Þjóðviljinn - 16.10.1977, Side 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. október 1977.
F ramkvæmdastof nun
ríkisins
auglýsir hér með lausa stöðu við vélritun
og önnur skrifstofustörf.
Framkvæmdastofnun rikisins
— lánadeild —
Rauðárárstig 31 Reykjavik
simi 25133
Byggingafræðingur
með sjö ára starfsreynslu óskar eftir at-
vinnu á teiknistofu og/eða við eftirlits-
störf. Tilboð sendist Þjóðviljanum fyrir
25. október merkt „vinna 2510”.
Orðsending frá
H j úkrunarskóla
/ '
Islands
Kennsia hefst mánudaginn 17. október.
Yngri hópur mæti kl. 9.30. Eldri hópur
mæti'kl. 11.30. Verklegt nám helst óbreytt
samkvæmt verðskrá.
Skólastjóri
Fimmtán ára drengur framdi morð
Og sjónvarpið var
leitt
fyrir
rétt.
Á dögunum lauk á
Florida málaferlum sem
vakið hafa mikla athygli
vegna þess hve mjög
ofbeldisverk framin í
sjónvarpi drógust inn í
málið. Sjónvarpið var fyrir
rétti ef svo mætti segja —
og sjónvarpið mætti til
leiks og sýndi það sem
fram fór í dómssal jafnóð-
um og það gerðist.
Málavextir voru þeir, aö
fimmtán ára gamall drengur,
Ronny Zamora, braust inn hjá
rúmlega áttræöri ekkju, sem bjó
skammt frá heimili hans og rændi
hana ýmsum fjármunum. Þegar
gamla konan sagði aö hún mundi
kæra þjófnaðinn geröi Ronny
Zamora sér litiö fyrir og skaut
hana til bana.
Ronny Zamora; hann var forfall-
inn i dagskrár þar sem ailt flóöi i
ofbeldis verkum.
Verjandi drengsins bar fram þá
vörn, sem óvenjuleg má teljast,
að Ronny Zamora hafi framið
þennan glæp án þess að gera sér
grein fyrir þvi hvað hann geröi.
Vegna þess aö hann hafi
ósjálfrátt endurtekið þaö sem
hann hafði séð þúsund sinnum i
sjónvarpi. Hann hafi lært það af
ofbeldisverkum i sjónvarpi, að
þar er það sjálfsagður hlutur að
,,kála þeim sem kvarta”. Morðið
hafi veriö einskonar „skilorðs-
bundin viðbrögö”.
Móðir drengsins, Yolanda
Zamora, bar að sonur hennar
hefði verið forfallinn sjónvarps-
glápari, setið fyrir framan
skerminn sex til niu stundir á degi
hverjum. Hafi hann haft sérstak-
ar mætur á ofbeldisdagskrám
eins og Kojak, sem nóg var af á
skerminum. Til mála kom að
kalla á Salavas, sem leikur Kojak
þennan, til vitnis fyrir réttinn en
af þvi varð ekki.
Verjandi drengsins, Ellis Rubin
sagði m.a. á þessa leið:
Ekki veit ég hve margar þús-
undir morða Ronny sá i sjónvarp-
inu, eða hve marga menn hann sá
Kojak drepa i nafni laga og rétt-
ar; drepna með byssum — til að
þú kaupir þann varning sem
kaupir dagskrána. Þvi meira
ofbeldi þeim mun meira er glápt
— þetta er brjálæði....
Saksóknari kallaði hinsvegar
sálfræðinga til vitnis um aö
Ronny Zamora hafi getað greint
rétt frá röngu þegar morðið var
framið og þvi sé hann andlega
heilbrigður samkvæmt laganna
skilningi.
Ronny Zamora hefur veriö
úrskurðaður sekur og á yfir höfði
25 ára fangelsi að minnsta kosti,
en hefði verið kæmdur til dauða
samkvæmt lögum Florida ef hann
hefði verið nokkru eldri. Refsing
verður ákveðin i byrjun
nóvember.
Hin étandi
stétt i hættu:
Skatt-
heimtan
vill
krækja í
risnuféd.
Það þykir mjög eftir-
sóknarvert víða um lönd að
komast í þann hóp manna
sem Bandarík jamenn
kalla „hina étandi stétt".
Hér er átt við starfsmenn
fyrirtækja og stofnana
sem eru það háttsettir, að
þeir hafa rétt til að éta og
drekka á betri veitinga-
stöðum á kostnað fyrirtæk-
isins.
Sá útbreiddi siður, að ræða
ýmiskonar viðskipti yfir mat-
borði, er nokkurt áhyggjuefni
skattayfirvöldum. Þvl fyrirtækin
leggja fram reikninga fyrir risnu-
útgjöldum og fá þann kostnað
dreginn frá skatti.
Carter Bandarikjaforseti hefur
sýnt áhuga á að takmarka nokkuð
skattfriðindi tengd risnu, Llklegt
er taliö, að hann muni fallast á
hugmyndir um að aöeins helm-
ingur risnukostnaðar skuli frá-
dráttarbær til skatts. Blumenthal
fjármálaráðherra telur sig geta
innheimt um hundrað miljónir
dollara I sköttum til viðbótar, ef
þessi tilhögun verður upp tekin.
Hitt er svo annað mál, að eig-
endur veitingahúsa fórna höndum
og kvarta hástöfum yfir þessum
áformum. Svo er mál meö vexti,
að um það bil helmingur af við-
skiptum veitingahúsa sem teljast
fyrsta flokks eöa þvi sem næst,
eru einmitt risnuviðskipti, og hjá
mörgum er hlutfallið miklu
hærra. Ef að samdráttur yrði,
þótt ekki nema sem svaraði 10 af
hundraði, mundu margir slikir
staðir þurfa að loka eða draga
seglin verulega saman.
Reyndar er matur og drykkur
aðeins hluti risnumála. Allir vita,
að það er ekki stór hluti hótel-
gesta sem borgar fyrir sig sjálf-
ur, og vitanlega eru miklar hers-
ingar manna á ferð og flugi á
kostnað fyrirtækja og stofnana.
$ Ritari
Öskum eftir að ráða ritara til starfa sem
fyrst. Góð islensku- og enskukunnátta
nauðsynleg. Umsóknir sendist starfs-
mannastjóra, sem gefur nánari upplýs-
ingar.
Samband ísl. Samvinnufélaga
Auglýsingasiminn er
81333