Þjóðviljinn - 23.11.1976, Qupperneq 15
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 23. nóvember 1976
Norðurlandameistaramótið í badminton:
Pri tapaði 0:15
„Það hefur aldrei komið fyrir hann áður á stórmóti ” sagði Erik
Jörgensen, form. dönsku landsliðsnefndarinnar eftir að FLEMING DELFS
varð Norðurlandameistari með því að sigra Svend Pri 15:4 og 15:0
var ekki búist viB þvi aö honum
tækist að sigra Pri nú, þegar
heimsmeistarinn fyrrverandi er
kominn i toppform.
1 einliöaleik kvenna sigraöi
danska stúlkan Lene Köppen,
löndu sina Piu Nilsen 11:1 og
11:4 og Lena varð þrefaldur
Norðurlandameistari, hún sigraði
lika i tviliða og tvenndarleik.
Framhald á bls. 18
Þá er að setja
stefnuna á heims-
meistaratitilinn
sagði hinn nýbakaði Norður*
landameistari Fleming Delfs
,/Ég get ekki sagt að
þessi sigur hafi komið
mér mjög á óvart. Við Pri
höfum nú keppt fjóra
leiki saman í ár og staðan
er 2:2. Sigurinn er mér
hinsvegar afar kærkom-
inn, vegna þess að fyrr í
ár vann ég Evrópu-
meistaratiti li nn og
Danmerkrmeistaratitil-
inn og nú vantar mig að-
eins einn titil, heims-
meistaratitilinn og eigum
við ekki að segja að ég sé
búinn að setja stefnuna á
hann", sagði Fleming
Delfs, hinn geðþekki og
skemmtilegi badminton-
leikari frá Danmörku, er
við ræddum við hann eftir
að hann hafi unnið Norð-
urlandameistaratitilinn
sl. sunnudag.
Fleming Delfs var ekkert
nema kurtcisin, innan vailar
sem utan, gagnstætt landa hans
Svend Pri sem er greinilega
mjög þungt haldinn af stór-
mennsku og sjálfsáliti.
,,Ég hygg aö það sem kemur
mönnum á óvart i þessum úr-
slitaieik er aö Pri tapar meö
núlii i annarri iotunni, þaö hefur
ekki komið fyrir hann siöan
hann byrjabi aö leika á stórmót-
um. Ég er vissulega ánægöur
með að verða fyrstur til aö
vinna hann svona stórt, en viö
skulum gæta aö þvi, aö þaö var
bara ekki hans dagur I dag.
Maður er misjafnlega upplagö-
ur. Ég var vel upplagöur, hann
ekki, þar i liggur munurinn.
Hann gæti allt eins unniö mig á
morgun ef við myndum keppa
aftur þá,” sagði Ilelfs.
,,Ég geri mér vonir um aö
vinna HM titilinn næst, ég hef
aldrei veriö I eins góöu formi og
nú. Ég er bara 25 ára, þannig aö
ég er nú á besta aldri og vel-
gengi min undanfariö eykur
sjálfstraustiö og þaö er sál-
fræðilegt atriöi aö þaö er vont aö
leika gegn manni sem hefur
unnið þrjá af fjórum stærstu
titlunum sem hægt er aö vinna i
greininni. Og kannski veröur
þaö mér til hjálpar á næsta HM,
viö skulum a.m.k. vona þaö
sagöi Delfs og brosti.
—S.dór.
Svend Pri vbr vonsvikinn eftir tapiö fyrir Fleming Delfs og aðrar ófarir
á Noröurlandamótinu. Hann gat ekkiduliöskapsmuni sina og húkir hér
i „fýlu” á áhorfendabekkjunum. —■ Ljósm. S.dór.
Hinn frábæri danski badmintonleikari Fleming Delfs varð Norðurlanda-
meistari i badminton i einliðaleik karla. Þar kom ekki svo mjög á óvart, þar
sem hann er bæði Danmerkur og Evrópumeistari, en að hann skyldi vinna
Svend Pri 15:0 i siðari lotunni í úrslitunum er einstakur atburður. ,,Það
hefur aldrei komið fyrir Pri fyrr á stórmóti að tapa með núlli og satt að
segja átti ég von á að Pri yrði Norðurlandameistari, þar sem hann er kom-
inn i toppæfingu eftir meiðslin i fyrra, nei, þetta voru sannarlega óvæntústu
úrslit mótsins,” sagði Erik Jörgensen, form. dönsku landsliðsnefndarinnar,
er við ræddum við hann eftir þessi furðuleguúrslit0 :15 tap heimsmeistar-
ans fyrrverandi. Og Jörgensen bætti við: Þarna sigraði tæknin kraftinn.
Delfs er óhemju leikinn badmintonleikari og leggur mesta áherslu á tækn-
ina, en Pri hefur meirá útháld og kraft én fléstir áðrir og hann hefur oft
áður verið undir i leik en náð að rétta hlut sinn i siðari lotunni, vegna góðs
úthalds, en nú dugði það ekki tií.
'Erik Jörgensen bætti þvf einnig
viö, aö menn mættu ekki gleyma
þvi, að Fleming Delfs er bæöi
Danmerkurmeistari og Evrópu-
meistari i einliöaleik karla. Hann
vann bæði þessi mót i vor sem
leiö, en þá var Svend Pri ekki
meö, vegna þess aö hann meidd-
istfyrir ári síöan og gat ekki byrj-
aðað æfa fyrr en seint i fyrra.vet-
ur. Delfs, sem er 25 ára hefur nú i
nokkur ár staðið I skugga Pris og
þótt hann hafi unniö þessi tvö.mót
sl. vor, þar sem Pri var ekki meö,
Þriðjudagur 23. nóvember 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
Fleming Delfs varö Noröurlandameistari I einliöaleik karla eftir stór-
glæsilegan sigur yfir Svend Pri, þar sem „tæknin sigraöi kraftinn”. —
Ljósm. S.dór.
Finnar
unnu
meö5:l
í landskeppn-
inni við
íslendinga í
badminton
Eftir að úrslitaleikjum
Norðurlandamótsins i bad-
minton lauk sl. sunnudag
fór fram landskeppni í
badminton milli islendinga
og f inna og er þetta i annað
sinn, sem landskeppni í
badminton fer fram milli
þessara þjóða. I fyrra
sinnið sigruðu finnar 5:0 en
nú 5:1.
Það voru þær Hanna Lára og
Lovisa Sigurðardóttir, sem unnu
leikinn i tviliðaleik kvenna 9:15 —
15:3 og 15:9.
1 tviliðaleik karla var um mjög
harða keppni að ræða. Þeir Sig-
urður Haraldsson og Jóhann
Kjartansson unnu fyrstu lotuna
15:11 en töpuðu svo 6:15 og 12:15.
Allir aðrir leikir i keppninni
töpuðust eins og við var búist, viö
erum mjög langt á eftir hinum
Norðurlandaþjóðunum i badmin-
ton, en þess verður lika að gæta,
að bæði danir og sviar eru meðal
bestu þjóða heims i þessari
iþróttagrein. —S.dór
Tefla blaðamenn
fram leynivopni?
Aldrei aö vita hvaö verður ofan á þegar
landsliöiö og pressuliðið í körfubolta leiða saman
hesta sína næstkomandi fimmtudagskvöld
Hinn júgósla vneski
landsliðsþjálfari KKI,
Vladan Markovic valdi á
sunnudag 12 leikmenn til
að leika landsleiki við
norðmenn hér heima um
næstu mánaðamót. Marko-
vic hefur haft umsjón með
æf ingum 17 manna hóps og
valdi hann lið sitt eftir æf-
ingu á sunnudag.
Hópurinn er þannig skipaður:
Kristinn Jörundsson IR
Kolbeinn Kristinsson IR
Jón Sigurðsson Árm.
Kári Marisson UMFN
Rikharður Hrafnkelsson Val
Þórir Magnússon Val
Ingi Stefánsson IS
Torfi Magnússon Val
Jón Jörundsson IR
Birgir Guðbjörnsson KR
Einar Bollason KR
Bjarni Gunnar Sveinsson IS
i sambandi viö landsleikina fer
fram pressuleikur á fimintudags-
kvöld i íþróttahúsi Hagaskóla og
hefst leikurinn kl. 20.30. Liö I-
þróttafréttaritara er þannig
skipaö.
Kolbeinn Pálsson KR fyrirliði
Þorsteinn Hallgrimsson IR
Erlendur Markússon IR
Steinn Sveinsson IS
Jimmy Rogers Armanni
Bjarni Jóhannesson KR
Stefán Bjarkason UMFN
Guðmundur Böðvarsson Fram
Agnar Friðriksson IR
Jón Héðinsson ÍS
Kristján Ágústsson Val
Liðstjóri verður Birgir Orn Birgis
þjálfari Armanns.
1 hálfleik verður vitaskota-
keppni milli blaðamanna og verö-
ur eflaust um spennandi keppni
að ræða, þar sem menn hafa æft
af kappi i laumi. KKl veitir veg-
leg verðlaun þeim sem best
stendur sig. G.Jóh.
Sigurður
Suokari
Sigurður Haraldsson, tslands-
meistarinn i badminton, var eini
islendingurinn, sem vann leik á
Norðurlandamótinu um helgina.
Sigurður keppti i fyrstu umferð
við finnann Martti Suokari og
sigraði Sigurður 17:14 og 15:12 og
sigraði
varð hann þar með 3ji islending-
urinn.sem vinnurleik á NM. Hin-
ir sem unnið hafa leik á NM eru
Reynir Þorsteinsson og Haraldur
Korneliusson.
Annars gekk islendingunum illa
á mótinu að þessu sinni, þeir töp-
uðu allir i fyrstu umferð. Otto
Guðjónsson komst i 2. umferð þar
sem sviinn Kihlström gaf leikinn
við hann. S.dór.
Boltar fyrir 175 þús. kr.
Fjaðraboltar þeir sem notaðir
eru i badminton eru óskaplega
dýrir og sem dæmi má nefna að á
Norðurlandameistaramótinu um
helgina voru notaði 500 slikir bolt-
ar og kostar hver bolti 350 kr.
þannig að samtals hafa þvi verið
notaði boltar fyir 175 þúsund kr. á
mótinu.
—S.dór
' -i:1
Lena Köppen — farin aö venjast þvi aö veröa þrefaldur Noröur-
landameistari, enda mikil yfirburöamanneskja á mótinu hér I
Laugardalshöll. — Ljósm. S.dór.
Ég er orðin
vön þessu
sagði Lena Köppen, sem varð
þrefaldur Norðurlandameistari
3ja árið í röð
„Mér fannst þaö alveg
stórkostlegt að vinna
þrefalt i hitteð fyrra, í
fyrra var það ekki eins
spennandi og nú finnst
mér ekkert sérstakt að
vinna þessa þrjá titla,
eða í það minnsta ekkert
í likingu við það sem
mér þótti fyrir tveimur
árum, maður venst
þessu", sagði Lena
Köppén, danska stúlkan
sem þrjú ár i röð hefur
orðið þrefaldur Norður-
landameistari i badmin-
ton.
„Það er vissulega
alltaf gaman að sigra og
að þvi stefnir maður
alltaf, en þegar eitthvað
gerist í 3ja sinn er það
ekki jafn skemmtilegt
og í fyrsta sinn, þú mátt
ekki taka þetta sem eitt-
hvert stærilæti í mér,
þetta er svona hjá öll-
um".
„Það var ægilega
erfitt að leika úrslita-
leikinn i tvenndarleikn-
um strax á eftir úrslita-
leiknum i tvíliðaleik,
sem var 3 lotur, enda
sérðu hvernig skyrtan
min er, eins og ég væri
að koma uppúr sund-
laug. Nei, mér gekk
ekkert sérlega vel á
heimsmeistaramótinu
siðast, ég varð i 3ja sæti,
enþað gekk betur á
Evrópumótinu þá varð
ég i 2. sæti. Kannski
manni takist að vinna á
þessum mótum næst,
hver veit".
„Aðstæður hér voru
mjög góðar, ég hef ekk-
ert útá þær að setja,
nema hvað lýsingin hér í
Laugardalshöllinni er
ekki góð og allra sist
fyrir badminton, það er
það eina". — S.dór.