Þjóðviljinn - 13.02.1977, Qupperneq 10
10 — SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. febrúar 1977
Ólafur Kvaran
og Guðbjörg
Kristjánsdóttir
skrifa um
myndlist
Nordisk textil-
triennaie 1976-77
Þorbjörg Þóröardóttir: Llfsmynstur konunnar
Opið tii kl. 7 á
föstudögum.
Lokað á laugardögum.
húsiö
Hríngbraut 121
Jön
Loftsson hf.
Símar: 10600 — 28603
Og enn lœkkum við verðið. í samrœmi við tollalœkkun frá 1. janúar sl.
lœkkum við teppabirgðir okkar þannig að þér getið strax í dag valið teppi
á hinu nýja útsöluverði.
Og við bjóðum eftir sem áður mesta teppaúrval borgarinnar á einum stað.
Þér getið valið úr um 70 stárum tepparúllum eða um 200 mismunandi
gerðum af hinum vinsœlu dönsku Weston teppum.
Asgeröur Búadóttir: ts og eldur
Nú stendur yfir að Kjar-
valsstöðum sýningin
Nordisk Textiltriennale,
eða Norræn veflist/ og eru
alls sýnd 116 verk eftir 95
listamenn. Sýningin var
valin af dómnefnd vef-
listarmanna, sem í áttu
sæti fulltrúar frá öllum
Norðurlöndunum. Fulltrúi
Islands í dómnefndinni var
Ásgerður Búadóttir.
Norrænn þverskurður
t sýningarskrá Norrænu vef-
listarsýningarinnar kemur m.a.
fram, aö eitt meginmarkmiö sýn-
ingarinnar sé að leggja áherslu á
stöðu veflistar og jafnframt að
leitast við aö draga fram i dags-
ljósið verk listamanna, sem hing-
aö til hafa ekki átt þess kost að
koma verkum sinum á framfæri
eftir hefðbundnum leiðum. Alls
munu sýningarnefndinni hafa
borist liðlega 600 verk, svo ætla
má aö sýningarhugmyndin hafi
vakiö mikinn áhuga meðal vef-
listarmanna. Sem aö likum lætur
er þetta margbreytileg sýning
bæöi hvað snertir vinnuaöferðir
og my'ndefni. Hér er myndvefn-
aður.röggvarteppi, ásaumur, tau-
þrykk, „patchwork”, batik, prjón
og góbelin, svo eitthvaö sé nefnt.
Hvað myndefni varðar þá má
með nokkurri alhæfingu greina
þau i þrennt: abstrakt verk, hlut-
vakin verk er gjarna hafa að for-
sendu náttúruhrif, og raunsæ
verk, þar sem rekin eru félagsleg
erindi.
Abstrakt verk
Ef einhver ein myndgerð er
ráöandi á sýningunni, þá eru það
abstrakt eða óhlutlæg verk. Þrátt
fyrir ólika tækni og efnismeðferð,
þá eru þau flest unnin á tviviðum
fleti þó t.d. „textil-skúlptúr”,
Kazuoko Tamaru, sé hér
skemmtileg undantekning. Við
skoðun þessara verka er það slá-
andi hve stór hluti þeirra stendur
hugmyndalega nálægt þvi, sem
gert hefur veriö i málaralist und-
anfarna áratugi. Hér má t.d.
nefna sterk áhrif frá geómetrísku
flatarmálverki, I verkum Iette
Thyssen, Kristin G. Jensen, Rut
Malinovski, áhrif oplistar I verk-
um Maija Lavonen eða ljóðrænn-
ar abstraktsjónar i verkum Kari-
Björg Ile. Við skoðun þessara
verka og fleiri áþekkra, þar sem
litt gætir nýsköpunar I forminu og
Htið er lagt upp úr sérgildi efnis-
ins, er sú spurning raunar áleitin,
hvers vegna þessi erfiöi og tima-
freki tjáningarmiðill.sem veflist-
in er, verði fyrir valinu. Þeir
listamenn, sem vinna út frá
óhlutlægum forsendum og án efa
eiga hér áhugaveröustu verkin,
eru Irma Kukkasjðrvi, Anker
Aurdal og Asgerður Búadóttir.
Asgerður sýnir hér tvö vefnaðar-
verk „Is og eld”, unniö I ull og
hrosshár. I efnismeðferð sinni
teflir hún saman svifléttum hár-
um á móti þéttum grunni, og öll
formgerð hennar býr yfir hnit-
miðun og einstakri fágun i hand-
bragöinu. Röggvarvefnaður Irmu
Kukkasjárvi býr yfir gjörólikum
eiginleikum, þar sem grófleika
efnisins er teflt saman á kraft-
mikinn hátt, svo niöurstaðan er
óvenjulega kynngimagnaður
myndheimur.
Náttúrulýsingar —
raunsæi
Náttúrulýsingaraf ýmsum toga
eru nokkuð fyrirferðarmikill
þáttur. 1 þessa veru má tilgreina
verk Prikko Hammarberg, sem
einkennast af þungri og efnismik-
illi litaverkun og verk Brittu
Tyrefors. „Avsked till en mark”,
en fersk náttúrulýsing hennar
hefur yfir sér léttan og ljóðrænan
blæ.
tslensku listakonurnar Þor-
björg Þórðardóttir og Sigrún
Sverrisdóttir hafa nokkra sér-
stöðu hér á sýningunni, þar eð
þær taka fyrir félagsleg málefni,
og þá einkum þau er varöar þjóð-
félagsstöðu konunnar. Þorbjörg
fjallar í „Lifsmunstur konunnar”
um lifshlaup hennar frá brúð-
kaupi til elli, en Sigrún bregður
ljósi á undirokun hennar og notar
til þess á hugvitsamlegan hátt
„karla-tákn” um innilokun og
bælingu. Enda þótt þær Sigrún og
Þorbjörg hafi sérstöðu hér á sýn-
ingunni meö þessum myndefnum,
sem þær setja fram á raunsæjan
hátt, má þó ekki túlka það svo,að
þær séu einstæöar I norrænni list
(þó sýningin sé norrænt úrval).
Staðreyndin mun vist vera sú aö
margir sænskir veflistarmenn
sem einkum reka félagsleg erindi
i verkum sínum neituöu að taka
þátt I sýningunni, þar eö þeim
fannst hana skorta skilgreint
markmið.
Hvaö speglar sýningin?
Það eru vissulega ýmsar
spurningar sem vakna við skoöun
þessarar samantektar á norrænni
veflist, t.d. hvort hér sé um að
ræða raunhæfan þverskurö af þvl
áhugaverðasta, sem er að gerast I
dag i norrænum myndvefnaöi og
ennfremur hvort finna megi ein-
hver sameiginleg einkenni, er
kalla mætti norræn. Varðandi
fyrri spurninguna er erfitt aö slá
neinu föstu, en ef tekið er miö af
þeim mikla fjölda verka sem
dómnefndinni barst, þá verður að
telja að sýningarhugmyndin hafi
fallið I góðan jaröveg, og I trausti
þess aö dómnefndin hafi ekki sýnt
Framhald á 22 siðu.