Þjóðviljinn - 01.10.1978, Side 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. október 1978
Bóndinn
— Einu sinni lék Haraldur Björnsson í leiksýningu/
sem ég leikstýrði. Það var í „Nashyrningunum" eftir
lonesco. Þá sagði hann við mig: „Ég held, að þetta sé
eitthvað skemmtilegasta hlutverk, sem ég hef
nokkurn tímann leikið. Það er nefnilega í því ein
replikka, sem ég get sagt með meiri sannfæringu en
nokkru sinni fyrr. Og hún er: „ Ég er að norðan."
Texti og teikning Ingólfur Margeirsson.
Á þessari setningu byggöi
hann svo hlutverkið og bjó til
alveg dæmalausan karakter.
Þaö er þannig meö mig einnig.
Ég aldist upp viö það allan tim-
ann að vera norðlenskur.
Ættaöur úr S- og N.-Þingeyjar-
sýslu. En er fæddur og uppalinn
i Reykjavik. Ég er eitt afkvæmi
kynslóöarinnar, sem flúöi sveit-
irnar og settist aö á mölinni.
En andinn á heimili foreldra
minna var norðlenskur, og öll
viöbrögö voru aö noröan. Svo
var maður náttúrlega sendur i
sveit fyrir norðan.Svo sé litið á
málin i heild, þá var maður
hálfgeröur útlendingur i
Reykjavik. Maður tilheyröi
þessari norðlensku útlendinga-
hersveit. Ég vissi ekki aö það
væri til nein menning fyrir
sunnan, fyrr en ég var orðinn
fulloröinn maður að árum.
— 0 —
Ég hef gengið með leikhús-
drauma, siöan ég man eftir
mér. Þetta var kannski lika út
Thors. Hún spurði mig, hvað ég
hygöist fyrir i framtiðinni. Ég
svaraði einhverju og fór undan i
flæmingi. Þá sagði hún ákveðið:
,,Þú átt aö fara út i leiklist”. Og
þar með var það afráðið.
Ég ákvað að fara til Bretlands
til að nema leiklist. Ég hugsaði
með sjálfum mér, aö ef ég dygði
ekki i leikiist, þá mundi ég alla
vega læra ensku. Ég dvaldi i
Bretlandi i 3 ár. Ef einhver
spyrði mig, hvort ég hefði lært
þar mikið i leiklist, mundi ég
svara, að ég væri ennþá jafn
fjarri — eða nærri — markinu og
ég var i upphafi.
— 0 —
Þegar heim kom, byrjaði ég
að vinna hjá Iðnó. Ég var með i
einni uppsetningu.svofórég yfir
til Þjóöleikhússins, og héf verið
viðloðandi þá stofnun siðan. Ég
hef alltaf verið svo heppinn allt
mitt lif. Dottið ofan á það, sem
hagstæðast var i augnablikinu.
Það er eiginlega alveg maka-
af þvi, að i ættinni voru ýmsir
rithöfundar og leikskáld, og
manni fannst maður hluti af
ættarheildinni. En ég kemst
ekki i raunveruleg tengsl við
leiklist fyrr en i menntaskóla,
þegar ég svindlaði mér inn i
heim Thaliu. Langar þig til að
heyra frá þvi? Allt i lagi, það er
svo langt siðan, að þaö getur
varla nokkur tekið það óstinnt
upp.
Það var þannig, að þá var
fyrrverandi fjármálaráðherra,
Matthias A.Matthiesen, for-
maður leiknefndar. Hann fékk
mig til að vera með i leiknefnd,
þvi eitthvað gekk stirðlega að
safna saman fólki. Fyrsta verk-
efnið var auðvitað að velja leik-
rit, og fyrir valinu varð reyfara-
stykki, sem hét i islenskri
þýöingu „Við kertaljós”. Þegar
viö byrjuðum að leita að leik-
urum, fundust strax frábærir
leikarar i öll hlutverk. Nema
eitt. Og það reyndist alveg ó-
mögulegt að finna neinn. Svo
leið timinn. Og þetta gat ekki
haldið áfram. Við urðum að fara
að byrja að æfa. Þá bauöst ég i
allri einlægni til að lesa þetta
hlutverk, þangað til einhver
hæfur leikari fyndist. Það varð
úr og æfingar byrjuðu. Svo var
bara aldrei skipt um. En auðvit-
að hafði mig dauðlangað i hlut-
verkiö allt frá byrjun.
Þegar viö æfðum þetta leikrit,
og ég hafði i fyrsta skipti komist
i snertingu við ,,alvöru”-leik-
hús, fannst mér þetta vera það
eina sem hefði einhvern raun-
verulegan tilgang, — þótt ég
hafi kannski misst sjónar af
honum núna.
— 0 —
Eftir stúdentspróf fór ég að
vinna i Landsbankanum. Það er
eitthvaö það andlausasta starf,
sem ég hef nokkurn timann lent
i. Meö allri virðingu fyrir stofn-
uninni. Mér fannsthreint út sagt
hroöalegt að vera að dunda við
skuldir annarra allan liðlangan
daginn. Það var alveg voðalegt
að sjá ömurleikann leka af
pappirnum. Þá rann upp fyrir
mér, að draumaheimur leik-
hússins væri jafn raunhæfur og
draumaheimur peninga-
stofnunarinnar.
Svo varö það einn góöviöris-
daginn niður við Tjörn — Það
var um haust — aö ég hitti
gömlu vinkonu mina Kötu
veit,
hverju hann smalar
Benedikt
Árnason
leikstjóri
segir frá
laust. Núna, eftir öll þessi ár,
finnst mér leikhús hérlendis
ekkert öðruvisi en þau voru
áður. Jæja, þetta er nú kannski
ekki alveg satt. Það er meiri
breidd núna að visu, leikhúsið
var mikið i fæðingu þá. En það
voru — og eru — frábærir kraft-
ar sem starfa við islensk leik-
hús, og ef við erum heppin með
sýningu, gefa þær erlendum
sýningum ekkert eftir.
Og eitt hefur gerst, sem er
ánægjulegt, og það er að þroski
islenskrar leikritunar, áhuginn
og framfarir hefur verið ótrú-
legur. Áður fyrr voru sárafáir,
sem skrifuðu leikverk, og gerðu
þetta i hjáverkum og án þekk-
ingar á leikhúsi. Þetta voru
einna helst prestar og embættis-
menn, sem fannstdáldið sniðugt
aö skrifa leikrit. Nú eru betta
alvarlegir höfundar sem leggja
hart að sér við skriftirnar. Þvi,
að skrifa leikrit er ekkert
ihlaupaverk — frekar en að ná
árangri á sviði.
Ég byrjaði tiltölulega
snemma að leikstýra. Mennta-
skólinn leitaði til min i
sambandi við uppfærslur á
skólasýningum, svo æxlaðist
það einhvern veginn að ég setti
upp mina fyrstu sýningu fyrir
svið i Þjóðleikhúsinu. Það var
leikrit, sem hét „Litli kofinn” og
var frönsk kómedia. Þessu var
skellt upp i örvæntingu
leikhússins — leikrit hafði fallið
úr, og þaö þurfti að bjarga
málunum i hasti. Þannig
opnaðist leikstjórnarbrautin
skyndilega fyrir mér.
Ég hafði að visu unnið óbeint
sem aðstoðarleikstjóri hjá Ind-
riöa Waage, en þá var nú oft al-
gengt að leikarar leikstýrðu
sjálfum sér meira eða minna.
Þeir þoldu nú einu sinni illa að
fá leikstjórn frá hverjum
öðrum.
— 0 —
Ég minntist á Harald Björns-
son áðan. Það gerðist svo margt
skemmtilegt i kringum þann
mann. Einu sinni — það var
reyndar lika i „Nashyrning-
unum”, — átti hann að koma
með ákveðirí* viðbrögð. Hann
átti að segja: „Ha?”. Svo átti
hann að endurtaka þetta „ha”. -
Þegar hann hváði þarna tvisvar
á sviðinu, fannst mér hann gera
þetta vitlaust, og sagði honum,
að hann ætti að vera meira
undrandi á seinna ha-inu.
Þegar ég minntist á þetta við
hann, hallaði hann undir flatt og
horfði lengi þegjandi á mig. Svo
sagði hann: „Þú meinar altso,
að ég snúi replikkunni viö?”
Þessi litla saga segir til um,
hve viðbrögð Jeikara og leik-
stjóra hafa breyst á litlum tima.
Hjá honum var þetta spurning
um að fara rétt með setningu,
en hjá mér spurning um aö fara
rétt meö hugsun. Setning kemur
nefnilega rétt, ef hún er hugsuð
rétt.
Lif mitt hefur stjórnast af
mörgu. M.a. af alkóhóli. 1
upphafi drakk ég eins og aðrir.
Smám saman drakk ég heldur
meira en aðrir. Og að lokum
drakk ég langtum meira en
aðrir. Þá byrjaði sú spurning að
vakna: Af hverju drekkur
Jeppi? Af hverju getur maður
ekki drukkið eins og annað fólk
— stöku sinnum og sér til
ánægju? Maður drakk til að
halda i sér lifinu — hélt maður.
En auðvitað var maður að
drekka úr sér lifið. Svo allt i
einu — með aðstoð góðra
manna, kom á daginn að
drykkjan var leikur eða spil,
sem maður var sjálfur þátttak-
andi i, og að i raun og veru var
ekki nema um tvo kosti að
velja: Að lifa i heimskum heimi
brennivinsins, éða I hinum
heimska heiminum.
Ég valdi siðari kostinn, og
fann og skynjaði i alla staði,
hvað það er miklu ánægjulegra
að vakna ótimbraður, og þurfa
ekki að leita að gleðinni i
brennivinsflöskunni. Maður fær
gleðina beint inn um gluggann
hjá sér á morgnana — þótt
hávetur sé og fannstormurinn
ýlfri fyrir utan.
— 0 —
Ég held, að það þýðingar-
mesta fyrir eina leiksýningu sé,
að leikstjóri og leikari skilji
hvor annan. Leikstjórinn verður
lika að meta jafn mikið hug-
myndir leikarans og sinar eigin.
Og það — að öll vinnan við leik-
ritið renni eðlilega út frá texta
höfundar. „Impróvisasjón” og
grúppuvinna er þýðingarmikil.
Góður leikhópur þarf að vera
með lifsviðhorf, sem eru óeigin-
gjörn og samsvara sér bæöi
pólitiskt og almennt. Allir verða
að vinna sem einn maður. Svona
hópar eru þvi miður vand-
fundnir. Leikarar hér — og
annars staðar — eiga margt
eftir ólært i sambandi við
samstöðu. Ég held, að þeir eigi
þessari spurningu ósvaraðri:
„Til hvers er ég i leikhúsi?”
Eða ef viö snúum út úr klass-
iskri setningu: Leikhús er jafn-
gott og veikasti hlekkurinn.
Og hver ætlar að horfast i
augu við að vera veikasti hlekk-
urinn? Ef þú gagnrýnir leikhús
og rekstur þess, verður þú lika
að gera þér grein fyrir eigin
stöðu innan stofnunarinnar. Eöa
svo ég noti norðlenskan saman-
burö:
Bóndinn — hann veit af hverju
hann smalar.
— 0 —
Hvað mér finnst um lifið? Ætli
það sé ekki best að vitna i
Galdra-Loft. Biddu, bókin er
hérna upp á hillu. Við skulum
sjá... Hérna er ein ágæt setning:
„Ég krýp fyrir æskunni og sak-
leysinu.” Nei, nei, þetta er
náttúrlega endemis vitleysa.
Það fyndna er, að það sem þú
spyrð um, er náttúrlega
eilifðarspurningin. Hvað með
þessa setningu... Nei, hún er
óhæf. Já, ég veit ekki hvort ég á
nokkuð að vera að svara þessu.
Hvað viltu að við segjum vinur
minn? Þetta stendur nú ein-
hvers staðar hérna i bókinni. ..
Það má nota þessa stórkostlegu
setningu hér: „Ég ætti að búa
fjarri öllum mörínum,
mennirnir trufla mig”.
En þaö er nú einmitt það
ánægjulega með lifið — þessi
truflun frá mönnunum. —IM
helgarviðtaliö