Þjóðviljinn - 05.03.1978, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 05.03.1978, Blaðsíða 11
Sunnudagur 5. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Þaö fer vel um islendingana hjá Dankersen, en Axel og Kristbjörg hyggjast þó ekki vera þar lengur en eitt keppnistímabil til viðbótar. Þau hafa fest kaup á ibúð við Framnesveg og þegar heim er komið á að leika handknattleikinn áfram á fullri ferð. Á litlu myndinni til hægri er Axel í eldhúsinu og rifur niður rófur og gulrætur i hrásalat. ír K % v v® i ! fap^apy ?' wSJMm W! sen. Hafði þessi sendimaður um- boð til þess að bjóða okkur Krist- björgu út til þess að lita á aðstæð- ur og þar vorum við i 2-3 daga. Ég setti min skilyrði fyrir þvi að koma og óneitanlega kom mér það á óvart að þeir samþykktu allt sem ég nefndi án nokkurr- ar umhugsunar. Svo það var ekki eftir neinu að biða, við fórum heim og gengnum frá okkar mál- um og strax að lokinni Mæjorka-, ferð með félögum minum i Fram héldum við Kristbjörg hingað til Minden. Verslunarnám á fullum launum — Ertu i atvinnumennsku hérna i Þýskalandi, eöa heitir þetta ennþá á opinberu máli áhugamennska. — Já, ég er ekki atvinnumaður og atvinnumennska er ekki nema hálfopinber hér ennþá. Ég byrj- aði t.d. strax að vinna hjá þvi fyr- irtæki sem stendur á bak við Dankersen. Mér var komiðfyrir á skrifstofu og þeim var alveg sama þótt ég kynni ekki orð i þýsku og gæti þvi ekkert gagn gert. „Sittu bara þarna frá kl. 8.30 — 4.00 og þá verður þetta allt i lagi”, sögðu félagarnir. Það er skemmst frá þvi að segja að eftir niu mánuði var ég að verða vitlaust á þessu aðgerð- arleysi. Það bætti heldur ekki úr skák að ég átti við sifelld meiðsli að striða svo maður var orðinn vonsvikinn og niðurbeygður. Þá var mér boðið að hætta á skrifstofunni og fara i verslunar- nám. Ég tók þvi fegins hendi og er núna að ljúka við þann skóla. Þetta var erfitt fyrst, en manni var farið að þyrsta i að leggja eitthvað á sig og ég glimdi glaður við byrjunarörðugleikana og sé svo sannarlega ekki eftir þvi núna. — Og þú hefur haldið fullum launum þennan tima? — Já, þeir voru afar liðlegir við mig og það var aldrei á það minnst að minnka við mig laun eða taka þau af mér þótt ég hætti að vinna og færi út I verslunar- námið. Forseti Dankersen er eigandi að þessu stóra fyrirtæki sem stendur á bak við félagið. Hjá honum vinna yfir tiu þúsund manns og þessi maður hefur hvað mig snertir að minnsta kosti ekki talið það eftir sér að greiða götu mina á allan hátt. — Eru öll þýsk félög kostuð af einhverju fyrirtækjum? — Já, að minnsta kosti þau handknattleiksfélög sem eru i fyrstu deild. Það er ýmist að eitt stórt fyrirtæki eða mörg smærri standi á bak við hvert lið og þegar leikmenn skipta um félög er ekk- ert farið dult með það að peningar og alls kyns friðindi hafa þar valdiöfélagaskiptunum. Það má i rauninni segja að það séu töluvert miklir peningar i þýska handbolt- anum miöað við aö atvinnu- mennskan er ekki viöurkennd ennþá. Það þótti t.d. mikið hneyksli á sinum tima þegar þýskur milj- ónamæringur tók upp á sina arma miðlungs gott 5. deildarlið og fór með það upp i Bundesliguna á nokkrum árum. Hann keypti til sin marga af bestu leikmönnum Þýskalands og liðið klifraði upp á millideilda á hverju ári. Danker- sen missti þarna marga af sinum bestu mönnum og ekki alls fyrir löngu keypti þetta nágrannalið okkar annan markvörðinn okkar. Allir vita auðvitaö að þarna eru miklir peningar i spilinu. Hvert fyrirtæki leggur auðvitað á það áherslu að halda sinu liði á toppnum. Þess vegna er farið viða til að finna góða menn og laða þá til sin. Ýmis hlunnindi eru veitt við félagaskipti, en i staðinn eru gerðar miklar kröfur. Ef leik- maður bregst hlutverki sinu er enga miskunn að finna, heldur verður hann einfaldlega að vikja og annar er settur i hans staö. Lif- ið er þvi ekki eintómur dans á rósum hjá okkur íslendingunum frekar en öðrum enda þótt við þurfum ekki að kvarta yfir okkar hlutskipti. Góöur vinur í raun — En þeim hefur ekki gramist við þig i byrjun þegar þú áttir við þessi meiðsli að striða. — Nei, ég get ekki sagt það. En fyrir mig voru þetta erfiðir timar. Ég var fyrst skorinn upp á oln- boga og loksins þegar ég mátti byrja að æfa kom i ljós að aðgerð- in hafði misheppnast og varð að endurtakast. Siðan var ég skorinn i nára báðum megin og ioks gerð mikil aðgerð á nefi. Auðvitað vona ég að nú sé þetta liðið. „Sjö, niu, þrettán, bank, bank” heyrist i Kristbjörgu sem lemur duglega i borðbrúnina og storkar ekki örlögunum með svona ábyrgðarlausu tali. Meira kaffi i bollana og siðan haidiö áfram. — Ég hef átt einn stórkostlegan stuðningsmann hérna hjá Dank- ersen sem i rauninni tók mig upp á arma sina um leið og ég kom hingað, segir Axel. — Á þessum erfiðu timum kom hann og hug- hreysti mig og stappaði i mig stálinu látlaust. A stjórnarfund- um barðist hann fyrir mig af miklum krafti og sá til þess að einn allra besti skurðlæknir Þjóð- verja framkvæmdi á mér allar aðgerðir, nema þá fyrstu á oln- boga, sem mistókst enda illilega. Þessi góði vinur minn, sem heitir Herbert, þarf vonandi ekki að sjá eftir þvi að hafa barist fyrir til- verurétti minum hjá Dankersen. Einstaklingsframtakiö dugar skammt Þriðji aðilinn i fjölskyldu þeirra Axel og Kristbjargar hefur nú blandað sér i málið. Hann stekkur upp I fangið á Axel en flýtir sér þaðan tíl húsmóðurinnar og leitar sér þar bliðuatlota. Myndarleg- asta læða er nefninlega þarna i heimili og ætlar sér greinilega að hlusta það sem eftir er þessara samræðna. Axel segist hafa breyst sem leikmaður á þvi að koma hingað til Þýskalands. — Það dugir skammt að hugsa hér eingöngu uin einstaklingsframtakið, segir hann. — Dankersen nældi sér t.d. að minu áliti i Þýskalandsmeist- aratitilinn fyrst og fremst vegna mikillar samvinnu og óeigingirni leikmanna. Þú verður að hugsa fyrst og fremst um félagana og liðið. Enginn getur leyft sér að leika með Dankersen fyrir eigin frama eingöngu. Framhald á 12 siðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.