Þjóðviljinn - 16.10.1977, Blaðsíða 1
SUNNU- 24
DAGUR SÍÐUR
fliflS'i $8f||§|
' Íj
111
1
WrriMV?v~°*' "
Útifundur BSRB á Lækjartorgi i gær. Á fundinum var hafður uppi einn borði með áletruninni: BORGARSTARFSMENN SÝNUM SAMSTÖÐU:
SEGJUM NEI.
Glæsilegur útifundur BSRB á Lækjartorgi
Framtíð og staða BSRB
veltur á samstöðunni
Borgarsamningurinn er verulega lakari en Akranessamningurinn
Bandalag starfsmanna rikis og
bæja gengur nú i gegn um eld-
skírn sína. Framtið og staða
BSRB er undir þvi komið að fé-
lagar standi af sér allar klofn-
ingstilraunir og klækjabrögð rík-
isstjórnar og bæjarstjórna. Þetta
var megininntakið I málflutningi
ræðumanna á glæsilegum úti-
fundi, sem BSRB élndi til i gær I
góðu veðri á Lækjartorgi. Mikið
fjölmenni var á fundinum og
minnti fundarstjóri, Kristján
Thorlacius, formaður BSRB á
það i upphafi, að bandalagið hefði
ekki getað fengið neinn fundarsal
sem rúmaði þennan fjölda.
Utifundinum bárust mörg
skeyti frá starfshópum ýmissa
stofnana Reykjavikurborgar, þar
sem skorað var á félaga I Starfs-
mannafélagi borgarinnar, að
rjúfa ekki samstöðuna og fella
þann samning, sem stjórn og
samninganefnd St.Rv. hefur und-
irritað á ný, litið sem ekkert
breyttan frá þeim samningi, sem
felldur var á mánudaginn.
Forystumönnum Starfsmanna-
félagsins hafði verið boðið að tala
á útifundinum og skýra þá stefnu-
breytingu, sem orðin erhjá þeim,
en þeir höfnuðu boðinu. Haraldur
Steinþdrsson, varaformaður
BS|tB, minnti á það að samstarf
innan samninganefndar BSRB
hefði frá upphafi verið náið og al-
gjört milli hinna mörgu bæjar-
starfsmannafélaga og félaga rik-
isstarfsmanna. Einróma hefði
verið samþykkt að fella siðasta
tilboð rlkisins sem ekki fól I sér
nema 0.25 til 2.7% hækkun frá
sáttatillögu.
Forystumenn Starfsmanna-
félagsins hefðu ekki gert grein
fyrir stefnubreytingu þeirra inni i
samninganefndinni. Af ein-
hverjum ástæðum gengju þeir
til samninga, sem væru skað-
legir fyrir baráttu BSRB.
Haraldur mótmælti eindregið
fullyrðingum Morgunblaðsins að
samningur Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar væri jafn-
góður og Akranessamningurinn.
Hann sagði að þeir samningar
sem gerðirhefðu veriðá Akranesi
og Neskaupstað, Siglufirði, HUsa-
vik og Selfossi væru að visu mis-
jafnir en allri mun skárri en i
Reykjavik. Þeir bestu væru að
sinu mati mjög gagnlegir fyrir
BSRB og styddu bandalagiö i
kjaradeilunni. A Akranesi hefði
það meginatriði náðst fram að
endurskoðunarréttur með verk-
fallsréttihefði náðst fram. Kjara-
og hlunningshluti Akranes-
samningsins svo og orlofsákvæði
væru öll betri en i Reykjavíkur-
samningnum.
Á fundinum töluðu auk
Haraldar þau Valgerður Jóns-
dóttir, hjúkrúnarfræðingur, Val-
geir Gestsson, formaður
Sambands isl. barnakennara,
Ólafur S. ólafsson, formaður
Landssambands framhaldsskóla-
kennara, Agúst Geirsson, for-
maður Félags simamanna og
Einar ólafsson, formaöur Starfs-
mannafélags rikisstofnana. Lúðr-
asveitin Svanur lék i upphafi
fundarins.
Átök í
Hamrahlíð
t gærmorgun reyndi enn á
það hvort kennsla hæfist i
öldungadeild Menntaskólans
við Hamrahlið. Þar voru
mættir 12-14 nemendur sem
vildu ólmir fá kennslu. Bar
mest á finu frúnum. Verk-
fallsverðir voru mættir og
kom til snarpra orðasvipt-
inga milli þeirra og ihalds-
frúnna. Ekki varð úr
kennslu. -GFr
Eldra fólk
hafði kosið
Þegar blaðamaður frá
Þjóðviljanum kom á kjör-
staðíMiðbæjarskólanum um
kl. 131 gær en þar vöru félag-
ar I Starfsmannafélagi
Rey kjavikurborgar að
greiða atkvæði um samning
stjórnar og fulltrúaráðs við
borgaryfirvöld höfðu um 320
kosið. Að sögn dyravarðar
var það mest eldra fólk. 1
Starfsmannafélaginu eru um
2000 manns. -GFr
Verkfalls-
brot reynt
1 fyrramálið mun ihaldið i
Reykjavik reyna að koma
þvi til leiðar að skip verði af-
greidd i Reykjavlkurhöfn.
Munu verkfallsverðir verða
þar til staðar eldsnemma i
fyrramálið til að koma i veg
fyrir það. -GFr
I BLADINU I' DAG
Hjarta-
ígræðslur,
bjartsýni og
vonbrigði
SÍÐA3
Grein eftir
Lúðvík
Jósepsson,
kjarabarátta
SÍÐA 6
Viðtal við
Eirík
Jónsson um
rannsóknir
SÍÐA8
Grein um
spænska
Nóbels-
skáldið
SÍÐA 10
Þúsund-
þjalasmiður
og eðlis-
fræðingur
SÍÐA 11
Skýrslan
um
Grjóta
þorpið
OPNA
t
Volgar kjöt
bollur hjá
Aðalgeir
kaupmanni
SÍÐA 14