Þjóðviljinn - 13.02.1977, Síða 14
14 — SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. febrúar 1977
Meö undanþágu frá Apartheidlögum:
Frægasti töfralæknir
Afríku fer til Br'u'ssel
Þegar rökkvar í Jó-
hannesarborg og öðrum
stórborgum Suður-Afríku
verða svartir menn að
hafa sig á brott til þeirra
útborga þar sem hinir
hvítu leyfa þeim að búa.
Samt sem áður getur það
komið f yrir að menn rekist
á blökkumann, sem á þess-
um banntíma situr við bari
lúxúshótela og daðrar við
hvítar konur. Þessi undan-
tekning er Francis
Ngombe sém er frægastur
töframaður í landinu.
Hann hefur einskonar
diplómataréttindi í ríki bú-
anna.
Ngombe segist taka viö þar,
sem læknisfræöi hvita mannsins
gefst upp. Þau frlöindi, sem hann
nýtur, eru tengd þvi, aö 22 ein-
ræðisherrar, forsetar og forsætis-
ráöherrar i Afriku leita ráða hjá
honum um hjartaveilur sinar,
stjórnmál og kyngetu.
Blindir fá sýn
Vikuritiö Stern segir af honum
sögur sem þessa hér: Ngombe er
staddur I Durbin og til hans koma
fjórar þeldökkar konur sem allar
hafa verið blindar. Þær viröast
eiga höfðingja aö — a.m.k. hafa
þær áður leitað til erlendra
lækna, sem hafa allir sagt aö
blinda þeirra sé ólæknandi.
Ngombe segir, að tveim kvenn-
anna geti hann hjálpað, en tvær
geti hann læknaö ef þær komi meö
sér til Svasilands.
Ngombe lætur „sálarmúsik” magna sig I hugskeytum til fjarstaddra sjúklinga.
Svasiland er litiö rlki sem fáar
sögur fara af, allavega er „gamla
Afrika” þar I fullu gildi. Þar rlkir
konungur, sem lét prenta mynd af
dætrum sínum fjölmörgum
„fráhnepptum aö ofan” á banka-
seöla slna. Þar eru bumbur slegn-
ar og særingamenn I heiöri hafö-
ir. Þar getur dr. Ngombe látið
Hippokratesareið sinn lönd og
leið (en hann hefur reyndar lært
til læknis) og iökað alþýölega
lækningakúnst. Þrem vikum siö-
ar snúa konurnar tvær aftur til
Durban — sjáandi.
Töfralæknirinn segir ekki frá
þvi, hvernig hann fer aö. Hann
segir aöeins aö „okkar hefö-
bundnu afrisku lækningar geta
allt læknað”. Þær konur tvær sem
hann taldi sig ekki geta læknaö
sendir hann til móður sinnar I
Zambiu. „Hún er norn, segir
Ngombe. Til hennar sendi ég
verulega erfið tilfelli”.
Grös Og
heilsustöð
Ngombe reynir reyndar sjaldan
að lækna blint fólk. Hann segir að
hver græðari verði að eiga sér
sérgrein. Sjálfur fæst hann mest
viö hugskeytalækningar, sem
hann segist hafa lært af móður
sinni. Auk þess hefur hann lagt
stund á afriskar grasalækningar.
Hann kveðst t.d. þekkja jurt sem
lækni sifilis á þrem dögum. En
hann nefnir ekki þá jurt né heldur
aðrar. Hann kveöst vera hræddur
við aö evrópskir lyfjahringir
komist aö leyndarmálum hans,
steli þeim, og komi slöan meö lyf
sem þeir þykjist hafa fundið upp
sjálfir. Annaö eins hefur nú gerst
I viðskiptum okkar afrikumanna
viö þá hvitu, segir hann.
Ngombe segir þaö markmiö
sitt aö setja upp mikla heilsustöö
á afriskri grund. Þar gætu menn
komið hvaöanæva aö úr heimin-
um og leitaö ráöa hjá svosem
tylft töframanna, sem séu sér-
fróöir hver á slnu sviöi. Sjálfur
vildi hann stjórna I stöö þessari
deild, sem fengist viö „ótryggö I
hjúskap, ófrjósemi kvenna,
kynferðislegt getuleysi og
gyllinæö”. Óneitanlega dálitiö
skrýtin syrpa.
Bækistöð í
Evrópu
Hvaö um þaö, sem fyrr segir
nýtur Ngombe gífurlegs álits
meðal margra háttsettustu
manna Afrlku. Hver eftir ánnan
sendu þeir flugvélar eftir honum
til Nairobi I Kenýa, ’er hann sló
þar tjöldum í fyrra, og launuöu
honum rikulega aðstoöina. Þessi
velgengni varö til þess, aö
Ngombe áleit mál til komið aö
hressa upp á heilsufar manna I
Evrópu. Hann hefur komið sér
upp bækistöö i einu af úthverfum
Briissel. Þar liggur hann gjarna á
stóru rúmi, hlustar á „sálar-
músik”, og einbeitir huganum að
sjúklingum sem fjarstaddir eru.
Til dæmis að „ótrúum eigin-
mönnum”. Mest hlutverk sitt tel-
ur töfralæknirinn þaö, aö lækna
óbyrjur. Hann er reyndar ekki
langt frá frægustu óbyrju
Evrópu, Fabiolu drottningu
Belglu. Ekki hefur enn heyrst aö
hún hafi látið hringja til hans.
LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER
tc
LxJ
Stór rýmingarsala
á veggfóðri
VERÐÁRÚLLU
KR. 300.
Þetta gerum við þeim til hagræðis sem eru að:
BYGGJA - BREYTA — BÆTA
Lítið við íLitaveri, það
hef ur ávailt borgað sig
Hreyfilshiisinu, Grensásvegi 18
r
m
50
m
20
LiTAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER