Þjóðviljinn - 26.02.1977, Blaðsíða 5
Laugardagur 26. febriiar 1977 1>JÓDV1LJINN — SIÐA — 5
Nýtt útgáfufélag: Gagn og gaman
Stjórn Gagns og gamans. Frá vinstri: Páll Baldvinsson, Gubrún Bachmann og Freyr Þórarinsson.
Ljónsm. gel.
Róttæk list er fyrst
og síðast skemmtileg
Rætt við stjórn félagsins sem fer af
stað með Olgu Guðrúnu og Ólafi Hanki
Undanfarna daga hafa
iesendur Þjóðviljans vafa-
laust rekið augun í auglýs-
ingar frá fyrirbæri sem
nefnir sig Gagn og gaman
og býður fólki þátttöku i
útgáfu róttækrar listar. Á
gulu blaði sem félagsskap-
ur þessi hefur dreift út um
borg og bý stendur að ungt
fólk eigi upptökin að þess-
ari starfsemi. Þjóðviljinn
hafði tal af stjórn félags-
ins á dögunum en i henni
eiga sæti þau Páll Bald-
vinsson, Guðrún Bach-
mann og Freyr Þórarins-
son. Fer spjallið hér á eft-
ir.
— Þið bjóðið fólki að leggja
fimm þúsund krónur inn á giró-
reikning. Hver er hugmyndin að
baki þvi?
— Hún er i rauninni tviþætt.
Annars vegar er hér um að ræða
venjulegan plötu- og bókaklúbb
þar sem fólk, fyrir tiltekið ár-
gjald, getur keypt alla útgáfu
félagsins á heildsöluverði. Hins
vegar er þessi klúbbur i raun
félagið sjálft, þe. félagsmenn
kjósa stjórn árlega og taka allar
stefnumótandi ákvarðanir á árs-
fjórðungslegum félagsfundum.
Með þvi að ganga i félagið gera
menn i raun og veru þrennt: 1
fyrsta lagi hafa þeir tillögu- og at-
kvæðisréttá félagsfundunum, eru
kjörgengir I stjórn og ráða þannig
stefnunni i starfi félagsins. 1 ööru
lagi tryggja þeir sér útgáfu
félagsins á heildsöluveröi. t
briðia lagi, og það er kannski
mikilvægast leggja þeir sitt af
mörkum til stofnunar róttæks út-
gáfufélags sem nær til nýrrar
kynslóðar gegnum nýja fjölmiðla.
Fimm þúsund krónur eru ekki
mikill peningur fyrir hvern og
einn,en ef nokkur hundruð manns
leggjast á eitt og reiða fram þetta
fé, sem er árgjald til tveggja ára,
ætti okkur að takast að leggja
grunninn að lifvænlegu fyrirtæki.
En ef menn eru mjög blankir er
ekkert þvi til fyrirstöðu, að þeir
leggi saman i púkk og kaupi eins
mörg eintök út á hvert félags-
skirteini og þeir vilja.
— Þið talið um lifvænleg laun
til listamanna.
— Gagn og gaman er frábrugð-
ið öörum útgáfufyrirtækjum aö
þvi leyti að það verður rekiö sem
ágóðalaus sjálfseignarstofnun. 1
stuttu máli skiptist hagnaður af
útgáfu fyrst til helminga milli
Gagns og gamans og listamanna
en mjög fljótlega lækkar hlutur
félagsins og að lokum kemur á
hann ,,þak”, þannig að seljist
hljómplata eöa annað útgefiö
listaverk vel hirðir listamaðurinn
allan gróðann en Gagn og gaman
aðeins ákveöinn fastan hlut auk
litilsháttar dreifingarkostnaðar.
Mönnum kann að finnast aö þetta
kerfi blessist aldrei en við höfum
haft samband viö hliðstæð fyrir-
tæki á öðrum Norðurlöndum og
sniðiö þessi hlutverkaskipti eftir
upplýsingum frá þeim. Þó er
óhætt að fullyrða að hvergi séu
þau hagstæðari listamanninum
en hjá okkur.
Listamenn og neytendur.
Kjarni málsins er sá að lista-
maðurinn hirðir það sem kemur
inn fyrir sölu á verkum sinum en
félagið fær aðeins umboðslaun
fyrir að leggja til fjármagn og
annast framkvæmd útgáfunnar.
Þessi umboöslaun, ásamt félags-
gjöldum, eiga að hrökkva til þess
að standa straum af rekstrar-
kostnaði félagsins, sem reynt
verður aö halda niðri eftir föng-
um, og til að mæta tapi á einstök-
um útgáfuverkum, enda þótt
félagsmannakerfið dragi veru-
lega úr hættunni á sliku ef rétt er
á haldið af hálfu félagsins.
— En leiða ekki markaðslög-
málin ykkur inn á sömu brautir
og önnur fyrirtæki?
— Hvað ræður þvi hvaö islensk
útgáfufyrirtæki gefa út? Otgef-
endur hugsa auðvitað um það að
fyrirtæki þeirra beri sig og skili
helstgróða.Til þess að tryggja þaö
gefa þeir út það sem þeir halda að
muni seljast, en ekki nauðsynlega
það sem markaðurinn kann að
vera opinn fyrir, þe. það sem
fólkið vill,svo notað sé frægt orða-
lag. Þeir gefa út það sem seldist i
fyrra, bækur og tónlist eftir for-
múlu. Þvi einfaldari og flatari
sem listin er, þvi auðveldara er
að átta sig á markaönum og
áhættan minni. Það sér hver
maður hvar þetta endar.
Gagn og gaman hins vegar er
sameiginlegt fyrirtæki lista-
manna og neytenda þar sem
leiðarljósið er ekki gróöinn af út-
gáfunni,heldur gefa menn út það
sem þeir vilja eignast sjálfir, fá
þrykkt i plast eða prentað á blað,
það sem þeir telja aö eigi erindi
viö annað fólk og vilja varöveita
handa börnum sinum. Þarna er
þvi beinna samband milli lista-
manna og neytenda en yfirleitt
gerist.
Glaðlegt byltingarrokk.
— Þið segist ætla að gefa út
róttæka iist, hvað eigiði við með
þvi?
— „Leyfiö hundrað blómum að
spretta,” sagöi Maó formaður.
Með það að leiðarljósi reynum við
ekki að skilgreina nákvæmlega
fyrirfram hvað er róttæk list og
hvað ekki, slikt gefst sjaldan vel.
Ef aö likum lætur veröa ungir
sósialistar og vinstrimenn
burðarásinn i Gagni og gamni og
félagsmenn ákveða auðvitað
sjálfir hvaö þeir vilja lesa og
heyra og eiga þátt i að koma á
framfæri. Róttæk list er vönduð,
hún túlkar hugmyndir sem eiga
erindi við fólk og skipta máli, en
fyrst og siðast er hún skemmti-
leg. Að henni er bæði gagn og
gaman.
— Hvaö er félagið farið að
gera?
— Það var stofnað 22. janúar
sl.Þá varhafist handa við að safna
félögum og það starf er þegar far-
ið að skila árangri. I byrjun mars
verður siðar kynningarfundur,
þar verður leikin af segulbandi
fyrsta hljómplata félagsins sem
þegar hefur verið tekin upp. A
þeirri plötu flytur Olga Guðrún
Arnadóttir lög og ljóð eftir Ólaf
Hauk Simonarson við undirleik
Karls Sighvatssonar, sem stjórn-
aði upptökunni, Þóröar Árnason-
ar, Tómasar Tómassonar,
Ragnar Sigurjónssonar Askels
Mássonar ofl. A plötunni er glað-
legt byltingarrokk og lýriskar
stemmningar af ýmsu tagi. Ann-
ars er best að platan tali sinu máli
þegar hún kemur út, væntanlega i
mars.
önnur verkefni sem þegar hafa
verið ákveðin eru barnaplata
samnefnd félaginu sem Pétur
Gunnarsson rithöfundur ætlar að
skrifa og Valgeir Guðjónsson og
Leifur Hauksson að tónsetja, og
plata þar sem Orn Bjarnason
trúbadúr flytur eigin söngva,
gamla og nýja. Þessar plötur
koma væntanlega út i sumar og
haust.
Betur af stað farið...
— Hvert verður svo fram-
haldið?
— Það ræðst vitanlega af vilja
félagsmanna. Þessi verkefni voru
ákveðin af núverandi stjórn
félagsins sem kjörin var til
bráðabirgða og hún ákveður tæp-
lega frekari verkefni fyrr en eftir
fyrsta félagsfundinn. Hvaö snert-
ir framtiö félagsins þá erum við
ekki i neinum vafa um að þessi
verkefni sem upp hafa veriö talin
standi fyrir sinu, en mikiö veltur
á þvi hversu vel sá hópur sem við
höfum treyst á að gangi i félagiö
og geri þaö að sinu bregst við
ákalli okkar. Nú sem stendur eru
félagsmenn að fylla fyrsta
hundraðið og ef félagsmenn verða
500—1.000 i ár þarf engu að kviöa
um framtið félagsins.
Ef við hins vegar höfum ofmet-
ið islenska sósialista lognast
félagiö sjálfsagt út af eftir nokkur
ár. Þá verður islenska bóka- og
grammófónþjóðin altént nokkr-
um góðum listaverkum rikari og
maður getur sagt að betur hafi
veriö af stað farið en heima setiö.
Laus staða
Staða umdæmisstjóra á Austurlandi með
búsetu á Reyðarfirði er laus til umsóknar.
Tæknifræðimenntun er áskilin og æski-
legt, að umsækjandi getihafið starf eigi
siðar en 1. april n.k.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfs-
manna rikisins, nú launaflokki A 18.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf þurfa að hafa borist
fyrir 15. mars n.k.
Vegagerð rikisins,
Borgartúni 7,
Reykjavik.
Skrifstofustarf
Óskum eftir að ráða ritara til starfa á
skrifstofu vora.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsing-
ar fást hjá Starfsmannahaldi.
Samvinnutryggingar
Ármúla 3. Reykjavik. Simi 38500.
-ÞH
Iðjuþjálfun
Starfsfólk vantar i iðjuþjálfun nú þegar.
Upplýsingar gefa iðjuþjálfar á staðnum.
Vinnuheimilið að Reykjalundi
UTBOÐ
Tilboð óskast i að reka niður stálþil við Grófarbryggju og
ganga frá þvi á heföbundinn hátt, steypa og koma fyrir
akkerisplötum, fylla aö þilinu, steypa kantbita með poll-
um og niðurföllum, leggja frárennslislögn og ganga frá
yfirborði fyllingar undir malbik.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3,
Reykjavik, gegn 5.000.- skilatryggingu.
Tilboöin verða opnuö á sama staö þriðjudaginn 8. mars kl.
14.00 e.h.
INNKAUPASTOFNUN REYK)AVÍKURBQRGAR
Fn'kirkjuvegi 3 — Sími 25800
Styrkur til náms á ltalíu
ltölsk stjórnvöld bjóða fram styrki handa islendingum til
náms á Italiu á háskólaárinu 1977-78. Styrkfjárhæðin
nemur 135 þúsund lirum á mánuði. Þeir ganga að öðru
jöfnu fyrir um styrkveitingu sem hafa kunnáttu I itölsku
og hyggja á framhaldsnám að loknu háskólaprófi.
Umsóknum skal komið til menntamálaráðuneytisins,
Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 25. mars n.k. — Sérstök
umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið