Þjóðviljinn - 26.02.1977, Síða 9
Laugardagur 26. febrúar 1977 ÞJÓDVILJINN — StÐA 9
Um miöjan janúar var birt
frásögn af þvf I ÞjóOviljanum
hversu allur búnaöur I Slippnum
i Reykjavik er með miklum
forneskjubrag og stórhættu-
legur lifi og heilsu starfsmanna
þar. Ekkert var þó minnst á raf-
búnað en f kjölfarið á greininni
beindu starfsmenn Slippsins þvi
til stéttarfélags sins að hann
væri kannaður. Guðjón Jónsson,
formaður Félags járniðnaðar-
manna, gekk i málið og eftir
nokkra rekistefnu milii Péturs
og Páls skoöaði Rafmagnseftir-
lit rikisins vinnustaðinn dagana
20.-22. janúar. ttr þessari
könnun eru komin 11 vélrit. biöð
um ástand rafbúnaðar þar og
kemur I ljós að hann er stór-
háskalegur og ónýtur meira og
minna. Raf magnseftirlitið
hefur gefiö Slippfélaginu frest
til viðgerðar til 1. mai nk. En nú
má spyrja: Hver á að bera
ábyrgð á slysum sem þarna
kunna að verða til 1. mai? Er
það kannski Rafmagns-
eftiriitið? Eiga viðkomandi
v e r k a 1 ý ð s f é 1 ö g , Félag
járniðnaðarmanna, Sveinafélag
skipasmiða og Dagsbrún, að
banna vinnu á þessum stað?
Slippurinn er meö stærri vinnu-
stöðum i Reykjavik. Þar vinna
að jafnaöi um 50 menn. Slys I
sambandi við útleiðslu raf-
Raflagniriundirstöðum dráttarbrautar eru aö heita má ónýtar og lausasnúrur og handlampar meira og
minna skemmt og ónýtt.
Háskalegur rafbúnaður
í Slippnum í Reykjavík
magns eru oft dauðaslys. Þetta
eru spurningar sem vert er að
hugleiða og einnig sú spurning
hvort ástandið á öðrum vinnu-
stöðum jafnslæmt.
tJr sér gengið,
ónýtt og óhæft
Hér verður gripið niður i
skýrslu Rafmagnseftirlitsins en
' athugasemdirnar eru svo
margar að ekki er unnt að birta
þær allar.
1 hliðarfærsluhúsi austan
dráttarbrautar segir að raf-
magnstöflur séu mjög úr sér
gengnar og búnaður þeirra að
miklu leyti óhæfur og ónýtur,
þvi þurfi að endurnýja töflu-
virkið og allan tilheyrandi raf-
búnað. Er það svo útlistaö
nánar.
Þá þarf I þessu húsi að endur-
nýja töflu fyrir rafsuðu og setja
þéttan töfluskáp, endurnýja
töflur og tilheyrandi rafbúnaö
fyrir ljósafriöla og 110 v og allur
frágangur og tengingar gerðar
skv. gildandi reglum.
Ennfremur segir að fjarlægja
skuli allar ónýtar lausasnúrur
framlenginga og handiampa og
endurnýja þetta svo sem þörf er
á. Nota skuli gúmstrengi af oliu-
og sýruþolinni gerð, taugar-
tenglar, tengikvislar, lampar
oþh. skuli vera af höggþolinni
gerð, td. úr mjúku plasti,
gúmmi og þess háttar.
I timburgeymsluhúsi skal ma.
taka niður eldri útilýsingu þvi
aö hún sé ónýt og tilheyrandi
lagnir.
1 lagergeymslu skal ma.
endurnýja rafmagnstöflu og
setja þéttan skáp i stað tréskáps
og skipta um skemmdan
varbúnað.
Skipta skal um
snúrur sem hlifðar-
jarðtaugar vantar i
I spilhúsi F-brautar er raf-
magnstafla úr sér gengin og
óhæf eins og stendur I skýrsl-
unni og skal endurnýjuð ásamt
tilheyrandi rafbúnaöi. Margar
athugasemdir eru gerðar um
kerfi jafnstraums 110 v.,rofa-
skápa osfrv. Þá segir að skipta
skuli um framlengingarsnúrur,
sem hllföarjarðtaugar vanti I
(vantar I tvær snúrur sem I spil-
húsinuer),endurnýja skemmda
gúmstrengi, skipta um
skemmda handlampa og lag-
færa einangrunarbilun á færan-
legum hitablásara.
Greinitafla
fyrir ljós ónýt
I spilhúsi M-brautar er röng
tenging fyrir ljós, núlltaug er
tekin gegn um kvislvarið en fasi
beint af straumskinnu, þessu
skal breytt skv. reglum.
Greinitafla fyrir ljós (að baki
afriöils) er ónýt og skal hún
endurnýjuö ásamt öllu til-
heyrandi. Nota skal þéttan
töflukassa, td. plastkassa. Rétt
er aö sett verði lekastraumsrof-
vörn fyrir þetta. Kvlsl að
töflunni er mjög léleg og skal
endurnýja hana. Endurnýja
skal greinitöflur fyrir jafn-
straum og búnað þeirra, sem er
meira og minna skemmdur,
stendur I skýrslu Rafmagns-
eftirlitsins (töflur þessar eru
ekki af viðurkenndri gerð —
gegnumsett án aðgangs að bak-
hlið. Þá segir ma. aö endurnýja
skuli ónýta útilampa á húsinu.
Tenglar sem hæfa
núverandi notkun
i Slippstöðinni
Um tenglaskáp Stál-
smiðjunnar við bátastöð segir
orðrétt:
1. Yfirfara skal alla greiniskápa
þarna, lagfæra og endurnýja
lokunarbúnað og lamir. Setja
ætti hllf yfir stofnstreng að
skápnum.
2. Skipta skal um skemmdan
varbúnað I skápunum, við
hverja grein skal tilgreind
rétt stærð vara.
3. Hllfar skulu vera yfir var-
húsum i öllum skápum,
þannig að ekki sé opið inn á
óvarinn spennuhafa búnaö
þegar skáparnir eru opnaðir.
4. Skipta skal um skemmda
tengla á skápunum. Nauösyn-
legt mun aö skipt verði um
tengla þarna, og að þá verði
og settir tenglar sem hæfa
núverandi notkun i slipp-
stöðinni, t.d. tenglar af
„Cekon”-gerö.
Núverandi „lampar”
eru ónýtir
i kaffistofu i smíöahúsi skal
skipt um lampa þvi að núver-
andi „lampar” eru ónýtir. I
greinargerö Rafmagnseftirlits
ríkisins er orðið lampar haft
innan gæsalappa. Takið eftir!
I vesturenda hússins þar sem
er bilaverkstæði ofl. eru lagnir
meira og minna ónýtar og ekki
skv reglum (fittings meö
gömlum tjöruvir, blýstr. ofl.) í
skýrslunni segir að gera verði
þá kröfu þarna aö lagnir verði
endurnýjaðar og skuli allir
tenglar jarðtengdir og settir upp
fastir viðeigandi lampar td.
flúrpípulampar.
1 timburgeymslu (neðan við
verkstæði) eru ljósalagnir
ónýtar (lampasnúra og blýstr.)
og ónotaðar. Taka skal þessar
lagnir niöur og lagðar nýjar,
allur rafbúnaður sé af þéttri
gerð.
Þannig mætti halda þessari
upptalningu áfram þvi að
svipaö er ástandið I öllum
húsum. Þó keyrir um þverbak
þegar gætt er að lögnum og
tengibúnaði I og á undirstööum
dráttarbrautar ásamt til-
heyrandi lögnum frá spilhúsum
ofl. Er birtur orðréttur sá kafli
frá Rafmagnseftirlitinu:
Allur rafbúnaður
ónýtur i undir-
stöðum dráttarbrautar
Lagnir þessa kerfis eru allar
að heita má ónýtar, einnig allur
tengibúnaður I undirstööum
brautarinnar. Fella verður allar
núverandi lagnir 110 v. kerfisins
úr notkun og leggja nýtt i þeirra
stað, sé þörf á þessu kerfi
áfram. Ath. Mjög kemur til
greina að i stað þessa kerfis
verði tekin upp notkun lægri
spennu með einangrunarspenni,
sbr. 264 gr. reglugerðar f) liö og
205. gr., þ.e. fyrir vinnulýsingu
(handlampa o.þ.h.), og notkun
lekastraumsrofvarnar fyrir
handverkfæri.
Mætti þá, t.d. leggja að 110 v.
tenglum i spilhúsum, sem
afriðlar eru i, fyrir hugsanlega
notkun I einstökum skipum sem
hefðu slikt kerfi.
Tekið skal fram að tenglar af
mismunandi gerðum skulu
notaðir fyrir- mismunandi
spennur (32v = , HOv = 220v =
220v~ 380 v~)einfasa og þrlfasa
þannig að mistök getiekki orðið
vegna tengingar við annað kerfi
en ætlað er.
Draga skal
nýja strengi
Lagnir þessa kerfis aö og i
undirstöðum eru úr sér gengnar
og tengibúnaður að mestu
ónýtur. Draga skal nýja strengi
frá spilhúsum út I brautina, eftir
þvi sem þörf telst á, og fjar-
lægja allar eldri lagnir og raf-
búnaö þeirra. Settur skal tengi-
búnaöur af þéttri gerö i
brautina, þ.e. greinidósir og
tenglar —-sjá aths. á HOv.kerfi
varðandi tengla. Ath.
Samkvæmt umsögn starfs-
manna, telst til undantekninga
nú orðiö að þörf sé á 220V jafn-
straum I dráttarbrautinni, og
virðist þvi heppilegast að þetta
kerfi verði fjarlægt úr brautinni
ásamt öllu tilheyrandi. 1 þess
stað verði aöeins lagt aö
tenglum þessa kerfis i spil-
húsum sem afriðlar eru I, fyrir
mögulega tengingu við þetta
kerfi ef nauðsynlegt reynist
vegna einstakra báta með slikt
kerfi.
Settir skulu
traustir járnkassar
a) Yfirfara skal lagnir
riðstraumskerfis 220v fyrir
rafsuðu að og I undirstöðum
brautarinnar, endurnýja skal
strengi sem skemmdir eru
eöa úr sér gengnir.
b) Til greiningar á þessu kerfi i
undirstöðum og „greini-
brunnum” skal setja
tengikassa af þéttri gerð.
c) Settir skulu traustir járn-
kassar til hliföar tenglum
sem eru utan á undir-
stööunum, skipta um
skemmda tengla. Ath. Eins
og fram kemur i athuga-
semdum á spilhús og töflu-
skápa Stálsmiöjunnar og raf-
veitunnar, er sú gerö tengla
sem i notkun er fyrir raf-
suður, skipatengingar og
vélar úrelt, þ.e. hæfir ekki
lengur notkun og tækjum
stöðvarinnar. Er þvi væntan-
lega rétt að skipt veröi um
alla tengla þessa kerfis og
settir hæfiiegir tenglar af
t.d. „Cekon” gerö — sjá
aths. varðandi tengla 1 1. lið
(llOv kerfis).
Nýtt kerfi
Samkv. aths. hér á undan
mun verða að koma til nýtt kerfi
fyrir þessa notkun. Heppilegast
mun að fengnar verði þar til
Framhald á bls. 18
Guðjón Jónsson formaður Félags járniðnaðarmanna ásamt
tveimur starfsmönnum i Slippnum.