Þjóðviljinn - 23.11.1976, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJEVN Þriðjudagur 23. nóvember 1976
Magnús Kjartansson:
Gerum fötluðum kleift að
komast út í þjóðlífið
Fyrir nokkrum dögum
var til 1. umræöu á al-
þingi þingsályktunartil-
laga Magnúsar Kjartans-
sonar o.fl. um endurhæf-
ingu. Mælti Magnús fyrir
tillögunni og fer ræöa hans
hér á efftír:
A þinginu 1969-1970 var samþ.
hér breyt. á lög. um stjórnarráö
og meginatriði þeirrar breyt. var
það, að komið varupp 2 nýjum rn.
heilbr,- og trn. og iðnaðarrn. í
framhaldi af þessari lagabreyt.
var svo sett ný reglugerð um
skipan starfa á milli rn. og hún
var þannig unnin, að forseti
íslands var látinn skrifa undir
hana, og hún er prentuö i laga-
safni þannig að hún hefur
hliðstætt gildi og lög.
Það var vafalaust nokkur vandi
að kveða á um breyt. á reglugerö-
inni i sambandi við þá breytingu,
sem gerð var á rn. enda hygg ég
að fram hafi komið ýmsar veilur
á þessari reglugerð. Það hittist
þannig á þegar ég var ráðh. 1971,
að ég starfaði á þeim 2 nýju rn.
sem komið var á laggirnar 1970
og mér fannst ég reka mig á að
reglugerðin væri ekki fullkom-
lega rökvis. Ég veitti þvi til að
mynda athygli i iðnaðarráðuneyt-
inu að ýmsar gr. iðnaðar sem
voru ótviræður iðnaður voru
flokkaðar undir sjávarútvegs-
ráðuneytið annars vegar og
landbúnaðarráðuneytið hins
vegar og þar var um að ræða
iðnað, sem var tengdur sjávar-
afla annars vegar og hins vegar
landbúnaðarstörfum. Til að
mynda var dæmigerður efna-
iðnaður eins og áburðarverk-
smiðja flokkuð undir land-
búnaðarráðuneytið en ekki
iðnaðarráðuneytið.
Ég tel að þarna hafi ekki verið
rétt á málum haldiö. Viö vitum
það afar vel að hér á tslandi er
metingur á milli atvinnugreina
oft ákaflega vanhugsaöur og
svona skipting eins og ég var að
ræða um áðan hún stuðlar að þvi
að viðhalda þeim metingi i stað-
inn fyrir að þurrka hann út,
eins og við verðum að gera ef við
eigum að hafa skynsamlega at-
vinnuþróun á tslandi. t heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu rak ég mig á það, að einn
veigamikill þáttur i heilbrigðis-
kerfinu, þ.e.a.s. endurhæfing og
störf vegna fatlaöra haföi veriö
skilinn eftir i félagsmálaráðu-
neytinu og heyröi ekki' undir
heilbr.- og trmrn. Þarna virtist
það viðhorf hafa rikt að lita á
fötlun og endurhæfingu, sem
vandamál sem tengd væru vinnu-
markaðinum en ekki þvi fólki
sem þyrfti á slikri aðstoð að
halda. Mér var þetta ljóst fljót-
lega eftir að ég tók til starfa og
það má segja, að ég hefði átt að
beita mér fyrir þvi að breyt. yrðu
gerðar á þessu þá. En ég verö að
segja það eins og er aö það er æöi
mikil vinna að gegna ráðherra-
störfum ef maður reynir að rækja
þau af samviskusemi og maöur
hefur ekki nema takmarkaðan
áhuga á þvi að toga til sin fleiri
verkefni en kveðiö er á um i lög-
um.
Það kom hins vegar fyrir mig
að ég kynntist hlutskipti fatlaðra
eftir að ég hætti ráöherrastörfum
og ég hef venjulega haft þann
hátt á ef ég lendi i einhverjum
slikum vanda, að skoða hann
i félagslegu samhengi og kanna
slik mál i heild og ég gerði
það þegar ég lenti i þessum
vanda sjálfur, las mér æöi
mikið til um endurhæfingu
og vandamál fatlaðra og
komst þá að raun um það, að
þessi vandi er miklu stærri en ég
hafði gert mér nokkra grein fyrir
áður. Ég birti i grg. með frv.
minu tölur frá Sviþjóö, sem sýna
hversu stórfelldur þessi vandi er.
Þar lenda i fötlun 500 þús. manna
á vinnufærum aldri en það mun
vera nærri 10% , tiundi hver
maður, sem lendir i fötlun og þarf
á endurhæfingu að halda á starfs-
aldri sinum. Á þvi er enginn vafi,
að tölur hér á landi eru hlið-
stæðar. Þær kunna að skiptast
eitthvað á aöra lund en i Sviþjóð
vegna annarra atvinnuhátta hér.
M.a. er sjómennska mjög hættu-
legt starf og henni fylgja oft slys,
sem leiða til alvarlegrar fötlunar.
En ég hygg að heildartalan sé
rétt, hér sé um vanda að ræða,
sem nái til tiunda hvers manns
eða meira.
Þetta er vandi, sem fylgt hefur
mannkyninu frá upphafi vega
vafalaust og getur breyst með
breytilegum atvinnuháttum, en i
meginatriðum hefur hann fylgt
mannkyninu frá upphafi. En það
er ekki fyrr en tiltölulega nýlega,
að farið-er að takast á við þennan
vanda á skipulegan hátt i sam-
bandi við heilbrigðisbiónustu.
Það voru að visu til félög, til þess
að aðstoða fatlað fólk á ýmsum
sviðum, ekki sist blinda og
heyrnarlausa og aðra fatlaða, en
það voru fyrst og fremst félög,
sem aðstoðuðu við framfærslu
sliks fólks, en ekki við læknis-
fræðilega endurhæfingu. Það má
segja, að skipulag læknisfræðileg
endurhæfing hefjist ekki fyrr en i
siöustu heimsstyrjöld.
Styrjaldir valda þvi ævinlega,
að menn verða fyrir miklum
likamlegum áföllum og i siðasta
striði gerðist það, að farið var að
taka á þvi skipulega, hvernig
hægt væri að endurhæfa fólk, sem
yrði fyrir meiri háttar slysum i
styrjöldum og gera þvi fært að
gegna störfum i þjóðfélaginu.
Þessi þróun hefur haldið áfram
eftir að striði lauk og þróast ákaf-
lega mikið i þeim löndum, sem
fremst standa á sviði læknisvis-
inda, til að mynda á Norðurlönd-
um og ekki sist i Sviþjóð og i
Bandarikjunum, þar sem læknis-
visindi eru á háu sviði, þótt ekki
sé þar um félagslega heilsugæslu
að ræða.
Þarna hefur orðið ákaflega
mikill árangur og við höfum
kynnst þessum árangri á ýmsum
sviðum hér á Islandi. Ég vil til að
mynda minna á þær nýjungar,
sem orðið hafa i sambandi við
bæklungarlæknin^ar, sem geta
aðstoðað fólk i miklu, miklu rik-
ara mæli en áður var. Þær hafa
verið teknar upp hér á Lands-
spitala, en þvi miður hefur verið
haldið þannig á málum, að þar
hafa i sifellu lengst biðlistar. Það
hefur ekki verið tryggð aðstaða til
þess að hægt væri að sinna þess-
um lækningum, þessum aðgerð-
um gegn brýnum mannameinum
á þann hátt, sem vert hefði verið.
Ég legg til i þessu frv., að
endurhæfing, læknisfræðileg og
starfsleg vegna skertrar starfs-
hæfni og endurhæfingarstöðvar
og Styrktarsjóður vangefinna,
fatlaðra og blindra, svo og Erfða-
fjársjóður, verði flutt frá félmr.
til heilbrn. vegna þess að það eru
aðgerðir sjúkrahúsa og lækna og
annarra heilbrigðisstétta, sem
þarna eru grundvöllurinn. En að
vísu er þar farið dálitið út fyrir
svið hinnar hefðbundnu læknis-
fræði, þvi að hún er við það miðuð
að vinna bug á sjúkdómum eða
gera aö sárum og annað slikt, en
ekki við þaö að aðstoða menn við
að endurhæfa sig eða komast út i
atvinnulifið á nýjan leik, þaö væri
ekki talið verkefni hinna hreinu
læknavisinda.
En þetta hefur breyst. Það hafa
komið nýjar starfsstéttir, sem
hafa þetta verkefni og til að
mynda i Sviþjóð er svo komið, að
allt heilsugæslukerfið er byggt
þannig upp, að það geti stundað
aðgerðir i þágu fatlaðra, öll
deildarskipt sjúkrahús eru með
slikar deildir og árangurinn á
þessu sviði er eins og ég sagði
áðan ákaflega mikill. Þarna er
um að ræða eins og ég sagöi áðan
tiunda hvern einstakling, svo að
aðeins sé þar rætt um likamlegar
fatlanir. Andlegar fatlanir
eru ákaflega algengar lika.
Þarna er þvi um að ræða ákaflega
viðtækt svið og ég er þeirrar
skoðunar að það séu brýnustu
verkefni okkar á sviði heilbrigðis-
mála að takast á við þessi mál á
skipulegan hátt.
Hér á íslandi hafa risið upp
mörg áhugamannafélög, sem
vinna að þessum verkefnum. Þar
ber hæst að minu mati Samband
isl. berklasjúklinga, vegna þess
að það braut isinn og það vann
starf, sem var á þeim tima
forystustarf jafnvel á heimsmæli-
kvarða. En hér hafa risið upp
ákaflega mörg félög önnur og
unnið mjög mikið gagn, en þvi
miður hefur þessi starfsemi orðið
of tilviljanakennd. Hún hefur
mótast af þvi, að áhugamenn
hafa risið upp vegna persónulegs
vanda, sem þeir kunna að hafa
lent i sjálfir eða aðstandendur
þeirra og beitt sér fyrir félags-
stofnunum á þessu sviði.
Sumar hafa verið starfræktar
með miklum myndarskap, aðrar
miður vel, en þetta hefur verið
bundið við duglega einstaklinga
fyrst og fremst, og reynslan hefur
orðið sú, að mörg slik samtök
hafa leitað til rikisins um vaxandi
aðstoð til þess að geta haldið
starfseminni áfram. Rikið hefur
raunar lagt til tekjustofn fyrir
mörg þessi samstök, svo að þau
gætu haldið starfsemi sinni
áfram.
Ég er þeirrar skoðunar, að það
þurfi að koma heildarskipulagi á
þessi mál með þvi að tengja þessa
starfsemi áhugamannaféiaga við
heilbrigðiskerfið i landinu. Og ég
er ekki að tala um þar, að heil-
brigðiskerfið i landinu eigi aö
koma i staðinn fyrir starfsemi
áhugamanna. Ég tel, að hún sé
ákaflega mikilvæg og það þyrfi að
ýta undir hana frekar en hitt, en
það þurfi að fella hana að skyn-
samlegu kerfi, til að forast tvi-
verknað og að þau framlög, sem
þarna eru innt af hendi nýtist sem
allra best. Þarna tel ég, að gera
veröi stórátak á næstunni. Það
þarf kannske ekki að bæta við
ýkja mörgum legustofnunum af
þessu tilefni, en ég er þeirrar
skoðunar, að það þurfi að koma
upp opnum göngudeildum i miklu
rikari mæli en nú er þannig að
fatlaðir til að mynda geti dvalist
heima hjá sér, en farið til aðgerða
á sjúkrahús.
Þetta er mjög miklum vand-
kvæðum bundið nú, vegna þess að
göngudeildir sjúkrahúsanna eru
allt of litlar og einnig vegna hins,
að það er haldið þannig á málum,
að það er auðveldara fyrir sjúkl-
inga að leggjast á sjúkrahús en að
dvelja heima hjá sér og fara á
göngudeiidir sér til aðstoðar. Til
að mynda voru aðgerðir sem voru
ákveðnar i tið fyrrv. rikisstj. i
sambandi við lyfjakostnað, sem
átti að tryggja það, að fólk, sem
fengi læknisþjónustu á göngu-
deildum, byggi við sömu skilyrði
að þvi er lyfjakostnaö varðar eins
og fólk, sem er á sjúkrahúsum.
Þessu hefur þvi miður verið
breytt, þannig að fólk, sem er ut-
an sjúkrahúsanna, verður þar að
leggja á sig miklar byrðar og mér
er mjög vel kunnugt um það, að
læknar leggja fólk á sjúkrahús
m.a. af peningaástæðum til þess
að fólk þurfi ekki að lenda i fjár-
hagslegum vanda. Þá liggur á
sjúkrahúsi fólk, sem gæti dvalist
heima, ef þessi vandi kæmi ekki
til. Ég tel, að þarna verðum við að
efla opnar göngudeildir stórlega
og við þurfum að gera stórátak á
þessu sviði.
Ég vil taka það skýrt fram, að
þegarég tala um stórátök á þessu
sviði, þá á ég við stórauknar fjár-
veitingar einnig. Ég heyrði það i
útvarpsfréttum i gær, að hæstv.
forsætisráðherra hafði haldið
ræðu i gær yfir einhverjum sam-
tökum, sem ég man nú ekki hver
voru. Og hann taldi það vera
stefnu núverandi rikisstjórnar að
draga úr samneyslu til þess að
auka einkaneyslu. Mér þótti þetta
afar merkileg yfirlýsing og raun-
ar i fyrsta skipti, sem þessi rikis-
stjórn skýrir frá grundvallarhug-
myndum sinum.
Hvað er samneysla? Það er
auðvelt að slá fram sliku orði.
Það eru ekki allir, sem gera sér
grein fyrir, hvað i þvi felst. En
samneysla er til að mynda heil-
brigðis- og tryggingamál, skóla-
mál, vegamál, það er þetta, sem
á að skera niður að mati hæstv.
forsætisráðherra. Að búa til and-
stöðu á milli samneyslu og einka-
neyslu á þann hátt, sem hæstv.
ráðh. gerði er alger fölsun, þvi að
það er samneyslan, sem fyrst og
fremst stuðlar að jöfnuði á milli
manna, dregur úr þeirri mis-
munun, sem fram kemur i launa-
kjörum og stuðlar að jöfnuði á
milli manna.
Ég man eftir afskaplega
skemmtilegu dæmi um árangur
samneyslu. Ég fór 1946 i ferðalag
um Austur-Skaftafellssýslu. Þá
var samgöngum þannig háttað
þar, að ég þurfti að ferðast um
gangandi og riðandi og ég þarf
ekki að lýsa þvi, að ég hafði mikla
ánægju af þessu ferðalagi.
Svo gerðist það 1973, að ég
hygg, að ég ferðaðist aftur um
Austur-Skaftafellssýslu, haföi
ekki komið þar i millitiðinni og
ferðaðist um sömu slóðir
og áður, en að visu á miklu
skemmri tima, þvi að nú eru
komnir góðir vegir. Og ég veitti
þvi athygli, hversu miklar
breytingar höfðu orðið á efnahag
manna og aöbúnaði i þessari
sýslu. Og þessar breytingar voru
fyrst og fremst afleiðing af sam-
göngubótum.
Þessi samneysla, sem birtist i
samgöngubótum þarna hafði
orðið til þess aö bæta til muna
efnahag og getu íbúa þessa svæð-
is. Þannig er þaö á öllum sviðum
samneyslu, ef hún er lýðræðisleg
að segja, ef hún er miðuð við
þegnana i heild, þá stuðlar hún að
jöfnun,að auknu réttlæti i þjóð-
félaginu. En þá verður sam-
neyslan einnig að vera skipulögð
á lýðræöislegan hátt, og það er
styrkurinn við heilbrigðiskerfi
það, sem viö höfum t.a.m. á
Norðurlöndum, að það er skipu-
lagt á lýðræðislegan hátt.
Ég held að ég gleymi þvi seint,
hvað mér fundust ógnarlegar
fréttir, sem voru mikið i útvarpi
fyrir nokkrum árum um lækni
einn i Suður-Afriku, sem stundaði
að græða hjörtu i menn og þetta
var mikið fréttaefni. Mér fannst
þetta ákaflega ógeðfelldar fréttir.
Það var af mörgum ástæðum,
sem mér fannst það, en fyrst og
fremst af þvi að þetta átti sér stað
i riki, þar sem engin heilsugæsla
er til vegna almennings, þar sem
allur almenningur vprður að búa
við það að fá enga aðstoð við sjúk-
dómum eða öðrum likamlegum
vandræöum, sem menn lenda i.
Magnús Kjartansson
Þar var peningunum eytt i svona
aðgerðir, sem aðeins forréttinda-
menn gátu notið, en allur al-
menningur fékk enga aðstoð i
sambandi við hversdagslegustu
mannamein.
Það er styrkur heilbrigðisþjón-
ustunnar á Islandi, að hún er lýö-
ræðisleg, og hún þarf að halda
áfram að vera það og þess vegna
þurfum við að taka á meinsemd-
um þeim, sem algengastar eru og
sú meinsemd, som nú er algeng-
ust, er fötlun af ýmsum ástæðum,
af ýmsu tagi, en fötlun. Og þarna
getum við náð ákaflega miklum
árangri eftir þeirri reynslu, sem
fengin er bæði hér á landi og í enn
rikara mæli þar sem meiri
áhersla hefur verið lögð á þessi
mál i nágrannalöndum okkar.
Til þess arna þyrfti að verja
meiri fjármunum. Það er svo
hægt að reikna það út, að fjár-
framlög i þessu skyni skila sér
aftur eftir öðrum leiöum. Ég er að
visu mjög fráhverfur þeim mæli-
kvarða að meta alla hluti út frá
peningum. Mér finnst sá mæli-
kvarði ganga viðurstyggilega
langt i mörgum tilvikum. I sam-
bandi við mál eins og þessi er það
jafnrétti og bræðralag og sam-
hjálp sem eiga að vera mæli-
kvarðar okkar. Ef menn vilja
beita peningasjónarmiðinu, þá
gefur það einnig jákvæða út-
komu, vegna þess að tilgangur
endurhæfingar er að gera fólki
kleift að komast aftur út i þjóðlif-
ið og taka þátt i störfum, og þetta
tekst i ákaflega mörgum tilvik-
um, þar sem áhersla er lögð á
þessa starfsemi.
Að þetta fólk getur tekiö þátt i
framleiðslustörfum og tekiö þátt i
að skila þar auknum árangri fyrir
þjóðarbúið, en hitt er þó miklu
meira i minum huga,aöþetta fólk
kemst þá i eðlileg samskipti við
nágrenni sitt. Það er ekkert ömur-
legra en hlutskipti fatlaðra, sem
verða einangraðir, komast ekki i
samband við umhverfi sitt og
verða að lifa á tekjum, sem eru
vægast sagt smánarlegar. Þetta
er að minni hyggju langstærsta
heilbrigðis- og félagsvandamál á
fslandi, og ég tel, að sómi okkar
liggi við að taka á þessu verkefni
á myndarlegan hátt.
Tillaga min er um það, að þessi
atriði sem ég taldi upp áðan verði
flutt frá félagsmálaráðuneytinu
til heilbrigðismálaráðuneytisins
og einnig að skipuö verði n. til
þess, skipuð sérfræðingum og
fötluðum, að endurskoða
öll lög, sem í gildi eru um þessi
mál. Við höfum allviðtæka lögjöf
um endurhæfingu, en breytingar
á þessu sviði hafa veriö svo örar
seinustu árin, að það þarf að
endurskoða þessa löggjöf frá
grunni og bæta þar viö mörgum
nýjum þáttum. Ég sagöi áðan að
ég teldi, að við ættum að auka
Kramhald á bls. 18