Þjóðviljinn - 21.03.1981, Blaðsíða 5
Helgin 21.—22. mars 1981. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Orion-flugvél kastar niður létt-
vigtar-tundurskeyti, sem ætlað er
að granda kafbáti.
greindar þrjár sem virðast liggja
i augum uppi:
1 fyrsta lagi eru herstöðvarnar
á Miðnesheiði og á Stokksnesi svo
nátengdar kafbátahernaði og
árásarkerfi bandariska flotans á
Norðaustur-Atlantshafi að i
hernaðarátökum hlytu Sovét-
menn að leggja alla áherslu á að
eyðileggja aðstöðuna á íslandi.
i öðru lagi er deginum ljósara
að lifsafkomu þjóðarinnar er
stöðug hætta búin af gifurlegum
umsvifum kjarnorkuknúinna og
atómvopnaðra kafbáta, skipa og
flugvéla við, á og i kringum land-
ið. Kjarnorkuslys vofir yfir þótt
ekki séu svokallaöir striðstimar
og afleiðingarnar á fiskistofna
landsins gætu orðið geigvænleg-
ar.
t þriðja lagi dylst engum að
þjóðin hefur verið dregin inn I
kjarnorkuvopnakapphiaup risa-
veldanna langt umfram það sem
henni hefur verið skýrt frá af
ráðamönnum. Enginn hefur held-
ur spurt islenskan almenning að
þvi hvort hann kæri sig um það að
herstöðin á Miðnesheiði gegni
lykilhlutverki i þvi árásarkerfi
sem bandariski flotinn hefur
byggt upp á hafsvæðinu kringum
landið með þeim hættum sem það
hefur i för með sér fyrir þjóðina.
Blekkingin er enn helsta vopn
NATÓ-sinna á tslandi.
Einar Karl.
notað og nýU
Örugg aðferð
til þess að vera
100% vinstrisinnaður
Hvað er það i daglegu li'fi okkar
sem okkur finnst vera til hægri
eða til vinstri, ihald eða frjáls-
lynt? Hvað er það sem getur vis-
að okkur veginn i þeim efnum á
þessum siðustu og verstu timum?
Það er ekkert vandamál fyrir
gamlingja eins og mig. Ég er bú-
inn að lesa Marx og Engels og ég
hef lesið allar ræður Svavars
Gestssonar. En hvaða ráðlegg-
ingar ér hægt að veita ungum
manni um pólitiska tilveru hlut-
anna? Tökum nokkur dæmi. Al-
skegg (á karlmönnum) er til
vinstri. Yfirvararskegg er aftur á
móti til hægri.
Flatbotna skór eru til vinstri.
Hælaháirskór til hægri. Flauelis-
buxur og peysa eru til vinstri i
partii eftir kl. 10. Almennt má
segja að þröng föt sem koma inn i
mittið séu til hægri. 011 föt sem
eru of stór á þann sem ber þau eru
tilvinstri. Það sama má segja um
sjöl.
Pipaner frekar til vinstri. Si'ga-
rettan er hlutlaus. Neftóbakið er
framsóknarlegt. Vindillinn verð-
ur til hægri þegar hann er kominn
upp i ákveðna stærð.
Þiðhaldið kannski að maturinn
sé ópólitiskur. En það er mikill
misskilningur. T.d. er hamborg-
arinn frekar til hægri, en pizzan
er fremur til vinstri. Heit pylsa
með öllu er hlutlaus þvi hún er
þjóðarréttur.
En af hverju stafar þessi mis-
munur á hamborgara og pizzu?
Af þvi að annar rétturinn er ætt-
aður að vestan og hinn að
sunnan? Ég hugsa nú frekar að
þeir séu báðir hingað komnir að
vestan. t báðum þessum réttum
er laukur og tómatar, en i pizz
unni er tómaturinn i mauki en i
hamborgaranum i' sósu. Eigum
við þá ekki að segja að tómat-
sósan sé til hægri en tómatmauk
til vinstri.
Sama hráefnið getur ýmist ver-
ið til vinstri eða til hægri allt eftir
þvi hvernig það er matreitt.
Baunaréttur sem er matreiddur
eftir grasafæðuuppskrift hefur
eitthvað vinstrisinnað yfir sér en
aftur á móti hafa „baked beans”
á sér hægrisinnað yfirbragð.
Þama sjáum við hægrisinnuðein-
kenni tómatsósunnar i hnotskurn.
Snúum okkur nú að nokkrum aug-
ljósum staðreyndum.
Létt vin var vinstrisinnað þang-
að til það var leyft á helstu grill-
stöðum bæjarins.
Sjónvarpið er hægrisinnaðra en
útvarpið.
Billinn til hægri, hjólið til
vinstri.
En gamall bill, einkum ef hann
er óttótlegur i útliti, er vinstri-
sinnaðri en nýr bill.
Flugvélin er hægrisinnaðri en
báturinn.
Húsgögnin eru líka pólitisk.
Furuhúsgögn eru vinstrisinnaðri
en palisanderhúsgögn.
Ég fer aldrei ofan af þvi að
sófasett er hægrisinnað, sérstak-
lega ef það snýr að sjónvarpinu.
En ef hægt er að breyta þvi i rúm
verður það kannski til vinstri.
Dr. Gottskálk
Gottskálksson
skrifar
Timburgólf er lengra til vinstri
en gólfteppið.
Innbundnir bókaflokkar hafa
eitthvað hægrisinnað yfir sér.
Aftur á móti eru óinnbundnar
bækur i ýmsum litum og stærðum
svolitið vinstrisinnaðar, ég tala
nú ekki um ef þeim er staflað upp
lóðrétt.
Gömul hús voru til vinstri
þangað til þau fóru að hækka i
verði svo um munaði. En þaö er
öruggt að timbur og bárujárn eru
vinstrisinnaðri en steinsteypa.
Það er oröið erfitt að greina á
milli hins ihaldssama og hins
framfarasinnaða i málaralist.
Það er sennilega heilladrýgst að
hafa rammann sem viðmiðun. Ef
ramminn er gulllitaður er verkiö
áreiðanlega til hægri. Ef hann er
úr alúmini'um eða úr ólituðu tré er
verkið kannski til vinstri.
Veggfóður er vinstrisinnaðra
en oliumálning, en hvað um
vatnsmálningu?
1 tónlist eru linurnar skarpari.
Gitarinn er vinstrisinnaðri en
pianóið.
Diskó er til hægri. Djass er til
vinstri.
En hvernig eigum viö að átta
okkur á þessu öllu saman?
Er það sem er alþýðulegt til
vinstri? Ekki endilega. Vörusýn-
ingar og söngvasamkeppni eru til
hægri.
Er kannski það sem ungling-
arnir sækjast eftir til vinstri?
Ekki heldur. Travoltaæðið og
kúluspil eru til hægri.
Kannski er það til hægri sem er
dýrara og smartara en þaö sem
nágranninn á? Og til vinstri þaö
sem hefur ekki verðmerki hang-
andi utan á sér, en er jafnframt
„spes” af þvi það er óþekkt eða
ekki viðurkennt.
0, þessi eilifa löngun til þess aö
vera öðruvisi en aörir....
Lifi söngvasamkeppni sjón-
varpsins!
FIÖLEIGN h.f.
Símanúmerið er 28622.
Opið virka daga kl. 2-6 e.h.
Tilvaldar
fermingagjafir
v\UÓNtf/tK
Skemmtari
fyrir börn og unglinga
□ Innbyggt útvarp og segulband
□ Stórir og hljómgóðir hátalarar
□ Átta trommutaktar, með hraðastillingu
□ Tónborð með tveimur áttundum
□ Hljóðnemi (míkrófónn) o.fl.
□ Verð kr. 4924,- Afborgunarkjör
Ferðaviðtæki
Steríótæki meó segulbandi
5HÍ1hEI
Verð kr. 2337,- Verð kr. 2166,-
□ Rafmagn og rafhlöður
□ FM-bylgja, miðbylgja, langbylgja og stutt-
bylgja.
Skipholti 9,
sími 10278