Þjóðviljinn - 27.11.1977, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 27.11.1977, Blaðsíða 21
Sunnudagur 27. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21 'lP' Sköpun “Qt Evu & $ Ws tr , /,AÍI — Hvað er ciginlega að sjá þetta svinari... — Þaö hlýtur aö hafa verið heilmikil vinna hjá þér að skola þetta allt i snjó... Þið iinnið svampinn á botni baðkersins.... Adolf J. Petersen: VÍSNAMAL Þegar ber að garði gest Nú er veturinn farinn að sýna sitt innræti. Frost og fannir, hriðarveður næstum dag hvern einhversstaðar á landinu. Norð- lenskar stórhriðar verða minn- isstæöar þeim sem komast i kynni viö þær. Ólina Jónasdóttir frá Fremri-Kotum i Norðurár- dal kvað: Héla á glugga, hnipið láð, hér til muggu dregur. Norðri bruggar nöpur ráð, nú er hann skuggalegur. Viöar verður svalt en á Norð- urlandi. Kaldsamt hefur verið i Biskupstungum þegar Arnleif Lýðsdóttir frá Brattholti gaf þessa lýsingu: tsi þakin öll er jörð, enginn kvakar munnur. Berst við nakinn bleikan svörð blævi vakin unnur. Þrátt fyrir skammdegishriö- ar og þann dvala sem færist yfir menn og málleysingja, þegar dimmir við dyr og grös fölna, una margir sér viö minningar frá liönum tima. Ólöf Guö- mundsdóttir i Reykjavik segir: Fellur laufiö fölt að sjá, fjör I æðum dvinar. Ber þó alltaf birtu á bernskustöðvar minar. Ólina Jónasdóttir er bjartsýn þó hriðin þeysi um storð. Vonin lifir, og það mun vora á ný: Geislar klárir greikka stig, glaður tárast dagur. Hefur báran hægt um sig, himinn blár og fagur. Sömu hughrif koma fram hjá Arnleifi Lýðsdóttur i þessari visu: Heiöu kveldin huga minn himins eldar seiða. Rekkjufeld þá rósofinn á ránarveidin breiða. Flestum er þó fönn og skugg- ar þjáning. Hólmfriður Jónas- dóttir frá Hofdölum kvað: Alltaf snjóar yfir mó, isköld ró um dalinn. Viðikló I kletta tó hvitri ló er falin. Austankaldi endalaust, úfinn himinn grætur, ekkert sumar, ekkert haust, engar tunglskinsnætur. öll él birtir upp um siðir, og Hólmfriður kveður áfram: Nóttin greiðir skarlatsský, skyggöum upp úr legi, speglar biáum bárum i brún af nýjum degi. Og kvöldin eiga sólroðin ský, sem Hólmfriður segir frá: Beygir vestur — brúnum af bjarmi kvöldsins rjóöa. Sólarbyrðing senn I haf siglir nóttin hljóöa. Það er ekki öllum gefin sú til- finning að finna ylinn frá fönn- unum, en þess hefur Ingþór Sig- urbjörnsson I Reykjavik orðið aðnjótandi, sem þessi visa hans bendir til: Einsog móðir barnið blitt byrgir sæng að kveldi, vefur móöurmoldu hlýtt mjöllin hvitum feldi. Vorhret geta komið, og Björn Jónsson i Alftá kvartar: Ei verður mér um hjarta né heldur létt I spori, aftur þegar orðið hvitt allt á miöju vori. hlýtt A skammdegiskvöldum er oft fagurt út að lita. Það eru norð- urljósin sem hafa heillaö sýn Steins K. Steindórssonar þegar hann gerði þessa visu: Sveipar voga silfurgljá, sindra flogaglæður, himinboga breiðum á bjartar loga-slæður. Nú, mannlifið hefur sinn gang, bæði I bliöu og striðu. Ein- ar H. Guöjónsson á Seyðisfirði segir: Þó skorti menn bæði til skeiöar og hnifs i skeikulli jarölifsins för, á dynskógafjöru hins daglega llfs felst draumur um batnandi kjör. Viösjár eru með mönnum. Einar kvað: Málin eru þæfð og þvæld, þjóöargremja niðurbæld, rökin hæpin skökk og skæld, skrum og blekking eigi mæld. Verðmætamatiö er stundum all-broslegt. Jóhann ölafsson frá Miðhúsum i öslandshliö kvaö: Verðmætið þótt virðist smátt vera i spyrðubandi, þá er stundum þokaö hátt þorskunum á landi. Unga fólkið flyst úr sveitum, svo við liggur auðn. Oftast er það kvenfólkið sem fer fyrst, svo karlmenn kvarta, einsog þessi visa Gunnars Jónssonar i Gröf i Viöidal bendir til: Engin fæst hér auðarbjörk, ergist margur halur. Nú er einsog eyðimörk orðinn Viðidalur. Læra flestar listirnar linda bestu skoröur. Svifa flestar siöprúöar suður, vestur, norður. En hvaö gátu stúlkurnar ann- aö gert en fara burt úr sveitun- um, þegar brjóstgæði þeirra voru höfð I flimtingi, einsog þegar séra Einar Friðgeirsson á Borg á Mýrum sá stúlku gefa snjótittlingum brauðmylsnu út á snjóskafl. Þá kvað hann: Innra býr ei hjarta hrafns, hefur á rýru gætur. Litlu dýrin njóta nafns nunnan hýra lætur. Eða þegar prestur nokkur ávarpaði stúlku þannig: Eg á hund, mitt unga sprund, eins og þig i framan, ætti hann mund á græbis grund gæfi ég ykkur saman. En stúlkan svaraöi: Eg á tik sem yður er lik i augum og háralagi. Væri hún rlk mér virtist slik vera af sama tagi. Þó prestar þessir hafi látið viðhorf sin til ungra kvenna i ljós á þennan hátt, þá voru menn I sveitum sem kunnu aö meta kvennadyggðir. Björn Sig- urðsson Blöndal I Grimstungu i Vatnsdal hefur verið einn af þeim og kveðiö konum lof: Mörg þó seima mörkin rjóð móðs að teymist prjáli, ennþá geyma islensk fljóð unaðshreim i máli Eftirsjá og ástin min engar tjáir sakir. Björt ei máist minning þin meðan þráin vakir. Þó að hlátur vipri vör vart mun grátur fjarri. Stundum kátra kynnissvör klökkva láta nærri. Það andar hlýju til kvenna úr þessum visum, og undirritaöur hefur þetta um málið aö segja: Sjafnarheimur seiöir þrá, sem i geymist myndum. AUtaf streymir ylur frá ungum seimalindum. Hver sé hinn góði gestur sem aö garði ber, fer ekki milli mála hjá Ólafi Þorkelssyni i Reykja- vik: það er ferskeytlan sem hann fagnar mest. Þegar ber að garði gest, gildi málsins kanna, ferskeytlunni fagna best i fátækt hugmyndanna. Þeir sem eru atómhönnubir geta ef til vill tekiö til sin eftir- farandi útskrift hjá Ólafi: Þrautpint málið orðiö er, ekkert nýtt fram boðib, að yrkja visu um eitthvað, hér aðeins breytist hnoðið. Dvöl Sigurðar Breiðfjörö á Grænlandi, hefur eflaust ekki verið honum að skapi, og oft hefur hann þráð að komast heim, sem visur hans margar benda til eins og þessi: Fatagræna fóstra min fannalaugum þvegin, yfrum mæni eg til þln, en ekki rata veginn. Það er ætiö gott að geta hlust- að. Jóhann Asgrimsson á Hólmavaöi hefur reynt það og segir: Gaman er að glettunni, gott er aö hlýöa og þegja. Heyri ég fyrir hettunni hvað þeir vitru segja. Það er ekki sama, hvort menn hlusta eða hlera. Lárus Salómonsson I Kópavogi veit hvað hann syngur um i þeim efnum: Ef menn hlera aðeins grun, ýmsra ber til vona, þvi er verr, aö margur mun maður vera svona. Ekki eru allar ferðir til fjár, meöal annars það að vertiðar- hluturinn hefur oft verið smár Það hefur Kolbeinn Jónsson i Ranakoti reynt og fundið þegar hann var eitt sinn á heimleið úr verinu og kvað: Heldur Koiur heim úr veri hlut meö rýran. Engan moia á af sméri og illa býr hann. 1 siðustu ferð sinni um Eyja- fjörð kvað Bólu-Hjálmar: Forlög eru úr garöi gjörö svo gildir ekki að siita. Aldrei mun ég Eyjafjörð uppfrá þessu íita. Eftir þvi sem þingfréttir herma, ætlar deilan um bók- stafinn Z að verða þjóðinni nokkuö dýr fjárhagslega og þingliðið ekki enn búið að leggja það mál fyrir róða, en óðum styttist timinn til alþingiskosn inga, og þá verður béát að hafa ráð Magnúsar frá Barði, sem hann kynnir hér: Þar sem nú er komið i kring kvennréttindamálið glæst, öll við kjósum inn á þing yfir-zetu konur næst.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.