Þjóðviljinn - 28.11.1979, Side 9

Þjóðviljinn - 28.11.1979, Side 9
MiOvikudagur 28. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Ámi Indriðason, sagnfræðingur og handknattleiksmaður, i 17. sæti á lista Aiþýðubandalagsins i Reykjavik: Alþýðubandalagið er eini raunhæfi valkosturinn gegn o o íhaldsstefnunni Arni Indriöason: Sósialistar ættu að beita sér meira I félagslegu starfi innan iþróttahreyfingarinnar. „Ég hef trú á þvi að Alþýðu- bandalagið geti og eigi að taka forystuna i því sem við köllum i- þróttapólitik og þvi fyrr þvi betra,” sagði Árni Indriðason, hinn þekkti handknattleiksmaður i viðtali við Þjv. fyrir skömmu. Hann er sagnfræðingur að mennt og kennir við Menntaskólann i Reykjavik. Arni er kvæntur Kristinu Klöru Einarsdóttur og eiga þau tvö börn, Einar Baldvin og Eriu Kristinu. Viðhorfin hafa breyst Arni, nokkra athygli vakti i haust að þú lýstir þvi yfir aö þú værir hættur að leika með islenska handboltaiandsliðinu. Hvað olli þeirri yfirlýsingu? — Þetta er fyrst og fremst spurning að hafa tima til þess að sinna þessu. Viðhorfin hjá mér hafa breyst mikið frá þvi ég lauk námi og hóf kennslu og hef ég þurft i æ ríkara mæli að taka með mér heim verkefni til þess að vinna að. Þann tima sem i það ó- hjákvæmilega fer gat ég ekki tak- markað meira með þvi að æfa og leika með landsliðinu ásamt þvi að spila með Vikingi. — Hinu er heldur ekki að leyna að mér finnst nú vera rétti timinn til þess að byggja landsliðið upp frá grunni, hleypa ungu strákun- um að. Það verður heimsmeist- arakeppni 1982 og þátttaka þar krefst mikils og markviss undir- búnings. Boltinn á uppleið Hvenær vaknaði áhugi þinn á þátttöku í keppnisiþróttum? — Ætli ég hafi ekki verið 12 til 13 ára. Sfðan lá leiðin i KR og þar æfði ég og keppti til 19 ára aldurs, en þá fór ég yfir i Gróttu. Hvernig stóð á þvi? — Þetta var nú einfaldlega inn- anhússvandamál hjá KR og það hafði þær afleiðingar að 12 strák- ar fóru yfir i Þrótt og aðrir 12 yfir i Gróttu. Þar stofnuðum við karladeild i handboltanum og vorum komnir upp i 1. deild eftir 2 ár. Arin 1975—1977 lékum við i 1. deildinni og þvi næst lá leið min yfir i Viking þvi mig langaði til þess að leika með toppliði þar sem valinn maður var i hverju rúmi. Minn fyrsta landsleik lék ég gegn Austur-Þjóðverjum 1974 og skoraði 2 mörk. Eftir það hef ég ekki misst úr marga landsleiki þvi það vill oft verða erfiðara að detta út heldur en að komast inn. Finnst þér að handboltinn sé betri nú en áður? — það er alveg ljóst að hand- boltinn hér innanlands er nú á uppleið. Það eru greinilegar framfarir, en þær ganga ekki jafnt yfir alla. — Það var mikill uppgangur i- þróttarinnar uppúr 1970. Hand- boltinn þá var mjög spennandi, skemmtileg lið og einstaklingar og góðir þjálfarar, á þeirra tima mælikvarða, störfuðu. En það kom siðan hálfgerð stöðnun i þetta, framfarirnar urðu ekki nægilega miklar og við misstum marga góða leikmenn úr landi. Eftir nokkur slæm ár fór að rofa til með komu Janusar Czer- winsky og siðar Bogdan, þjálfara okkar Vikinganna. Reyndar var byrjað á öfugum enda þegar Jan- us var fenginn hingað, þvi hann þurfti að glima við kennslu undir- stöðuatriða i landsliði grunnþjálf- unar sem félagsþjálfararnir hefðu átt að vera búnir að fást við. Það er min spá, að á næstu árum muni flest ef ekki öll 1. deildarliöin hafa hjá ser erlendan þjálfara. Vantar heildarstefnu Nú er mikið rætt um erfiðleika iþróttafélaganna við fjármögnun starfsemi sinnar. — Já það er dýrt að reka góð fé- lög. Það þarf að borga þjálfurum allra flokka laun, leigja hús osfrv. Fjáröflunarleiðirnar eru enn nokkuð frumstæðar og e.t.v. er það framtiðin að hvert félag ráði launaðan fjáröflunarstjóra. Það er ljóst að eitthvað verður að ger- ast i þessum málum þvi álagið á stjórnendum og keppnismönnum félaganna er gifurlega mikið. Ég er t.a.m. á æfingum meira og minna á hverjum degi og þá 2-3 tima i senn. Svonalagað gengur ekki til lengdar, en er hægt i örfá ár, meðan menn sjá árangur, en ég á erfitt með að sjá framhaldið. Hvað með stuðning rikisvalds- ins við iþróttahreyfinguna? — Ef við miðum við t.d. Skandi- naviu þá er greinilegt að hér vantar alla heildarstefnu i þvi sem við getum kallað iþróttapóli- tik. Það eru tugir þúsunda sem stunda iþróttir sér til ánægju og hollustu, en framkvæmdavaldið vill greinilega sem minnst vita af þessu. Stjórnmálaflokkarnir harðsjóða e.t.v. almennt orðaðar klásúlur i stefnuskrár sinar um i- þróttir, en ekkert verður sióan úr raunhæfum framkvæmdum. Stefnuleysið i þessum málum hér á landi sést einna gleggst i sam- bandi við byggingu iþróttaman- virkja. Þar er eingöngu um að ræða handahófsaðgerðir. Flokkarnir standa sig ekki Hverjar eru þá iuhiii úrbæt- urnar sem þyrfti að gera i iþróttapólitíkinni? — Það er ákaflega margt sem kemur til greina. Fyrst og fremst þyrftu iþróttirnar að verða að umræðuefni i samfloti með lands- málapólitikinni. Þá vona ég að á- kveðinn þrýstingur komi frá i- þróttamönnunum sjáfum og for- ystumönnum i samtökum þejrra. Það má t.d. nefna að til okkar sem stöndum i fremstu viglinu handknattleiksmanna eru gerðar miklar kröfur um góðan árangur, enda eigum við góöa möguleika á að standa öðrum þjóðum fylli- lega á sporði, en það er nánast ekkert gert til þess að aðstoða okkur. Þessu verður hreinlega að breyta. Hvernig hefur Alþýðubanda- lagið staðið sig i þessum málum miöaö við aðra stjórnmála- flokka? — Það sker sig i rauninni ekkert úr. Það rikir algjört stefnuleysi alls staðar. Reyndar er það nú þannig, að á milli stjórnmála- flokka þarf ekki að vera rigur i grundvallaratriöum i iþróttapóli- tikinni. Alþýðubandalagið hefur alla möguleika til þess að ryðja veginn, getur tekið forystuna i þessum málaflokki eins og i skólamálum, dagvistunarmálum o.fl. málaflokkum. Alþýðubanda- lagið getur markað skynsamlega stefnu fyrst stjórnmálaflokka og þvi fyrr þvi betra. Hafa vinstri menn verið nógu virkir i félagslegu starfi fþrótta- hreyfingarinnar? — Þeir hafa alla vega ekki verið áberandi meðal forystumanna. En ég hef ekki orðið var við að af- staða manna til meginatriða i- þróttapólitikur fari eftir stjórn- málaskoðunum þeirra að öðru leyti Hitt er annað mál að sósialistar ættu að beita sér meira i félags- legu starfi innan iþróttahreyfing- arinnar en hingað til. Höldum sókninni áfram — Hvað finnst þér um ástandið i hinni almennu landsmálapólitik i dag? — Ég held að við séum að ganga i gegnum svipað gerjunarskeið i pólitikinni og á árunum 1940 til 1942. Þetta á e.t.v. eftir að birtast i þvi að flokkarnir koma sér ekki saman vegna þess að þeir eiga erfitt með að átta sig á breyttum innbyrðis styrkleikahlutföllum. Það getur þannig orðið rótleysi næstu 2 árin. Ég á jafnvel von á þvi að ekki takist að mynda starf- hæfa rikisstjórn að afloknum þessum kosningum og að kosið verði tvisvar á næsta ári vegna væntanlegra stjórnarskrárbreyt- inga. Hver finnst þér að sé staða Al- þýðubandalagsins i kosningabar- áttunni nú? — íhaldið tók visst frumkvæði i slagnum með þvi að birta stefnu sina, hina margfrægu leiftursókn. Þannig riður á að Alþýðubanda- lagið nái að kynna sina stefnu til mótvægis, en það hefur ekki tek- ist alveg nógu vel hingað til. Skoðanakannanir benda til þess að mjög stór hluti kjósenda sé enn óákveðinn. Til þessa fólks þarf Alþýðubandalagið að ná og það er best með þvi að kynna stefnu þess sem er auðvitað eini raunhæfi valkosturinn gegn ihaldsstefn- unni. Það má ekki koma fyrir aö sókn Alþýðubandalagsins i siðusti kosningum linist. Við látum okk- ur ekki nægja hin gömlu 17% sem flokkurinn hafði löngum. Að lokum, Arni, hvernig leggst barátta næstu daga i þig? — Nokkuð vel. Það skiptir öllu máli fyrir Alþýðubandalagið að ná til óákveðna hópsins sem ég minntist á áðan. Stefna Alþýöu- bandalagsins i iandsmálapólitik- inni er það traustvekjandi að hún á að skila sér i auknu fylgi og sóknin haldi þannig áfram. — IngH Arni i stellingum sem flestir handboltaáhugamenn kannast viö. Hér svifur hann glæsilega inn I vita- teiginn og skorar i landsleik gegn Bandarikjamönnum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.