Þjóðviljinn - 07.03.1978, Side 7
Þriðjudagur 7. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
JÞess vegna hef ég kvatt þá hingað Launana. Þeir sitja
þarna út úti i horni, — þið þekkið þá, það eru þeir
Así og bési. Þeir eru í sama blóðflokki og hann Ati.
Oddbergur
Eiríkssqn/
skipasmiöur:
Heilbrigdiskonyerteringin
á Gamla spitalanum við Vesturvöll
Það var uppi fótur og fit á
Gamla spitalanum við Vestur-
völl framarlega i 16. viku vetr-
ar. Yfirlæknirinn hafði látið boð
út ganga að sjúklingur væri
kominn i húsið og væri hann al-
varlega veikur! Tveir sjúkralið-
ar komu labbandi framhjá hon-
um Jóni og töluðu saman.
„Veist þú hver þetta er”,
sagði Pétur.
„Ég hef heyrt að það væri
hannAtvinnuvegur”, sagði Páll.
„Og hvað gengur að honum
núna”, spurði Pétur.
„Ekki veit ég það, en ég hefi
heyrt að það væri hans veiki,
eins og þeir sögðu i öræfunum”,
svarar Páll.
S júkraliðarnir gengu inn um
dýru dyrnar á Gamla spitalan-
um og þaðan inni I. sjúkrastofu.
Aðeins eitt sjúkrarúm var i
stofunni og virtist sjúklingur
vera i þvi,en breitt var hvitt lak
yfir hann.
Prófessorarnir átta, og þar
með talinn yfirlæknir stofnun-
arinnar Fálkanefur, stóðu við
höfðalag rúmsins en sjúkralið-
arnir 52 voru dreifðir um stof-
una og stungu saman nefjum,
það hefir þótt kurteisi i stofnun-
inni undanfarin þrjú og hálft ár.
Allir voru nú komnir með húf-
ur á höfuðið eins og spitalafólk
notar.en þær voru með ýmsum
litum. Flestir voru með bláar
húfur, nokkru færri voru með
grænar og enn nokkru færri með
rauðar. Fáir voru með bleikar
húfur og aðeins örfáir með húf-
ur, sem voru þannig á litinn að
erfitt er að lýsa honum af þvi að
hann breyttist eftir þvi hvaðan
var horft. Prófessorarnir voru
með bláar eða grænar húfur.
Pétur og Páll voru nú báðir
komnir með húfur og voru þær
rauðar.
Þegar hér var komið ræskti
yfirlæknirinn sig, bankaði létt i
sjúkrarúmið og mælti:
„Góðir samstarfsmenn”,
hann var dálitið rámur þegar
hann hóf mál sitt en það lagaðist
nokkuð þegar fram kom i ræðu
hans. ,,Ég hefi kvatt ykkur
hingað i þetta skipti vegna þess
að hann fornvinur okkar og
heimagangur i þessari stofnun,
hann Atvinnuvegur, við köllum
hann Ata okkar á milli eins og
þið vitið, hefir verið fluttur
hingað og er hann nú mikið
veikur. Við prófessorarnir erum
búnir að lita á hann skinnið og
við komumst strax að raun um
að það sem að honum gengur er
hans veiki og höfum við þvi
ákveðið að beita sömu meðferð
og beitt hefir verið áður, og að
minu viti með góðum árangri,
sem sé blóðgjöf. Þess vegna hefi
ég kvatt þá hingað Launana,
þeir sitja þarna úti i horni, þið
þekkið þá, það eru þeir Asi og
Bési, þeir eru i sama blóðflokki
og hann Ati. Formsins vegna
ætla ég að biðja ykkur, og vænt
þætti mér um ef þið gerðuð það
allir, að samþykkja þetta, það
hefði góð áhrif á þá greyin hann
Asi og hann Bési. Annars er það
ekkert höfuðatriði hvort þið
samþykkið þetta allir eða ekki,
það er samdóma álit okkar pró-
fessoranna að á þennan hátt
skuli brugðist við vandanum og
meirihluti ræður hér innan
stofnunarinnar eins og þið vitið
og hann er á okkar bandi. Það er
ekki vist að þeir Asi og Bési séu
fúsir til að láta taka blóð úr sér,
en ég vona fastlega að þeir sýni
þjóðhollustu og þegnskap i
neyðartilfelli eins og hér er um
að ræða.”
Með þeim orðum lauk Fálki
máli sinu og leit hann þá alvar-
legum augum yfir stofuna.
Nú fór kliður um sjúkrastof-
una og töluðu margir i senn; var
augljóst að greinir voru með
mönnum. Asi og Bési sátu úti i
horninu sinu og héldust i hend-
ur, mátti sjá að þeir voru óró-
legir og ekki laust við að þeir
væru hræddir.
Nú kvaddi einn rauðhúfulið-
inn sér hljóðs og mælti:
„Herra Yfirlæknir, við rauð-
húfuliðar berum ekki brigður á
að hann Ati sé veikurhann hefir
sjaldan alfriskur verið, en
hvorttveggja er að okkur þykir
sem iðjulega hafi orkað tvimæl-
is um þær læknismeðferðir sem
hann hefir hlotið og i öðru lagi
höfum við ekki ennþá fengið að
sjá hann, svo að okkur er ekki
unnt að verða við þeim tilmæl-
um sem til okkar hefir verið
beint, sem er að samþykkja
blóðgjöf”.
Yfirlæknir varð fyrir svörum
og mælti:
„Ég er ekki viss um að þú
metir þetta rétt Rauðhetta litla
enda vafasamt að hægt sé að
ætlast til þess, en ég get sagt
ykkur það, að við prófessorarnir
höfum farið til hans doktor Alvis
og eins og þið vitið þá hefir hann
verið allsstaðar og þessvegna
veit hann allt og hann hefur bent
okkur á að þetta væri rétta með-
ferðin, sem við vissum raunar
áður.”
Rauðhúfuliðinn, sem áður
hafði talað, greip nú orðið og
var mikið niðri fyrir. Var ekki
laust við að hann væri reiður og
þvi á takmörkum að hann hefði
vald á tungu sinni.
„Má vera” mælti hann, „að
ég sé ekki spámannalega vax-
inaen eigum við að taka afstöðu
til þessa máls, þá kref jumst við
þess að blæjunni verði lyft af
sjúklingnum svo að við fáum
a.m.k. að sjá hann.”
„Við getum svo sem orðið við
þvi,” mælti yfirlæknirinn, „það
þarf hvort sem er að gera það
svo aðgerðin geti farið fram”.
Að þeim töluðum orðum fyrir-
skipaði hann að blæjan skyldi
tekin af sjúklingnum; gengu þá
fram tveir sjúkraliðar, annar
með bláa húfu en hinn með
græna og gerðu þeir það með
nærfærni.
Þegar Ati kom i ljós, gripu
margir andann á lofti og heyrð-
ist langdrcgið Úúúá frá Palla.
„Égheld að hann hafi nú aldrei
verið svona slæmur”, sagði Pét-
ur og fór með höndina yfir enn-
ið.
Og þarna lá sjúklingurinn i
rúminu sinu fyrir augum þess-
ara 60 lækna og sjúkraliða. Og
það var ekki sjón að sjá hann
greyið. Greinilega var höfuðið á
honum allt of stórt en fæturnir
grannir og veiklulegir. Hand-
leggirnir voru langir og mjóir
og sex puttar á hvorri hendi.
Þegar lakið var tekið af, opn-
aði hann dauflega augun og rétti
upp langan visifingur hægri
handar.
„Liður þér illa Ati minn”,
sagði yfirlæknirinn.
„Ég er með svo mikla vaxta-
verki,” sagði sjúklingurinn.
,,Ég veit það góði minn,”
sagði yfirlæknirinn.
„Ég held að ég sé með milli-
liðabólgu,” sagði sjúklingurinn.
„Það getur vel verið”, sagði
yfirlæknirinn, ,,en þetta lagast
bráðum væni minn”.
„Ég held að Fálki sé nú alveg
ga-ga að ætla að lækna þetta
með blóðgjöf, hann gæti alveg
eins ráðlagt nudd við bein-
broti,” hvislaði Pétur i eyrað á
Palla.
„Ég held að hann ætti að ráða
sig að hundaspitalanum,” hvisl-
aði Palli i eyrað á Pétri.
Nú kvaddi sér hljóðs sjúkra-
liði með bleika húfu og mælti:
„Ég lýsi þvi yfir, fyrir mina
hönd og okkar allra bleikhúfu-
liða, að þó að við höfum staðið
að margri læknisaðgerð með
þér Fálkanefur og þinum félög-
um, þá getum við ekki fallist á
þá meðferð sem hér hefir verið
stungið upp á”.
Sjúkraliði með rauða húfu
mælti og var fastmæltur: „Að
svo komnu máli er ég eindregið
andvigur þeirri læknismeðferð
sem hér er til umræðu. 1 fyrsta
lagi er það min skoðun að hún sé
alröng og i öðru lagi tel ég sjálf-
sagt að rannsókn fari fram áður
en læknismeðferð er ákveðin.”
„Ég er á sama máli og siðasti
ræðumaður”, sagði sjúkraliði
með einkennilega húfulitinn.
„Enginn hefur spurt ykkur
um álit ykkar á aðgerð þeirri
sem hér mun fara fram”, mælti
yfirlæknirinn. „Það er ákaflega
snjall maður vestur i Cikago,
sem hefur ráðlagt okkur þetta
og ég treysti honum betur en
ykkar ráðleggingum.”
Þegar hér var komið umræð-
unni gáfu launarnir merki um
að þeir vildu leggja orð i belg,
en prófessorarnir allir sem einn
bentu þeim á að á þessum stað
hefðu þeir hvorki málfrelsi né
tillögurétt.
Ekki létu þeir þennan úrskurð
aftra sér og sögðu að þeir vildu
ekki láta taka blóð úr sér og það
hefði verið um það samið fyrir
veturnætur að þeir fengju að
vera i friði þetta árið og þetta
væri bara alveg ólöglegt.
Þá ræskti sig Dóma-Jói og
sagðist hann vita manna best
hvað væru lög og hvað ekki og
sagði hann að þetta væri full-
komlega löglegtog taldi hann að
þetta mál ætti að hafa algjöran
forgang.
„Þú ferð létt með að brosa út i
annað, sjálfur hefur þú verið
dæmdur”, kallaði Asi og var
hás.
Þá steig fram úr prófessora-
röðinni Matti miljarð og sagðist
vilja benda laununum á, að
þeirra framlag væri aðeins að
gjöra rétt og þola ei órétt og
mættu þeir vera stoltir af að
leggja svo göfugri hugsjón lið,
sagði hann.
Nú varð hark mikið i stofunni
og töluðu margir i senn. Sögðust
rauðhúfuliðar rauðbleikhúfulið-
ar og þessir með einkennilega
húfulitinn aldrei samþykkja
þessa vitleysu og kæmi i sama
stað niður þó að hún væri fundin
upp i Cikagó, hún væri ekkert
betri fyrir það og þeir mundu
passa launana svo að það yrði
ekki hægt að taka blóð úr þeim.
„Hi ú ykkur”, sagði Dóri
dindill, ,,ég hefi horft af brúnni
og séð að þið eruð svo fáir, við
erum mikið fleiri, hi á ykkur
barasta”.
Þegar hér var komið sögu
kvaddi Fálkanefur sér hljóös:
„Góðir Islendingar, ég tala
ekki við hina, það er einlægur
ásetningur okkar prófessoranna
að sýna nú meiri festu en gætt
hefir nú að undanförnu sem
meðal annars kemur fram i þvi
að ákveðið hefir verið að hverfa^
frá svo smáskitlegri festu eins
og felst i gengissigi, heldur að
þeirri festu eins og kemur fram
i fengishruni, og vér höfum gert
að einkunnarorðum vorum orð
skáldsins þar sem hann segir :
Og strið mitt er nútimastrið,
en ekkiafþvitaginu
að standa til lengdar
i tvisýnum vopnabrýnum.
Þið vitið að jörðin er likt
ogknötturilaginu.
Og loks kemst maður aftan að
fjandmanni sinum.
Þá höfum vér ákveðið að láta
ekkerthindra oss i þeirri aðgerð
sem hér liggur fyrir, og höfum
vér of lengi eyttdýrmætum tima
vorum i að hlýða á orðaskak
ábyrgðarlausra manna. Heiti ég
þvi á mina menn að þeir sýni nú
einurð og festu og ljúki nú sem
skjótast litilræði þessu.
Meðan yfirlæknirinn mælti
svo, hafði tvibreitt sjúkrarúm
verið fært i stofuna og stillt upp
samhliða rúminu sem fyrir var,
en þó með manngengu bili á
milli. Þustu þeir nú þangað sem
launarnirsátu allirprófessorarn-
ir Dóma-Jói, Matti miljarð,
Dóri dindilí, Einar utanlands,
Gunnar gufa, Vilhjálmur alfa-
bet og Matti bláseiði. Einnig
fylgdu þeim þétt og fast allir
grænhúfuliðarnir og bláhúfulið-
arnir sem i stofunni voru. Gripu
þeir Launana og færðu þá að
tvibreiða sjúkrarúminu og
bundu þá þár niður með göml-
um auðvaldshlekkjum og sult-
arólum svo þeir komu nú engum
vörnum við og gátu ekki hreyft
legg né lið.
Færð höfðu verið i stofuna
tæki til blóðtökunnar, glös,
slöngur og nálai; og var þessum
græjum komið fyrir sem vera
ber.
„Enginn er hraustari þó of
hraustur sé,” sagði Matti blá-
seiði og stakk nálunum i Laun-
ana þar sem hann fann stærstu
æðarnar i handleggjunum á
þeim. Launarnir ráku fyrst upp
vein, en bitu siðan á jaxlinn og
báru sig ekki ókallmannlega.
Siðan fór blóðið að renna úr
þeim i glösin.
Þeir ræddu um það prófessor-
arnir hvað væri hæfilegt að
tappa mikið af Laununum og
varð að samkomulagi að það
skyldu vera átta merkur.
„Ekki hefðu það verið kallað-
ar nytháar kýr þegar ég bjó sem
best i Dölum,” sagði Dóri dind-
ill.
Þegar blóðtökunni var lokið
var glösunum lyft i seilingarhæð
og var blóðið umsvifalaust látið
renna úr þeim i hann Ata. Þegar
þeirri yfirfærslu var lokið og bú-
ið að taka græjurnar úr sam-
bandi sagði Ati:
,,Ég vil fá meira blóð”.
,,Þú færð ekki meira I þetta
skipti”, sagði Fálkanefur og
strauk honum um fölan vang-
ann. „Ef til vill færð þú annan
skammt i haust”.
„Er ég hraustur núna”,
spurði Ati.
„Alveg örugglega, það hlýtur
að vera”, sögðu prófessorarnir
einum rómi.
„Það er gott að vita það, en
mér finnst að vaxtaverkirnir
hafi aukist”, sagði Ati.
„Það er batamerki”, sagði yf-
irlæknirinn, „það á að vera svo-
leiðis”.
Nú höfðu Launarnir verið
leystir og þeim var boðið upp á
appelsinudjús til aö hressa sig
á, en þeir vildu það ekki. Þeir
voru vondir i skapinu sinu og
steyttu þeir hnefana framan i
Fálkanef.
„Við skulum finna ykkur i
fjöru þó siðar verði, þinn ljóti
fugl”.
Gengu þeir snúðugt út úr hús-
inu og dýra hurðin féll þungt að
stöfum.
LAUGAR-
ÁSBÍÓ:
GENESIS
Það er óvænt Iþvi miður)
ánægja hérlendis að eiga kost á
að sjá hljómleikamynd i þeim
gæðaflokki sem Genesis myndin
er. Ég vil þvi (ef það er ekki of
seint) hvetja alla, sem hafa á-
huga á tónlist, hverrar tegundar
sem er til að drifa sig i Laugarás-
bió til að sjá og heyra Genesis. —
Þessi stutta kvikmynd er jafn-
framt mjög skemmtilega og
smekkiega unnin og hljómur
(„sándið” fræga) er góður.
Þetta framtak forráðamanna
Laugarásbiós er vonandi upphaf-
ið á framhaldi á sömu braut.
Hljómsveitin Genesis er bresk,
stofnuð af skólastrákum, sem þá
þegar voru afkastamiklir laga-
smiðir. Þeir voru Tony Banks
(hljómborð, 12 str. gitar, f. 27.
mars 1950), Michael Rutherford
(bassi, 12 str. gitar, rafmagnssit-
ar, f. 2. okt. 1950) og Peter Gabri-
el (söngur, þverflauta, óbó, á-
sláttur (percussion), f. 13. mai
1950).
Árið 1969 gerðu þeir sina fyrstu
plötu, „From Genesis to Reve-
lation”, með trommuleikaranum
John Mayhew og gitarleikaran-
um Anthony Philips. Arið 1970
kom svo „Trespass” og þá voru
komnir I hljómsveitina trommu-
leikarinn og söngvarinn Phil Coll-
ins (f. 31. jan. 1951) og Steve Hac-
Genesis, eins og hún var skipuð 1973, þ.e. þegar Peter Gabriei (fremst-
ur á myndinni) var enn með.
et (rafmagnsgitar, nælongitar, f.
12. febr. 1950), og styrktu þeir
hljómsveitina mjög. Um þetta
leyti var Peter Gabriel farinn að
kanna leikræna tjáningu i sam-
bandi við tónlist þeirra og sviðs-
framkomu. Genesis jókst mjög
fylgi (x-G) með plötunum
„Nursery Cryme” (1971) og
„Foxtrot” (1972). Arið 1973 kom
svo platan „Selling England by
the Pound”, en lög af henni eru
uppistaðan i myndinni i Laugar-
ásbiói. Arið 1975 yfirgaf Peter
Gabriel Genesis og er myndin
tekin eftir það. Phil Collins tók við
aðalsöngvarahlutverkinu með
glæsibrag (jafnframt trommu-
leiknum), og á hljómleikunum,
sem viö sjáum i Laugarásbíói
hafa Genesis fengið trommuleik-
arann mikla Bill Bruford (Yes)
til liðs við sig. —AÞ.