Þjóðviljinn - 12.02.1978, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 12.02.1978, Blaðsíða 7
Sunnudagur 12. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 íslandskver fyrir pólska unglinga Skreytt 100 íslenskum frímerkjamyndum Knattspyrnudeild BREIÐABLIKS óskar eftir litilli leiguibúð fyrir einhleypan tékkneskan þjálfara. Æskilegt er að ibúðin sé i Kópavogi og losni sem fyrst. Allar uppl. eru gefnar i sima 41509 um helgina. Nýlega hefur veriö gefiö út litiö en huggulegt rit á pólsku um ís- iand. Titill þess er „Spotkanie z Islandia” — A vit islands — Höf- undur er frú Halina Ogrodzinska, en maður hennar er fyrrverandi ambassador Póliands i Noregi. Hann var einnig sendiherra á is- þyngstF HNOTTUR í HEIMI Þessi hnöttur er að likindum hinn stærsti og þyngsti i heimi. Hann er búinn til i háskóla i Massa- chusetts i Bandarikjunum. Þver- mál hans er niu metrar og þyngd hans er tuttugu og eitt tonn. landi meö aösetri i Noregi. i nokkrum stuttum heimsóknum til islands varö hún svo hrifin af ein- stæöum og ævintýralegum undr- um landsins, sögu þess og þjóö, aö húir ákvaö aö festa á blaö hughrif sin og gefa úr i 140 siöna bók sem ætluö er ungum lesendum. Þetta er ekki nein alfræöi um island heldur eins og nafniö bendir til áhrif af fyrstu fundum hennar og þess. Vandaö hefur veriö til útgáfu bókarinnar og er upplag hennar fremur stórt, eða 30 þúsund ein- tök. Bókin er myndskreytt ein- göngu meö stækkunum af göml- um og nýjum islenskum fri- merkjum, alls yfir 100 myndir og nýtist þessi hugmynd smekklega. í bókinni er látlaus frásögn af stuttum kynnum hennar af Is- landi, samræðum við íslenska vini, ferðalögum til staða eins og Þingvalla, Gullfoss, Geysis o.s.frv. Samt sem áður tekst höf- undi að koma að i þessum stutta texta heilmikluaf áhugaverðum upplýsingum — um jaröfræði, landafræði, efnahagsmál, sagn- fræði og menningarsögu. Kaflar eru um náttúru landsins og lands- lag, landnámið og vikingaskeiðið, söguöldina, úrdráttur úr Njáls- sögú, um þátt sjávar og sjávar- afla i islensku þjóðlífi, um ýmis nútimavandamál, barnagæslu og málefni aldraðra, samband og viðskipti Póllands og Islands, og vikið að fjölmörgum öðrum hlið- um i lifi íslendinga. Ogrodzinska er afar vinsamleg i garð íslendinga og enda þótt hún j> * « *♦■*♦►* í # «>-*-« *! * Myndasiöa úr pólska tslands- kverinu. þykist á engan hátt vera Islands- sérfræðingur eða ætla að gefa heildarmynd af islensku þjóðlifi hefur henni að sögn kunnugra tekist að glæða áhuga ungra Pól- verja. á nánari Islandskynnum með því að miðla þeim rikulega af hrifningu sinni, aðdáun og samúð með landi og þjóð. -ekh Gæslustörf utan byggða Ferðafélag íslands og Náttúruverndarráð óska að ráða konur eða karla til gæslu- starfa næstkomandi sumar á nokkra staði utan byggða. Um er að ræða störf i 2 til 4 mánuði, sem m.a. gætu hentað hjónum. Starfið er fólgið i eftirliti með sæluhúsum, tjaldsvæðum og friðlýstum svæðum. Málakunnátta, reynsla i ferðalögum og þekking á landinu æskileg. Skrifleg umsókn með sem gleggstum upp- lýsingum óskast send skrifstofu Ferða- félags íslands, öldugötu 3, Reykjavik,eða Ferðafélagi Akureyrar, Skipagötu 12, Akureyri, fyrir 25. febr. næstkomandi. Ferðafélag íslauds, Náttúruverndarráð. BÚLGARÍA ÓDÝRASTA LAND í EVRÓPU Fjórar ferðir 3/07-22/07, 22/07-12/08, 12/08-2/09, 2/09-23/09. 3 hótel. Hotel Varna de Luxe, Preslav og Zlatni Kotva. 1. flokks hótel. öllum herbergjum fylgja bað eða sturta, wc, sími, sjónvarp, ísskápur ef óskað er, svalir, og ýmislegt fleira ótalið hér. Hálft fæði. Flogið samdægurs um Kaup- mannahöfn með þotu hvora leið. íslenskur leiðsögu- maður. Hvítar sandstrendur, hreinn sjór. Aðstaða til heilsuræktar á Varna fyrir um 4 US $ á dag undir handleiðslú þjálfaðs lækna- og hjúkrunarliðs. Sundlaugar á Drauba. Heitur sjór eða vatn úr heitum upp- sprettum og mörg fleiri gæði ótalin hér. Gullno ströndin — Zlatni Pyassatsi og Drjuba við Svartahaf Verð fró 120 þús. ísl. kr. miðaðvið núverandi gengi. Takmarkað hótelrými í hverri ferð. Pantið strax ef þið œtlið ekki að missa af ferð til þessa fallega og ódýra lands. Verðbólga ekki til og gjaldeyrir nýtist best í Búlgaríu. 1978 Búlgaría er eitt frjósamasta land Evrópu og veðursælt. Niður við ströndina fer hitinn aldrei niður fyrir frostmark. Vorar í febrúar og haustið nær út nóvember. Hiti fer á sumrin aldrei upp fyrir 35 gr. C. en er að jafnaði 24-27 gr. C. á sumrin. Sjaldan skýjað. Sólardagar á sumri f rá 24-31 í mánuði að jafnaði. Frjósemi lands og hagstætt veðurf ar er forsenda ríkulegra og góðra landbúnaðarafurða enda er matur og vín með þvi besta sem gerist. Farþegar fá matarmiða og geta borðað að vild á hvaða veitingastað sem er eftir matseðli. 50% verðbót á er- lendan gjaldeyri sem skipt er. C» Ferðaskrifstofa Kjartans. Helgasonar Skólavörðustig 13A Reykjavik Simi 29211

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.