Þjóðviljinn - 03.12.1978, Side 14
4 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 3. desember 1978
UOBVIUINN
Málgagn sósialisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Ctgefandi: Útgáfufélag Þjó&viljans
Framkvæmdastjóri: Eí&ur Bergmann
Bitstjórar: Arni Bergmann. Einar Karl Haraldsson
Rekstrarstjóri: Clfar Þormóösson
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson.
Afgrei&slustjóri: Filip W. Franksson
Bla&amenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Erla Sig-
uröardóttir, Guöjón Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur
Margeirsson. Magnús H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson. tþrótta-
fréttama&ur: Ingólfur Hannesson
Pingfréttamaður: Sigurður G. Tómasson
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Högnvaldsson.
Ctlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson. Sævar Guöbjörnsson
llandrita- og prófarkalestur. Bla&aprentsvakt: Andrea Jónsdóttir,
Elias Mar, Oskar Albertsson
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason.
Auglýsingar: HUnar Skarphéöinsson, Sigrlöur Hanna Sigurbjörnsdóttir
Skrifstofa: GuörUn Guövaröardóttir, Jón Asgeir Sigurðsson.
Afgreiðsla: Guðmundur Steinsson. Kristin Pétursdóítir.
Sfmavarsla: ólöf Halldórsdóttir, Sigrlður Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: SigrUn Bárðardóttir.
Húsmóðir: Jóna Sigurðardóttir.
Pökkun: Anney B Sveinsdottir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir
Ctkeyrsla: Sölvi MagnUsson, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar: SiftumUla 6.
Revkjavík, sími 81333
Prentun: Blaðaprent h.f.
Orkumálin
og framtíðin
• Um siðustu helgi flutti iðnaðarráðherra Hjör-
leifur Guttormsson ræðu á þingi Sambands is-
lenskra rafveitna. Hann ræddi þar um hina ýmsu
þætti þeirrar stefnu sem rikisstjórnin hefur sett sér
i orkumálum og beinist að þvi að koma á samtengdu
landskerfi þar sem raforka kemur að fullu gagni
óháð þvi hvar hún er framleidd og nýting umfram-
raforku verður allt önnur og betri en til þessa hefur
verið kostur. Þessi stefna beinist og að þvi að vinna
bug á ókostum hinnar miklu sundurvirkni sem við
höfum búið við i raforkuframleiðslu með 14 sjálf-
stæð fyrirtæki, stór og smá og afar mismunandi raf-
orkuverð. Og þessi stefna beinist ekki sist að þvi að
draga með virkum hætti úr þvi misrétti sem mjög
misjafnt orkuverð milli héraða og landshluta i raun
felur i sér, leitast verður við að tryggja öllum lands-
mönnum næga og örugga raforku á sambærilegu
verði.
• Þessi stefna miðar i senn að betri nýtingu okkar
kosta i orkumálum og að auknu jafnrétti og er ólik-
legt að nokkur verði til þess að gagnrýna slik
stefnumið. Iðnaðarráðherra minnti og á, að nú þeg-
ar hefur tekið til starfa nefnd sem á að leggja fram
tillögur snemma á næsta ári um það hvernig væn-
legast sé að koma á fót einu landsfyrirtæki sem
annist meginraforkuframleiðslu og raforkuflutning
og tryggi sama heildsöluverð á raforku til notenda i
öllum landshlutum. Hér er verið að stiga nauðsyn-
legt skref i anda þeirra markmiða sem sett hafa
verið, og verður fróðlegt að vita, hvort þetta starf
verður að einhverju leyti truflað af áhrifum þeirra
sem eru hallir undir vilja alþjóðlegs peningavalds
um það hvernig stjórn orkufyrirtækja skuli háttað
— en um þá hluti hafa fyrir nokkru orðið fróðlegar
deilur vegna þeirra áhrifa sem Alþjóðabankinn
getur haft á þessi mál vegna ákvæða lánasamninga
sinna við Landsvirkjun.
•. Iðnaðarráðherra minnti og á það að hafinn er á
vegum ráðuneytisins undirbúningur að áætlun
þeirri um raforkuþörf og raforkuöflun til næstu 5-10
ára sem samstarfsyfirlýsing rikisstjórnarflokk-
anna gerir ráð fyrir. Hann sagði að mótun iðnaðar-
stefnu að þvi er varðar orkufrekan atvinnurekstur
þyrfti einnig að haldast i hendur við áætlanir um
raforkuþörf horft til lengri tima, en á næstu árum er
ekki gert ráð fyrir orkufrekum iðnfyrirtækjum um-
fram það sem þegar hefur verið ráðgert og samið
um.
• Hjörleifur Guttormsson gat um hina þröngu
stöðu rikisfjármála sem nú tefur fyrir öllum meiri-
háttar umsvifum. En hann hvatti menn og til að
missa ekki sjónaraf þeim heillandi og stórbrotnu
verkefnum á sviði orkumála sem við blasa. í þvi
sambandi gat hann um ábendingar sem fram hafa
komið i skýrslu dr. Braga Árnasonar, sem sagt
hefur verið frá hér i Þjóðviljanum allitarlega,
ábendingar um „að hugsanlegt sé að við getum inn-
an ekki mjög langs tima hagnýtt orkulindir okkar til
framleiðslu á eldsneyti svo sem matthanol og vetni
og dregið þannig úr innflutningi eldsneytis til lands-
ins”. Að lokum sagði iðnaðarráðherra:
• ,,Sá margháttaði vandi sem við er að fást i
smáu og stóru i orkumálum þjóðarinnar nú, má
ekki byrgja okkur sýn til þeirra gæða er land okkar
býr yfir og fjölbreytilegra kosta til að hagnýta auð-
lindir þess á farsælan hátt. Þar gildir þó hið sama
um orkulindirnar og lifrænar auðlindir lands og
hafs, að við verðum að gæta hófs við nýtingu þeirra
og umfram allt að hafa þar fullt og ótvirætt for-
ræði.”
— áb.
Gu&mundur, Margeir og Ingvar á bekk I Buenos Aires. Konuna kann Ijósmyndari ekki aö nafngreina,
enda likast til argentínsk. Ljósm. Hól.
23. Olympíuskákmótið
Við komum
hingað til
þess að læra
Þessi grein sem hér
birtist er sú fyrsta af aII-
mörgum sem skrifaðar
voru á meðan 23. Olym-
píuskákmótið stóð.
1. umferö mótsins fór fram 26.
október strax að lokinni ein-
hverri leiöinlegustu setningar-
athöfn sem um getur i sögu
Olympiumótanna. Ekki er hægt
aö segja aö islensku keppendun-
um hafi litist á aöstæöur er til
tafls var gengiÖ. Teflt var i
tveimur sölum nálægt áhorf-
endastúku River Plate leik-
vangsins. Þaö væri dásamlegt
aö sleppa meö allar lýsingar á
þessum tveimur keppnissölum
meö setningu sem þessari: Þar
var hátt til lofts og vitt til
veggja. En þvi var bara alls
ekki aö heilsa. Þá var loftræst-
ing ekki til aö hrópa húrra fyrir.
Andstæöingar Isfands i 1. um-
ferö voru frá Alþýöulýöveldinu
Kina, en i Kina á skák vaxandi
vinsældum aö fagna og ekki
loku fyrir þaö skotiö aö á
næstu árum veröi Kinverjar
stórveldi á sviöi skákarinn-
ar: ekki þjakar þá fólksfæö
eins og islenska skákveld-'
iö. I allri framgöngu voru
Kinverjar mjög háttvisir,
komu til tafls meö stóra te-katla
og fyrirliöinn gaf i upphafi út þá
yfirlýsingu aö þeir væru hér aö-
eins til aö læra. En annaö kom á
daginn. Er upp var staöiö höföu
Kinverjar innbyrt 3 vinninga
gegn 1 vinningi okkar. Þaö hef-
ur löngum veriö siöur mörland-
1. UMFERÐ:
ans aö kvarta um óheppni þegar
illa árar og ekki ætla ég aö vik ja
út frá þeirri reglu þvi Kinverj-
arnir virtust hafa hreina gern-
inga i frammi. Guömundur var
sá eini sem tapaöi nokkurn veg-
inn veröskuldaö, en bæöi Jón og
Margeir misstu niöur unnar
stööur I tap. Sigurvegarinn I
hópnum var,,náttúrulega” und-
irritaöur, enda ekki vanur aö
láta skáeygöa flóöhesta skjóta
sér skelk i bringu svo notuö séu
orö aöal kynþáttahatarans i
sveitinni. Sem gott dæmi um
lánleysi landans gripum viö hér
niður i skák Margeirs.
Margeir — Liu
Margeir á leikinn og eins og
sjá má þarf andstæöingur hans
vart aö kemba hærurnar tveim-
ur peöum undir og staöan farin
veg allrar veraldar. Margeir
hyggst nú gera andstæöingnum
sicil á sem fljótvirkastan hátt:
23. Hc4??
(Næstum þvi allt annaö vinnur.)
23. .. Dxe2
24. Hg4
(Valdi svartur mátiö meö
hróknum kemur 25. Dd8 —
o.s.frv. En Kinverjinn lumar á
óvæntu bragöi.)
24. .. Dxf2x+
Þetta haföi Margeiri yfirsést.
Eftir 25. Hxf2 Hal+ veröur hvit-
ur mát.
Eftir 1. umferö höföu eftir-
taldar þjóöir fullt hús vinninga:
V — Þýskaland, Holland, Israel,
England. Búlgaria, Rúmenia,
Spánn, Chile, Finnland,
Kanada, Brasilia, Kólumbía,
Frakkland, Indónesia, Vene-
zúela, Argentina B.
Island var i 38 — 45. sæti meö 1
vinning.
I kvennaflokknum unnu is-
lensku stúlkurnar stöllur sinar
frá Mónakó 3:0.
Helgi ólafsson.
Jólamarkaður Félags
einstæðra foreldra
Félag Einstæöra foreldra
heldur sinn árlega jólamarkaö i
Félagsheimili Fáks I dag sunnu-
dag kl. 14.00.
Þarveröur á boöstólnum margt
góöra muna sem félagsfólk hefur
unniö, mikiö úrval af tuskudýrum
og dúkkum, barnafatnaöur, sokk-
ar og vettlingar, heklaöar gólf-
mottur, púöar og dúkar, jólatrés-
fætur og ýmislegt fleira. Sömu-
leiöis jólakort félagsins og hinir
velþekktu iþróttatreflar og húfur.
Heitar vöfflur meö eftirmiödags-
kaffinu veröa seldar á staönum,
veröi veröur mjög stilllt i hóf og
er fólk hvattt til aö koma, gera
góö kaup og styrkja veröugt mál-
efni, en allur ágóöi af sölunni
rennur I húsbyggingasjóö félags-
ins.