Þjóðviljinn - 11.10.1980, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 11.10.1980, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 11.—12. október 1980 Árni Bergmann skrifar bókmennttir Einar Már Guftmundssoni Sendisveinninn er einmana. Er nokkur i kórónafötum hér inni? Galleri Sufturgata 7. Einar Már segist vilja spegla feröalag sinnar kynslóöar. Nátturan hefur ekki sýnt honum hnjákollana, enda er hún hvergi ná- læg i bðkum hans frekar en hjá fúturist- unum rússnesku meðan þeir voru og hétu. Hann er skyldur þeim á eölilegan hátt, við skulum ekki vera meö neinar dylgjur um stælingar og áhrif. Heimurinn er kalt her- Ég hefi barist það kemur fyrir oftar en einu sinni eða tvisvar að blandað er af gáleysi i deigiö, út- spilunarsemin verður skratti frek. Vitundarstreymið kannski röfli mengaö. Eöa tökum til dæmis málfariö. Það er fullt meö aðskotadýr. Eins og mál kynslóðar- innar, gætu menn sagt. Á ferðalagi hennar greiöir þú ekki lokka við Galtará. Það er rétt. En hvað gerir maður? Einn og sami náttúrurfræðikennarinn „fittar bara flott inni móralinn” og þrem iinum siðar er „hjarta hans hernumið svæði tilfinninga”. Eitthvað er hæpiö við þetta. I „Sendisveininum” er lika talað um dauflega og áhættulausa tilveru, smáborgaralega eins og hún er einatt köll- uö. í þeim textum bregður fyrir gamal- kunnum fariseahætti anarkistans, komm- ans, utangarðsmannsins: ég þakka þér að ég er ekki eins og þessir aumu smá- borgarar: þift voruð hlekkjuö viö húsgögnin og þegar djúpstæftar tilfinningar kynt'ekki lengur undir innhverfum samræftum var veftriö tilvalift viftfangsefni svo hlutlaust yfir filtergulri öskunni... við drekana bergi með brotnum rúðum, ælupollur á gólfinu „speglar heim sem hrundi eins og vonir þinar”. Þar sitja pönkarar og blása reyk framan i Beethoven og Kafka. Hér er engin miskunn gefin fremur en hjá þeim sem kölluðu stefnuskrá sina ..Almennum smekk gefið á kjaftinn”. t „Uppskrift” segir: skreytift veggina flatlús og brundiö i blómsturpottana... Samt skyldu menn ekki halda að þessir striðu hljómar séu merki um glaðklakka- lega sjálfumgleöi myndbrjótanna. Það kver sem nú var vitnað til, beint og óbeint, „Sendisveinninn er einmana”, geymir brot úr ferðalagi kynslóðar rauöu kver- anna, ögrana viö kerfið, nýrrar ruglandi skilningarvitanna, en ekki sjálfshafningu hennar: örlitift þreyttur á frösunum á stafthæfingum þínum sem reynast ávallt réttar I einrúmi á reyksvældu þunglyndu fundunum örlitift þreyttur á sjálfum þér þriggja binda útgáfum af atburðum og fólkinu sem skilur ekki orft... segir i „Sósialismi i einu herbergi”. Sjálfsgagnrýnin fræga er strax orðin grimm i sjálfu heiti textans, sem skirskotar til stalinismans: sósialismi i einu landi... Það er ýmislegt gott að segja um þetta „öngþveiti þar sem stöðumælar sögunnar veifa leirtöflum”. Eins og i þessari setn- ingu sem spennir tak sitt um timann allt til Móse á Sinaifjalli, vakir yfir vötnum hamslaus áhugi á að mala saman milli hjóla heilans allar korntegundir sem tungan hefur fundið, höndin hefur snert. Baksturinn lofar góðu, takk fyrir. Nema Einar Már á sér þó þá réttlætningu, að hann er kannski miskunnarlausari við sitt fólk en „hina”. Og ekkert gerir hann leiöin- lega. Hitt kverið, „Er nokkur i kórónafötum", kemur út samtimis þvi sem fyrr var nefnt og má nærri geta að hugblær þeirra er skyldur. En textarnir eru allir knappari og um margthnitmiðaftri, þeir eru skemmtileg tilraun til að flá allt mas utan af einfaldri mynd, samþjöppuðum kjarna. Tökum til dæmis fjögur örstutt ástarljóð úr miðju kveri. Hann æpir eins og Kristur á kross- inum: hvihefurðuyfirgefiðmig. Hún segir: ég held við eigum ekki nógu vel saman. Svona má efla harma með þvi aö velta þeim um koll með flötum frasa. Ljóð nr. tvö: eftir ca 2000 ár þegar fornleifafræö- ingar finna bein okkar getum viö e.t.v. elskast á þjóöminjasafninu. Ljóö nr. 4? umferðarmenningin og ástin: varir þinar eru rauöar eins og götuljósin en ég get Einar Már Guftmundsson. stoppað við þau gatnamót. Og svo þetta ástarkvæði hér, sem eins og hin fyrstu tvö tengir hversdagslega staðreynd borgarlifs við sameignarminni úr sögunni, við galdur timans: þó rúbikonfljótin væru þurr þó ég gæti tekift strætó heim til þin kom ég sá ég og tapafti. Þetta kver hefst reyndar á svofelldri æðrulausri staðhæfingu um takmarkanir skáldskapar á vorum dögum: væri ég bilaft sjónvarp mundi ég örugglega valda frekari truflunum i lifi ykkar. í viðtali á dögunum sagði Einar Már að ljóðagerð nú á dögum lenti i þvi samhengi „þar sem hin gömlu mörk hámenningar og lágmenningar eru fyrir bi.” Sjálfur veit hann af sér þar, svo mikið er vist. En hitt er meira en liklegt að menn þurfi nokkur kynni af „hámenningu” til að geta kyngt þeirri blöndu sem hann hefur bruggað i tveim fyrstu bókum sinum. Aðrir munu varla reyna að súpa á, hvaö þá meir. Arni Bergmann. Nokkur orð um leikritið Snjór eftir Kjartan Ragnarsson Þessi hábölvaði og margblessaði eilífðarvandi... Erlingur Gislason og Briet Héftinsdóttir I snjó. AAér sýndist að gagn- rýnendur væru furðu fúl- lyndir i garð leikrits eftir Kjartan Ragnarsson, Snjór, sem kom fyrst verkefna á fjalirnar í Þjóðleikhúsinu i haust. Eða sú verður niður- staðan þegar maður gengur sjálf ur inn i salinn og sér hvað út kemur þegar höfundur Týndrar teskeiðar, þar sem skammt var á milli ærsla og grimmrar alvöru, snýr sér alfarið að alvörunni. Nú eru ýmsar þær neikvaéðar athugasemdir sem heyrst hafa um þennan leik ofur skiljan- legar. Má vel vera aö snjórinn, sem hangir í fjallinu fyrir ofan pláss og fólk, sem er I návist dauftans, sé of fyrirferðarmikil, of frek táknmynd. Þaö er lika hægtað taka undir það, að iindir lokin hefur höfundurinn hert svo þau reipi sem hann snýr um persónur sinar, aö honum reynist um megn að leysa hnút- ana meö þeim hætti að við sann- færumst i anda hinnar gömlu raunsæisformúlu sem segir: svona hlaut það að vera. Veröa þær minútur erfiðar leikurum — sem áhorfanda. En það er margt vel um þetta leikrit. Og þá skulum við ekki nema staðar við sjálfsagða hluti eins og þá að Kjartan Ragnars- soner kunnáttumaður og þekkir sitt fólk og kann að spinna þvi feril og láta það tala og hafa tök á þvi innan þröngs hrings, sem þó er ekki lokaður heldur liggja Kjartan Ragnarsson: á timum þegar enginn þorir aft iáta sjást að hann finni til frá honum straumar um viðan heim. Megininntak verksins eru átök um tvennskonar lifsskiln- ing og eiga tilbrigftin sér erind- reka I tveim mönnum, tveim læknum, sem mætast við þær aðstæður þegar líklegt er að menn opnist, sýni einnig sumt af þvi sem menn annars ekki viöurkenna einu sinni fyrir sjálfum sér. Þaft er spurt hvers virði sigrar manna eru i starfi og einkalifi, hvaða verði þeir eru keyptir, hvernig ósigri er tekið. Og þaft er spurt um þaö, hvað getur stutt okkur til að halda höfði andspænis dauðan- um. Endanlega er kannski fyrst og fremst spurt um mannlega reisn andspænis þvi óumflýjan- lega. Á hættusvæði Það er ljóst að höfundur sem - hættir sér inn á þessa braut er staddur á hættusvæöi. Hann er kominn beint að hinum stærstu málum: það er spurt eilifðar- spurninga um tilgang og meðul og guð er ekki langt undan. Kappræða á sviði um þessa hluti getur oröið þunglamaleg og mjög almenns eðlis, og þaö eru ótal draugar úr bókmenntum allra alda að flækjast fyrir, þvi eins og sagt er: Um fiest hefur verið skrifað og um margt vel. En Kjartan Ragnarsson sýnir ekki aðeins góðan kjark með þvi að ráðast i þessa eiliföarglimu, heldur og árangur sem vert er að bera virðingu fyrir. Tveir læknar sitja einir að uggvæn- legu tafli; kannski er annar þeirra að myröa hinn. Kannski er sjálfur grunurinn um morð- tilraunina lifshættulegur. Tal þeirra er ekki „aimennara” en búast má við i þessu andrúms- lofti þegar fugl dauðans vælir útifyrir og bleikur hestur stappar niöur fótum. Þaö reynist að sönnu erfitt að kom- ast niður á eitthvað sem er verulega nýtt og óvænt f þeirri eilifðarglimu sem þessir menn heyja. En hún er með hagleik og skynsemi þrædd inn i okkar heim og þar með færð i næstu nánd. Og hún er skerpt meö þeirri heift ástar og afbrýði sem gerir átökin beinlinis likamlega áþreifanleg. Á móti straumi í leikskrá er leikhúsdags- ávarp Þorsteins ö. Steph- ensens, þar sem hann talar um þaö „tæknivædda kaldlyndi” sem meðal annars leiði til þess að „enginn þorir lengur að láta sjást að hann finni til”. Þaö er nefnilega það. A töffaratimum þegar tilfinningamál eru af- greidd sem væmni og hinar stærstu spurningar sem klisjur, þá sýnir Kjartan Ragnarsson þá dirfsku aö tala um kærleika og bræðralag manna! Það væri synd að segja að hann bærist með straumnum. Sú glima sem Kjartan Ragn- arsson efnir til i Snjór er gildur þáttur þess siðferðilega metn- aðar i listum sem við megum illa án vera. Arni Bergmann

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.