Þjóðviljinn - 21.03.1981, Blaðsíða 26

Þjóðviljinn - 21.03.1981, Blaðsíða 26
26 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 21,—22. mars 1981. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagsfélag Selfoss og nágrennis. Félagsfundur veröur mánudaginn 23. mars kl. 20.30 i Kirkjuvegi 7, Sel- fossi. Dagskrá: 1) Kynnt verða drög að ályktun stjórnar kjördæmisráðs um atvinnu- ög iðnaðarmál i Suðurlandskjördæmi. 2) Félagsstarfið: Starfsáætlun fyrir april og mai, árshátið og 1. mai. 3) Hjalti Kristgeirsson flytur hugleiðingu um stefnumið sósialisma. Kaffiveitingar. Stjórnin Alþýðubandalagið Akureyri Opið hús föstudaginn 20. mars kl. 20.00. i Lárusarhúsi. Framlögum til minningargjafar um Jón Ingimarsson verður veitt viðtaka. Samherjar Jóns mæla nokkur orð i minningu hans. Kaffiveitingar. Stjórnin.' VIÐT ALSTÍM AR þingmanna og borgarfulltrúa Laugardaginn 21. mars milli kl. 10 og 12 verða til viðtals fyrir borgarbúa á Grettisgötu 3 Adda Bára Sigfúsdóttir borgar- fulltrúi og Sigurður Harðarson formaður skipulagsnefndar. Eru borgarbúar hvattir til að nota sér þessa viðtalstima. Stjórn ABR Herstöövaandstæöingar OPIÐ HÚS mánudagskvöldið 23. mars. Ingibjörg Ilaraidsdóttirles úr bókinni Rancas — Þorp á heljarþröm Umræður, kaffi Samtök hersvöövaandstæðinga Skólavörðustíg 1A. Simi 17966. • Blikkiðjan Asgaröi 7, Garöabæ onnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboö SÍMI53468 Húsnæöi Framhald af bls. 11. — Já, öll opinber aðstoö er veitt i gegnum séribúðakerfið. Undan- farna áratugi hefur samfélagið veitt þeim sem kaupa eða byggja aðstoð i gegnum óverðtryggð lán, verulegan skattaafslátt og aðra fyrirgreiðslu. Skv. upplýsingum frá Þjóöhagsstofnun hafa menn ekki borgað nema um 40% af kostnaðarverði húsnæðisins. Hitt hefur verðbólgan borgaö en hún er auðvitað ekki einhver góður maður úti i bæ sem borgar fyrir menn heldur þjóöfélagið i heild. — Meö hvaöa fé hefur afgang- urinn veriö borgaöur? — Þaö er fyrst og fremst fé úr iifeyrissjóðunum. Þeir hafa bæöi fjarmagnað Byggingasjóð rikis- ins og lánaö beint. Einnig hafa ýmis launatengd gjöld, skyldu- sparnaður o.fl. veriö tekin af al- menningi og sett i þennan sjóð. A þennan hátt hafa m.a. leigjendur tekiö þátt i að borga fyrir húseig- endur. Þeir borga öll þessi gjöld en hafa aldrei fengiö neitt i staö- inn. Og þvi stærra sem menn hafa byggt þvi meiri samfélagslega aöstoð hafa þeir fengið. Leigjend- ur hafa hins vegar ekki einu sinni fengið húsaleiguria frádráttar- bæra til skatts. Sá sem hefur valiö sér aö vera leigjandi hefur afsal- að sér allri aðstoð I húsnæöismál- um og þeir sem eru neyddir til að vera leigjendur eiga náttúrlega engra úrkosta völ. Það er þvi ekki að furða þó aö allur fjöldinn hafi valið þá leið að eignast sjálfir ibúöina, sem þeir búa I, þvi að að- eins þar var samfélagsaðstoð i boði. Hitt er svo annað mál hvaða þjóöhagslega hagkvæmni þetta kerfi hefur haft i för með sér. Þar komum við aö spurningunni um nýtingu fjármagns og áhrif á verðbólguþróun og almennt efna- hagslif. — Nú er komin heimild til aö lána til leiguibúða á vegum sveit- arfélaga. Helduröu aö hún verði nýtt? — Það stendur upp á sveitar- félögin aö nýta hana. Einnig voru lögin sem sett voru i fyrra þar sem byggingasjóður verkalýðs- hreyfingarinnar var efldur til bóta. Þetta kerfi hefur allt verið sofandi. A árunum 1974—1979 var engri nýrri ibúð úthlutað i verka- mannabústaöakerfinu og borgin hefur enga nýja leiguibúð byggt siðan 1974 ef frá eru taldar ibúðir fyrir aldraða. Þetta er m.a. ástæðan fyrir erfiðu ástandi i hús- næðismálum núna. En það stend- ur vonandi til bóta með þeim ráð- stöfunum sem nú hafa verið gerð- ar og áöur voru nefndar. Auk þess hefur skattaafsláttur vegna Ibúðakaupa verið takmarkaöur, lán verðtryggö og vextir hækkað- ir. Þetta hefur allt dregið úr þvi aö menn héldu áfram á þessari eignastefnubraut á kostnað ann- arra og húsnæðismálum hefur verið beint meira inn i félags- legan farveg. Við I Leigjenda- samtökunum leggjum höfuð- áherslu á aö húsnæði sé frum- nauðsyn en ekki fjárfestingarat- riöi. —GFr Radióbaujur i gúmbjörgunarbáta: Teljum okkur hafa verið setta hjá — segja forráðamenn Rafis Sú ákvörðun samgöngumála- ráöherra að veita undanþágur fyrir LOCAT sendistöövar einar i gúmbjörgunarbáta, þótt þær uppfylli ekki skilyrði reglu- gerðar þar um, virðist ætla að draga dilk á eftir sér. Fyrir- tækið Rafis, sem er norsk/islenskt fyrirtæki, hefur látið hanna neyðarsendistöö fyrir giimbjörgunarbáta, sem forráðamenn fyrirtækisins segja vera betri en LOCAT stöðina,en samt vilji siglinga- málastjóri ekki viöurkenna þeirra stöð. — Þegar reglugerðin var gefin út létum við hanna stöð með hana i huga, þannig að stöðin uppfyllti öll skilyrði reglugerðarinnar. Við erum nú með slikar stöðvar, en siglinga- málastjóri hefur ekki viljað samþykkja okkar stöðvar og hefur ekki lokið prófunum á þeim, þótt hannsé búinn að hafa stöðvar frá okkur undir höndum i tæpa tvo mánuði, sagði Geir Svavarsson hjá Rafis i samtali við Þjóðviljann i gær. Hann sagðist vera undrandi á þeirri ákvörðun ráðherra að gefa undanþágu fyrir eina stöð sem ekki uppfyllir skilyrði reglugerðarinnar, þegar til væri stöð sem gerði það en lægi óprófuð hjá siglingamálastjóra. Geir sagði að siglingamála- stjóri hefði að visu prófað eina stöð frá þeim en framkvæmt hana rangt og niðurstaðan þvi röng og nú stæði á þvi að ný prófun og rétt framkvæmd yrði gerð. Hjálmar Bárðarson siglinga- málastjóri sagði að hann hefði aðeins orð framleiðendanna fyrir ágæti stöðvarinnar. Sú eina prófun sem Siglingamála- stofnunhefði látið gera á Jotron stöðinni hefði valdið von- brigðum, stööin drægi svo stutt. Sent hefði verið út á tiðni 122,55, sem heföi verið sú tiðni sem stöðinsendi út á, hann hefði ekki fengið stöð frá Jotron sem sendi útá 121,5iSagðist hannbiða eftir slikri stöð. —S.dór v V ; % gs v, ■$\v C« \AS°' '‘fVf Bíllinn seldist sama dag Sigfús Þórsson hringdi: Ég vildi sérstaklega þakka ykkur á Visi fyrir stórgóða þjón- ustu i smáauglýsingunum, eftir að þiö tókuð upp það kerfi að birta mætti myndir með auglýsingun- um, ef viðkomandi kemur með það sem auglýsa skal til ykkar. Ég tel að alltof sjaldan sé það gert að þakka það sem vel er unn- iðog þvi óska ég eftir að eftirfar- andi lýsing birtist i blaöinu. Ég haföi mikið reynt að selja — -oiu \ v\ Bronco bil, sem ég fekk upp i VVV 130.3 annan bíl er ég seldi. Mér hafði veriö sagt aö aiginn vandi væri að losna við slikan bil i öllum snjónum, sem kom yfir okkur og tók þvi bilinn uppl fulhir vonar- um skjóta sölu. Ekki gekk sala þótt margir tæku aö sér sölu bils- ins, og ég auglýsti stift I hálfan mánuð. Si"öan datt mér I hug að augiýsa I smáauglýsingum Visis, kom meö bilinn niður eftir, þar sem hann var myndaður. Sama kvöld og auglýsingin birtist, var billinn seldur. Smáauglýsing í Vísi er mynda(r) auglýsing sama síminn ei86611 verð og án mynda T*l Sölu \ VW 1303 árg\ ísfm,a,kkek^ r 7 og utn ■ <*Mir hlutir. \ i, s°lu eru kerriir' , íeJ8um 4ra hóifa u ™ Æa”'™ ?27ss

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.