Þjóðviljinn - 26.02.1977, Side 5

Þjóðviljinn - 26.02.1977, Side 5
Laugardagur 26. febriiar 1977 1>JÓDV1LJINN — SIÐA — 5 Nýtt útgáfufélag: Gagn og gaman Stjórn Gagns og gamans. Frá vinstri: Páll Baldvinsson, Gubrún Bachmann og Freyr Þórarinsson. Ljónsm. gel. Róttæk list er fyrst og síðast skemmtileg Rætt við stjórn félagsins sem fer af stað með Olgu Guðrúnu og Ólafi Hanki Undanfarna daga hafa iesendur Þjóðviljans vafa- laust rekið augun í auglýs- ingar frá fyrirbæri sem nefnir sig Gagn og gaman og býður fólki þátttöku i útgáfu róttækrar listar. Á gulu blaði sem félagsskap- ur þessi hefur dreift út um borg og bý stendur að ungt fólk eigi upptökin að þess- ari starfsemi. Þjóðviljinn hafði tal af stjórn félags- ins á dögunum en i henni eiga sæti þau Páll Bald- vinsson, Guðrún Bach- mann og Freyr Þórarins- son. Fer spjallið hér á eft- ir. — Þið bjóðið fólki að leggja fimm þúsund krónur inn á giró- reikning. Hver er hugmyndin að baki þvi? — Hún er i rauninni tviþætt. Annars vegar er hér um að ræða venjulegan plötu- og bókaklúbb þar sem fólk, fyrir tiltekið ár- gjald, getur keypt alla útgáfu félagsins á heildsöluverði. Hins vegar er þessi klúbbur i raun félagið sjálft, þe. félagsmenn kjósa stjórn árlega og taka allar stefnumótandi ákvarðanir á árs- fjórðungslegum félagsfundum. Með þvi að ganga i félagið gera menn i raun og veru þrennt: 1 fyrsta lagi hafa þeir tillögu- og at- kvæðisréttá félagsfundunum, eru kjörgengir I stjórn og ráða þannig stefnunni i starfi félagsins. 1 ööru lagi tryggja þeir sér útgáfu félagsins á heildsöluveröi. t briðia lagi, og það er kannski mikilvægast leggja þeir sitt af mörkum til stofnunar róttæks út- gáfufélags sem nær til nýrrar kynslóðar gegnum nýja fjölmiðla. Fimm þúsund krónur eru ekki mikill peningur fyrir hvern og einn,en ef nokkur hundruð manns leggjast á eitt og reiða fram þetta fé, sem er árgjald til tveggja ára, ætti okkur að takast að leggja grunninn að lifvænlegu fyrirtæki. En ef menn eru mjög blankir er ekkert þvi til fyrirstöðu, að þeir leggi saman i púkk og kaupi eins mörg eintök út á hvert félags- skirteini og þeir vilja. — Þið talið um lifvænleg laun til listamanna. — Gagn og gaman er frábrugð- ið öörum útgáfufyrirtækjum aö þvi leyti að það verður rekiö sem ágóðalaus sjálfseignarstofnun. 1 stuttu máli skiptist hagnaður af útgáfu fyrst til helminga milli Gagns og gamans og listamanna en mjög fljótlega lækkar hlutur félagsins og að lokum kemur á hann ,,þak”, þannig að seljist hljómplata eöa annað útgefiö listaverk vel hirðir listamaðurinn allan gróðann en Gagn og gaman aðeins ákveöinn fastan hlut auk litilsháttar dreifingarkostnaðar. Mönnum kann að finnast aö þetta kerfi blessist aldrei en við höfum haft samband viö hliðstæð fyrir- tæki á öðrum Norðurlöndum og sniðiö þessi hlutverkaskipti eftir upplýsingum frá þeim. Þó er óhætt að fullyrða að hvergi séu þau hagstæðari listamanninum en hjá okkur. Listamenn og neytendur. Kjarni málsins er sá að lista- maðurinn hirðir það sem kemur inn fyrir sölu á verkum sinum en félagið fær aðeins umboðslaun fyrir að leggja til fjármagn og annast framkvæmd útgáfunnar. Þessi umboöslaun, ásamt félags- gjöldum, eiga að hrökkva til þess að standa straum af rekstrar- kostnaði félagsins, sem reynt verður aö halda niðri eftir föng- um, og til að mæta tapi á einstök- um útgáfuverkum, enda þótt félagsmannakerfið dragi veru- lega úr hættunni á sliku ef rétt er á haldið af hálfu félagsins. — En leiða ekki markaðslög- málin ykkur inn á sömu brautir og önnur fyrirtæki? — Hvað ræður þvi hvaö islensk útgáfufyrirtæki gefa út? Otgef- endur hugsa auðvitað um það að fyrirtæki þeirra beri sig og skili helstgróða.Til þess að tryggja þaö gefa þeir út það sem þeir halda að muni seljast, en ekki nauðsynlega það sem markaðurinn kann að vera opinn fyrir, þe. það sem fólkið vill,svo notað sé frægt orða- lag. Þeir gefa út það sem seldist i fyrra, bækur og tónlist eftir for- múlu. Þvi einfaldari og flatari sem listin er, þvi auðveldara er að átta sig á markaönum og áhættan minni. Það sér hver maður hvar þetta endar. Gagn og gaman hins vegar er sameiginlegt fyrirtæki lista- manna og neytenda þar sem leiðarljósið er ekki gróöinn af út- gáfunni,heldur gefa menn út það sem þeir vilja eignast sjálfir, fá þrykkt i plast eða prentað á blað, það sem þeir telja aö eigi erindi viö annað fólk og vilja varöveita handa börnum sinum. Þarna er þvi beinna samband milli lista- manna og neytenda en yfirleitt gerist. Glaðlegt byltingarrokk. — Þið segist ætla að gefa út róttæka iist, hvað eigiði við með þvi? — „Leyfiö hundrað blómum að spretta,” sagöi Maó formaður. Með það að leiðarljósi reynum við ekki að skilgreina nákvæmlega fyrirfram hvað er róttæk list og hvað ekki, slikt gefst sjaldan vel. Ef aö likum lætur veröa ungir sósialistar og vinstrimenn burðarásinn i Gagni og gamni og félagsmenn ákveða auðvitað sjálfir hvaö þeir vilja lesa og heyra og eiga þátt i að koma á framfæri. Róttæk list er vönduð, hún túlkar hugmyndir sem eiga erindi við fólk og skipta máli, en fyrst og siðast er hún skemmti- leg. Að henni er bæði gagn og gaman. — Hvaö er félagið farið að gera? — Það var stofnað 22. janúar sl.Þá varhafist handa við að safna félögum og það starf er þegar far- ið að skila árangri. I byrjun mars verður siðar kynningarfundur, þar verður leikin af segulbandi fyrsta hljómplata félagsins sem þegar hefur verið tekin upp. A þeirri plötu flytur Olga Guðrún Arnadóttir lög og ljóð eftir Ólaf Hauk Simonarson við undirleik Karls Sighvatssonar, sem stjórn- aði upptökunni, Þóröar Árnason- ar, Tómasar Tómassonar, Ragnar Sigurjónssonar Askels Mássonar ofl. A plötunni er glað- legt byltingarrokk og lýriskar stemmningar af ýmsu tagi. Ann- ars er best að platan tali sinu máli þegar hún kemur út, væntanlega i mars. önnur verkefni sem þegar hafa verið ákveðin eru barnaplata samnefnd félaginu sem Pétur Gunnarsson rithöfundur ætlar að skrifa og Valgeir Guðjónsson og Leifur Hauksson að tónsetja, og plata þar sem Orn Bjarnason trúbadúr flytur eigin söngva, gamla og nýja. Þessar plötur koma væntanlega út i sumar og haust. Betur af stað farið... — Hvert verður svo fram- haldið? — Það ræðst vitanlega af vilja félagsmanna. Þessi verkefni voru ákveðin af núverandi stjórn félagsins sem kjörin var til bráðabirgða og hún ákveður tæp- lega frekari verkefni fyrr en eftir fyrsta félagsfundinn. Hvaö snert- ir framtiö félagsins þá erum við ekki i neinum vafa um að þessi verkefni sem upp hafa veriö talin standi fyrir sinu, en mikiö veltur á þvi hversu vel sá hópur sem við höfum treyst á að gangi i félagiö og geri þaö að sinu bregst við ákalli okkar. Nú sem stendur eru félagsmenn að fylla fyrsta hundraðið og ef félagsmenn verða 500—1.000 i ár þarf engu að kviöa um framtið félagsins. Ef við hins vegar höfum ofmet- ið islenska sósialista lognast félagiö sjálfsagt út af eftir nokkur ár. Þá verður islenska bóka- og grammófónþjóðin altént nokkr- um góðum listaverkum rikari og maður getur sagt að betur hafi veriö af stað farið en heima setiö. Laus staða Staða umdæmisstjóra á Austurlandi með búsetu á Reyðarfirði er laus til umsóknar. Tæknifræðimenntun er áskilin og æski- legt, að umsækjandi getihafið starf eigi siðar en 1. april n.k. Laun eru samkvæmt launakerfi starfs- manna rikisins, nú launaflokki A 18. Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf þurfa að hafa borist fyrir 15. mars n.k. Vegagerð rikisins, Borgartúni 7, Reykjavik. Skrifstofustarf Óskum eftir að ráða ritara til starfa á skrifstofu vora. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsing- ar fást hjá Starfsmannahaldi. Samvinnutryggingar Ármúla 3. Reykjavik. Simi 38500. -ÞH Iðjuþjálfun Starfsfólk vantar i iðjuþjálfun nú þegar. Upplýsingar gefa iðjuþjálfar á staðnum. Vinnuheimilið að Reykjalundi UTBOÐ Tilboð óskast i að reka niður stálþil við Grófarbryggju og ganga frá þvi á heföbundinn hátt, steypa og koma fyrir akkerisplötum, fylla aö þilinu, steypa kantbita með poll- um og niðurföllum, leggja frárennslislögn og ganga frá yfirborði fyllingar undir malbik. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3, Reykjavik, gegn 5.000.- skilatryggingu. Tilboöin verða opnuö á sama staö þriðjudaginn 8. mars kl. 14.00 e.h. INNKAUPASTOFNUN REYK)AVÍKURBQRGAR Fn'kirkjuvegi 3 — Sími 25800 Styrkur til náms á ltalíu ltölsk stjórnvöld bjóða fram styrki handa islendingum til náms á Italiu á háskólaárinu 1977-78. Styrkfjárhæðin nemur 135 þúsund lirum á mánuði. Þeir ganga að öðru jöfnu fyrir um styrkveitingu sem hafa kunnáttu I itölsku og hyggja á framhaldsnám að loknu háskólaprófi. Umsóknum skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 25. mars n.k. — Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.