Þjóðviljinn - 26.08.1979, Qupperneq 19
Sunnudagur 26. ágúst 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19
Birnirnir ásamt nýja þjálfaranum.
Háskólabíó:
Birnirnir enn á ferð
Hornabolti (baseball) er afar vinsæl Iþrótt I
Bandarikjunum. Birnirnir heitir drengjaliö frá
Kalifornlu, sem á aö keppa viö Nautin frá Texas.
Ekki blæs þó byrlega fyrir þeim þvi þjálfara vantar
og þaö hefur gengiö illa aö samhæfa getu einstakra
leikmanna. Ailt fer þó vel aö lokum.
Þetta er dæmigerö Hollywoodframleiösla þar
sem slegiö er á viökvæma strengi og góömennskan
ber aö sjálfsögöu sigur úr býtum.
Gamla bíó:
Feigðarförin
Myndin á aö gerast í Suö-austur Asiu (liklega
Thailandi) þar sem ameriskum auökýfingi er rænt
af skæruliöum, I þeim tilgangi aö fá hjá honum
upplýsingar um mútuþega. Fyrrum atvinnu-
moröingjar úr Bandarikjaher, sem löngum hafa
haft hina mestu skemmtun af manndrápum, eru
fengnir til aö hafa uppi á mannræningjunum gegn
hæfilegri þróknun.
Svo viröist sem meiningin sé aö gera mynd um
valdabaráttu og pólitiska spillingu, en útkoman
veröur enn einn viöbjóöurinn þar sem áhorfandan-
um er ætlaö aö hafa gaman af blóösúthellingum og
hrottaskap.
Nýja bió:
Á krossgötum
Þessi mynd er af gamla Hollywoodskólanum sam-
kvæmt umsögn Shirley MacLaine, og erfitt er að
bera á móti þvi þar sem hún er rómantisk i meira
lagi. Efniviöurinn er tilfinningasveiflur (og átök)
gamalla vinkvenna (Anne Bancroft og Shirley
MacLaine) sem hafa valið sitthvort viðfangsefniö i
lifinu, önnur helgað sig listinni, hin fjölskyldunni.
Endurfundir þeirra verða til þess að gamlar efa-
semdir rifjast upp.
Háskólabíó (mánudagsmynd):
Eins dauði er annars brauð
(L’une chante, l’autre pas)
Frönsk frá 1976
Leikstjóri: Agnes Varda
Um þessa mynd hefur Agnes Varda sagt: „Þetta
HJi«■ ■ ■ ■ fa ■ ■ ■ ■ ■ i IM B ■ I
í rósa
er konumynd, en þó fyrst og fremst ástriöufull
mynd, sem fjallar um ást og kærleika meöal fólks,
milli karla, kvenna, barna og vina”.
Stjörnubíó:
Varnirnar rofna
Innrás Bandamanna i Normandi 1944 hefur löng-
um verið vinsælt efni i kvikmynd. Þessi mynd er
hvorki verri né betri en margar aðrar um svipað
efni. Þó er hún kannski frábrugðin að þvi leyti, aö
hún fylgir ekki gömlu forskriftinni um hetjulund
Bandamanna og illmennsku nasista, þvi nú er búiö
að flokka Þjóöverjana i vonda og góöa.
Margir ágætir leikarar koma fram i þessari
mynd, en engir þeirra sýna áberandi tilþrif i hlut-
verkum sínum.
Regnboginn:
Rio Lobo
Leikstjóri: Howard Hawks
Varla er hægt að hugsa sér betri upplyftingu fyrir
kvikmyndaunnendur en góða kúrekamynd. Þaö
verður enginn svikinn af þvi aö bregöa sér i B-sal
Regnbogans þessa dagana — nema þá þeir sem yf-
irhöfuð kunna ekki að meta slikar myndir.
Þetta er atburöarik mynd og bráðskemmtileg.
Howard Kawks er löngu kunnur fyrir gerö margra
ágætra vestra og John heitinn Wayne stendur fyrir
sinu i aðalhlutverki myndarinnar.
Kvikmyndamenning Bandarikjamanna byggir
ekki hvað sist á gerö kúrekamynda og Rio Lobomá
hiklaust flokka meö þeim betri af þeirri tegundinni.
Regnboginn:
Hjartarbaninn
(The Deer Hunter)
Leikstjóri: Michael Cimino.
Þessi viöfræga og umdeilda öskarsverölauna-
mynd er aö mörgu leyti mjög vel gerö og leikurinn
er frábær. En sú mynd, sem hún dregur upp af
striðinu i Vietnam, er ekkert annaö en lymskulegur
áróöur, þvi aö Víetnamarnir eru sýndir sem fantar
og illmenni, en aftur á móti er látiö aö þvi liggja, aö
Bandarikjamenn hafi litinn sem engan þátt átt i
þeim hrottaskap og þeirri spillingu, sem þar viö-
gekkst á þeim tima, — heldur hafi þeir aöeins veriö
leiksoppar örlaganna.
■ miMiimiinm
i rosa
/
Hreinlætisstefnan
Þegar svo Þjóðverjarnir
byrjuöu aö reisa landiö viö
eftir eyöileggingu striösins þá
bönnuöu þeir kommúnista-
fiokkinn. Þeir eru svo katt-
þrifnir Þjóöverjarnir, aö þeir
vilja ekki óþrif, hvorki
á likama sinum eöa sál.
Morgunblaöiö
Dans á rósum
Þeir sem þjást af diskófæti
kvarta einkum undan
kveljandi sársauka i fótum og
leggjum auk þess sem þeim er
gjarnt á aö fá likþorn og fót-
sigg. Diskófóturinn getur auö-
veldlega leitt til tognana,
smávægilegra brákana og
bólgna, og eitt einkenni hans
eru vöövastyttingar i kálf-
vööva.
Morgunblaöiö
lllur aðbúnaður
loftfimleikamanna
Sumir popparar hafa gengiö
svo langt aö reyna fyrir sér gömlu
trixin, það er aö segja hanga I
loftbitum og ljósakrónum. Þvi
miður er árangur ekki samkvæmt
erfiöi enda illa búið aö þessari
stétt.
Lesendabréf i Dagblaðinu
Það hlaut
líka að vera!
Einnig slæddist inn villa i miöju
viötali, þar sem Þorgils talar um
þá stjórnmálamenn, sem hann
hafi mest gaman af aö hlusta á.
Nefndi hann þar fyrst nafn Ólafs
Thors, en ekki Ólafs B. Thors,
eins og misritaöist I blaöinu.
Morgunblaöiö
Bjargvættirnir
Islenska þjóöin þarf aö eiga
bjarg sem Framsóknarflokkinn.
Slikt bjarg er eitt liklegt til aö
varðveita islenskt lýöræöi um
aldir.
Tlminn
Forsetakjöriið enn
Athugasemd vegna reimleika á
Bessastööum.
Fyrirsögn i Morgunblaöinu
Siðbúin uppljóstrun
Þessar ungu sundkonur voru
meöal helstu sunddrottninga á
árunum kringum 1950. Ólafur K.
Magnússon ljósmyndari Mbl. tók
þær áriö 1948 eða 1949.
Myndartexti i Morgunblaöinu
Mannfræði í dýraríkinu
„Ekki ómannúölegra en aö
skjóta fugl” segir Þóröur
Ásgeirsson forseti Alþjóöa hval-
veiöiráðsins.
Timinn
Yfirburðir
hvíta kynstofnsins
Fáklæddur svertingi á bæn á
tindi Mount Kenya þegar þrekaöa
Breta bar þar aö.
Fyrirsögn I Morgunblaöinu
Hinn fullkomni glæpur
A sunnudagsmorguninn uröu
menn varir viö þaö aö brotizt
haföi veriö inn i Hallgrimskirkju
þá um nóttina. Kom i ljós aö sam-
skotabaukur kirkjunnar haföi
veriö brotinn upp og höföu þjóf-
arnir á brott meö sér allt fé sem I
bauknum var en af skiljanlegum
ástæöum veit enginn hve mikla
peninga baukurinn haföi aö
geyma þegar hann var brotinn
upp.
Morgunblaöið
Loðnurallýið hafið
10-12 loönubátar sakaöir um aö
hafa þjófstartaö.
Fyrirsögn I Visi'
Austur-Þjóðverjar?
3. hvert barn i V-Berlin er
útlendingur.
Visir
Bifæfnir bjartsýnismenn
Stálu 5 kössum af sól-
gleraugum.
Fyrirsögn i Dagblaöinu
Sendið okkur snjallan texta við þessa mynd og merkið
utaná umslagið: ,,Myndartexti óskast" — Sunnudags-
blaðið, Þjóðviljinn, Síðumúla 6, Reykjavík. Og sendið
okkur svörin sem allra fyrst.
Við þökkum allar lausnir sem okkur hafa borist. Eftir-
farandi texti hlaut mesta náð fyrir augum dómnefndar:
„Nú ætla þeir að fara að efla Tímann" Svarið var
merkt: Erlendur Steinþórsson, Egilsstöðum.
Hannes Guðmundsson sendi þennan:
„Nei, nei, þetta er enginn brandari. Albert er að hugsa
um að ganga i Fylkinguna."
Og þessi lausn kom frá Jóninu:
„Þú áttir að kaupa Kósangas, en ekki hláturgas!"