, sem þarna eru grundvöllurinn. En að vísu er þar farið dálitið út fyrir svið hinnar hefðbundnu læknis- fræði, þvi að hún er við það miðuð að vinna bug á sjúkdómum eða gera aö sárum og annað slikt, en ekki við þaö að aðstoða menn við að endurhæfa sig eða komast út i atvinnulifið á nýjan leik, þaö væri ekki talið verkefni hinna hreinu læknavisinda. En þetta hefur breyst. Það hafa komið nýjar starfsstéttir, sem hafa þetta verkefni og til að mynda i Sviþjóð er svo komið, að allt heilsugæslukerfið er byggt þannig upp, að það geti stundað aðgerðir i þágu fatlaðra, öll deildarskipt sjúkrahús eru með slikar deildir og árangurinn á þessu sviði er eins og ég sagði áðan ákaflega mikill. Þarna er um að ræða eins og ég sagöi áðan tiunda hvern einstakling, svo að aðeins sé þar rætt um likamlegar fatlanir. Andlegar fatlanir eru ákaflega algengar lika. Þarna er þvi um að ræða ákaflega viðtækt svið og ég er þeirrar skoðunar að það séu brýnustu verkefni okkar á sviði heilbrigðis- mála að takast á við þessi mál á skipulegan hátt. Hér á íslandi hafa risið upp mörg áhugamannafélög, sem vinna að þessum verkefnum. Þar ber hæst að minu mati Samband isl. berklasjúklinga, vegna þess að það braut isinn og það vann starf, sem var á þeim tima forystustarf jafnvel á heimsmæli- kvarða. En hér hafa risið upp ákaflega mörg félög önnur og unnið mjög mikið gagn, en þvi miður hefur þessi starfsemi orðið of tilviljanakennd. Hún hefur mótast af þvi, að áhugamenn hafa risið upp vegna persónulegs vanda, sem þeir kunna að hafa lent i sjálfir eða aðstandendur þeirra og beitt sér fyrir félags- stofnunum á þessu sviði. Sumar hafa verið starfræktar með miklum myndarskap, aðrar miður vel, en þetta hefur verið bundið við duglega einstaklinga fyrst og fremst, og reynslan hefur orðið sú, að mörg slik samtök hafa leitað til rikisins um vaxandi aðstoð til þess að geta haldið starfseminni áfram. Rikið hefur raunar lagt til tekjustofn fyrir mörg þessi samstök, svo að þau gætu haldið starfsemi sinni áfram. Ég er þeirrar skoðunar, að það þurfi að koma heildarskipulagi á þessi mál með þvi að tengja þessa starfsemi áhugamannaféiaga við heilbrigðiskerfið i landinu. Og ég er ekki að tala um þar, að heil- brigðiskerfið i landinu eigi aö koma i staðinn fyrir starfsemi áhugamanna. Ég tel, að hún sé ákaflega mikilvæg og það þyrfi að ýta undir hana frekar en hitt, en það þurfi að fella hana að skyn- samlegu kerfi, til að forast tvi- verknað og að þau framlög, sem þarna eru innt af hendi nýtist sem allra best. Þarna tel ég, að gera veröi stórátak á næstunni. Það þarf kannske ekki að bæta við ýkja mörgum legustofnunum af þessu tilefni, en ég er þeirrar skoðunar, að það þurfi að koma upp opnum göngudeildum i miklu rikari mæli en nú er þannig að fatlaðir til að mynda geti dvalist heima hjá sér, en farið til aðgerða á sjúkrahús. Þetta er mjög miklum vand- kvæðum bundið nú, vegna þess að göngudeildir sjúkrahúsanna eru allt of litlar og einnig vegna hins, að það er haldið þannig á málum, að það er auðveldara fyrir sjúkl- inga að leggjast á sjúkrahús en að dvelja heima hjá sér og fara á göngudeiidir sér til aðstoðar. Til að mynda voru aðgerðir sem voru ákveðnar i tið fyrrv. rikisstj. i sambandi við lyfjakostnað, sem átti að tryggja það, að fólk, sem fengi læknisþjónustu á göngu- deildum, byggi við sömu skilyrði að þvi er lyfjakostnaö varðar eins og fólk, sem er á sjúkrahúsum. Þessu hefur þvi miður verið breytt, þannig að fólk, sem er ut- an sjúkrahúsanna, verður þar að leggja á sig miklar byrðar og mér er mjög vel kunnugt um það, að læknar leggja fólk á sjúkrahús m.a. af peningaástæðum til þess að fólk þurfi ekki að lenda i fjár- hagslegum vanda. Þá liggur á sjúkrahúsi fólk, sem gæti dvalist heima, ef þessi vandi kæmi ekki til. Ég tel, að þarna verðum við að efla opnar göngudeildir stórlega og við þurfum að gera stórátak á þessu sviði. Ég vil taka það skýrt fram, að þegarég tala um stórátök á þessu sviði, þá á ég við stórauknar fjár- veitingar einnig. Ég heyrði það i útvarpsfréttum i gær, að hæstv. forsætisráðherra hafði haldið ræðu i gær yfir einhverjum sam- tökum, sem ég man nú ekki hver voru. Og hann taldi það vera stefnu núverandi rikisstjórnar að draga úr samneyslu til þess að auka einkaneyslu. Mér þótti þetta afar merkileg yfirlýsing og raun- ar i fyrsta skipti, sem þessi rikis- stjórn skýrir frá grundvallarhug- myndum sinum. Hvað er samneysla? Það er auðvelt að slá fram sliku orði. Það eru ekki allir, sem gera sér grein fyrir, hvað i þvi felst. En samneysla er til að mynda heil- brigðis- og tryggingamál, skóla- mál, vegamál, það er þetta, sem á að skera niður að mati hæstv. forsætisráðherra. Að búa til and- stöðu á milli samneyslu og einka- neyslu á þann hátt, sem hæstv. ráðh. gerði er alger fölsun, þvi að það er samneyslan, sem fyrst og fremst stuðlar að jöfnuði á milli manna, dregur úr þeirri mis- munun, sem fram kemur i launa- kjörum og stuðlar að jöfnuði á milli manna. Ég man eftir afskaplega skemmtilegu dæmi um árangur samneyslu. Ég fór 1946 i ferðalag um Austur-Skaftafellssýslu. Þá var samgöngum þannig háttað þar, að ég þurfti að ferðast um gangandi og riðandi og ég þarf ekki að lýsa þvi, að ég hafði mikla ánægju af þessu ferðalagi. Svo gerðist það 1973, að ég hygg, að ég ferðaðist aftur um Austur-Skaftafellssýslu, haföi ekki komið þar i millitiðinni og ferðaðist um sömu slóðir og áður, en að visu á miklu skemmri tima, þvi að nú eru komnir góðir vegir. Og ég veitti þvi athygli, hversu miklar breytingar höfðu orðið á efnahag manna og aöbúnaði i þessari sýslu. Og þessar breytingar voru fyrst og fremst afleiðing af sam- göngubótum. Þessi samneysla, sem birtist i samgöngubótum þarna hafði orðið til þess aö bæta til muna efnahag og getu íbúa þessa svæð- is. Þannig er þaö á öllum sviðum samneyslu, ef hún er lýðræðisleg að segja, ef hún er miðuð við þegnana i heild, þá stuðlar hún að jöfnun,að auknu réttlæti i þjóð- félaginu. En þá verður sam- neyslan einnig að vera skipulögð á lýðræöislegan hátt, og það er styrkurinn við heilbrigðiskerfi það, sem viö höfum t.a.m. á Norðurlöndum, að það er skipu- lagt á lýðræðislegan hátt. Ég held að ég gleymi þvi seint, hvað mér fundust ógnarlegar fréttir, sem voru mikið i útvarpi fyrir nokkrum árum um lækni einn i Suður-Afriku, sem stundaði að græða hjörtu i menn og þetta var mikið fréttaefni. Mér fannst þetta ákaflega ógeðfelldar fréttir. Það var af mörgum ástæðum, sem mér fannst það, en fyrst og fremst af þvi að þetta átti sér stað i riki, þar sem engin heilsugæsla er til vegna almennings, þar sem allur almenningur vprður að búa við það að fá enga aðstoð við sjúk- dómum eða öðrum likamlegum vandræöum, sem menn lenda i. Magnús Kjartansson Þar var peningunum eytt i svona aðgerðir, sem aðeins forréttinda- menn gátu notið, en allur al- menningur fékk enga aðstoð i sambandi við hversdagslegustu mannamein. Það er styrkur heilbrigðisþjón- ustunnar á Islandi, að hún er lýö- ræðisleg, og hún þarf að halda áfram að vera það og þess vegna þurfum við að taka á meinsemd- um þeim, sem algengastar eru og sú meinsemd, som nú er algeng- ust, er fötlun af ýmsum ástæðum, af ýmsu tagi, en fötlun. Og þarna getum við náð ákaflega miklum árangri eftir þeirri reynslu, sem fengin er bæði hér á landi og í enn rikara mæli þar sem meiri áhersla hefur verið lögð á þessi mál i nágrannalöndum okkar. Til þess arna þyrfti að verja meiri fjármunum. Það er svo hægt að reikna það út, að fjár- framlög i þessu skyni skila sér aftur eftir öðrum leiöum. Ég er að visu mjög fráhverfur þeim mæli- kvarða að meta alla hluti út frá peningum. Mér finnst sá mæli- kvarði ganga viðurstyggilega langt i mörgum tilvikum. I sam- bandi við mál eins og þessi er það jafnrétti og bræðralag og sam- hjálp sem eiga að vera mæli- kvarðar okkar. Ef menn vilja beita peningasjónarmiðinu, þá gefur það einnig jákvæða út- komu, vegna þess að tilgangur endurhæfingar er að gera fólki kleift að komast aftur út i þjóðlif- ið og taka þátt i störfum, og þetta tekst i ákaflega mörgum tilvik- um, þar sem áhersla er lögð á þessa starfsemi. Að þetta fólk getur tekiö þátt i framleiðslustörfum og tekiö þátt i að skila þar auknum árangri fyrir þjóðarbúið, en hitt er þó miklu meira i minum huga,aöþetta fólk kemst þá i eðlileg samskipti við nágrenni sitt. Það er ekkert ömur- legra en hlutskipti fatlaðra, sem verða einangraðir, komast ekki i samband við umhverfi sitt og verða að lifa á tekjum, sem eru vægast sagt smánarlegar. Þetta er að minni hyggju langstærsta heilbrigðis- og félagsvandamál á fslandi, og ég tel, að sómi okkar liggi við að taka á þessu verkefni á myndarlegan hátt. Tillaga min er um það, að þessi atriði sem ég taldi upp áðan verði flutt frá félagsmálaráðuneytinu til heilbrigðismálaráðuneytisins og einnig að skipuö verði n. til þess, skipuð sérfræðingum og fötluðum, að endurskoða öll lög, sem í gildi eru um þessi mál. Við höfum allviðtæka lögjöf um endurhæfingu, en breytingar á þessu sviði hafa veriö svo örar seinustu árin, að það þarf að endurskoða þessa löggjöf frá grunni og bæta þar viö mörgum nýjum þáttum. Ég sagöi áðan að ég teldi, að við ættum að auka Kramhald á bls. 18

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.