Þjóðviljinn - 12.02.1978, Síða 21

Þjóðviljinn - 12.02.1978, Síða 21
Sunnudagur 12. febrúar 1978 jÞJÓÐVILJlNN — SÍÐA 21 Sköpun Evu —Ert það þú sem hefur leyft honum að traðka svona á teppinu okkar? Það eru ekki nema útlendingar sem derra sig svona. Þú ættir að tala meira uin þaö hvaö það er gott fyrir linurnar að synda. 1 pólitiskum efnum fylgir aldingarðurinn Eden stefnu friðsamlegrar sambúðar. garðinum Þau eru mörg fíkniefnin „Asókn i gjaldeyri var orðin óeðlileg” Ólafur Jóhannesson viðskipta- ráðherra i viötali Friskt loft sakar ekki Buxnaklaufin galopin, en samt sigraði Ingimar Stenmark. íþróttafrétt i Visi. Af gleðikonum Jacqueline Onassis hefur oft upp á siðkastið sést i fylgd með stór- um og stæðilegum manni sem reykir dýra vindla og ekur i Rolls Royce. Morgunblaðið Einstaklingurinn er frjáis og óháður Drengur féll fram af Húsavíkur- höfða: „Krakkar fara það sem þeir ætla sér”. Fyrirsögn í Dagblaðinu Mannleg reisn SKRIDDU — það er undankomu- leiðin Auglýsing frá Junior Chamber Grædd eru gamalt brauð og geymd flaska! Verðlagið um aldamótin: Franskbrauðið á 124 þúsund, vínflaskan á 6 miljónir. Dagblaðið Vér fylgjumst með Dætur Judy Garland, þær Liza Minelli og Lorna Luft hittust ný- lega i New York til þess að halda upp á 25 ára afmæli Lornu. Morgunblaðið Að vera eða ekki...... Hamlet, eða „Astmögur trlands” eins og aðdáendum hans var tamt að kalla hann, er nú horfinn á braut. Hann var sjö vetra gamall og þó eitt vinsælasta kynbóta- naut, er trar hafa átt. Morgunblaöiö Tæknilegar framfarir Við höldum þannig þrem verð- bólguskrúfum gangandi Morgunblaðið Þjóðlegur metnaður I sextíu ár hefur Kölski ...kviðið að... kæmi sú stund er birtist þú Tfminn Orð í tíma töluð Hverjir byggja svo Berlin? Vitan- lega aðallega Þjóðverjar. Tfminn Áróður sósialheimsvald- sinna Rússneska inflúensan kinversk. Alþýðublaðið. Þungbær heilabrot Sigtryggur Stefánsson, Kristján Jónsson, ólafur Jensson og Svi- arnir Ringström og Johansson. (Þessi er röðin, en ég man ekki hvort hún er frá vinstri eða hægri. Sviarnir eru báðir berhausaðir en Sigtryggur er með hatt og gler- augu, mjög lágvaxinn). Myndatexti i Morgunblaðinu Hið miskunnarlausa raun- sæi Drottinn minn! Pilturinn skellti yfir munn stúikunnar blautum og slepjugum vörum og ekki nóg með það, hann gerði lika ákafa tilraun til að troöa upp i hana tungunni, en Hilla reyndi að bita saman tönnunum. 0, þvilikt ógeð. Aldrei vissi hún hvað þessi skelfingarstund stóö lengi yfir. Heimilis-TIminn. Adolf J. Petersen: VÍSNAMÁL Fylgir vandi meöferð máls Sú var tið, að kynni manna af alheiminum voru þau, að jörðin væri flöt og hringlaga. Kinverj- ar sögðu að þeirra land væri i miðjunni og keisararnir almátt- ugir fulltrúar guðanna. Arið 1633 lét páfinn I Róm handtaka Galileo Galilei og ásakaði hann fyrir þá villutrú að halda þvi fram, að jörðin væri hnöttótt. Til að halda lifinu dró Galileo skoðun sina til baka, en haft er fyrir satt að þegar hann kom út á tröppur dómhallarinn- ar hafi hann sagt: Samt snýst hún. Nú hafa menn aðra vitneskju um gang himintungla. A þessari atómöld ferðast menn út i geim- inn, fá sér gönguferð á tunglinu og senda véltól til annarra hnatta, en samt er þeirri spurn- ingu ósvarað, hvar séu ystu mörk heimsins, svo enn stendur óhaggaö það sem Benedikt Einarsson á Hálsi sagði árið 1908: Smíði vandað eign þin er, eigin handaverkin, Mikli andi! —Enginn sér ystu landamerkin. • Fylgir vandi meðferð máls, mótstætt grandar valdið. Mannsins andi fyrst er frjáls fyrir handan tjaldið. Þjóðsiðir hafa tekið veruleg- um breytingum á þessari öld, t.d. i menningarlegum tilvikum. Áður fyrr var það sjálfsögð heimilisvenja, að á vetrar- kvöldum væri lesið i þeim bóka- kosti sem til var, kveðnar rimur eða önnur skemmtun við höfð. Nú eru það fjölmiðlarnir sem sjá fólki fyrir menningarfóðr- inu, svo að nú mun varla fyrir- finnast sú kvöldskemmtun sem Jóhannes úr Kötlum kvað um i kvæðinu Kvöldvökur: Man ég fyrrum þyt á þökurn, þreyta styr við éljadrög. Þá á kyrrum kvelda vökum kveiktu hyrinn rimnalög. Birti uin rann af fornum funa fljótt er annir leyfðu það. Gleði brann i mildum muna. Mamma spann.en pabbi kvað. Söng I eyrum sagan góða, sagði meira en orðin tóm. Rann af geirum refilþjóða rauður dreyri máls i hljóm. Svipti griðum sérhver liking, send á mið hins dýra brags, eins og skriði i vesturviking vajjð lið þess horfna dags. Bar með straumi kvöldsins káta kvæðaglaumur ungan svein. Mörg I laumi gömul gáta gegnum drauma nýja skein. Svipaða sögu frá bernsku og æskuárum hafði Einar Þórðar- son frá Skeljabrekku að segja, en hann var fæddur 1877. Á gamals aldri orti hann alllanga rimu um sitt æviskeið. Þar i eru þessar visur: Lifs á hausti mestég met minningar að rima. Mér ég fyrir sjónir set svipi liðins tima. Þegar einn ég inni sit, út þá hallar degi, er mér gjarnt á yfirlit áður farna vegi. Þar ég æskuleiki lék, lærði málið góða, framdi ýmis barnabrek, bar við smiði ljóða. Þá var tiðum kátt um kveld, kveðnar gamanbögur. Kyntu sálar unaðseld ýmsar góðar sögur. A bernskuskeiði var manni sagt, að það væri ljótt að herma eftir fólki, og þeir sem það gerðu yrðu ýmist rámir eða hásir i röddinni. Ekki fylgdi það með áminningunni, að ekki mætti herma eftir dýrum, en það mun Gisli Jónsson i Winne- peg hafa gert, eftir þvi sem hann segir i þessari visu: Fjaðrir hristi fugl ákvist. flaug svo yst, með söng i blámann. Mig þá fýsti að leika list: lagið missti og kvað mig ráman. í nútið gilda ekki hin gömlu Viðurlög. Nú herma menn hver eftir öðrum án þess raddbönd verði fyrir tónbrigðum. Sleggju- dóma fella menn ennþá, án þess að bregða hið minnsta. Um sleggjudóma kvað Guðmundur Sigurösson frá Heggstöðum: Engum verður að þvi not, annars sóma spilla, Það, að dæma bróðurbrot, breytni er slæm og villa. Oftmun skvaldur orðahljóms ýmsum valda tjóni. Hamast alda hleypidóms heims á kalda Fróni. Alltaf þegar eitthvað fer öðruvisi en skyldi, heimur titt á hornum sér hefur mannsins gildi. Sveinn Bergsveinsson sendi Visnamálum eftirfarandi visu, en ekki fylgdi nein skýring. Hennar er sennilega ekki þörf: Sist ég vildi sjá hana, svo ég færi að þrá hana. Annar maður á hana, ekki hægt að fá hana. Það hefur ætið þótt góð skemmtun, þegar tveir hagyrö- ingar leggja saman, annar kveður fyrrihlutann, en hinn botnar. Isleifur Gislason á Sauðárkróki hóf leikinn eitt sinn og sagði: Aldrei sá ég ættarmót meö eyrarrós og hrafni. Olina Jónasdóttir svaraði: Allt mun þó af einni rót i alheims gripasafni.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.