Þjóðviljinn - 13.02.1977, Síða 7
Sunnudagur 13. febrúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
skyldum tekjum á árinu. Þetta
gerir karlmaöur, sem svo er
ástatt um, þetta gerir einhleyp
kona, sem svo er ástatt um, og
þvl þá ekki gift kona? Til þess
aö skýra dæmiö, gætum viö
hugsaö okkur tvo karlmenn:
annar er, einhverra hluta
vegna, tekjulaus á árinu, hinn
er fjármálaráöherra. Sá fyrri
veröurhvaö sem tautar og raul-
ar aö skila framtali og vorkenn-
ir honum enginn. En á þaö aö
hafa áhrif á, hvort f jármálaráö-
herrann skilar framtali eða ekki
og ti'undar tekjur sinar, aö til
eru karlmenn sem hafa engar
tekjur?
Heimilisstörf
eru skattfrjáls
Oe enn er margt skrýtiö i kýr-
hausnum. Þaö er t.d. fróölegt
aðvelta fyrir sér, hvers vegna i-
haldssömum karlmönnum
finnst svona niðurlægjandi fyrir
gifta húsmóöur aö vera tekju-
laus á skattseöli. Þeir virðast
gersamlega horfa framhjá
þv' að húsmóöirin sem eingöngu
vinnur heimilisstörf vinnur
skattfrjálsa vinnu, og eru hús-
mæður liklega eini þjóðfélags-
hópurinn, sem fær alla sina
vinnu skattfrjálsa. Hingaö til
hefur slikt talist til friðinda.
Þeir viröast gersamlega horfa
framhjá þvi, aö konan er að
vinna sjálfri sér og heimili sinu
oger aö framfæra þá sjálfa skv.
skýrum ákvæöum I lögum um
réttindi og skyldur hjóna, en þar
segir i 2. gr.: „Skylt er hjónun-
um hvoru eftir getu sinni og svo
sem samir hag þeirra, aö
hjálpast aö þvi aö framfæra
fjölskylduna meö fjárframlög-
um, vinnuá heimilinuogá ann-
an hátt”. En ihaldssamir karl-
menn viröast hvorki sjá né
kunna að meta þessa skatt-
frjálsu framfærslu konu sinnar,
þvi nú gerist tvennt afar furðu-
legt; þeir vilja „borga” fyrir
þessa vinnu meö tilbúnum pen-
ingum á pappirnum eins og þeir
hefðu ráðið eiginkonu sina til
starfa og jafnframt vilja þeir fá
lækkun á sköttum af þvi konan
er heima likt og hún væri ein-
hver ómagi á þeim. Þetta er nú
meginhugsunin aö baki frum-
varpi rikisstjórnarinnar um
hjónaskattinn.
Karlmaðurinn
er viðmiðunin
Helmingaskiptareglan svo-
nefnda hefur veriö yfirlýst
markmið Sjálfstæöisflokksins
til margra ára. Hún var lika
stefna Alþýöuflokksins þangaö
til fyrir um það bil viku, svo sem
tillöguflutningur hans á Alþingi
er til vitnis um. í helminga-
skiptareglunni felst, að tekjum
heimiiisins er skipt I tvennt og
hvoru hjóna um sig reiknaður
helmingur til skatts. Ef konan
er heimavinnandi húsmóöir, er
henni skv. þessu reiknaöur
helmingur af tekjum mannsins.
Þau rök eru færö fyrir þessu, aö
þannig fáist viöurkenning á þvi
starfi sem hún innir af hendi
heima fyrir. Þaö eru m.ö.o
búnir til peningar handa þeim
framfæranda heimilisins, sem
vinnur skattfrjálsa vinnu. En
mælikvarðinn á þessi tilbúnu
laun er ekki vinnuframlag kon-
unnar né sú verðmætaaukning
sem vinna hennar skapar,
heldur tekjur eiginmannsins.
Karlmaöurinn er viðmiöunin.
Þetta er þvi vitanlega engin
viðurkenning á starfi hennar.
Réttara væri aö segja aö eigin-
manninum væri gert aö kaupa
þessa vinnu mismunandi dýrt. t
þessari stefnu Sjálfstæöis-
flokksins felst meiri fyrirlitning
á húsmóöurstörfum en ég man
eftir aö hafa nákkurn tima áöur
séö. Húsmóöurinni er hafnaö
sem sjálfstæöum framfæranda
heimiiisins, en metin eftir tekj-
um eiginmannsins. Svo státar
fjármálaráöherrann af jafn-
réttisfrumvarpi! En vegna
þess.hve hátekjumaöurinn þarf
aö kaupa vinnu konu sinnar
dýru veröi, þá lækkar hann i
sköttum, þvi honum nýtist svo
vel lægra skattþrepið.
Framhald á bls. 22
ójÉ JÓN MÚLI ÁRNASON W SKRIFAR
TONLEIKAFERÐ Á
ÓLÍFRÆNAN STAÐ
Skólahljómsveit Kópavogs fór
i tónleikaferðupp i Breiöholt um
daginn, eina af mörgum, sem
Menntamálaráöuneytiö hefur
skipulagt um höfuöborgar-
svæöiö aö undanförnu. Hljóm-
leikarnir áttu aö hefjast fyrir
hádegi i Fellaskóla, en þangaö
rata ekki gamlir reykvikingar
af sjálfsdáöum, ekki einu sinni
hinir allra gleggstu. A lögreglu-
stööinni viö Hverfisgötu er
vandaö kort af höfuöborginni,
og háttsettur varðstjóri sagöi:
— Þú ekur alla leið upp eftir og
framhjá bensinstööinni, svo til
vinstri langan sveig og Fella
skóli leynir sér ekki þegar þú
kemur hingaö, — þaö er þessi
svarti ferhyrningur. — Framhjá
bensinstööinni til vinstri, sagöi
ég, — og bætti viö i huganum:
Ekki er aö spyrja að Ihaldinu, —
þaö sér um sina, og ekki aö
furöa þótt Breiðholtiö sé ólif-
rænt, eins og gáfaö fólk hefur
marg oft tekið fram opinberlega
i fjölmiðlum. —
A leiöinni uppeftir skein vetr-
arsólin beint I augun á manni,
og meö naumindum unnt að
koma auga á bensinstööina i
skugganum af svörtum
steinsteypubáknum, — allt al-
veg svakalega ólifrænt. Þegar
maöur fór aö venjast rafmagn-
inu inni i Fellaskóla kom i ljós
einkar sniöugur samkomusalur
I miöju húsinu, — stórt leiksviö
og þar fyrir framan djúpt gimald
i hringleikahússtil. Þaö minnti á
Grikkland hiö forna, þar
smiöuðu menn svona samkomu-
staöi og nefndu amfiþeatron,
þeir þóttu gefast vel, og grikkir
mikil menningarþjóð eins og við
islendingar. Amfiþeatroniö I
Breiöholti rúmar 500 krakka i
sæti, þar er hljómburöur til
fyrirmyndar, hátalarar án hins
landlæga gauls, tónleikagestir
prúöir — næstum eins og, á sin-
fóniuhljómleikum, en snöggtum
glaöari en i Háskólabiói. Maöur
gleymdi I svip hve Breiðholtiö
er ólifrænt.
í hléi var Skólahljómsveit
Kópavogs og aðstoðarmönnum
hennar bobiö i Fellahelli upp á is
og kók, og ókeypis aögang aö
biljarðboröunum. Þar rót-
burstuöu ungir trompetleikarar
þrautþjálfaöa miöaldra
krambúlmeistara meö fyrir-
sögn upp i 25, — enda búiö aö
brjóta framan af öllum kjuöum.
Það þótti hinum gjörsigraða
benda til þess aö eitthvaö væri
hæft I frásögnum af Breiöholts
skrilnum, sem hópast saman i
skjóli náttmyrkurs, berjandisk
og bölvandisk, brjótandi rúöur
og biljarökjuða. Og við hverju
er að búast þegar æskulýöurinn
elst upp i svona ólifrænu um
hverfi?
Þaö var gott ab komast út úr
hellinum og jafna sig 1 hádegis-
sólinni eftir krambúliö. Opib
óbyggt svæöi til austurs meö
fjallasýn sem virtist ekki mjög
ólifræn, og þar aö noröanveröu
ljómandi fallegur fótboltavöll-
ur. — Hvaö á aö koma á þennan
griðarstóra mel? — Þar á ekk-
ert aö koma, — þetta er iþrótta-
svæöiö—hérna veröa grasvellir
kappleikjahús og hlaupabraut-
ir, — sagöi ungur barnakennari
og horföi vonbjörtum augum inn
I framtiðina. Þaö lá viö aö
maöur færi aö halda aö þetta
væri eitthvað oröum aukiö um
ólifrænuna.
^Seinnihljómleikarnir i
amfiþeatroninu i Fellaskóla-
tókust prýðilega áheyrendur nú
hátt á sjötta hundraö og þökk-
uðu hverjum einleikara I Skóla-
hljómsveit Kópavogs með
dynjandi lófataki, sem haldið
var áfram með taktföstum hryn
i drengilegustu mörsunum.
Skólastjórinn ávarpaði aö lok-
um gestina, kennara sina og
nemendur, sendiboöi og kynnir
Menntamálaráðunevtisins
þakkaöi yfirmönnum meö
handabandi, og hljómsveitar-
stjórinn sagði: Það getur vel
veriö, aö þetta sé voðalega ólif-
rænt hérna uppfrá, — en ég hef
aldrei komiö i betri hljómleika-
sal. — Svo barst talið aö kyn-
þáttabilinu alræmda, bölvaldin-
um mikla á siðari hluta
tuttugustu aldar. — Ekki þekkj-
um viö þaö, — sögöu breiöhylt
ingar, — þaö hefur aldrei veriö
notaö hér. — Þaö er þá eins og i
Kópavogi, — sagöi hljóm-
sveitarstjórinn — og húsmóöir i
Vesturbænum segir mér aö hún
hafi aldrei oröiö vör viö þaö
heldur. — Þaö er þá eins og i
Austurbænun — sagði ég, —
þar telja meira aö segja ýmsir
aö kynslóöabilið sé bara þvætt-
ingur, — uppdigtaður handa
gáfnaljósum til aö þrasa um
opinberlega i fjölmiðlum. —
Við ókum undan sól niður eft-
ir, og nú kom i ljós að
steinsteypukumbaldinn svarti
og fagurlega málab fjölbýlis-
hús, hiö stærsta á öllu landinu,
reist I fögrum sveig meöfram
brautinni til vinstri viö bensin-
stööina. Aö vestanverðu rúmgóö
malbikuö bilastæöi, — og þaðan
gangstigur inn i skjóliö sunnan
undir blokkinni. Þar eru barna-
leikvellir og róló, og búiö aö
græöa upp lifrænan álfhól handa
börnum og fullorönum aö
skemmta sér á. I suöri útvarps-
stengurnar á Vatnsenda og
berjamórinn allt i kring. Berja-
mórinn erlika hafður i brekkun-
um á milli Breibholtanna
þriggja, og sennilega umhverfis
bensinstöðina lika. Við fórum
þangað til að kaupa nokkra litra
fyrir siöasta þúsundkallinn, og
það tókst mæta vel. — Kannski
hefur þaö ekki veriö svo vitlaust
af ihaldinu að velja henni staö
hér, — þótt það sé aö sjálfsögöu i
hæsta máta ólifrænt. — Æ góöi
hættu þessu ólifrænispipi, —
sagði kvenfarþegi I bnnum, —
þetta bull á heima i deginum og
veginum I útvarpinu, kjallaran-
um I Dagblaðinu og spakvitr-
íngaþáttum sjónvarpsins, en
hvergi annarsstaðar—.
Viö ókum fram og aftur um
Breiöholtin þrjú, og ótrúlega
viöa var búiö ab koma öllu i
samt lag eftir jaröýtur, dýnamit
og vélskóflur og allt umrót i
kringum nýbyggingar. Og þaö
var búið aö malbika akbrautir
langt suöur eftir, i átt aö Vifils-
stöðum, og merkja nýju
göturnar og gefa þeim nöfn, þótt
húsin væru hvergi til ennþá
nema á teikningum. Og
berjamór i allar áttír handa
ófæddu breiðhyltingunum. —
Þaö skyldi þó ekki vera, að ólif-
ræna umhverfiðhérna uppfrá sé
eintómur hugarburður þeirra,
sem aldrei hafa nennt aö skoöa
þetta, sagöi bilstjórinn, — og viö
sjálfan sig i hljóði, af þvi að
hann þoröi ekki aö segja þaö
upphátt af pólitiskum ástæöum:
Ætii hann sé annars svo galinn
Ihalds-borgarstjórinn? — aö
minnsta kosti er hann grefilli
liötækur jasspianisti. —
Þegar hér var komiö sögu,
voru ungu tónlistarmennirnir
fyrir löngu komnir suöur i
Kársnes-, Þinghóls- og Vighóla-
skóla i Kópavogi og farnir ab
læra meira i reikningi, náttúru-
fræöi og sögu. Kennsla hófst i
Kársnesskóla fyrir 20 árum og á
lOára afmælinu lék Skólahljóm-
sveit Kópavogs opinherlega í
fyrsta sinn. Þessa tvöfalda af-
mælis veröur minnst hát Mega i
Kársnesskóla þriöjudagmii 33.
þ.m. Tíu ára afmælisbörnin láta
þá kannski til sin heyra Horna-
flokki Kópavogs, — þau eru
vaxin upp úr Skólahljómsveit-
inni og mörg kominn ■ Tón-
listarskólann suöur frá óg sum
Tónlistarskólann i Reykjavik.
Ekki fækkar þó i Skólahljóm-
sveitinni, þar er ævinlega
þjálfaöur 50 manna flokkur, —
endurnýjaður árlega, þegar
yngstu tónlistmennirnir ganga
upp úr Barnahljómsveit Kópa-
vogs um 12 ára gamlir. Þaö er
ekki ónýtt fyrir höfuðborgarbúa
aö hafa á næstu grösum svona
fyrirtæki, og hver veit nema aö
þarna séu að vaxa i grasi lista-
mennirnir, sem eiga eftir ab
reynast okkur best á komandi
árum.
Svona árangur næst ekki
nema með mikilli vinnu, — og
hann kostar lika peninga, —
mikla peninga á meöan stjórn-
völd halda áfram aö tolla
nauösynlegustu hljóöfæri eins
og lúxuxvarning. En sé þetta
hægt suöur i Kópavogi, þá er
ekkert sem mælir á mót þvi, aö
unnt sé aö ná sama árangri
annarsstaðar, — lika uppi i
Breiðholti. Þessvegna má ætla
aö innan fárra ára fari aö hefj-
ast tónleikaferðir Breiðholts-
æskunnar á vegum Mennta-
málaráðuneytisins niöur i
miöborgina, og kannski subur i
Kópavog. Þaö hefur meira aö
segja heyrst aö uppi I Breiðholti
hafi sést ungir menn á annar-
legu rölti um ólifræna heima-
haga sina, gónandi I allar áttir
og upp I loftiö. Sumir halda aö
þarna sé stundum á ferö næsta
borgarskáld Reykjavikur.
JMA
Og hljómsveitarstjórinn sagöi: þaö getur veriö aö þetta sé voðalega ólifrænt, en ég hefi aldrei komiö I
betri hljómleikasal.