Þjóðviljinn - 16.10.1977, Page 17

Þjóðviljinn - 16.10.1977, Page 17
Sunnudagur 16. október 1977. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17 Indversk hreyfing með Desai for- sætisráðherra í broddi fylkingar telur sig hafa fundið flestra meina bót stjórn Nehrus. Hann segir m.a.: ,,Ég vona, að á þessum timum, þegar svo mörg merkileg lyf eru saman sett, þá muni þessi fagra og einfalda heilsutrygging eign- ast marga áhangendur.” Desai kveðst sjálfur taka inn þessa heilsubót á hverjum morgni. Hann segir: „Aðalerfið- leikarnir eru þeir, að allir hafa meðfædda andúð á þvagi. En menn verða að venja sig á að nota þvag eins og hvert annað lyf sem brigðisráðuneytið að ætla þvag- kúrum nokkurn sess i heilbrigðis- þjónustu allra fylkja landsins. Þetta venst furðu vel Hinn vaxandi skari þvag- trúaðra sver og sárt við leggur, að afurðir þeirra eigin nýrna lækni allt mögulegt eða hreki á brott — krabbamein, sýfilis, syk- ursýki, hjartasjúkdóma. Forsendur eru og þær, að menn drekki hvorki áfengi né kaffi Desai forsætisráöherra; fögur og einföld heilsubót DREKKIÐ Prahalad bóndi með þvagflöskur sfnar: Látiö fyrstu dropana eiga sig. EIGIÐ ÞVAG íslendingar hafa, eins og kunnugt er, á þessari öld verið veikir fyrir ind- verskri visku ýmiskonar. En ekki vitum við hvernig þeir muni taka nýjustu for- skrift indverskri um allra meina bót; hún er sú að mönnum er ráðlagt að drekka hland við ólíkleg- ustu kvillum. Prahalad Das Patel heitir bóndi i indversku þorpi sem er mikill talsmaður slikra lækninga. Hann sver og sárt við leggur að hann eigi lif sitt að launa þessum vökva, sem evrópskir sérfræðing- ar segja, að kynni að valda eitrun ef drukkinn væri að ráði. Krabbamein sem gyllinæð Prahalad segist fyrir tiu árum hafa þjáðst af miklum meltingar- truflunum og svo starblindu. Nú þarf hann ekki einu sinni gler- augu, er allur hinn hressasti, vinnur 15 stundir á dag þótt hann sé 65 ára orðinn, Prahalad fór að drekka hland eftir að hann hafði lésið lær'ða bók, Manav Mutra (Mannsþvag) sem út kom 1959. Bók þessi hefur siðan verið þýdd á ýmsar ind- verskar tungur og komið út alls átján sinnum. Bæklingur þessi mælir með þvagdrykkju gegn öllum sjúk- dómum eða svo gott sem — frá krabbameini til hósta, magaveiki til gyllinæðar. 1 bæklingi þessum er þess getið að þvagkúr sé engin ný bóla i þessu gamla landi. Þar er vitnað til forns sanskritarrits, þar sem guðin Sjiva ræðir málin við konu sina: Míg þú í austurátt ,,Sá sem þvag drekkur ætti ekki að taka til sin neina salta og bragðmikla fæðu, hann á að éta i hófi, hafa vald á geðshræringum sinum og sofa á gólfinu. Hann á að fara árla morguns á fætur og miga i austurátt. Hann á að láta fyrstu og siðustu dropana lönd og leið, en safna hinu i ilát og drekka. Með þessum hætti verður Sjivambu (vatn Sjiva) sem ódáinsdrykkur, sem hrekur á brott krankleika og elli.” Þar er einnig vitnað til Gamla Testamentisins, en þar segir á einum stað „Drekktu vatnið úr þinni eigin lind”, sem og ensk og frönsk rit fyrri alda, þar sem þvag er lofað sem hið „besta og skjótvirkasta meðal gegn öllum innvortis og útvortis þrautum”. Blessun úr æðstu stöðum Sérstakan gæðastimpil fær þvagdrykkjan með formála eftir ákafan stuðningsmann þessa læknislyfs, sem i dag er ekki að- eins 81 árs og karla hressastur heldur og æðstur valdamaður yfir 620 miljónum ibúa Indlands. Þessi maður er Morardsji Desai forsætisráðherra. Desai var, þegar fyrrnefnd bók kom fyrst út, fjármálaráðherra i hvorki er bragðgott né ilmandi”. Boðskapur Desai hefur að sjálf- sögðu fengið mjög aukið vægi eft- ir að hann varð valdamesti mað- ur Indlands. Desai, sem er og grænmetisæta, berst mjög fyrir þvi að koma á algjöru áfengis- banni — og um leið breiðist út hinn sérstæði eftirlætisdrykkur hans. Þvag hefur einnig verið tekið umræðu á Radsja Sabba, sem er efri deild indverska þingsins. Heilbrigðismálaráðherran Nar- ain hefur tilkynnt þingheimi að hann hafi falið læknum að rannsaka áhrif þvagkúranna með visindalegum hætti. Ef að já- kvæð niðurstaða fæst ætlar heil- meðan á kúrnum stendur, éti grænmeti og reyki ekki. Prahalad bóndi, sem fyrstur manna var til nefndur, hefur nú komið nákvæmu skipulagi á sina þvagneyslu. Hann drekkur aðeins ferskt þvag, en lætur einnig þvag standa til útvortis brúks. Til dæmis er það þvag sem hann not- ar á illkynjað exem hálfs annars árs gamalt. Dsjaveri, formaður þeirra samtaka á Indlandi, sem breiða út þvagnotkun, kveðst i viðtali drekka á morgnana allt það þvag sem hann skilar af sér þegar hann vaknar. Sömuleiðis allt sem kem*ur i annarri umferð. Hann segir að sumir eigi erfitt að með Indversk þvagskopteikning: Þarftu endilega aö hafa þinar flöskur I kæliskápnum? að venja sig á vonda lykt og bragð, en það komi yfirleitt mjög fljótt — eftir nokkra daga segir hann tekur maður ekki eftir neinu. Menn geta lika bætt nokkr- um dropum af bragðgóðum ess- ens út i fyrst i stað. (Byggt á Spiegel) ^GOOD'?YE/\R GOODfYEAR ORYGGI ■ ÞJONUSTA SÖLUAÐILAR UM LAND ALLT FYRIR GOOD/YEAR HJÓLBARÐA REYKIAVÍK: Hjólbaröaþjónusta Heklu H/F, Laugavegi 170—172, simi 28080. Gúmmívinnustofan, Skipholti 35, sími 31055 Sigurjón Gíslason, Laugavegi 171, sími 15508. BORGARNES: Guðsteinn Sigurjónsson, Kjartansgötu 12 sími 93-7395. ÓLAFSVÍK: Marís Gilsf jörð, bifreiðastjóri, sími 93-6283. GRUNDARFJORÐUR: Hjólbarðaverkstæði Grundarf jarðar, simi 93-8611. ÍSAFJÖRÐUR: Hjólbarðaverkstæði, Björns Guðmundssonar, simi 94-3501. HÚNAVATNSSÝSLA: Vélaverkstæðið Víðir, Víðidal. SAUÐÁRKRÓKUR: Vélsmiðjan Logi, sími 96-5165. HOFSÓS: Bílaverkstæði Páls Magnússonar, sími 96-6380. SELFOSS: Gummívinnustofa K.Á., sími 99-1260 ÓLAFSFJÖRÐUR: Bílverkstæðið Múlatindur, simi 96-62194. Grinda- EGILSTAÐIR: Vélatækni S/F, sími 97-1455. SEYÐISFJÖRÐUR: Jón Gunnþórsson., sími 97-2305. ESKIFJÖRÐUR: Bílaverkstæði, Benna og Svenna, simi 97-6299. REYÐ ARFJÖRÐUR: Bifreiðaverkstæðið Lykill, simi 97-4199 STÖÐVARFJÖRÐUR: Sveinn Ingimundarson sími 97-5808 KLAUSTUR: KIRKJUBÆJAR- Bílaverkstæði, Gunnars Valdimarssonar. GRINDAVÍK: H jól ba rða verkstæði víkur, simi 92-8179. VESTMANNAEYJAR: Hjólbarðaverkstæði Guðna, v/Strandveg, sími 98-1414. HAFNARFJÖRÐUR: Hjólbarðaverkstæðið, Reykjavíkurvegi 56, simi 51538. BÆR: Nýbarð-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.