Þjóðviljinn - 28.11.1979, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 28.11.1979, Blaðsíða 1
WÐVIIIINN Miðvikudagur 28. nóvember 1979—260. tbl. 44. árg. Munið baráttufundinn í Háskólabíói annaðkvöld kl. 21 G-listinn í Reykjavík Sjá síðu 14 Lúðvík Jósepsson formaður Alþýðubandalagsins Með atkvæði sínu er fólk að ákveða kjörin Laimamenn verða að gera sér ljóst að það er ekki hægt að halda uppi launakröfum í stéttarfélögum og kjósa samtímis kauplækkunarflokka „í kosningunum um helgina verður tekist á um launakjör almennings", segir Lúðvík Jósepsson formaður Alþýðubanda- lagsins í viðtali sem birt verður í heild í blaðinu á morgun. „ Ég dreg það ekki í efa af margra ára reynslu að launamenn telja sig síst ofhaldna af sínum launum og kaupmætti launanna. Þar gildir einu hvort um er að ræða verka- menn, í fiski eða baéjar- vinnu, iðnaðarmenn, iðn- verkafólk, skrifstofufólk, kennara eða aðra starfs- menn," segir Lúðvík enn- f remur. Verjumst í kosningunum „Þetta fólk gerir allt kröfu um þaö i stéttarfélögum sinum að það fái haldið launakjörum sin- um og i félögunum er allt þetta fólk reiðubúið til þess að hefja verkfall til að verja kaup- mátt launanna. En getur það þá verið að stór hluti þessa sama launafólks láti blekkjast svo i átökunum að það gangi að kjörborðinu og kjósi þá flokka sem hafa það að yfirlýstri stefnu að skera niður kaupið? Það væri i rauninni mikið ábyrgðarleysi ef launamenn við þessar aðstæður kysu yfir sig ihaldsstjórn kauplækkunar- flokka, en gerður siðar kröfu til þess rétt á eftir að stéttarfélögin snúist til varnar. Launamenn verða að gera sér ljóst að það er ekki hægt að halda uppi launa- kröfum i stéttarfélögum en kjósa samtimis kauplækkunarflokka til alþingis. Slikur tviskinnungur mundi leiða yfir þjóðina hörð og mikil átök og margvislegar hætt- ur. Það er fráleitt að skilja milli kjaramálanna og stjórnmálanna. Meö atkvæði sinu er fólk að ákveða kjörin.” Leið Alþýðubandalagsins Lúðvik Jósepsson gerir einnig grein fyrir þvi að til þess að ráða niðurlögum verðbólgu séu aðeins til tvær leiðir. Þar eigi hið sama við hér á landi og alls staðar annarsstaöar: Annars vegar að gripa til róttækra samdráttar- og kauplækkunaraðgerða sem venjulega fylgir atvinnuleysi og Lúðvik Jósepsson: Deilurnar um lausn verðbólguvandans eru þær sömu og annarsstaðar og fylkingar skiptast á svipaðan hátt. hinsvegar að vinna sig fram úr vandanum með aukinni fram- leiðslu og framleiðni, ströngu að- haldi og sparnaði. „Deilurnar hér á landi eru i þessum efnum þær sömu og annarsstaðar”, segir Lúðvik, „og fylkingar skiptast með svipuðum hætti i grund- vallaratriðum. Hér á landi birtast meginfylkingar þessar annars vegar i Alþýðubandalaginu, en hinsvegar i Sjálfstæðisflokknum. Þegar fjallað er um þessi mál kemur svo i ljós að aðeins stigs- munur er á tillögum Alþýðuflokks i þessum efnum annars vegar og Sjálfstæðisflokksins hinsvegar.” ÍSAL gefur falskar upp- lýsingar: Kostnaðurinn við að halda áfram taprekstri Alusuisse á breska markaðinum var borinn af dótturfyrir tækjum okkar á lslandi og i Noregi sagði Mayer i ræðu. Mayer forstjóri Alusuisse upplýs- ir aö Ragnar Halldórsson for- stjóri tsals hefur komist upp með stórlygar. Gróði af álverinu borgar tap Alusuisse í Bretlandi • Taprekstur svissneska álfélagsins ALUSUISSE á ál- verksmiðjum í Breflandi á undanförnum árum hefur verið borinn uppi af hagnaði álverksmiðjunnar í Straumsvík og álverksmiðju ALUSUISSE i Noregi. • Niðurgreiðslurnar til verksmiðjanna í Bretlandi nema tugum miljóna svissneskra franka, en hafa verið bókfærðar sem taprekstur hérlendis og í Noregi. Stór- felld skattsvik og stórfalsanir skrifast á reikning for- ráðamanna ISALS á islandi. Þessar upplýsingar koma fram I ársræðu stjórnarformanns ALUSUISSE, Mr. Emanuels R. Meyers, sem hann hélt með hlut- höfum félagsins 1977 og 1978. I ræðu sinni sem Mr. Meyer hélt á aðalfundi þ. 20. april 1977, sagöi hann ma.: „Bæði i Frakklandiog i Bretlandi.... gengu viðskiptin betur en 1975. Engu að siður mættum við erfiðleikum i báðum þessum löndum vegna verðstöðv- unar stjórnvalda. Við neyddumst til að selja undir kostnaðarverði i alllangan tima, og einkum i Bret- landi. Attum við að þola þetta tap sem nam tugum miljóna (franka) eða áttum við að hætta við breska markaðinn? Við ákváðum að þrauka. Kostnaðurinn var borinn af dótturfyrirtækjum okkar á islandi og í Noregi, en cndanlega færður af ALUSUISSE i formi hárra greiðslna sem rekstrar- tap.” t ársræðu sinni til hluthafa 19. april 1978 sagöi sami stjórnarfor- maður: „Bæði bræðsluver okkar á Norðurlöndum hafa gengið án vandkvæða. Nýting álversins i Noregi er 90% en á islandi 97%. Bæði verin eru rekin með gróða.” Þessar upplýsingar stangast mjög á við orð forstjóra ISAL en hann segir i grein i Morgunblað- inu þ. 17. nóvember s.l.: „Slðasti aðilinn, sem hérna á hagsmuna að gæta, þ.e.a.s. eig- endur fyrirtækisins, hinn útlendi aðili Alusuisse, hefur hins vegar ekki farið vel út úr þessum rekstri það sem af er. tSAL hefur ekki getað greittarð til þessa, þar sem reksturinn hefur barizt i bökkum, stundum verið verulegt tap eða I bezta falli að reksturinn hefur staðið i járnum.” Samkv, ársskýrslu ÍSAL fyrir árið 1977 var hagnaðurinn 338 miljónir króna af 16 miljarða króna veltu, en samkvæmt árs- skýrslu fyrir árið 1978 var hagn- aðurinn 543 miljónir af 23 mil- jarða króna veltu, en það árið borgaði ÍSAL 416 miljónir króna i skatta. Upplýsingar stjórnarfor- manns ALUSUISSE gefa hins vegar til kynna að hagnaðurinn hafi verið mun hærri og er þvi um stórfelld skattsvik að ræöa hér- lendis af hálfu Alfélagsins, auk þess sem reynt hefur verið að fela þá staðreynd að hið lága orkuverö hér skapar auðfélaginu ofsa- gróöa. -im • Millifærslur bókfœrðar sem rekstrartap hérlendis Stórfelld skattsvik ÍSALS til margra ára

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.