Þjóðviljinn - 26.02.1977, Side 15
Laugardagur 26. febrúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA —15 .
Gleymdur listamaður kynntur:
Dagskrá um Ástu Sigurð-
ardóttur og verk hennar
í Norræna húsinu á
morgun
Hún var á
undan samtíð
sinni og ekki
metin að verð-
leikum, segja
Rauðsokkar
A morgun sunnud. 27. febr.
verður I Norræna húsinu kynn-
ing á verkum Astu Siguröar-
dóttur rithöfundar og myndlist-
armanns og hefst hún kl. 15.
Það er Rauösokkahreyfingin,
sem stendur fyrir kynningu
þessari og hefur undirbúningur
hennar farið fram i sérstökum
starfshópi. Hópurinn hélt blaöa-
mannafund, þar sem dagskráin
var kynnt og sagt frá lista-
manninum Astu, lifi hennar og
störfum. Asta var miög fjölhæf-
ur listam. en á undan samtið
Asta Sigurðardóttir, rithöfund-
ur og myndlistarmaftur lést
langt fyrir aldur fram afteins 41
árs aft aldri. Rauftsokkar, sem
standa fyrir kynningu á verkum
hennar á morgun i Norræna
húsinu telja aftlist hennar hafi
aldrei verið metin sem skyldi
m.a. vegna þröngsýni manna og
fordóma.
sinni og bæði misskilin og ekki
metin að verðleikum í lifanda
lifi. Mikinn þátt i þvi átti eflaust
efnisval hennar I sögum sinum,
en ekkert skáld á undan henni
hafði fjallaö jafnopinskátt og
mannlega um vandamál kvenna
og hún.
Ásta Sigurðardóttir fæddist
1930 og lést siðast á árinu 1971.
Hún lagði stund á leirkerasmiði,
málaði, teiknaöi, orti ljóð, skrif-
aði smásögur og var auk þess
menntaöur kennari.
Á dagskránni i Norræna hús-
inu verður lesið úr ritverkum
Astu og myndir eftir hana og af
henni verða til sýnis i anddyri
hússins. Þarna verða kynnt
verk sem ekki hafa komiö fyrir
almenningssjónir áður og i til-
efni þessarar listkynningar hef-
ur Gunnar Reynir Sveinsson
samið lög við fjögur ljóð eftir
Astu.
Með listkynningu þessari vilja
Rauðsokkar minna á góðan
listamann, sem margir hafa
sjálfsagt aldrei kynnst og eins
vilja þeir um leiö þakka Astu
það brautryðjendastarf, sem
hún vann með skáldverkum sin-
um.
Menningarnefnd Neskaup-
staðar og félagsheimiliö Egils-
búð hafa sýnt þessari fyrirhug-
uðu dagskrá mikinn áhuga og
boðið aðstandendum hennar aö
koma og flytja hana og sýna i
Egilsbúð sunnudagskvöldið 6.
mars nk. —hs.
Læknaritari óskast
á HANDLÆKNISDEILD F.S.A. frá 1/4
’77. Góð vélritunarkunnátta og góð móður-
málskunnátta eru skilyrði. Æskilegt er að
umsækjandi hafi æfingu i að skrifa eftir
segulbandi og helst einnig eitt norður-
landamál og/eða ensku eða þýsku. Skrif-
legar umsóknir ásamt meðmælum og
upplýsingum um fyrri störf, sendist til
ritara Gauta Arnþórssonar, yfirlæknis,
Handlæknisdeild F.S.A., sem einnig veitir
upplýsingar um starfið i sima 96-22100.
HANDLÆKNISDEILD F.S.A.
Hjúkrunar-
fræðingar
Hjúkrunarfræðingur óskast sem fyrst að
Geðdeild Borgarspitalans i Arnarholti.
íbúð á staðnum. Upplýsingar á skrifstofu
forstöðukonu Borgarspitalans i sima
81200.
Reykjavík, 25. febrúar 1977
BORGARSPÍTALINN
Rafvirkjar
Rafveita Hafnarfjarðar óskar að ráða lok-
unarmann með rafvirkjamenntun til
starfa nú þegar. Laun eru samkvæmt
launaflokki B-14. Umsóknum skal skila á
sérstökum umsóknareyðublöðum fyrir 4.
mars til rafveitustjóra sem veitir nánari
upplýsingar um starfið.
Rafveita Hafnarfjarðar
Samtök Psoriasis og
Exemsjúklinga auglýsa
Sólarferð verður farin til Kanarieyja 19.
mars, ef þátttaka verðurnóg. Við greiðum
nokkuð niður farseðlana fyrir félaga.
Þátttakendur þurfa að láta vita innan viku
i simum 10734 og 25504.
S.P.O.E.X.
lslenska ullin er vinsæl I Danmörku og eins og sjá má i Norræna húsinu næstu daga má nýta hana á
ýmsan hátt.
Islenska ullin vin
sæl í Danmörku
Til sölu eða leigu
t ráði er að selja vélar og tæki Prentsmiftju Þjóftviljans h/f
eöa leigja, og eru þeir, sem áhuga hafa, beðnir aö leggja
nöfn sfn inn á afgreiðslu Þjóöviljans.
Meðal véla eru 2 setjaravélar. 1 fyrir-
sagnaleturvél og Grafo pressa m.m.
Stjórn Prentsmiðju Þjóðviljans.
Sýning Dansk Haandarbejdets Fremme opnuð
í Norræna húsinu í dag kl. 3
Félagið Hándarbejdets
Fremme i Kaupmannahöfn er
komiö með sýningu hingað til
lands og verður hún haldin i Nor-
ræna húsinu dagana 26. febr. til
13. mars. Sendiherra dana á tsl.
Svend Aage Nielsen opnar sýn-
inguna i dag kl. 15, en siöan verð-
ur hún opin daglega kl. 14-19.
Félag þetta hefur einu sinni áð-
ur haldið sýningu hér á landi, en
það var fyrir 25 árum. Iðnaðar-
deild StS og Flugfélag tsl. hafa
aöstoöað viö að koma upp sýning-
unni en á henni eru aðallega fatn-
aður, veggteppi o.fl. unniö úr isl.
ull. Auk þessara verka félags-
manna i HF verða á sýningunni
vinnu- og sjónabækur og einnig
nokkur ofin verk frá vernduðum
vinnustöðum fyrir fatlaða, en fé-
lagið setti þá vinnustaði á stofn.
Þá eru og sýnd nokkur keramik-
verk, skrautgripir og heimilisiðn-
aður eftir félagsmenn viða aö úr
Danmörku. Formaöur félagsins
er háöldruð kona Gertie Wandel.
Hún er orðin 83 ára en er ern vel
og er nú stödd hér á landi vegna
sýningarinnar. ■ Hún segir að
sýningar hafi alltaf verið virkur
þáttur i starfi HF á sviöi danskrar
vefjalistar (tekstilllistar), listiðn-
aðar og heimilisiðnaðar. Frá ár-
inu 1938 hafa veriö haldnar sýn-
ingar þriðja hvert ár í danska
listasafninu og þess á milli eru
haldnar sýningar erlendis.
íslensk ull hefur orðið mjög
vinsæl i Danmörlu á siöustu ár-
um, ekki aðeins meðal þeirra sem
stunda heimilisiðnað alls konar,
prjón, hekl o.s.frv heldur einnig
hjá dönskum vefurum og á sýn-
ingunni eru margir prýöisvel
unnir munir úr islenskri ull.
Dönsk kona á Jótlandi Kirsten
Holst hefur unnið einna ötullegast
að þvi aö kynna islensku ullina og
kosti hennar i Danmörku og hún
hefur gert fjöldann allan af upp-
skriftum af fatnaði úr ull og selj-
ast þær i stórum stfl. —hs.
SÍMI
ÞJÓÐVILJANS
ER
81333
x__________________)