Þjóðviljinn - 11.10.1980, Side 24

Þjóðviljinn - 11.10.1980, Side 24
 t - » 1 ' «1 I 24 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 11,—12. október 1980. Ætt Sveins Sveinn Nielsson (1801-1881 > var lengst af prórastur á Staða- staö og talinn i fremstu röö kennimanna á sinni tiö. Af Sveini er komiö geysimargt nafnkunnra manna, og má þar nefna aö Hallgrimur Sveinsson biskup var sonur hans og Sveinn Björnsson, forseti tsiands, dóttursonur hans. t þessum þætti veröa þó einungis taldir upp afkomendur Sigriöar dóttur hans sem gift var Nielsi Ey- jólfssyni bónda á Grimsstööum i Mýrasýslu (Hann var fööur- bróðir Kristins E. Andrés- sonar). Sú upptalning veröur þó langt i frá tæmandi, heidur miklu fremur handahófskennd. Sigriður og Niels á Grims- stööum áttu 7 börn sem upp komust. Þau voru Guðný, Marta, Hallgrimur, Sesselja, Sveinn, Haraldur og Þuriöur. Verða nú taldir upp afkomendur þeirra aö nokkru: A. Guðný Kristin var gift Guöna Jónssyni á Valshamri I Mýrasýslu. Meðal þeirra barna var Niels Guðnason sem giftur var frænku sinni Soffiu Hall- grimsdóttur, og verður nánari grein gerö fyrir afkomendum þeirra hér á eftir. B. Marta Maria Nielsdóttir var tvigift. Fyrri maður hennar var Jón Oddsson bóndi á Alfta- nesi á Mýrum. Meðal þeirra barna voru: 1. Olöf Jónsdóttir, kona Jó- hanns Armanns Jónssonar gull- smiös og togaraútgerðarmanns i Reykjavik. Þeirra börn voru svo aftur Kjartan Jóhannsson héraðsiæknir i Kópavogi og lengi þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, Sigriður Jóhanns- dóttir, gift Arna Fannberg for- stjóra Kúlulegusölunnar (syni Jóns rika Fannbergs) og Halla Jóhannsdóttir, gift Karli B. Guðmundssyni viðskiptafræð- ingi i Landsbankanum. 2. Soffia Jónsdóttir, kona Ara ó. Thorlaciusar endurskoöanda (m.a. Eimskips, Reykjavikur- borgar og Loftleiða um langt árabil). 3. Oddur Jónsson forstjóri Mjólkurfélags Reykjavíkur. Hans börn eru m .a. Jón Oddsson lögfræðingur og Marta Maria, kona Þórðar Magnússonar að- stoðarforstjóra Eimskipa- félagsins. 4. Svava Jónsdóttir, gift Helga Asgeirssyni (bróður Bjarna ráðherra). Þeirra dóttir er Ragnheiöur Asa, kona Arna Waag náttúrufræðings. Seinni maður Mörtu Mariu Nielsdóttur var Haraldur Bjarnason. C. Hallgrimur Nielsson bóndi á Grimsstöðum á Mýrum. Hans börn m.a.: 1. Helgi Hallgrimsson bókari i Reykjavik. Meöal barna hans eru dr. Hallgrimur Helgason tónskáld, Siguröur Helgason forstjóri Flugleiða, Gunnar Helgason lögfræðingur Flug- leiða, um skeið i stjórn félagsins og stjórnarmaður i Arnarflugi og Astriöur Helgason kona Hans G. Andersen ambassadors og þjóðréttarfræöings. Sonur Astriöar og Hans er Gunnar Andersen háttsettur hjá Flug- leiöum í Bandarikjunum. 2. Soffia Hallgrimsdóttir, gift fyrrnefndum Nielsi Guönasyni frænda sinum'. Meöal barna þeirra eru Indriöi Nielsson, um- svjfamikiil byggingameistari i Reykjavik (faöir Hans Indriöa- sonar forstööumanns hjá Flug- leiðum) og Sigriður Nieisdóttir, kona Guömundar Péturssonar (sem rekur lögfræðiskrifstofu með Axel Einarssyni i Morgun- blaðshúsinu). 3. Sigriður Hallgrimsdóttir, kona Lúðvigs Guðmundsonar, skólastjóra. Þeirra dóttir er Sigriður Steinunn, gift Einari Arnasynilögfræðingi sem situr i varastjórn Flugleiða. D. Sesselja Soffia Nielsdóttir, gift Bjarnþóri Bjarnasyni á Grenjum i Mýrasýslu. Meðal þeirra barna: 1. Sveinn Valfells, einn mesti athafnamaður landsins (Steypustööin, Vinnufatagerðin, frystihús, Flugleiöir og mörg önnurfyrirtæki). Synirhans eru Sveinn Valfells forstjóri Steypu- stöðvarinnar og Agúst Valfells kjarnorkufræöingur, og dóttir hans er Sigriður Valfells pró- fessor i Bandarikjunum. 2. Jón Valfellsstórkaupmaður i Reykjavik. 3. Asgeir Bjarnþórsson list- málari. 4. Marta Bjarnþórsdóttir, gift Friðriki Jónssyni (annar Sturlubræðra). Sonur hennar ef dr. Sturla Friðriksson erfða- fræðingur. E. Sveinn Hallgrímsson bóndi á Lambastöðum á Mýrum. Hans sonur var Jón Aðalsteinn Sveinsson, faðir Sveins Afral- steinsonur deiidarstjóra i viö- skiptaráðuneytinu. F. Haraldur Nielsson, pró- fessor i guöfræði, mikill áhrifa-' maður á sinni tið. Meðal barna hans: 1. Soffia Emelia Haralds- dóttir, gift Sveini M. Sveinssyni, eiganda timburverslunarinnar Völundar. Börn þeirra Sveinn K. Sveinsson verkfræðingur, forstjóri Völundar og formaður Rannsóknastofnunar bygginga- iðnaðarins, Haraldur Sveinsson lögfræðingur (I stjórn Arvak- urs) og Bergljót Sveinsdóttir, gift sr. Braga Benediktssyni i Hafnarfirði. 2. - Elin Haralz, gift Erling Ellingsen verkfræðingi, fram- kvæmdastjóra Tryggingar h.f. Þeirra sonur Haraldur Elling- sen viðskiptafræðingur. 3V Jónas Haralz bankastjóri Landsbankans. 4* Bergljót Haralz, gift Bjarna Rafnar yfirlækni á Akureyri. G. Þuríöur Nieisdóttir, kona Páls Halldórssonar skólastjóra Stýrimannaskólans I Reykja- vik. Þeirra börn m.a.: 1. Niels Dungal prófessor i læknisfræði. Hans börn læknarnir Leifur og Haraldur Dungal og íris Dungal, kona Kristins Olsens stjórnarfor- manns i Flugleiðum. 2. Jón Dungal bóndi. 3. Baldvin Dungalkaupmaður i Pennanum. Hans börn Gunnar Dungal forstjóri Pennans, og Sigrún Dungal, kona Sveins Björnssonar sendiráðunauts. 4. Friðrik Dungal kaupmaður i Remediu. P.s. Þakka auglýsingar fyrir ættfræðiþátt Þjóðviljans i Visi, Dagblaöinu og Fólki. P.s. Allar ábendingar vel þegnar. —GFr. Sveinn B. Valfells forstjóri Sveinn S. Valfells Sveinn forstjóri Aöalsteinsson Steypustöövarinnar deildarstjóri Sveinn K. Sveinsson forstjóri Völundar Jónas Haralz bankastjóri Haraldur Sveinsson framkvæmdastjóri Morgunbl. Siguröur Helgason forstjóri Flugleiöa Kjartan J. Jóhannsson fyrrv. þingmaöur Jón Oddsson lögfræöingur Hans G. Andersen ambassador Kristinn Ólsen Dr. Sturla stjórnarformaöur Friöriksson Flugleiöa erföafræðingur erlendar bækur Minnesinger in Bildern der Manessischen Liederhandschrift mit Erlauter- ungen herausgegeben von Walter Koschorreck. Insel Verlag 1979 Handritiö sem er notaö til þess- arar útgáfu, er mesta safn þýskra ljóöa frá 12. og 13. öld. Ljóðin sem ganga undir heitinu Minnelieder eru veraldleg, ástarkvæði, sem fjalla einnig um trú og stjórnmál á sinn hátt. Handritiö er frá 14. öld og er frá Zurich. Það er talið likíegt að uppruni hdr. sé safn Rudrigers Manesse og sonar hans, en þeir feðgar viöuðu að sér miklu safni veraldlegra kvæða. I þessu kveri hefur veriö valiö úr „Codex Manesse”, einkum með auga yfir myndskreytingu handritsins og einnig innihaldi ljóðanna. Héreru ljóð eftir Hinrik keisara VI, Friedrich von Haus- en, Hartmann von Aue, Walther von der Vogelwide, Wolfram von Eschenbach ofl. ofi. . Cult of the Sun. Myth and Magic in Ancient Egypt. Rosalie David. JM. Dent & Sons 1980. Dr. Rosalie David er kunn meðal allra þeirra, sem stunda egyptólógiu. Hún hefur ritaö nokkrar bækur um trúarbrögð og trúarsíði Forn-Egypta og er meðal sérfróöustu fræöimanna um múmiur. I þessari bók fjallar hún um þau öfl, sem mótuðu trúarbrögö og siði Egypta til forna, sólina og fljótið Nil. NIl var dýrkuö sem lif- gjafi, sá kraftur sem veitti upp- skeruna og allt lif þjóðarinnar byggðistá og sólin, sem gæddi Nil krafti sinum. Höfundurinn sýmr fram á á hvern hátt goðsögurnar, fjölkynngin og trúin réðu lifi þjóðar og mótuðu samfélagið og hvernig trúin á sólina tengdist trúnni á son sólarinnar, faraó. Þetta viðamikla trúarkerfi mótaöi alla sögu þjóðarinnar, at- vinnuhætti, venjur og siði. David rekur þróun hugmynd- anna um tengsl faraós og guð- anna, faraó er oröinn rikisguö á dögum 18. ættarinnar og siðan kemur Akhnaton með kenningar sinar um eingyöiö. Saga Egypta er glöggt dæmi um hvernig guð- veldið er nátengt atvinnuhátt- unum I smáu og stóru og bann- helgin nauösynlegasti þátturinn I allri þeirri þróunarsögu, sem kveikjan aö öllu þvi sem gengur undir nafninu „menning”. Bók þessi er bæði ætluð fræöi- mönnum i egyptólógiu og einnig öllum almenningi. Höfundurinn skrifar skýrt og auðskiljanlega um þessi efni. Tuttugu og fjórar svart/hvitar mynd- siöurfylgja auk uppdrátta. Bóka- skrá fylgir. The Missing Years A Novel by Waltcr Laqueur. Weidenfeld and Nicolson 1980. Höfundurinn er sagnfræðingur, hefur sett saman ritin: Weimar og Guerrilla and Terrorism. Þetta er fyrsta skáldsaga hans. Sögusviöið er Þýskaland, Sviss og Bandarikin. Sagan gerist fyrir styrjöldina, á striðsárunum og eftir styrjöldina. Persónurnar eru þýsk gyðingafjölskylda, og er saga hennar rakin allt aftur til aldamóta. Aðalpersónan elst upp i kyrrlátri þýskri smáborg fyrir fyrri heimsstyrjöldina. Kynþátta fordómar eru þar óþekkt fyrir- brigði. Aöalpersónan Richard Lasson er kallaður I herinn I heimsstyrjöldinni 1914—18. Eftir striðið heldur hann áfram námi og gerist læknir og verður með timanum meðal fremstu lækna Þýskalands Siðan hefjast iskyggilegir atburðir, verðmæta- mat siöaðrar borgarastéttar gufar upp og göturennuöflin hreykjast I æðstu sætum, nasista- skrillinn nær völdum. Höfundur- inn rekur þessar breytingar og áhrif þeirra á fjölskyldu og skyld- menni Lassons læknis. Ofsókn- irnar hefjast og siöan styrjöldin. Sögurnar um fjöldamorð og gasofna þykja svo fjarstæðu- kenndar I fyrstu að menn neita að taka þær trúanlegar. Smátt og smátt vitnast sannleikurinn, fyrst fáum, siðar æ fleirum. Lasson veröur vitni að útþurrkun þýskra gyðinga og jafnframt að hruni Þriðja rikisins. Höfundurinn hefur rannsakað gyðingaofsóknirnar i Þýskalandi og kynnst sér forsendur þeirra og aðdraganda og framkvæmdina. Hann skrifar þessa skáldsögu með hliðsjón af staðreyndum, svo aö sagan verður að vissu leyti heimilda-skáldsaga. Höfundi tekst aö skila efninu ýkjulausu og i hófsamlegri framsetningu, sem gerir söguna enn sterkari. Bókin er ágætiega skrifuð.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.