Þjóðviljinn - 27.11.1977, Síða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. nóvember 1977
Ingiberg Magnússon
skrifar um
myndfísi
PÓLSK
GRAFÍK
annarsstaöar. Einkum og sér i
lagi hafa Pólverjar vakið á sér
athygli fyrir gerð auglýsinga-
spjalda, sem að sjálfsögðu er
nátengd grafiklist.
Sýning sú sem hingað er kom-
in nú rennir enn styrkari stoðum
undir þann grun, að Pólverjar
séu, á þessu sviði, i það minnsta
i alíra fremstu röð.
Á sýningu þessari sýna 34 list-
amenn og hefur einn þeirra
Ryszard Otreba valið öll verkin
á sýninguna.
Að þvi er segir i sýningarskrá
var markmiðið með valinu að
sýna sem fjölbreyttastar vinnu-
aðferðir sem þó eiga eitt
sameiginlegt, að endurspegla
undirstöðutækni grafiklistar,
þrykk af móðurmynd. Þessi
forsenda er alls ekki verri en
hver önnur og liggur afskaplega
beint og eðlilega við, þegar um
grafik er að ræða. Listamenn-
irnir sem taka þátt i þessari
sýningu nota fjölbreytilega
tækni við gerð mynda sinna svo
sem: dúkristu, tréristu, kopar-
stungu, ætingu, steinprent, gifs-
þrykk og sáldþrykk. Þetta
ásamt aldursmun listamann-
anna, sá elsti er 65 ára, sá yngsti
28 ára, gerir myndir þeirra afar
ólikar.
Grafik er sú grein myndlistar
sem kemst næst þvi að vera f jöl-
miðill þ.e.a.s. hver mynd er til á
mörgum eintökum. Af þeim
ástæðum hafa róttækir lista-
menn og aðrir sem vilja koma
boðskap á framfæri, gjarna val-
Ryszard Otreba: Nærmynd.
Listráð að Kjarvals-
stöðum og sendiráð
pólska Alþýðulýðveldis-
ins hafa gengist fyrir því
að fá hingað yfirlitssýn-
ingu á pólskri grafík og
stendur sú sýning nú yfir
á Kjarvalsstöðum.
Það var á margra vitorði að
grafiklist stendur með miklum
blóma austur þar og að margra
áliti feti framar en viðast
P!
vaW.V.vm
•» m % mmmt*
Marian Malina: Stúlka
Andrzei Pietsch: Fyrir utan gluggan
Jacek Gaj: Freisting III
Zygmynt Magner: 16374A.
Jan Samtloch: Dyr.
mumnt'MíKsm
ið sér þessa tegund myndlistar.
Siðast en ekki sist, er svo með
grafiskum aðferðum hægt að
framleiða mun ódýrari myndir,
en með öðrum aðferðum. Þeir
sem við grafik fást fjalla yfir-
leitt um mál er varða almenn-
ing. Með þvi er þó ekki sagt að
það séu endilega hversdagsleg
mál, eða að þau liggi á þröngu
afmörkuðu sviði. En þau eiga
það sameiginlegt, að eiga brýnt
erindi til allra, að minnsta kosti
að dómi höfundanna og þess
vegna, öðru fremur, velja þeir
sér þennan tjáningarmáta.
Sýningin á Kjarvalsstöðum
sýnir svo ekki verður um villst
að pólsk grafik spannar mjög
breitt svið, bæði hugmyndalega
og tæknilega. Hún afsannar
rækilega þær fullyrðingar, sem
hér skjóta öðru hvoru upp koll-
inum, að fyrir austan tjald ger-
ist ekkert og geti ekkert gerst i
listum, vegna yfirgangs stjórn-
valda.
Það sem vakti hvað mesta at-
hygli mina var, hve jöfn aö gæð-
um verkin eru, hvergi á allri
sýningunni er veikan hlekk að
finna. Á jafn stórri sýningu og
hér um ræðir hlýtur slikt að telj-
ast til tiðinda, jafnvel þó reikn-
að sé með þvi að Pólverjar hafi
úr meiru að velja, á þessu sviði,
en flestir aðrir.
Listráð að Kjarvalsstöðum á
þakkir skilið fyrir það merka
framtak að fá þessa ánægjulegu
sýningu hingað, svo og fyrir út-
gáfu á óvenju myndarlegri sýn-
ingarskrá.
Ingiberg