Þjóðviljinn - 05.03.1978, Qupperneq 7
Sunnudagur 5. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
„Enginn veit hvaö átt hefur
fyrr en misst hefur”, sagöi Geir
biskup Vidalin þegar Magnús
Stephensen tók djöfulinn út Ur
trúarjátningunni eða hvaöan
sem þaö nú var. Fljótlega fór
maður að sakna blaðanna i
verkfallinu, og skelfing var gott
að fá skammtinn sinn aftur.
Sjálfur fékk ég strax á fyrsta
degi velforþéntar ákúrur fyrir
sjónvarpsþýðingu:
„Serpico
illa
þýddur”
Blaðamadur skrifar:
Mér þótti slæm þýðingin á
fyrsta þættinum um New York-
lögguna Serpico 1 sjónvarpinu á
þriójudagskvöldió. Cg man i
svipinn eftir tveimur dæmum:
þegar stúlka talaði um Ramsey
Lewis, jazzistann fræga, talaði
þýðandinn um „óperuna".
Annað dæmi: Lögga spurði
glæpon hvernig alríkismenn-
irnir færu með hann. „How are
the feds treating you?“ — Og
hinn svarar: „Beautiful**. Þýð-
andinn sagði aftur á móti: AK
rikislögreglan er að .leita að
þér. Og glæponinn svaraói: En
gaman!
§vona vitleysur eru óþarf-
lega kjánalegar i sjónvarpsþýó-
ingu.
Til skýringar og nokkurrar
afsökunar langar mig að láta
þess getið að myndin var þýdd
eftir segulbandi og alls kyns
aukahljóð bak við talið sem
gerði það oft á tiðum illskiljan-
legt á bandinu. Ég vona samt að
það hafi verið flugufótur fyrir
flestum textunum!
Að sjálfsögðu hafa blöðin bor-
ið þess merki að allt þjóðfélagið
logar i stéttabaráttu (sannið þið
til að það endar með þvi að Al-
þýðubandalagið mitt tekur eftir
þessulika). „Morgunblaðið” og
„Timinn” hafa lagt siðu eftir
siðu undir afslátt og svik og allt
tint til. Þannig hefur „Morgun-
blaðið”dregiðfram úr júridisk-
um skúmaskotum mölétinn
lagaprófessor til þess að sanna
fyrir mönnum að fullyrðingar
BSRB um neyðarrétt séu úr
lausu lofti gripnar; þetta sann-
færði mig endanlega um það
sem mig hefur lengi grunað að
lögfræöingar velflestir beri ekki
beskyn á réttlætið.
Jónas Bjarnason:
Stjórn BHM
stendur ekki
að aðgerðum
„ÞAÐ ER launamálaráð ríkis-
s'arfsmannadcildar BIIM, seni
ákvað að vera meó í fyrirhuKuð-
uni aöKerðum verkalýðshreyfing-
arinnar, en sljórn bandalaRsins
stendur ekki að þeim.” sa«ði
Jónas Bjarnason, formaður BIIM,
í samtali við Mbl. „Til þessa
hefur stjórnin ekki tekið aðra af-
stöðu en þá að benda á að þetta sé
bara ákvörðun launamálaráðs-
ins.“
Bandalag háskólamanna á
mikiö gott að lúta forystu jafn
skeleggs manns og Jónasar
Bjarnasonar. „Það er launa-
málaráð rikisstarfsmanna-
— deildar BHM, sem ákvað að
vera með i fyrirhuguðum að-
gerðum verkalýðshreyfingar-
innar, en stjórn bandalagsins
stendur ekki að þeim”, segir
hann i „Morgunblaðinu” þann
25. febrúar (les.: „Það er helv.
beinið hann Jón Hannesson sem
er að koma óorði á okkur góð-
borgarana”). Jónas heldur
áfram og segir að endurheimt
samninganna „i þessari stöðu”
sé að sjálfsögðu „mikið mál en
ekki nægileg forsenda til ólög-
legra aðgerða” (hvað þurfa
„forsendur” að vera mikið
„nægilegar” til þess að dugi dr.
Jónasi?). „Málefnamarkmiðið”
(fallegt orð) verði að vera það
að ,,beina geirisinum að grund-
vallaratriðum” sem séu at-
vinnuleg uppbygging og skipan
fjárfestingarmála. Og hvað eru
„Síða
eftir
síðu
undir
afslátt
og
svik”
menn svo að heimta samning-
ana i gildi eftir svo ljósa stefnu-
yfirlýsingu?
Gagnmenntun
Svona til þess að myndin verði
eilitið skýrari af þessum gagn-
menntaða foringja fjölmennra
samtaka skal þess getið að
Jónashefur átt i ritdeilu i „Dag-
blaðinu” við Ólaf A. Kristjáns-
son sem ég veit engin deili á en
hefur vist ekki notið blessunar
langskólanámsins: „Það er
reyndar engin furða að hann
hafi minnimáttarkennd gagn-
vart háskólamenntuðu fólki”
segir Jónas. Var það ekki Einar
Kvaransem brigslaði Stefáni G.
á sinum tima um „skort á
menntuðum skilningi”? Ég hef
ekki ómerkari mann en Hannes
Gissurarson fyrir þvi að Platón
gamli standi enn fyrir sinu. Við
næsta formannskjör i BHM væri
kannski ekki úr vegi að minnast
orða spekingsins forna: „Ef
menn brjóta i bág við lögmál
hófseminnar og láta eitthvað,
sem er of litið, fá eitthvaö, sem
er of stört — of litið skip fá of
stór segl, og litinn likama fá og
stórar máltiðir, of litla sál fá of
mikil völd — hlýtur afleiðingin
að verða alger ófarnaður. í
hrokafullri glópsku steypist
likaminn af ofátinu út i forað
sjúkdómanna og litilmennið i
valdastólnum flanar út i óhæfu-
verkin, sem hið hrokafulla of-
læti leiðir ævinlega til”.
Ritdeila Jónasar sem fyrr var
getið er háð i formi „kjallara-
greina” i „Dagblaðinu”. Frá
Norðurlöndum eiga menn þvi að
venjast aö „kjallaragreinar”
séuein I hverju blaði og mjög til
þeirra vandað, oftar en hitt
fjalla þær um menningarmál.
Mig hefur lengi furðað á stór-
undarlegum skilningi sem
„Dagblaðið” virðist leggja i
hugtakið „Kjallaragrein”. Þær
geta orðið allt upp i fjórar I
hverju blaði og ekki er annað að
sjá en ritstjórn líti á þennan
vettvang sem einbera rusla-
kistu. Svo að dæmi sé tekið
minnist ég þess fyrir nokkrum
vikum að ihaldsblesi suður með
sjó skrifaði „kjallara” til þess
eins að agitera fyrir sjálfum sér
i prófkjöri. Það væri þarft verk
að koma upp einhverri
„kjallaramenningu” i blaða-
mennskunni, en ætlist „Dag-
blaðið” til þess að þetta form sé
tekið alvarlega verður það að
breyta um stefnu. Ég læt fylgja
mynd af einum „kjallaranum”,
hann er hvorki betri né verri en
þeir gerast.
Greifar og barónar
Ætli forvitnilegasta mynda-
texta vikunnar sé ekkiað finna i
„Timanum” sunnudaginn 26.
febrúar. „Engin leiö var fyrir
lögregluna fyrstu dagana eftir
ránið að halda forvitnum I burtu
frá heimili barónsins en það er
við hina frægu götu Avenue
Foch i Paris. Við þá götu búa að
mestu miljónerar og frægir
leikarar — auk islenzka sendi-
herrans sem á reyndar heima
þar lika”. — Af „Timanum” er
annars það að frétta að honum
hefur áskotnast nýr dálka-
höfundur sem ritar undir nafn-
inu „Ráðbarður”. Fyrsta grein-
in heitir „Filistear” og tekur
nafn af frægum greinaflokki
Jónasar frá Hriflu í „Skinfaxa”,
dálitið djarft, þykir manni.
Kostaboð vikunnar er að
vanda i gamla, góða „Visi”, það
er ferðaskrifstofa Kjartans
Helgasonar sem ekki vill vera
að abbast neitt upp á kúnnana
ogbýður þeim Grikklandsferðir
„að eigin vali”. í sama blaði er
smáfréttum mann sem „Brauzt
inn iRikið”. Ætli þetta sé ekki
draumurinn okkar allra sem á
annað borð smökkum það?
Enda dýr orðinn dropinn og
minnir á það sem kunnur gleði-
maður hér i bæ sagði eftir sið-
ustu hækkun: „Brennivinið er
bara orðið svo dýrt að maður
getur ekki keypt sér skó!”
Neyðareyðufylling vikunnar
hlýtur að vera þessi klausa úr
„Dagblaðinu” neðst til hægri á
auglýsingasiðu: „Gulur af
Framhald á 18. siðu
Stöðuveiting
Framsóknar
Oft hafa farið fram stöðuveit-
ingar á landi hér og hafa ráð-
herrar þar mjög komið við
söjju. Oft hefur þar undarlega
verið á málum haldið
Kitt með þvl verra sem ég
þekki var að gerast nú á dögun-
um austur á Reyðarfirði. Þá
veitti Halldör E. Sigurðsson
stöðu rekstrarstjóra Vega-
gerðar rlkisins á Reyðarfirði
flokksbrðður slnum, sem aldrei
hefur nálægt vegamálum
komið. Þó sóttu tveir menn um
starfið aðrir, b' * búnir aö
vcra starfsmenn V. R. I mörg ár
og báðir búnir að vera verk-
stjórar hjá V.R.
Þarna birtist Framsókn bezt I
sínu rétta Ijósi. Reynsla og
þekking skipta engu máli.
heldur pólitlskur litur. Seint
verður logið á framsóknar-
forystuna, þegar sagt er að hún
sé opin I báða enda og beri
kápuna á báðum öxlum
Nú vil ég taka fram, að ég er
ekki að kasta neinni rýrð~á
þann, sem aðnjótandi varð stöð'-
unnar. heldur deila á það aö
starfsreynsla hjá stofnuninm
og góðir hæfileikar og sam-
vizkusemi I störfum skuli
einskis metin á móti pólnlskum
litarha*tti Þegar svona verður
þá er ekki von á góðu I þjóð-
félaginu.
Kjallarinn
Jóhann Þórólfsson
^ Að endingu vona ég, aö
Framsókn fari rækilega flatt
eystra á þessu siðleysi sinu og
bið menn lengstra orða að kasta
ekki atkvæði sinu á glæ eöa
verra en þaö I vor með því að
kjósa t'lokk. sem hefur kllku-og
bitlingastarfsemi sem helzta
einkenni sút
Jóhann Þórólfsson
frá Reyðarfirði
Stöður í Tanzaníu
Danska utanrikisráðuneytið hefur
óskað eftir þvi að auglýstar yrðu á
Norðurlöndum 4 stöður við norræna sam-
vinnuverkefnið i Tanzaniu. Þar af eru:
Ein yfirmannsstaða (project
coordinator),
ein framkvæmdastjórastaða (admini-
strative officer),
ein ráðunautarstaða við bókhald og
stjórnun,
ein ráðunautarstaða um starfsmannahald
og starfsmenntun.
Góð enskukunnátta er áskilin.
Nánari upplýsingar um þessar stöður, svo
og umsóknareyðublöð, fást á skrifstofu
Aðstoðar Islands við þróunarlöndin,
Borgartúni 7 (jarðhæð), sem opin verður
mánudaga og miðvikudaga kl.
14.00—16.00. Umsóknarfrestur er til 15
mars n.k.
Kranamaður óskast
Óskum að ráða vanan mann á bilkrana,
einnig vanan mann á smurstöð. Upplýs-
ingar um störfin veitir verkstjóri véla-
deildar i Borgartúni 5, Reykjavik.
Vegagerð rikisins
Félagsráðgjafi
óskast til afleysinga að Reykjalundi frá 1.
april i fjóra mánuði. Upplýsingar gefur
Þórey Guðmundsdóttir i sima 66200.
Vinnuheimilið að Reykjalundi
H j úkrunarf r æðinga
vantar i sumarafleysingar á Sjúkrahúsið
á Sauðárkróki. Upplysingar gefur
hjúkrunarframkvæmdastjóri i sima 95-
5270.
Sjúkrahús Skagfirðinga
Sauðárkróki
Blaðburðarfólk
óskast
Austurborg:
Bólstaðarhlið
Sogamýri
Háteigshverfi (afl.)
Rauðalækur
UOWIUINN
Siðumúla 6
simi 8 13 33
Vesturborg:
Melhagi
Kópavogur:
Hrauntunga
Skjólbraut