Þjóðviljinn - 21.03.1981, Síða 13

Þjóðviljinn - 21.03.1981, Síða 13
Helgin 21,—22. mars 1981. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 tónbálkur Þrumugóður OTELLO Það ótrúlega skeði sl. f immtudagskvöld, að óperan Otello eftir Verdi var flutt á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinn- ar og það svo glæsilega, að það skal alltaf þakkað og munað. Auðvitað er maður alltaf hálfkviðinn að heyra óperu á tónleik- um, að ekki sé talað um Verdi, sem stílar allt sitt upp á leiksviðið, þrátt fyrir músíksnilldina. En sá kvíði var sannarlega óþarfur að þessu sinni og verður þetta að teljast til stórsigra íslenskrar söng- listar og meiriháttar afreka hl jómsveitarinn- ar. Auövitað voru ýmsir smáhnökrar á þessu. Hvernig má annað vera » þriggja tima tónverki, sem er ein erfiðasta ópera allra tíma, i söng og leik? En þeir hnökrar skiptu akkúrat engu máli, enda varla greinan- legir, nema þeim sem hafði nóturnar sjálfar fyrir augunum, og leitaði þá uppi. 1 titilhlutverkiö hafði verið fenginn tenór frá Mexico, Pedro Verginen, sem raunar er fæddur á Spáni, en er alheimsstjarna, Umsjón Leifur Þórarinsson skilst manni. Maður var svoldið i vafa um hann I byrjun, fannst hann óþarflega spenntur. Og kannski svolitið hás? En það hvarf fljótlega. Og I lokalaginu ,,Niun mi tema” var hann búinn að ná slikum tökum á manni, að maður var sem bergnuminn og satt að segja skælandi einsog krakki. En það var Guðmundur Jóns- son, sem mér fannst vera hetja kvöldsins. Hann söng Jago, þetta undarlega og margslungna, að ekki sé talað um þrælerfiða, hlutverk af sliku öryggi, og óbilandi músikþreki, að ég hef varla orðið eins undrandi yfir neinu I seinni tið. Er maöur þó oft hissa þessa dagana og oft ekki aö ástæðu- lausu. Bara ef maður hefði nú fengið að heyra og sjá Guðmund i þessu á leiksviði, ja drottinn minn dýri. Sieglinde Kahman var lika ótrúlega örugg sem Desde- móna, tilfinningarik og meö rödd, sem var eitthvað allt ann- að en ég hef heyrt frá henni áður. Hver skyldi trúa að þetta væri sú sama og söng R. Strausssöngvana fyrr i vetur? Sieglinde Kahman sannaði alla- vega mér, þarna i fyrrakvöld, að hún er óperusöngkona i stóra stilnum. Yfirleitt voru heimamenn ótrúlega góðir i stærri og smærri hlutverkum. Sigurður Björnsson bjartur og klár I Cassio, Anna Júliana Sveins- dóttir ágætis Emilia og Kristinn Hallsson, virðulegur Lodovico. Már Magnússon og Kristinn Sigurmundsson voru i minni hlutverkum og stóðu sig býsna vel. Sérstaklega var ég undrandi yfir ýmsu fallegu hjá þeim siðarnefnda, sem ég hafði aldrei heyrt i áður. Hann er með OTELLO. AttoPrimo. Giuseppe Verdi. Flauti I. II. Ottavino e Flauto III L’esterno del Castello. l'nataverna con pergolato. Gli spaldi nel fondo e il mare. E sera. Lampi, tuor.i, uragano. Allegro agitato. <J=76. jr g S iíl Viole. Violoncelli. Contrabbassi. Allegro agitato. J=76. mikla og blæfagra bassbaritón- rödd, og á vonandi eftir að þró- ast upp I stórsöngvara. Söng- sveitin Filharmónia var miklu betri en ég man eftir lengi, og er kórhlutverkið I Otello þó enginn barnaleikur. Og mikið voru stúlkurnar úr Garöabænum elskulegar, þá stuttu stund sem þær voru á sviðinu. Og öllu þessu, einsöngvurum, kórum og hljómsveit, stjórnaöi Gilbert Levine af sliku næmi og skörungskap, að ég er viss um að þetta er besti maður. Béla Bartók 100 ára Mesta tónskáld Ungverja i þessari öld, og raunar eitt mesta tónskáld allrar Evrópu, Béla Bartók, var fæddur 25. mars 1881. Hann á semsé 100 ára afmæli á miðvikudaginn kemur. Ekki veit ég hvernig verður haldið upp á það i öðrum löndun eða i föðurlandi hans Ungverjalandi, en hér á tslandi hefur i það minnsta ekki heyrst uni neinn sérstakan undir- búning. Það er nú kannski ekki nema von, þvi mörgu er að sinna og kalt I veðri. Og þó eru þeir ófáir pianónemendurnir, sem ættu að minnast hans með þakklæti, þvi fáir hafa samið jafn skemmtilega fyrir pianó- byrjendur og hann: Mikrokos- mos i 0 bókum og ógrynni barnalaga. Bartók var sjálfur pianisti i stórum stil og hélt tónleika sem slikur út um allar jarðir. Barnamúsikina samdi hann fyrir nemendur sina, þvi hann þurfti lengi að vinna fyrir sér og sinum sem kennari og kvartaði aldrei. Það er hinsvegar langt frá að hans mestuog bestu tónverk séu pianóverk og eiginlega ekki nema fjögur; Sónatan fyrir tvö pianó og slagverk og pianókonsertarnir þrir, sem geta talist i þeim flokki. En þau eru, í það minnsta sónatan og annar konsertinn, meðal þess magnaðasta i tónbókmenntum aldarinnar. Ég held að frum- flutningur sónótunnar hér á landi (Gisli Magnússon, Halldór Haraldsson, Reynir Sigurðsson og Oddur Bjömsson) á lista- hátiðfyrirþrem árum, gleymist þeim seint sem á hlýddu, i það minnsta man ég eftir fáu öðru frá þeim dögum, og var þó ef- laust margt gott þar með i leið- inni, heimsfrægt og hamingju- þrungið. En annars samdi Bartók svo mikið af tónverkum að það tæki hálfan daginn að telja þau upp. Fyrirutan helstu hljómsveitar- verkin: Konsert fyrir hljóm- sveit, fiðlukonsertinn, pianó- konsertana, og Mandarinann makalausa, sem er ballett, þá eru nú kammerverkin hans lik- lega það sem stendur hjarta minu (og kannski þinu?) næst. Kvartettarnir sex eru áreiöan- lega meðal þess besta sem samið hefur verið af sliku á þessari öld. Vitaskuld eru þeir ekki allir jafnir að gæðum, en hver þeirra markar ákveðið og þýðingarmikið spor á þróunar- ferli þessa meistara. Sumir þeirra hafa verið fluttir hér á Béla Bartók áður en hann flýði til Ameríku. landi við mikla hrifningu, og man eg sérstaklega eftir þeim sjötta með Guðnýju konsert- meistara ofl., fyrir 2—3 árum á Háskólatónleikum. A slikum tónleikum voru Andstæður fyrir fiðlu, klarinett og pianó einnig fluttar, að mig minnir i hitti- fyrra. Þar voru Mark Reedman, Sigurður I. Snorrason og Gisli Magnússon að verki, og þurftu svo sannarlega ekki að skamm- ast si'n fyrir það. En mikið hefði nú verið gaman ef td. okkar ágæta sin- fóniuhljómsveit hefði munað eftirBartók i vetur. Auðvitað á hún fullt i fangi með að gleyma islensku tónskáldunum. En Bartók samdi td. svitur i eins- konar ungverskum vinarstil, sætar og huggulegar (til að þéna), sem vel hefði mátt koma fyrirá einhverju Vinarkvöldinu. Það hefði meira að segja verið hægt að láta spila eftir hann rapsódiu iNaustinu á undan. En það er nú aldrei að vita hvað skeður næsta haust. Hvernig væri að reyna við Músik fyrir strengi, slagverk og celsetu, eða kannski herða sig upp i Manda- rinann? Nei, hann er nú vist ein- um of magalaus. Helst samt ekki rúmensku dansana, það væri svo aumingjalegt. Eins og áður sagði var Béla Bartók fæddur 25. mars 1881. ‘I Foreldrar hans voru efnaðir smáborgarar i Nagy-Szentmik- lós i' Ungverjalandi og gátu þvi komið honum i músiknám hjá bestu kennurum, strax og hann hafði lyst og þroska. Þó Bartók yrðisnemma þekktur, bæði sem pianisti og tónskáld (gerði skandal með grini að keisara- söngaum i' Kossuthsinfóniunni 1903), þá efnaðist hann aldrei jafnvel á músikinni og foreldr- arnir á verslun. En hann komst samt sæmilega af, þar til hann varð að flýja Evrópu undan bölvuðum nasistunum. Sú saga er svolitiö skrýtin, þvi Göbbels lét ekki set ja hann á bannlista i fyrstu atrennu* Bartók var, þrátt fyrir „módernisma”, tal- inn „þjóðlegt” tónskáld og stolt Ungverja, sem bjuggu við viður- kenndan fasisma. Þessu mót- mælti Bartók kröftuglega, og fordæmdi nasista opinberlega, fylkti sér i raðir gyðingatón- skálda, sem höfðu verið „strikuð út”, og þar með þýddi nú ekki mikið fyrir hann að láta sjá sig á götunum. Þeir sem kynntust Bartók persónulega, segja allir að hann hafi verið einstaklega fágaður, einlægur og útlitsfagur maður, en með eindæmum fastur fyrir ef á skoðanir hans og réttlætis- kennd var ráðist. Þegar striðið hófst, 1939, var Bartók staddur i Bandarikjunum. Þar bjó hann i sárri f átækt og lést úr næringar- skorti 26. september 1945. Amerlska tónskáldafélagið kostaði jarðarförina.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.