Þjóðviljinn - 26.02.1977, Side 9

Þjóðviljinn - 26.02.1977, Side 9
Laugardagur 26. febrúar 1977 ÞJÓDVILJINN — StÐA 9 Um miöjan janúar var birt frásögn af þvf I ÞjóOviljanum hversu allur búnaöur I Slippnum i Reykjavik er með miklum forneskjubrag og stórhættu- legur lifi og heilsu starfsmanna þar. Ekkert var þó minnst á raf- búnað en f kjölfarið á greininni beindu starfsmenn Slippsins þvi til stéttarfélags sins að hann væri kannaður. Guðjón Jónsson, formaður Félags járniðnaðar- manna, gekk i málið og eftir nokkra rekistefnu milii Péturs og Páls skoöaði Rafmagnseftir- lit rikisins vinnustaðinn dagana 20.-22. janúar. ttr þessari könnun eru komin 11 vélrit. biöð um ástand rafbúnaðar þar og kemur I ljós að hann er stór- háskalegur og ónýtur meira og minna. Raf magnseftirlitið hefur gefiö Slippfélaginu frest til viðgerðar til 1. mai nk. En nú má spyrja: Hver á að bera ábyrgð á slysum sem þarna kunna að verða til 1. mai? Er það kannski Rafmagns- eftiriitið? Eiga viðkomandi v e r k a 1 ý ð s f é 1 ö g , Félag járniðnaðarmanna, Sveinafélag skipasmiða og Dagsbrún, að banna vinnu á þessum stað? Slippurinn er meö stærri vinnu- stöðum i Reykjavik. Þar vinna að jafnaöi um 50 menn. Slys I sambandi við útleiðslu raf- Raflagniriundirstöðum dráttarbrautar eru aö heita má ónýtar og lausasnúrur og handlampar meira og minna skemmt og ónýtt. Háskalegur rafbúnaður í Slippnum í Reykjavík magns eru oft dauðaslys. Þetta eru spurningar sem vert er að hugleiða og einnig sú spurning hvort ástandið á öðrum vinnu- stöðum jafnslæmt. tJr sér gengið, ónýtt og óhæft Hér verður gripið niður i skýrslu Rafmagnseftirlitsins en ' athugasemdirnar eru svo margar að ekki er unnt að birta þær allar. 1 hliðarfærsluhúsi austan dráttarbrautar segir að raf- magnstöflur séu mjög úr sér gengnar og búnaður þeirra að miklu leyti óhæfur og ónýtur, þvi þurfi að endurnýja töflu- virkið og allan tilheyrandi raf- búnað. Er það svo útlistaö nánar. Þá þarf I þessu húsi að endur- nýja töflu fyrir rafsuðu og setja þéttan töfluskáp, endurnýja töflur og tilheyrandi rafbúnaö fyrir ljósafriöla og 110 v og allur frágangur og tengingar gerðar skv. gildandi reglum. Ennfremur segir að fjarlægja skuli allar ónýtar lausasnúrur framlenginga og handiampa og endurnýja þetta svo sem þörf er á. Nota skuli gúmstrengi af oliu- og sýruþolinni gerð, taugar- tenglar, tengikvislar, lampar oþh. skuli vera af höggþolinni gerð, td. úr mjúku plasti, gúmmi og þess háttar. I timburgeymsluhúsi skal ma. taka niður eldri útilýsingu þvi aö hún sé ónýt og tilheyrandi lagnir. 1 lagergeymslu skal ma. endurnýja rafmagnstöflu og setja þéttan skáp i stað tréskáps og skipta um skemmdan varbúnað. Skipta skal um snúrur sem hlifðar- jarðtaugar vantar i I spilhúsi F-brautar er raf- magnstafla úr sér gengin og óhæf eins og stendur I skýrsl- unni og skal endurnýjuð ásamt tilheyrandi rafbúnaöi. Margar athugasemdir eru gerðar um kerfi jafnstraums 110 v.,rofa- skápa osfrv. Þá segir að skipta skuli um framlengingarsnúrur, sem hllföarjarðtaugar vanti I (vantar I tvær snúrur sem I spil- húsinuer),endurnýja skemmda gúmstrengi, skipta um skemmda handlampa og lag- færa einangrunarbilun á færan- legum hitablásara. Greinitafla fyrir ljós ónýt I spilhúsi M-brautar er röng tenging fyrir ljós, núlltaug er tekin gegn um kvislvarið en fasi beint af straumskinnu, þessu skal breytt skv. reglum. Greinitafla fyrir ljós (að baki afriöils) er ónýt og skal hún endurnýjuö ásamt öllu til- heyrandi. Nota skal þéttan töflukassa, td. plastkassa. Rétt er aö sett verði lekastraumsrof- vörn fyrir þetta. Kvlsl að töflunni er mjög léleg og skal endurnýja hana. Endurnýja skal greinitöflur fyrir jafn- straum og búnað þeirra, sem er meira og minna skemmdur, stendur I skýrslu Rafmagns- eftirlitsins (töflur þessar eru ekki af viðurkenndri gerð — gegnumsett án aðgangs að bak- hlið. Þá segir ma. aö endurnýja skuli ónýta útilampa á húsinu. Tenglar sem hæfa núverandi notkun i Slippstöðinni Um tenglaskáp Stál- smiðjunnar við bátastöð segir orðrétt: 1. Yfirfara skal alla greiniskápa þarna, lagfæra og endurnýja lokunarbúnað og lamir. Setja ætti hllf yfir stofnstreng að skápnum. 2. Skipta skal um skemmdan varbúnað I skápunum, við hverja grein skal tilgreind rétt stærð vara. 3. Hllfar skulu vera yfir var- húsum i öllum skápum, þannig að ekki sé opið inn á óvarinn spennuhafa búnaö þegar skáparnir eru opnaðir. 4. Skipta skal um skemmda tengla á skápunum. Nauösyn- legt mun aö skipt verði um tengla þarna, og að þá verði og settir tenglar sem hæfa núverandi notkun i slipp- stöðinni, t.d. tenglar af „Cekon”-gerö. Núverandi „lampar” eru ónýtir i kaffistofu i smíöahúsi skal skipt um lampa þvi að núver- andi „lampar” eru ónýtir. I greinargerö Rafmagnseftirlits ríkisins er orðið lampar haft innan gæsalappa. Takið eftir! I vesturenda hússins þar sem er bilaverkstæði ofl. eru lagnir meira og minna ónýtar og ekki skv reglum (fittings meö gömlum tjöruvir, blýstr. ofl.) í skýrslunni segir að gera verði þá kröfu þarna aö lagnir verði endurnýjaðar og skuli allir tenglar jarðtengdir og settir upp fastir viðeigandi lampar td. flúrpípulampar. 1 timburgeymslu (neðan við verkstæði) eru ljósalagnir ónýtar (lampasnúra og blýstr.) og ónotaðar. Taka skal þessar lagnir niöur og lagðar nýjar, allur rafbúnaður sé af þéttri gerð. Þannig mætti halda þessari upptalningu áfram þvi að svipaö er ástandið I öllum húsum. Þó keyrir um þverbak þegar gætt er að lögnum og tengibúnaði I og á undirstööum dráttarbrautar ásamt til- heyrandi lögnum frá spilhúsum ofl. Er birtur orðréttur sá kafli frá Rafmagnseftirlitinu: Allur rafbúnaður ónýtur i undir- stöðum dráttarbrautar Lagnir þessa kerfis eru allar að heita má ónýtar, einnig allur tengibúnaður I undirstööum brautarinnar. Fella verður allar núverandi lagnir 110 v. kerfisins úr notkun og leggja nýtt i þeirra stað, sé þörf á þessu kerfi áfram. Ath. Mjög kemur til greina að i stað þessa kerfis verði tekin upp notkun lægri spennu með einangrunarspenni, sbr. 264 gr. reglugerðar f) liö og 205. gr., þ.e. fyrir vinnulýsingu (handlampa o.þ.h.), og notkun lekastraumsrofvarnar fyrir handverkfæri. Mætti þá, t.d. leggja að 110 v. tenglum i spilhúsum, sem afriðlar eru i, fyrir hugsanlega notkun I einstökum skipum sem hefðu slikt kerfi. Tekið skal fram að tenglar af mismunandi gerðum skulu notaðir fyrir- mismunandi spennur (32v = , HOv = 220v = 220v~ 380 v~)einfasa og þrlfasa þannig að mistök getiekki orðið vegna tengingar við annað kerfi en ætlað er. Draga skal nýja strengi Lagnir þessa kerfis aö og i undirstöðum eru úr sér gengnar og tengibúnaður að mestu ónýtur. Draga skal nýja strengi frá spilhúsum út I brautina, eftir þvi sem þörf telst á, og fjar- lægja allar eldri lagnir og raf- búnaö þeirra. Settur skal tengi- búnaöur af þéttri gerö i brautina, þ.e. greinidósir og tenglar —-sjá aths. á HOv.kerfi varðandi tengla. Ath. Samkvæmt umsögn starfs- manna, telst til undantekninga nú orðiö að þörf sé á 220V jafn- straum I dráttarbrautinni, og virðist þvi heppilegast að þetta kerfi verði fjarlægt úr brautinni ásamt öllu tilheyrandi. 1 þess stað verði aöeins lagt aö tenglum þessa kerfis i spil- húsum sem afriðlar eru I, fyrir mögulega tengingu við þetta kerfi ef nauðsynlegt reynist vegna einstakra báta með slikt kerfi. Settir skulu traustir járnkassar a) Yfirfara skal lagnir riðstraumskerfis 220v fyrir rafsuðu að og I undirstöðum brautarinnar, endurnýja skal strengi sem skemmdir eru eöa úr sér gengnir. b) Til greiningar á þessu kerfi i undirstöðum og „greini- brunnum” skal setja tengikassa af þéttri gerð. c) Settir skulu traustir járn- kassar til hliföar tenglum sem eru utan á undir- stööunum, skipta um skemmda tengla. Ath. Eins og fram kemur i athuga- semdum á spilhús og töflu- skápa Stálsmiöjunnar og raf- veitunnar, er sú gerö tengla sem i notkun er fyrir raf- suður, skipatengingar og vélar úrelt, þ.e. hæfir ekki lengur notkun og tækjum stöðvarinnar. Er þvi væntan- lega rétt að skipt veröi um alla tengla þessa kerfis og settir hæfiiegir tenglar af t.d. „Cekon” gerö — sjá aths. varðandi tengla 1 1. lið (llOv kerfis). Nýtt kerfi Samkv. aths. hér á undan mun verða að koma til nýtt kerfi fyrir þessa notkun. Heppilegast mun að fengnar verði þar til Framhald á bls. 18 Guðjón Jónsson formaður Félags járniðnaðarmanna ásamt tveimur starfsmönnum i Slippnum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.